Alþýðublaðið - 12.01.1990, Page 1
Dómsmálaráduneytid og ríkisstjórnin:
DOMSTOLARIUTVEGS-
BANKAHÚSIÐ
Úttekt langt komin. Ríkið með forkaupsrétt. Fasteigna-
matsuerð ná um 182 milljónir króna.
Dómsmálaráduneytið
er þessa dagana með til
skoðunar þann mögu-
leika að Ctvegsbanka-
húsið við Lækjartorg
verði keypt og það nýtt
undir starfsemi Saka-
dóms, Borgardóms og
þess hluta Borgarfógeta-
embættisins sem fer nú
með dómsmál. Athugun
þessi er í tengslum við
hin nýju lög um aðskiln-
að dómsvalds og um-
boðsvalds í héraði og
hefur sérstök úttekt á
húsnæðinu farið fram.
Ef af verður yrði við
Lækjartorgið sérstakt
dómshús sem opna
myndi formlega 1992.
Samkvæmt heimildum
Alþýðublaðsins kom þessi
hugmynd fljótlega upp á yf-
irborðið eftir að samningur
ríkisins um sölu á Útvegs-
banka var undirritaður í
júní síðastliðnum. Aður
hafði dómsmálaráðuneytið
fengið úthlutaða lóö undir
dómshús í nýja miðbæn-
um, en eftir því sem best
verður séð er það talinn
■betri kostur að kaupa Út-
vegsbankahúsið undir
dómshús. Fyrir liggur að of-
angreindir dómstólar búa
við mikinn húsnæðisskort.
Ekki mun vera lengur inn í
myndinni að kaupa húsiö
undir starfsemi Stjórnar-
ráðsins.
Samkvæmt heimildum
Alþýðublaðsins er mál
þetta mjög langt komið og
nánast í höfn. 1 kaupsamn-
ingnum áðurnefnda er
ákvæði um forkaupsrétt
ríkisins á þeim fasteignum
Útvegsbankans sem ís-
landsbanki kemur ekki til
með aö nýta sér og á það
ákvæöi fyrst og fremst við
Útvegsbankahúsið við
Lækjartorg.
I desember síðastliðnum
var fasteignamat hússins
viö Lækjartorg um 98 millj-
ónir króna og mat lóöar-
innar samtals um 82 millj-
ónir og yrði kaupverðiö þá
míðað viö janúarverölag
byggingarvísitölu um 182
milljónir króna. Þetta er tal-
ið of gott verð til aö ríkiö
sleppi forkaupsrétti sínum,
en gildistími hans er út
þetta ár. Ákvæði þetta réði
um leið úrslitum í samnin-
gaumleitununum á sínum
tíma gagnvart þeim sem á
móti samningnum voru.
Félagsmálaráðherra heimsótti Stokkseyri og Eyrarbakka:
Rikið veiti 75 milliénum
i byggingu siévarnnrgarða
Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra heim-
sótti í gær Stokkseyri og
Eyrarbakka, sem illa urðu
úti í ofsaveðrinu um dag-
inn. I dag mun ráðherra
Tjamargöiuhúsin fíutt
Tvö gömul hús í næsta nágrenni við Alþingi og sem sett hafa svip á bæinn eru að hverfa á braut
á næstunni. Þetta eru græna húsið Tjarnargata 5 og rauðahúsið Tjarnargata 3c. Hvað græna
húsið áhrærir annaðist Innkaupastof nun nýverið útboö á því og var hæstbjöðandi Siguröur Ör-
lygsson myndlistarmaður. Hann mun flytja húsið í Skerjafjörðinn. Rauða húsið verður að lík-
indum flutt i Árbæjarsafn, en þó mun borgarráð ihuga hvort staður finnist fyrir þaö í miðbæn-
um. Á meðfylgjandi mynd E.OI. sést hvar unnið er við að losa græna húsið frá undirstöðum
þess.
leggja fyrir ríkisstjórnina
beiðni um aðstoð frá
hreppsnefnd Stokkseyrar
til að byggja upp nýja sjó-
varnargarða, enda Ijóst að
Viðlagasjóður bætir það
tjón ekki. Búast má við
svipaðri beiðni frá Eyrar-
bakka.
Að sögn Jóhönnu veröur
að hennar mati aö aðstoða
báða bæina, ekki verður hjá
|)ví komist að veita fjármun-
um í það verkefni. ,,Stað-
reyndin er sú að eftir hrun
sjóvarnargarðanna standa
báðir þessir bæir berir fyrir
ágangi sjávar og væri mikiil
ábyrgðarhluti aö bregðast
ekki viö því. Um leið liggur
það fyrir að þau fyrirtæki á
Stokkseyri sem urðu fyrir
miklu tjóni treysta sér vart í
uppbyggingu meðan engir
sjóvarnargarðar eru til varn-
ar. Það liggur fyrir að byggja
þurfi 700—800 metra garöa á
hvorum staö og er áætlaö að
það kosti um 75 milljónir
króna aö koma því brýnasta í
verk, en eitthvað á annað
hundrað milljónir í þaö
heila."
