Alþýðublaðið - 14.03.1990, Qupperneq 5
Miðvikudagur 14. mars 1990
5
FRÉTTASKÝRING
Ólina Þorvaröardóttir er sögö ihuga
aö gefa kost á sér í fyrsta sætiö.
Nýtt framboö á leidinni.
Bjarni P. Magnússon er ekki um-
deildur meöal flokksmanna sinna
en mun ekki hafa ákveðið hvort
hann gefur kost á sér.
Hrafn Jökulsson er sagöur hafa hug
á sæti ofarlega á listanum.
Vérður Olína
í fyrsta sæti?
Ólína Þorvardardóttir viröist þessa dagana vera heitasta nafniö þegar rœtt er um
frambjóöendur á nýjan lista fyrir borgarstjórnarkosningar. Hvorki hún né aörir
sem nefndir eru hafa þó gefiö ákveöin svör.
Alþýðuflokksmenn í Reykjavík virðast ekki á þeim bux-
unum að gefast upp við tilraunir sínar til að breikka grund-
völlinn bak við borgarstjórnarframboð í vor. Fyrir rúmum
mánuði var ekki annað að sjá en allar tilraunir í þessa átt
hefðu runnið út í sandinn. Nú eru hins vegar horfur á sam-
eiginlegu prófkjöri og síðan framboði Alþýðuflokksfólks og
ýmissa óháðra einstaklinga, þar á meðal einhverra Birting-
arfélaga. Ef svo fer sem nú horfir, gæti sú vinsæla sjón-
varpskona, Ólína Þorvarðardóttir, orðið stóra trompið á
þessum lista.
Þad er raunar svo skrýtið aö
þótt búið sé að tilkynna um blaða-
mannafund á morgun og stofn-
fund sérstakra samtaka á laugar-
daginn, þá eru allar línur í þessum
framboðsmálum mjög óljósar.
Samkvæmt heimildum okkar hef-
ur t.d. enginn af öllum þeim sem
nefndir hafa verið til framboðs,
enn tekið ákvörðun um að taka
þátt í prófkjöri.
Ólt'na íhugar framboð________
Ólína Þorvarðardóttir var fyrst
nefnd til sögunnar í umfjöllun
Pressunnar um þessi framboðsmál
fyrir um hálfum mánuði. Eftir því
sem næst verður komist mun
Ólína vera að hugleiða þennan
möguleika í fullri alvöru. Að því er
fróðir menn hermdu í gær, mun þó
vera erfitt fyrir Ólínu að taka slíka
ákvörðun, vegna þess að inn-
ganga í pólitík gerir henni erfiðara
fyrir að halda áfram þeim störfum
sem hún hefur fengist við undan-
farin ár. Af þessum sökum er tæp-
ast gert ráð fyrir að Ólína muni
gefa kost á sér í prófkjörið nema
því aðeins að hún telji sig eiga
þokkalega góða möguleika á að
ná fyrsta sæti.
Það má raunar færa rök að því
að slík niðurstaða úr prófkjöri
myndi styrkja þetta framboð veru-
lega. Þrátt fyrir allmargar tilraunir
í þá átt hefur nefnilega ekki enn
tekist að setja neinn flokkspólit-
ískan stimpil á Ólínu. Hún er vissu-
lega almennt talin standa einhvers
staðar vinstra megin við miðjuna
en hefur ekki tekið opinberlega
afstöðu með neinum flokki.
Félagsstofnun á laugardag
Ef svo fer sem nú horfir verður
á laugardaginn stofnað félag ein-
staklinga úr ýmsum áttum, þar á
meðal þó nokkurra félagsmanna i
Birtingu. Hugmyndin er síðan að
þetta félag standi fyrir prófkjöri
ásamt Alþýðuflokknum og síðan
sameiginlegu framboði.
Gengi þessa framboðs í borgar-
stjórnarkosningunum ræðst hins
vegar að sjálfsögðu mjög af því
hvaða fólk fæsti í framboð og
hvernig það raðast á listann. Fáir
munu í alvöru gera ráð fyrir því að
hið nýja frambcð eigi möguleika á
betri útkomu en svo að það eignist
tvo eða í allra hæsta lagi þrjá borg-
arfulltrúa eftir kosningarnar.
Fengi nýja framboðið þrjá borgar-
fulltrúa, hefði hins vegar sá árang-
ur náðst að sýna flokksvélunum
fram á að vinstri kjósendur i borg-
inni vilji sameiginlegt framboð í
stað gömlu flokkaframboðanna.
