Alþýðublaðið - 14.03.1990, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 14.03.1990, Blaðsíða 8
f m ini iíihi iii Miövikudagur 14. mars 1990 Hafnfirdingar vilja nýtt áluer: Breytt staðsetning álvers gæti stefnt málinu í voða — segir íályktun bœjarstjórnar ogAl- þýðuflokksins í Hafnarfirði Guömundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri i Hafnarfirði býöur (frá hægri) Max Roker, forstjóra Hoogovens, Paui Drack, aðalforstjóra Álumax og Bond Evans, aðstoöarforstjóra Alumax vel- komna. Hafnfirðingar virðast nokkuð uggandi um sinn hag vegna þeirrar um- ræðu sem nú á sér stað um að væntanlegt álver kunni að koma til með að rísa við Eyjafjörð eða annars staðar utan Straumsvíkur eins og gengið hefur verið út frá. Bæjarstjórn Hafnar- fjarðar samþykkti í gær samhljóða svohljóðandi ályktun: „Bæjarstjórn Hafnar- fjarðar telur, nú sem fyrr, að besti valkostur fyrir byggingu nýs álvers sé i Straumsvík. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar telur að eng- ar forsendur fyrir byggingu nýs álvers í Straumsvík hafi breyst, sem geri nauösyn á víðtækri skoðun annarra valkosta varðandi staðsetn- ingu. Bæjaryfirvöld í Hafn- arfiröi hafa tekiö þátt í við- ræðum og samningum viö Atlantal-hópinn á umliðn- um árum í tíö þriggja ríkis- stjórna og málið gengið vel fram. Allar forsendur fyrir skjótum samningum og að framkvæmdir gætu hafist mjög fljótlega í Straumsvík eru fyrir hendi. Bæjarstjórnin gengur út frá því að afstaða íslenskra stjórnvalda nú, sé í sam- ræmi við stefnu síðustu þriggja ríkisstjórna. Það á engu að breyta í þessum efnum þótt nýr samstarfs- aöili komi inn í Atlan- tal-hópinn á síðustu stigum málsins. Bæjarstjórn Hafn- arfjarðar mun ganga fast fram í því að fyrri yfirlýs- ingar um málið standi og mun ekki láta sitt eftir liggja að sem allra fyrst ná- ist viðunandi samningar fyrir hönd íslensku þjóðar- innar um byggingu nýs ál- vers í Straumsvík." Alyktun svipaðs efnis var samþykkt á fjölmennum fundi bæjarmálaráös Al- þýðuflokksins í Hafnarfirði á mánudagskvöld sem hljóðar svo: „Fundur bæjarmálaráðs Alþýðuflokksins í Hafnar- firði telur engar forsendur til breyttrar ákvöröunar um staðsetningu nýs álvers í Straumsvík. Fundurinn minnir á lang- an og ítarlegan undirbún- ing vegna nýs álvers í Straumsvík, þar sem bæjar- yfirvöld í Hafnarfiröi, undir forystu Alþýðuflokksins, hafa lagt framgangi máls- ins lið í samningum við hina erlendu aðila í Atlan- tal-hópnum og íslensk stjórnvöld. Fundur bæjarmálaráðs- ins gengur út frá því að iðn- aðarráðherra, ríkisstjórnin og Alþingi hviki hvergi frá fyrri ákvörðunum um stað- setningu, þannig að sem allra fyrst náist samningar um byggingu nýs álvers í Straumsvík. Breytt stað- setning gæti tafið málið um ófyrirséðan tíma og hrein- lega stefnt byggingu nýs ál- vers í voða." Islendingar flykkjast í sólina: Páskaferðireru nær uppseldar Aukningin allt að 10% miðað við síð- asta ár Mikil sala hefur verið i sólariandaferðum á und- angengnum vikum sam- kvæmt þeim heimildum sem Alþýðublaðið aflaði sér í gær. Akaflega gott iiljóð var í því fólki sem rætt var við á ferðaskrif- stofunum og nú lætur