Alþýðublaðið - 09.03.1990, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 09.03.1990, Qupperneq 4
4 Föstudagur 9. mars 1990 FRÉTTASKÝRING ^------------- íslendingar eru að ganga í gegnum vegg — Segir Hallgrímur Gudmundsson, sveitastjóri á höfn um þróun í umrœöu um byggöamál. Aö flytja alla byggö á stór-Reykjavíkursvæöiö er senni- lega hægt. Þaö mætti gera fiskiskipaflotann, þaöan út, reka mikil mjólkurbú sem sæju borgarbúum fyrir mjólkurafurð- um og flytja síðan inn niðurgreitt kjöt frá löndum EB-ríkj- anna. Þar meö væri líka öll umræöa um byggöarmál og byggðarþróun út sögunni. En er þetta þaö ísland sem viö viljum aö framtíöin beri í skauti sér? Værum viö stolt af slíku íslandi. ,,Þaö er ekki minn skilningur ad ætlunin sé að ganga af lands- byggðinni dauðri. Við Islendingar tilheyrum þeim hópi þjóða þar sem þegnar hafa valfreisi. Við för- um varla að taka upp eitt hvert kvótafyrirkomulag hvað búsetu varðar. Ég fyrir mitt leyti vil ekki búa í Reykjavík, það er mitt val. Ég hlýt að hafa sama rétt og hver ann- ar þ.e. Reykvíkingurinn sem vill búa í Rvík. Á að skikka mig til þess að búa í Reykjavík? Það er hægt að gera það með tvennum hætti. Annars vegar með því að setja lög sem skylda mig til að flytja en hins vegar með því að kippa atvinnu- grundvellinum undan mér og mínum, segir Hallgrímur Guð- mundsson, sveitarstjóri á Höfn. Sameining sveitarfélaga villuljós Mikið hefur verið rætt og ritað um málefni landsbyggðarinnar og undir yfirborðinu má greina mikla togstreitu milli íbúa dreifbýlis og þéttbýlis. Hvernig má leysa þenn- an vanda þannig að ekki svíði sárt „Eg held að Islendirnar séu nú að ganga í gegnum vegg, sumir hafa slasast, við skulum bara vona að einhverjir komist út í gegn hinu megin, segir Hallgrímur Guðmundsson, sveitarstjóri á Höfn um byggðaumræðuna. S veitarstj órnarkos ningar 26. maí 1990 Leiðbeiningar um undirbúning og framkvæmd 1. Auglýsing um framlagningu kjörskrár skal birt fyrir................... 11. mars. 22. mars (kaupst./bær) 2. Kjörskrá skal lögð fram eigi síðar en ............. .................. 25. mars. 3. Krafa um bundnar hlutfallskosningar í sveitarfélagi með 300 íbúa eða færri berist oddvita yfirkjörstjórnar, bréfiega, eigi síðar en........ 13. apríl. 4. Sveitarstjórnarmaður, sem skorasl undan endurkjöri, skal tilkynna yfir- kjörstjórn þá ákvörðun sína eigi síðar en........................... 21. apríl. 5. Kjörskrá skal liggja frammi til og með.............................. 22. apríl. 6. Framboðsfrestur rennur út........................................... 27. apríl. 7. Framlengdur framboðsfrestur, ef aðeins kemur fram einn listi, rennur út 29. apríl. 8. Yfirkjörstjórn auglýsir framboðslista þegar eftir að listar hafa verið úr- skurðaðir gildir og merktir. 9. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla getur hafist .............................. 31. mars. 10. Kærufrestur til sveitarstjórnar vegna kjörskrár rennur út........... 11. maí. 11. Afrit kæru sendist þeim sem kærður er út af kjörskrá eigi síðar en . . 14. maí. 12. Sveitarstjórn boðar fund til algreiðslu á kærum fyrir............... 15. maí. 13. Sveitarstjórn úrskurðar kærur og undirritar kjörskrá eigi síðar en ... 18. maí. 14. Yfirkjörstjórn auglýsir, bvenær kjörfundur hefst fyrir.............. 23. maí. 15. Sveitarstjórn tilkynni hlutaðeigandi, svo og hreppsnefnd eða bæjarstjórn, sem mál getur varðað, um breytingar á kjörskrá strax og úrskurður liggur fyrir. 16. Kjörstjórn tilkynni oddvita yfirkjörstjórnar, svo og hreppsnefnd eða bæjarstjórn, sern mál getur varðað, um breytingar á kjörskrá strax og dómur er genginn. 17. Yfirkjörstjórn auglýsir hvar og hvenær atkvæðatalning verður með nægum fyrirvara á undan kosningum. 