Alþýðublaðið - 09.03.1990, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 09.03.1990, Blaðsíða 8
MMOUBLOID Föstudagur 9. mars 1990 Jón Sigurdsson idnadarrádherra í viötali viö ALÞÝÐUBLAÐIÐ um nýtt áluer á íslandi: STAÐSETNINGIN ER EKKIAÐALATRIÐIÐ — heldur aö ákvöröun veröi tekin ogsamningar náist um ^ : .l // ; í Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra i skoðunarferð hjá ÍSAL ásamt Christian Roth forstjóra. „Staðsetning nýs ál- vers er að vissu leyti mjög mikilvægt mál en það er ekki aðalmálið í álmálinu. Aðalatriði þess máls er að ákvörð- un verði tekin, samning- ar náist um að á íslandi rísi nýtt álver til þess að breikka undirstöðu út- flutningsstarfsemi okk- ar og tryggja atvinnu í landinu. Það er hags- munamál okkar alira,“ sagði Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra í sam- tali við Alþýðublaðið í gær. „Staðsetning er mál sem ég tel að verði að ráðast í samningum milli aðila, þetta er mjög mikilvægt samningsatriði og þar mun enginn einn aðili ráða för. Staðsetningin á að ráðast aí arðsemi og hagkvæmni en það verður líka að líta til umhverfissjónarmiða og æskilegrar þróunar búsetu í landinu. Það er að vísu ekki alveg samkomulag um hvað það sé," sagði Jón. Ráðherra kvaðst vilja vekja athygli á því að tals- menn fyrirtækjanna, sér- staklega þess hollenska og þess ameríska hafa sagt að það fylgi því ýmsir kostir að vera í nábýli við annað álfyrirtæki með samstarfi ogsamnýtingu í mannvirkj- um í huga, — en að því fylgi líka ókostir, í sambandi við vinnumarkaðinn og meng- unarmálin, hvor ber ábyrgð á þeirri mengun sem starfsemin veldur. Þegar forstjórar þessara stóru álíyrirtækja koma hingað um helgina þá er það fyrst og fremst að ná samkomulagi um ásetning aö Ijúka samningum. Jón Sigurðsson sagði að stefnt væri aö því að undirrita yf- irlýsingu um þaö mál í byrj- un næstu viku. En þeir munu líka í leiðinni kynna sér með heimsókn þá staði sem til greina koma helst, Reykjanes, Eyjafjörð, Reyð- arfjörð, ef veður aðstæður leyfa. „Fjárfesting sem kannski nemur níuhundruð milljón- um Bandaríkjadollara, 55 milljörðum króna, — hún er ekki sett niður á ein- hvern stað sem þeim er sagt að setja hana niður á. Ég tel það fullkomlega eðli- legt og reyndar nauðsyn- legt að þeir sem eiga að taka ábyrgð á framkvæmd og rekstri taki þátt í þeirri veigamiklu ákvörðun," sagði Jón Sigurðsson. Næst betri friður á þingi og í Ríkisstjórn um álver í Eyjafirði? „Þaö er náttúrlega vel þekkt að landsbyggöin á marga málsvara á Alþingi. Eins og sjá má af orðaskipt- um innan stjórnarandstöð- unnar eru skiptar skoðanir í Sjálfstæðisflokknum svo ég nefni dæmi. Ég held að það sé nú þannig í öllum flokkum. Ég viðurkenni það náttúrlega sem eina af staðreyndum lífsins að þannig er það, — en ég þreytist ekki á að minna á að það er ekki kjarni máls- ins. Kjarni málsins er að okkur auðnist að fá samn- inga um nýtt álver sem borgi fyrir nýjar virkjanir, stækki útflutningssviðið og tryggi atvinnu bæði á fram- kvæmdastigi og eftir að rekstur hefst. Það er þörf á því í íslenskum þjóðarbú- skap og þar mega lands- hlutadeilur engu um ráða," sagði ráðherrann að lok- um. Prófkjör í Borgarnesi Átta manns taka þátt í opnu prófkjöri Alþýðu- flokksins í Borgarnesi um helgina. Kosið verður í Svarfhóli við Gunnlaugs- götu á laugardag og sunnudag frá kl. 14 til 18. Eftirtaldir verða í kjöri: Bjarni Steinarsson, málara- meistari, Bjarni