Alþýðublaðið - 24.08.1990, Side 1
Aktu ekki út i óvissuno
oktu ó
Helgason hf.
Sævarhofóa2 Simi 91-67 4000
126. TÖLUBLAÐ 71. ÁRGANGUR
FÖSTUDAGUR
24. ÁGÚST 1990
NÝR FLOKKUR HÚS-
BREFA: Jóhanna Sigurð-
ardóttir félagsmálaráð-
herra hefur gefið út reglu-
gerð um nýjan flokk hús-
bréfa. Samaniagt mun upp-
hæð bréfanna vera 2,5
milljarðar króna. Vextir á
þessum bréfum eru 5,75%.
Nú munu þau bréf sem
voru gefin út í fyrra vera
nánast uppurin. Húsbréfin
eru gefin út í þremur verðflokkum, 500 þúsund, 50 þúsund
og 5 þúsund króna bréfum. Húsbréfakerfið hefur ekki leitt
til hækkunar á fasteignaverði að sögn félagsmálaráðherra.
FISKVINNSLA ÚR LANDI? Evrópubandalagið styrk-
ir fiskvinnslu um jafnvirði 153 milljarða íslenskra króna á
næstu þremur árum. Þeir sem hyggjast endurnýja vinnslu-
kerfi sín fá allt að helming kostnaðar beint frá EB sem
styrk. Þetta mun veikja mjög samkeppnisstöðu íslenskrar
fiskvinnslu.
BÚVÖRUSAMNING-
UR FYRIR NÆSTU
RÍKISSTJÓRN: Nokkrar
deilur eru innan ríkisstjórn-
arinnar um hvort núver-
andi ríkisstjórn, sem hefur
umboð sitt fram á næsta
vor, skuli gera nýjan bú-
vörusamning við bændur.
Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra telur það
vel koma til greina og nafni
hans Sigfússon landbúnað-
arráðherra er talsmaður þess. Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins, tekur
hins vegar slíkt ekki í mál. Hann telur siðlaust að binda
þannig hendur nýrrar ríkisstjórnar enda liggi ekkert á þar
sem núgildandi búvörusamningur gildi til ársins 1992.
HÆKKUÐ LEIGA Á
PRESTSETRUM END-
URSK0ÐUÐ: Óli Þ. Guð-
bjartsson hefur lýst því yfir
að hann sé tilbúinn að end-
urskoða þá ákvörðun
dóms- og kirkjumálaráðu-
neytisins að hækka leigu á
prestsetrum. Prestar hafa
mótmælt hækkun leigunn-
ar frá 1. ágúst og telja hana
jafngildi allt að 19% kjara-
rýrnunar. Þó er talið óvíst
að hún verði felld öll niður.
SVEITARSTJÓRAVANDIÁ PATRÓ: í gærkveldi var
haldinn fundur í hreppsnefndinni á Patreksfirði. Eina mál-
ið á dagskrá var ráðning sveitarstjóra. Alþýðuflokkurinn
vann einn fulltrúa í hreppsnefnd í kosningunum í vor, á nú
3 af 7, og myndaði meirihlutasamstarf með Framsóknar-
ílokki sem fékk 2 fulltrúa kjörna. Á síðasta kjörtímabili var
við völd meirihluti Sjálfstæðiflokks og Framsóknarflokks
og sveitarstjóri Úlfar B. Thoroddsen sjálfstæðismaður. Nýr
meirihluti vildi ráða nýjan sveitarstjóra og var fyrirhugað
að það yrði Ólafur Árnfjörð, alþýðuflokksmaður. Einn
hreppsnefndarmaður Alþýðuflokksins mun hins vegar
vilja styðja Úlfar áfram og segist ekki styðja meirihluta
sem stendur að ráðningu Olafs. Ekki hafði frést af úrslitum
mála á fundinum þegar blaðið fór í prentun.
LEIÐARINNIDAG
í leiðara í dag er fjallað um stórkostlega styrki Evr-
ópubandalagsins til fiskvinnslu, en á næstu árum
munu fyrirtæki í einkaeign og opinber fyrirtæki fá
allt að helming fjárfestingar sem styrki úr sjóðum
EB. Evrópubandalagið ætlar að verja jafnvirði 153
milljarða íslenskra króna til að endurskipuleggja
vinnsluna og sölukerfið. Bent er á að fiskvinnsla á ís-
landi nýtur ekki beinna styrkja til fjárfestingar. Það sé
því ekki furða þó að spurt sé hvort hætta sé á að fisk-
vinnsla færist smám saman úr landi.
