Tíminn - 13.06.1968, Síða 7
FIMMTUDAGUR 13. júní 1968.
TIMINN
MME
Jónas Þorbergsson
- fyrrverandi útvarpsstjóri
f dag verður borinn til moldar Jónas Þorbergsson, einn
af 'helztu forustumönnum þeirrar kynslóðar, sem mestar
umbætur hefur gert á íslandi. Sú kynslóð kom til starfa
um það leyti, sem landsstjórnin varð innlend á fyrsta ára-
tugi þessarar aldar. Hún tók þar við árangrinum af sjálf-
stæðisbaráttu Jóns Sigurðssonar og ávaxtaði hann svo
vel, að fá dæmi eru til um meiri framfarasókn í sögu
nokkurrar þjóðar.
Saga Jónasar Þorbergssonar er gott dæmi um starf
þessarar kynslóðar. Hann var alinn upp í fátækt og
heilsuleysi. Hann brauzt samt til utanferðar og aflaði
sér þannig menntunar og aukins víðsýnis. Eftir allanga
dvöl erlendis hélt hann heimleiðis og gerðist strax sam-
herji þeirra leiðtoga ungmennafélaganna, sem unnu að
því að koma á nýrri flokkaskipan í landinu í samræmi
við breytta tíma. Að dómi þeirra valt nú ekki lengur
mest á baráttu við Dani, heldur á sjálfstæðisbaráttunni
inn á við, — að gera þjóðina efnalega og menningarlega
sjálfstæða. Á þeim grundvelli stofnuðu þeir Framsóknar-
flokkinn og Alþýðuflokkinn, — annan í nánum tengslum
við samvinnufélagsskap sveitanna, hinn í nánum tengsl-
um við vaxandi verkalýðshreyfingu bæjanna. Undir leið-
sögn þessara manna urðu stærri og mikilvægari umbæt-
ur á högum þjóðarinnar á næstu tveimur áratugum en
nokkru sinni fyrr og síðar, þótt skilyrði væru oft hin
erfiðustu, einkum á tímabili heimskreppunnar mildu.
í þjónustu þessara samtaka var Jónas Þorbergssyni
fyrst falið það starf að stjórna blaði Framsóknarmanna
á Akureyri. Hann varð strax einn af snjöllustu blaða-
mönnum þjóðarinnar. Hann tryggði Degi þá forustu, að
hann hefur jafnan síðan verið aðalblað landsins utan
Reykjavíkur. Þegar Tryggvi Þórhallsson og Jónas Jóns-
son urðu ráðherrar, þótti Jónas Þorbergsson sjálfkjörinn
til að vel’ða ritstjóri Tímans, aðalblaðs Framsóknarflokks-
ins. Þótt hann gegndi því starfi ekki nema um tveggja
ára skeið, mun stjórn hans á Tímanum lengi minnst,
og talin mikil fyrirmynd. Jónas hvarf frá Tímanum til
að taka við starfi, sem jafnan mun geyma nafn hans í
íslandssögunni sem eins mesta brautryðjenda þessara
tíma. Hann fékk það verkefni að sjá um stofnun og
starfrækslu íslenzks útvarps. Undir forsjálli, framsýnni
og dugmikilli forustu hans varð útvarpið brátt ein mesta
menningarstofnun þjóðarinnar. byggð á traustum fjár-
hagslegum grunni. Það forustuverk Jónasar Þorbergs-
sonar mun því betur metið, sem lengra líður frá styrn-
um, sem stóð um hann, eins og títt er um dugmikla at-
hafnamenn.
Jónas Þorbergsson náði þeim mikla árangri, sem raun
ber vitni, ekki aðeins vegna þess, að hann var óvenjuieg-
ur gáfumaður, heldur engu síður vegna þess, að hann
var heill og óskiptur hverju því máli, sem hann vann.
Gott dæmi um það var sigursæl barátta hans fyrir heilsu-
hæli á Norðurlandi.
Jónas Þorbergsson var jafnan mikill áhugamaður um
andleg mál. Ilann trúði örugglega á annað líf og kveið
því engu að vera kvaddur yfir landamærin. En jafn
örugglega og Jónas trúði á annað líf, er það öruggt, að
hann mun hérna megin landamæranna halda áfram að
lifa í verkum sínum og þau þykja til fyrirmyndar og leið-
sagnar hjá þeim blöðum og þeirri mikilvægu menningar-
stofnun, sem hann helgaði krafta sína. Með þeim orðum
kveður Tíminn þennan gamla ritstjóra sinn, óskar honum
blessunar í hinum nýju heimkynnum ,og að minningin
um þennan sérstæða og mikilhæfa mann verði ástvinum
hans styrkurinn í sorg þeirra.
Tíminn mun geta Jónasar Þorbergssonar nánar í
næstu íslendingaþáttum blaðsins.
Nemendasamband
Menntaskólans
í Reykjavík
Nemendasamband Menntaskólans í Reykjavík
heldur stúdentafagnað að Hótel Sögu sunnudag-
inn 16. júní og hefst fagnaðurinn með borðhaldi
kl. 19,30.
Miðasala í anddyri Súlnasalar föstudaginn 14. júní
kl. 4—7 e.h. og laugardaginn 15. júní kl. 4—6 e.h.
i [
t J
>
VEIDIMENN
Góður ánamaðkur til sölu. Sendur heim að kvöldi
ef pantað er fyrir kl. 5. Upplýsingar í síma 23324
kl. 9—5 og í 41224 á kvöldin.
Trúin flytur fjöll. — Við flytjum allt annað
SENDIBÍLASTÖOtN HF.
BlLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA
m
Sjónvarpstækin skila
afburða hljóm og mynd
FESTIVAL SEKSJON
Þetta nýja Radionette-sjón-
varpstæki fæst einnig með
FM-útvarpsbylgju. — Ákaf-
lega næmt. — Með öryggis-
læsingu.
ÁRS ÁBYRGÐ
Radionette-verzlunin
Aðalstræti 18, sími 16995.
□ SMURT BRAUÐ
□ SNITTUR
□ BRA UÐTERTUR
BRAUÐHUSIÐ
SNACK BAR
Laugavegi 126
Sími 24631.
HARÐVIÐAR
DTIHURÐIR
TRÉSMIÐJA
Þ. SKÚLASONAR
Nýbýlavegi 6
Kópavogi
sími 4 01 75