Alþýðublaðið - 09.03.1990, Síða 5
Föstudagur 9. mars 1990
5
STÓRVELDASLAGURIREYKJAVÍK
Sveit
Norður
landa
Norræna skáksveitin situr
á botninum samkvæmt
stigatöflunni enda segja
menn aö allt fyrir ofan
fjórða sætiö beri aö telja
sigur. Meöalskor norraenu
skákmeistaranna er ekki
nema 2525 Elostig sem er
hartnær hundraðinu lægra
en hjá Sovétmönnum. Þessi
staðreynd gerir það aö
verkum aö norræna sveitin
hefur allt að vinna en ekki
miklu aö tapa og þaö er
aldrei aö vita nema slíkt
skili sér í fleiri vinningum en
ættu aö nást samkvæmt
stigafjölda keppenda.
Í norrænu sveitina vantar
þó nokkra skákmenn sem
samkvæmt stigafjölda ættu
tvímælalaust að vera með.
Stigahæsti skákmaöur
Norðurlandanna, Ulf And-
ersson, er í þessum hópi.
Hann er um þessar mundir
aö aðstoða Hollendinginn
Jar/ Timman í einvíginu .
gegn Karpov. Danirnir Curt
Hansen og Bent Larsen
ættu líka heima í keppnisliði
Noröurlandanna.
En þaö er óneitanlega at-
hyglisverö staðreynd aö af
tólf mönnum i sveitinni,
þegar varamenn eru taldir
meö, skuli sex vera íslend-
ingar.
Simen Agdestein
hefur 2600 Elostig. Ag-
destein er Norðmaöur,
fæddur 15. maí 1967.
Auk taflmennskunnar
hefur hann getiö sér
gott orð sem knatt-
spyrnumaöur. Hann
varð alþjóðlegur
meistari 1983 og stór-
meistari áriö 1986.
Helgi Óiafsson
hefur 2575 Elostig.
Hann er fæddur 15.
ágúst 1956, varð al-
þjóðlegur meistari
1978 og stórmeistari
árið 1985.
Margeir Pétursson
hefur 2555 Elostig.
Fæddur 15. februar
1960, varð alþjóðlegur
meistari árið 1980 og
stórmeistari 1986.
Ferdinand Hellers
hefur 2545 Elostig.
Hann er Svii, fæddur
28. janúar 1969, varð
alþjóölegur meistari
1986 og stórmeistari
1988.
Jóhann Hjartarson
hefur nú 2505 Eiostig.
Jóhann er fæddur 8.
febrúar 1963. Hann
varð alþjóðlegur
meistari árið 1984 og
stórmeistari ári siðar
1985.
Jón U. Arnason
hefur 2500 Elostig.
Hann er fæddur 13.
nóvember 1960, varð
stórmejstari árið 1986.
Jón L. Arnason varð
fyrstur Islendinga til
að krækja i heims-
meistaratitil i skák.
þegar hann varö
heimsmeistari ungl-
inga árið 1977.
Harry Schssler
hefur 2490 Elostig.
Hann er Svii, fæddur
24. júni 1957, varð al-
þjóðlegur meistari
1979 og stórmeistari
1988.
Jouni Yrjöl
hefur 2495 Elostig.
Hann er Finni, fæddur
24. oktéber 1959 og
varð alþjóölegur
meistari árið 1984.
Erling Mortensen
hefur 2480 Eiostig.
Hann er Dani, fæddur
5 apríl 1955 og varð
alþjóðlegur meistari
árið 1977.
Richard Wessman
hefur 2505. Hann er
Svíi, fæddur 31. mars
1969 og varö alþjóð-
legur meistari á sið-
asta ári eftir aö hafa
náð 1.—2. sæti á
sænska meistaramót-
inu.
Friðrik Ólafsson
hefur nú 2485 Elostig.
Friðrik er 1. varamaður
norrænu skáksveitar-
innar. Hann er fæddur
26. janúar 1935 og er
þvi nýlega orðinn 55
ára. Friörik varð al-
þjóölegur meistari
1954, og stórmeistari
1958.
Karl Þorsteins
annar varamaöur nor-
rænu sveitarinnar hef-
ur 2455 Elostig. Karl er
fæddur 13. október
1964. Hann varö al-
þjóölegur meistari érið
1986.
STÓRVELDASLAGUR í REYKJAVÍK
Breska
sveitin
í Elostigum talið er breska
sveitin sú næst veikasta í
þessum stórveldaslag. Með-
alskor sveitarinnar á stiga-
töflu Alþjóöaskáksambands-
ins er rétt um 2550 stig,
sem er rétt undir meðal-
stigatölu Bandaríkjamanna
en heilum 60 stigum undir
meðaltali sovésku sveitar-
innar og um 25 stigum yfir
meöalskor norræna liðsins.
Efstu liðsmenn Bretanna
þarf vart að kynna fyrir ís-
ienskum lesendum. Short
og Speelman hafa báöir
teflt hér áöur á stórmótum
auk þess sem báötr komust
langt í þeirri heimsmeistara-
keppni sem nú stendur yfir.
Þaö má hins vegar
kannski vekja sérstaka at-
hygli á ungum og efnilegum
skákmanni í hópi Bretanna.
Michael Adams sem teflir á
5. borði er aðeins 18 ára, en
hefur þegar náð stórmeist-
aratitli og 2555 Elostigum,
auk þess sem hann er ríkj-
andi Bretlandsmeístari.
Nigel D. Short
hefur 2635 Elostig.
Fæddur 1. júni 1965,
varð alþjóðlegur
meistari 1980 og stór-
meistari 1984.
Jonathan S. Speelman
hefur 2610 Elostig.
Fæddur 2. október
1956, varð alþjóðlegur
meistari 1978 og náði
stórmeistartitlinum
tveim árum síðar,
1982.
John D. M. Nunn
hefur 2600 Elostig.
Fæddur 25 apríl 1955,
varð alþjoðlegur
meistari 1975 og stór-
meistari 1978.
Julian M. Hodgson
hefur 2540 Elostig.
Fæddur 25. júli 1963,
varð alþjóölegur
meistari 1983 og stór-
meistari 1988.
Michael Adams
undrabarnið i bresku
sveitinni, hefur 2555
Elostig. Adams er
fæddur 17. nóvember
1971 og er því ekki
nema 18 ára. Hann
varð alþjóðlegur
meistari 1986 og stór-
meistari 1989. Adams
er núverandi Bret-
landsmeistari.
Daniel J. King
hefur 2515 Elostig.
Fæddur 28. ágúst
1963, varð alþjóölegur
meistari 1982 og stór-
meistari 1989.
Mihai Suba
hefur 2505 Elostig.
Fæddur 1. júní 1947,
varð alþjóölegur
meistari 1974 og stór-
meistari 1978.
A. Jonathan Mestel
hefur 2525 Elostig.
Fæddur 13. mars 1957
og verður þvi 33 ára á
þriðjudaginn. Mestel
varð alþjoðlegur
meistari 1978 og stór-
meistari 1981.
David Norwood
hefur 2530 Elostig.
Fæddur 3. október
1968, varð alþjóðlegur
meistari 1985 og stór-
meistari 1989.
Anthony C. Kosten
hefur 2485 Elostig.
Fæddur 24. júli 1958.
Kosten varð alþjóðleg-
ur meistari 1984.
Jonathan Levitt
varamaður bresku
sveitarinnar hefur
2465 Eiostig. Hann er
fæddur 3. júni 1963 og
varð alþjóðlegur
meistari 1984.