Nebúkadnessar
„Þessi maður á ekki í sér
snefil af drengskap eins og
dæmin sanna" segir Stefán
Snævarr i blaðinu í dag og á
þar við Saddam Hússein íraks-
forseta
Þrjú berjast um
formannssætið
Rætt er við þau þrjú sem
hafa formlega lýst því yfir að
þau sækist eftir kjöri sem for-
menn SUJ á þingi þess sem
verður nú um helgina. Það eru
þau Sigurður Pétursson,
Margrét Haraldsdóttir og Jón
Baldur Lorange.
Bílafyrirtæki og
Sigurjón Sighvats-
son standa að baki
ítalska verslunarfélagið heit-
ir nýstofnað hlutafélag og hef-
ur umboö fyrir Fíatbifreiðar. I
frétt segir hverjir standa að
hinu nýja fyrirtæki.
Lœknar:
MEÐ HEFTI A
RÍKISSJÓÐ
Læknir sem skrifar lyf-
seðil er um Ieið að skrifa
eins konar ávísun á ríkis-
sjóð. Þegar læknirinn
skrifar lyfseðil að þarf-
lausu eða lætur sjúklingi í
té dýrara lyf en þörf er á,
kostar það ríkissjóð pen-
inga að þarflausu. Lækn-
arnir eru, öfugt við fjár-
málaráðherra, ekki
bundnir af fjárlögum þeg-
ar þeir gefa út þessar
Átti ad skila 160 millj-
ónum í ríkiskassann:
Hefur
engu
skilað
Greiöslan ódagsett,
segir talsmaður Pósts
og síma
Póstur og sími hafði ekki
skilað neinum arði í ríkis-
sjóð á miðju ári 1990. Arð-
greiðslur á árinu eru áætl-
aðar hálfur milljarður og
þar af áttu ríkinu að hafa
áskotnast 160 milljónir
30. júní sl.
í skýrslu ríkisendurskoðun-
ar um framkvæmd fjárlaga
fyrir tímabilið 1. janúar til 30.
júní árið 1990 segir að arð-
greiðslur hafi orðið 37,1%
lægri en áætlað var, þar af hjá
Pósti og síma 160 milljónum
króna. Ríkisendurskoðun
segir enga peninga hafa bor-
ist frá fyrirtækinu, en tals-
maður Pósts og síma kveður
upphæðina, sem samtals er
áætluð 500 milljónir á árinu,
hafa verið háða |íví hvort
endar næðu saman. Allt útlit
væri fyrir að það tækist, en
greiðslurnar til rikissjóðs hafi
ekki verið dagsettar sérstak-
lega. Þess vegna hafi engar
160 milljónir skilað sér enn í
ríkiskassann.
„ávísanir".
Lyfjaframleiðendur vita vel
af þessari aðstöðu læknanna
og eru ósparir á að bjóða
læknum í „ráðstefnuferðir"
til útlanda. Fjölmörg dæmi
eru um að islenskir læknar
nýti sér slík fríðindi. Því fylgir
að vísu ekki nein opinber
kvöð, en engu að síður álíta
heimildarmenn Alþýðublaðs-
ins að ráðstefnuferðalög af
þessu tagi, skili lyfjafyrirtækj-
unum hagnaði.
Það er apótekurum að sjálf-
sögðu hagstætt að hafa
læknastofur í nágrenni við
sig vegna þess að fólk leggur
gjarna leið sína í næsta apó-
tek til að leysa út lyfseðilinn
sinn. Sumir apótekarar í
Reykjavík hafa gripið til þess
ráðs að leigja læknum hús-
næði í næsta nágrenni við
apótekið til að auka viöskipt-
in. Einn þessara lyfsala viður-
kennir að um helmingur lyf-
seðla sem hann afgreiöir séu
komnir frá leigjendum hans.
Þaö virðist mega spara rík-
inu umtalsvert fjármagn ef
lyfseðlamálum væri komið í
betra horf. Alþýðublaðið hef-
ur skyggnst um á lyfjasviðinu
og um það er fjallað í frétta-
skýringu á bls. 2.
„Viðhöfumveriðaðprófaallarmögulegartrjáogjurtategundir. Þaðereinmittþaðsem gerir
garðinn svo fjölskrúðugan," sagði Unnur Hjaltadóttir eigandi fegursta garös Garðabæjar, að
Mávanesi 15. Hún segir míkla vinnu liggja i garðinum, ekki siður hjá manni sínum Karli Frið-
riki Schiöth, en það ber greinilega ávöxt í þessum 1700 fermetra garði sem hefur bæði gos-
brunn og heitan pott. Fegursta gata Garðabæjar var valin Boöahlein, Hrísmóar 3 fallegasta
fjölbýlishúsalóðin, fyrirtækið Gluggar og garðhús fékk viðurkenningu fyrir snyrtiiegan frá-
gang. A-mynd-E.ÓI.
RKTSTJÓRN 681866 — 83320 • FAX 82019 • ÁSKRIFT OG AUGLYSINGAR r 681866