Kristinn Þor- steinsson, Eyjólfur Geirsson. bókari, Jóhanna Lára Óttars- dóttir, skrifstofumaður, Margrét Sigurþórsdóttir, verslunarmaður, Sigurður Már Einarsson, fiskifræðing- ur, Sæunn Jónsdóttir, versl- unarmaður og Valgeir lng- ólfsson, vélamaður. Prófkjörið er opið Borgnes- ingum, 18 ára og eldri, sem verða 18 ára fyrir 26. maí 1990. Starfsmenn Stigamóta fyrir utan skrifstofu ráögjafamiðstööv- arinnar, taliö frá vinstri: Hólmfríöur Jónsdóttir, Ragna Guð- brandsdóttir, Ragnheiöur M. Guömundsdóttir, Guörún Jóns- dóttir, Sigurjóna Kristinsdóttir, Jenný Anna Baldursdóttir og Guðrún Tuliníus. STÍGAMÓT - konur rísa gegn kynferðisáreitni STÍGAMÓT, miðstöð samtaka kvenna gegn kyn- ferðislegu ofbeldi tóku formlega til starfa í gær 8. mars á baráttudegi kvenna. Miðstöðinni er ætlað að veita konum og börnum sem hafa orðið fyrir kynferðislegu of- beldi ráðgjöf og fræðslu. Forsvarmenn miðstöðvar- innar segja aðgerðaleysi stjórnvalda en jafnframt mikla þörf á stuðningi við konur og börn sem verða fyr- ir kynferðislegri áreitni hafa verið kveikjuna að stofnun Stígamóta. Aö miðstöðinni standa fjórir hópar, Barna- hópur kvennaathvarfsins, Kvennaráðgjöfin, Ráðgjafar- hópur um nauðgunarmál og Vinnuhópur gegn sifjaspell- um. Skrifstofa Stígamóta að Vesturgötu 3 og er opin virka daga milli klukkan 12 og 19. Tekið verður á móti símtölum allan sólarhringinn hvaðan- æva af Undinu í síma 91-626868 og 91-626878. ÍSLAND Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag Hitastig iborgum Evrópu kl. 12 i gær að íslenskum tima. Fólk Skattstjórar þurfa ekkert endilega að vera óvinsæl- ir. Alla vega virðist Olaíur Helgi Kjartansson, skatt- stjóri á Isafirði ekki þurfa að kvarta. Hann var um daginn kjörin „rússneskri kosningu" segir í Vest- firska fréttabladinu, hlaut96,6% atkvæða í prófkjöri flokksins . . . ★ Ottarr Möller, fyrrum for- stjóri Eimskips hefur látið af formennsku í fulltrúa- ráði St. Jósefsspítala í Landakoti. Hann situr áfram í yfirstjórn stofnun- arinnar. Hinn nýi formað- ur er Haruldur Olafsson, dósent. Hjúkrunaríor- stjóraskipti eru framund- an í Landakoti, Gudrún Marteinsdóttir lætur af störfum að eigin ósk l. maí n.k. en við henni tek- ur Rakel Vatdimarsdóttir, hjúkrunarframkvæmda- stjóri. Þá hefur Ólafur Órn Arnarson verið end- urráðinn yfirlæknir spít- alans frá síðustu áramót- um til næstu fimm ára, en starfinu hefur hann gegnt í lOár. . . ★ Bæjarstjóri Bolungarvík- ur, Ólafur Kristjánsson, var á dögunum sakaöur um pólitíska fyrir- greiðslu. Hann lét vinna verk sem bæjarráð hafði hafnað að láta vinna. Er stjórinn nú sakaður um að hygla pólitískum sam- herja, Vidi Benediktssyni. Verkið sem unnið var er smávægileg fylling við fyrirtæki Víðis, verk sem talið var að þyrfti aö vinna fyrr eða síðar. Ekki virðist þetta dýr fram- kvæmd samkvæmt Bœj- arins besta á ísafirði, — framkvæmd rétt rúmlega 100 þúsund krónur. .. ★ Hvorki fleiri né færri en 46 manns höfðu hug á starfi markaðsstjóra Ferðamálaráðs Islands. Sá sem ráðinn var af sam- gönguráðherra, er Magn- ús Oddsson, en hann hef- ur starfað síðasta áratug- inn fyrir Arnarflug, nú síðast sem yfirmaður Evr- ópudeildar félagsins. Magnús starfaði lengi sem kennari, lengst af við Hagaskóla í Reykjavík. Hann hefur átt sæti í Ferðamálaráði frá 1984 og þekkir því vel til verka hjá stofnuninni. . .

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.