Jóhanna sagði það athygl-
isvert að það kostar um það
bil helmingi lægri upphæð að
byggja upp garðana en sem
nemur því tjóni sem óveðriö
olli, að ætlaö sé.
Á fjárlögum eru aðeins
veittar 2,5 milljónir króna á
hvorn stað til sjóvarnargaröa.
ASÍ og BSRB:
Alger sam-
staða um
markmiðin
Vilja tryggja kaup-
mátt og keyra nidur
raunuexti í komandi
kjarasamningum
Alger samstaða ríkir
milli BSRB og ASÍ um
grundvallaratriði kom-
andi kjarasamninga. Þessi
samtök vilja bæði stefna
að því að tryggja kaup-
máttinn, lækka raunvexti
og vilja auk þess fá ein-
hverjar tryggingar fyrir
því að það sem um verður
samið, standist út samn-
ingstímabilið.
Fulltrúar ASÍ og BSRB áttu
tveggja og hálfrar klukku-
stundar fund í gær og að sögn
Ögmundar Jónassonar ríkti
algert samkomulag um þessi
megingatriði. „Markmiöið er
aö tryggja kaupmáttinn,
keyra niður vextina og fá ein-
hverja tryggingu fyrir því að
það sem samið verður um,
standist."
Vaðrandi það hvort þetta
væri leiðin að þeirri „núll-
lausn" sem mest hefur verið
rætt um aö undanförnu,
sagðist Ögmundur ekki skilja
livað um væri verið að tala í
því sambandi. „Núll er auð-
vitað það sama og ekki
neitt," sagði hann. „Við erum
hins vegar að tala um að
treysta kaupmátt og keyra
niður raunvexti. Það er meira
en ekki neitt og þess vegna
ekki nein „núll-lausn." Við
erum að tala um kjarabætur."
Ögmundur sagði ennfrem-
ur að á fundi launþegasam-
takanna i gær hefðu menn
rætt um það með hvaða hætti
hugsanleg samvinna gæti
orðið milli þessara samtaka í
sambandi við kjarasamn-
itiga, en ekki hefði verið tek-
in nein ákvörðun um það.
Sverrir Hermannsson ásakar formann bankaráös Landsbankans:
„Eyjólfur fer með ósamtindi11
Vona að Sverrir átti sig á þvíað svona vinnubrögð ganga ekki,
segir Eyjólfur K. Sigurjónsson.
Sverrir Hermannsson
Landsbankastjóri hefur
sent frá sér greinargerð í
tilefni af viðtali við Eyjólf
K. Sigurjónsson formann
bankaráðs Landsbankans
í Morgunblaðinu á þriðju-
dag. Sakar Sverrir Her-
mannsson Eyjólf um að
fara með ósannindi og fara
eftir villigötum.
Sverrir segir í fyrsta lagi
rangt hjá Eyjólfi að Sverrir
hafi gert kaupsamning við
forstjóra SÍS 1. september síð-
astliðinn, aðeins hafi verið
undirrituð viljayfirlýsing með
ýmsum fyrirvörum. í öðru
lagi að Eyjólfur sé á villigöt-
um þegar hann segir nýjan
samning raunhæfari en
samningur sá er Sverrir
gerði. í þriðja lagi að ósatt sé
og aldrei fallist á að SÍS og
kaupfélögin yrðu í óbreyttum
viðskiptum skilyrðislaust til
15 ára. Og í fjórða lagi að það
sé misskilningur hjá Eyjólfi
að samið hafi verið um að
starfsfólk Samvinnubankans
réðist til Landsbankans.
Sverrir segir „vandséð hver
úrslit þessa máls verða eftir
þau vinnubrögð, sem viðhöfð
hafa verið af hálfu stjórn-
valda og sendisveina þeirra.
Það á nefnilega eftir að koma
í Ijós hvort Landsbankinn hef-
ir yfirleitt nokkurn samning á
hendi."
Eyjólfur K. Sigurjónsson
bankaráðsformaður sagði í
samtali við Alþýðublaðið í
gær að það sem hann hefði
sagt við Morgunblaðið stæði.
„Að öðru leyti vil ég lítið um
málið segja. Ég ætla ekki að
standa í blaðadeilum við
starfsfólk Landsbankans. Það
hefur aldrei tíðkast í Lands-
bankanum að fjalla opinber-
lega um viðskiptavini bank-
ans eða innri mál hans. Þetta
eru ný vinnubrögð sem fram
koma hjá Sverri í þessu máli
og ég vona að hann átti sig á
því að slík vinnubrögð ganga
ekki."