18. Atkvæðatalning hefst svo fljótt sem unnt er að loknum kjörfundi. 19. Yfirkjörsljórn setur notaða kjörseðla undir innsigli að lalningu lokinni, þegar kosn- ing er óbundin. 20. Kæra vegna kosninganna skal afhent hlutaðeigandi sýslumanni eða bæjarfógeta (í Reykjavík yfirborgardómara) innan sjö daga frá því að lýst var úrslitum kosninga. 21. Yfirkjörstjórn eyðir innsigluðum kjörseðlum að kærufresti loknum eða að fuilnaðar- úrskurði u[>pkveðnum, hafi kosning verið kæ*rð, þegar kosning er óbundin, sbr. 19. Félagsmálaráðuneytiö, 6. mars 1990. undan og án þess að hagsmunir ákveðinna hópa verði fótum troðnir? Flestir kannast við tilraunir til að fækka sveitarfélögum með því að sameina þau. Er lausnar á vanda dreifbýlisins að leita þarna? Hvert er mat Hallgríms á þessum tilraunum? „Það sem er besta við umræðuna um sameiningu sveit- arfélaga er að hún er skaðlaus en hún er að sama skapi vita gagns- laus. þarna er verið að tala um sameiningu sveitarfélaga allt nið- ur í 400 íbúa. Kostnaðarlega séð leiðir þetta ekki til aukinnar hag- ræðingar. Umræðan um samein- ingu sveitarfélaga er að mínu mati villuljós. Hér þarf miklu kraftmeiri aðgerðir ef ætlunin er að ná ár- angri." Sameining sveitarfélaga er þó ekki eina lausnin sem skotið hefur upp kollinum í umræðu um byggðamál. Ýmsir hafa gælt við hugmyndir um þriðja stjórnsýslu- stigið og bent á það sem raunhæf- an valkost. En hvers konar viðbót- ar bákn er nú það? Ekki þurfi að eltast við ríkið um allan bæ „Það er rangt að líta á þriðja stjórnsýslustigið sem lausn á vand- anum. Stjórnsýslukerfinu þarf að breyta en það verður ekki gert nema með því að breyta starfs- háttum inn í stofnunum þess. Vandinn er inn í stofnunum og hann felst í skorti á samhæfingu milli stofnana. Þriðja stjórnsýslu- stigið er í mínum augum öflugur samráðsvettvangur milli stað- bundinna yfirvalda og heildarinn- ar. Vettvangur þar sem staðaryfir- völd geta nálgast ríkisvaldið sem eina heild en ekki sem einhverja stofnun sem leysir sig upp í frum- eindir sínar og þarf að elta uppi út um allan bæ," sagði Hallgrímur Þegar hann var spurður hvort hann teldi þriðja stjórnsýslustigið vera lausnina. „Þriðja stjórnsýslustigið á ekki að verða nýr vaxtasproti opinbera kerfisins því það má að mínu mati ekki vaxa meira. Hér er því ekki um nýtt stjórnsýslustig með verk- efni og ábyrgð að ræða heldur samráðsvettvangur og það er ósk mín að sem slíkt megi það bæði vaxa og dafna." Breytt viöhorf landsbyggðarinnar Hallgrímur segist telja að nú sé að renna upp tími breyttra við- horfa íbúa landsbyggðarinnar. „Til þessa hafa sveitarfélög eytt kröft- um sínum í að karpa um smáatriði í fjárveitingum næsta árs. Flutn- ingur þjónustu til ákveðins byggðakjarna var til skamms tíma álitinn til þess eins fallinn að ýta undir þjónustu þar á kostnað þeirra byggða sem næst voru. Það er hins vegar von mín að þegar til lengri tíma er litið sjái íbúar lands- byggðarinnar hverjir sameiginleg- ir hagsmunir þeirra eru. Þegar fólk sér að þjónustukjarnar styrkja líka nágrannabyggðirnar þá skynj- ar það mikilvægi þess fyrirkomu- lags fyrir landsbyggðina. „Við erum vön þeim þanka- gangi að við setjum stofnun ein- hverskonar niður og það eigi allir að koma til hennar. Þessu þarf að breyta, stofnun þarf að koma út til sinna þjónustuaðila. Þá hættir staðsetning hennar að skipta eins miklu máli." Hallgrímur bendir á að vissu- lega þurfi að jafna hagsmuna ágreining milli dreifbýlis og þétt- býlis en slíkt taki tíma. Það getur hins vegar engum dulist að það er ósanngjarnt að taka breytingarnar allar út á einni kynslóð. Japanir gerðu það á sínum tíma þegar þeir fórnuðu heilli kynslóð fyrir jap- anska efnahagsundrið en viljum við gera það sama?

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.