Þeim sem að þessu standa er þó
mætavel Ijóst að ef árangur á að
nást í þessu framboði, er nauðsyn-
legt að framboðslistinn beri þess
merki að hann sé ekki settur upp
eftir gömlu hrossakaupaaðferð-
inni. Þetta þýðir t.d. að ef fyrsta
sæti listans verður skipað annað
hvort Alþýðuflokksmanni eða
Birtingarmanni verður listinn
ekki jafn vænlegur til árangurs og
ef einhver þess óháða fólks sem
hyggst standa að framboðinu,
velst í fyrsta sætið.
Þetta gerir það að verkum að
möguleikar Ólínu Þorvarðardótt-
ur til að sigra í prófkjöri virðast nú
talsverðir. Þeim virðist líka hafa
farið fjölgandi síðustu daga sem
vilja fá hana í fyrsta sætið. Sam-
kvæmt heimildum okkar hefur
Ólína þó ekki enn fengist til að
gefa ákveðið svar.
Margir tilnefndir en__________
allir óákveönir
Sama gildir raunar að því er
virðist um nánast alla aðra sem
nefndir hafa verið sem líklegir
þátttakendur í prófkjöri. Af Birt-
ingarfólki eru það einkum Kristín
Á. Ólafsdóttir, núverandi borgar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins og
Hrafn Jökulsson, sem hafa verið
nefnd í þessu sambandi. Hrafn
mun mjög ákveðið ihuga að gefa
kost á sér i prófkjöri og er þá jafn-
vel talið að að hann muni stefna á
þriðja sæti listans. Hrafn mun þó
ekki fremur en aðrir hafa tekið
endanlega ákvörðun. Enn minna
er vitað um afstöðu Kristínar en
svo mikið er víst að hún mun ekki
gefa kost á sér til framboðs fyrir
Alþýðubandalagið.
Innan Alþýðuflokksins virðist
ekki neinn ágreiningur um Bjarna
P. Magnússon, núverandi borgar-
fulltrúa. Svo mikið er víst að ekki
hafa heyrst neinar raddir um það
að skipta honum út. Hins vegar
mun Bjarni ekki fremur en aðrir
hafa ákveðið hvort hann gefi kost
á sér til að taka sæti á þessum lista.
í þessum efnum er þess að vænta
að línur skýrist eftir stofnfundinn
á laugardag. Eins og nú standa
sakir virðist þó líklegast að i próf-
kjöri verði það Ólína Þorvarðar-
dóttir, Bjarni P. Magnússon, Hrafn
Jökulsson og e.t.v. Kristín Á. Ólafs-
dóttir sem raðist í efstu sætin. Því
má þó ekki gleyma að ef allt geng-
ur upp og af þessu sameigninlega
prófkjöri verður, þá verður öllum
Reykvíkingum á kosningaaldri
heimil þátttaka og því getur allt
gerst. Auk þess munu væntanlega
einhverjir fleiri gefa kost á sér til
setu ofarlega á lista.
Þegar upphafalega var lagt af
stað með hugmyndir um sameig-
inlegt framboð gegn meirihluta
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,
var hugmyndin sú að ná saman
öllum minnihlutaflokkunum. Þaö
sem nú er verið að tala um er
vissulega langt frá þessum upphaf-
legu hugmyndum. Engu að síður
er hér um vissa pólitíska upp-
stokkun að ræða og þótt engum
detti það í hug í alvöru að þetta
framboð geti orðið til að fella
borgarstjórnarmeirihlutann er
aldrei að vita nema hér sé verið að
stíga fyrsta skrefið i átt til frekari
samstöðu núverandi minnihluta-
afla.
Stórveldaslagur:
Jafntefli við
Sovétmenn
Sovétmenn höfðu áreiðanlega
hugsad sér að sigra Norðulanda-
búa öðru sinni þegar sveitir
þessara landa mættust í 4. um-
ferð Stórveldaslagsins í gær-
kveldi. Niðurstöðutölurnar urðu
hins vegar 5 vinningar gegn 5 og
komu þau úrslit mörgum á óvart.
Viðureign Breta og Bandaríkja-
manna lauk með sigri hinna
fyrrnefndu með 5'/z vinningi
gegn 4'/i.