nærri að allar páskaferðir til sólarlanda séu uppseld- ar, bókanir miklar á vor- ferðum og mörg dæmi þess að ferðir í sumar séu þegar upppantaðar. Helgi Daníelsson hjá Sam- vinnuferðum/Landssýn sagðist giska á að aukningin hjá þeim miðað við sama tíma á síðasta ári væri um 10%. Hann nefndi sem dæmi um það að ferðaskrifstofan hefði þurft að auka við far- þegarými til Benidorm nú um páskana frá því sem áætl- að hefði verið. Sömu sögu er að segja hjá Úrval/Útsýn, Anna Guðný Aradóttir sagði að ferðaskrifstofan hefði þurft að bæta við tvisvar sinnum rými á Costa del Sol nú um páskana. Anna Guðný sagði að erfitt væri að meta nákvæmlega hversu mikil aukning væri frá síöasta ári, en nú þegar væri Úrval/Út- sýn búin aö bóka milli 1.500 og 1.600 manns í sólarlanda- ferðir. Mjög mikið hefur þegar verið bókað í ferðir í sumar og eru nokkrar ferðir þegar upppantaðar að sögn ferða- skrifstofufólks, víða er orðið þröngt einnig. Helst virðist vera pláss í júní, enn sem komið er en mikið hefur ver- ið um bókanir í vorferðir í maí og svo aftur í ágúst. VEÐRIÐ ÍDAG Breytileg átt eda vestan kaldi og slydduél. Á Norð- uriandi vestanverðu má búast við norðlægum vindi, en á austanverðu Norðurlandi verður vindur vestlægur. Austanlands léttir nokkuð til. Ennþá er að hlýna austan til á land- inu, en í dag fer að kólna, fyrst á Vestfjörðum. Höf- uðborgarsvæðið: Léttir til í dag eftir slydduél nætur- innar. Hiti 0—3 stig. Ólafur Ragnarsson, fyrr- um fréttamaður og nú bókaútgefandi er metn- aðarfullur í útgáfu sinni og fer nýjar leiðir. Forlag hans gefur út verk Hall- dórs Laxness, — og er byrjað að gefa út bækur skáldsins í kiljuformi. Hér gefst bókafólki gott tæki- færi til að eignast góðar bækur á lágu verði. Fyrsta kilja Kiljans frá Vöku/Helgafelli er Heimsljós, sagan um Ólaf Kárason Ljósuíking. Bók- in er fallega gerö, prýdd kápumynd Jóns Reyk- dals, myndlistarmanns, — 314 síður þar sem glímt er við flestar grundvallar- spurningar er varöa líf mannsins á jörðinni, og þaö á frábæran hátt. ★ Þóru Einarsdóttir í Hvera- gerði hefur um áratuga skeið starfaö að hjálpar- starfi fyrir bágstadda Ind- verja. Nýlega heimsótti Þóru embættismaður frá Indlandi, G.R. Srinivasan að nafni og færði henni þakkir landa sinna fyrir frábært starf og mikla ósérhlífni. Með stuöningi indversku hjálparnefnd- arinnar hér á landi hefur, síöustu 2 árin verið rek- inn verkmenntaskóli fyr- ir ungar stúlkur í Madras. Með stuðningi Kiwan- is-fólks hér á landi tókst að kosta 25 börn til við- bótar ’í skóla. Alls eru meira en 50 Indverjar á framfæri indversku hjálp- arnefndarinnar á íslandi. Gott starf hjá Þóru! ★ Ólafur Arnarson, 26 ára, sonur Arnar Clausen og Gudrúnar Erlendsdótt- ur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þing- flokks Sjálfstæðismanna. Tekur hann við af Sigur- birni Magnússyni, sem fer til starfa hjá lögmanns- stofu Þórpar S. Gunnars- sonar. Olafur Örn er kunnuglegt andlit úr sjón- varpinu þar sem hann starfaði sem fréttamaður. Einnig hefur hann unnið sem blaðamaður hjá DV. Sambýliskona Ólafs er Sólveig Hreiöarsdóttir.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.