Urslit 4. umferðarinnar urðu ann-
ars sem hér segir:
Sovétríkin — Norðurlönd 5—5
1. Yusupov — Agdestein 1—0
2. Ivanchuk — Helgi 1—0
5. Vaganjan — Margeir '/■>—'/■>
4. Sokolov — Hellers 0—1
5. Gurevieh — Jóhann '/>—'/■•
(i. Makarichev — Jón L. '/■>—'/■>
7. Azmayparashvili —
Shássler '/>—'/>
8. Polugaévsky — Karl '/■>—'/■>
0. Tukmakov — Mortensen 0—1
10. Dreev — Wessman '/>—'/•
Bretinn Nigel Short vann sina fyrstu
skák i stórveldaslagnum i gær þegar
hann lagöi Gulko að velli.
Norðurlandabúar náðu sigri á
tveim borðum í gærkveldi. Svíinn
Hellers vann Sokolov á 4. borði og
Daninn Mortensen vann Tukmakov
á 9. borði. Við birtum hér skák Hell-
ers og Sokolovs.
Hvítt: Hellers, Norðurlönd
Svart: Sokolov, Sovétríkjunum
1. e4 — c5
2. Rf3 - e6
3. d4 — cxd4
4. Rxd4 — Rf6
5. Rc3 — d6
6. g4 - h6
7. h4 - Be7
8. Hgl - d5
9. Bf4 — Rxe4
10. Rxe4 — dxe4
11. Rb5 - Da5 +
12. c3 - Ra6
13. Rd6+ - Kf8
14. Bc4 - Dc5
15. b4 - Db6
16. Dd2 - Rc7
17. g5 — hxg5
18. hxg5 — Dc6
19. Be5 - Rd5
20. Dd4 - Hg8
21. Rxe4 - Bd7
22. Hdl - Hc8
23. Bb3 - Be8
24. f3 - Hd8
25. Dxa7 - b6
26. b5 - Dxb5
27. c4 - Hd7
28. Da4 — Dxa4
29. Bxa4 - Ha7
30. Bxe8 - Re3
31. Hd7 - Ha8
32. Bd6 - Hxe8
33. Ke2 - Rxc4
34. Bxe7 - Hxe7
35. Hd4 - Re5
36. Hcl - He8
37. Hc7 - Hh8
38. f4 - Hh2 +
39. Kfl - gefið
Stigahæsti maður mótsins, Sovét-
maðurinn Ivanchuk, heldur áfram
sigurgöngu sinni. í gær varð Helgi Ól-
afsson að þola ósigur gegn honum.
Bretland — Bandaríkin 5'/>—4'/>
1. Short — Gulko 1—0
2. Speelman — Seirawan '/■>—'/■•
3. Nunn — Fedorowicz 1—0
4. Hodgson — deFirmian 0—1
5. Adams — Christiansen 1—0
(i. Levitt — Browne '/>—'/•
7. Suba — Benjamin 1—0
8. Mestel — Dzindzichashvili 0—1
9. Norwood — Gurevich '/>—'h
10. Kosten — Ivanov
Staðan í kepnninni er nú þessi:
Sovétríkln 22 'h
Bandaríkin 21
Bretland 20
Norðurlönd I6V2
I dag tefla Norðurlöndin gegn
Bandaríkjamönnum og Bretar
gegn Sovétmönnum í 5. og næst-
síðustu umferð.
Bretar höfðu betur í viðureigninni
við Bandaríkjamenn í gærkveldi og
Nigel Short sem tapað hafði þrem
skákum í röð, vann sinn fyrsta sigur
í mótinu er hann hefndi ófaranna
gagn Gulko í 1. umferð.
Hvitt: Nigel Short Bretlandi
Svart Boris F. Gulko Bandarikj-
unum
1. e4 — c5
2. Rf3 — Rc6
3. d4 — cxd4
4. Rxd4 - Rf6
5. Rc3 - d6
6. g3 — g6
7. Bg2 - Rxd4
8. Dxd4 - Bg7
9. 0-0 - 0-0
10. a4 - Da5
11. Bd2 - Dh5
12. Db4 - Bh3
13. f3-a5
14. Db5 - Dxb5
15. Rxb5 - Bxg2
16. Kxg2 - Hfc8
17. c3 - Rd7
18. Be3 — Rc5
19. Hfdl — Hc6
20. Kf2 - Re6
21. Hd5 - Rf8
22. f4 - Re6
23. Kf3 - h5
24. Hadl - Rf8
25. Hld3 - Hc4
26. b3 - Hc6
27. c4 - Re6
28. e5 — dxe5
29. fxe5 - Kf8
30. Ke4 - f5 +
31. exf6 — exf6
32. Kf3 - He8
33. Rd6 - Hb8
34. Hxa5 - Hd8
35. Had5 - Hd7
36. Rf5 - Hdc7
37. Rh4 - Rg5 +
38. Ke2 - Re4
39. Rxg6 + — gefið.