Alþýðublaðið - 24.08.1990, Page 5
Föstudagur 24. ágúst 1990
5
Þing Sambands ungra jafnadarmanna á Hótel Örk um helgina:
ÞRJÚ BERJAST UM
FORMANNSSÆTID
Það má búast við að þing Sambands ungra jafnaðarmanna
um helgina verði átakaþing. Þar eru þrjú í kjöri til formennsku,
og þar verða rædd mörg stór mál sem nú brenna hvað heitast
í þjóömálaumræðunni.
Ljóst er að til félaga sem tengjast jafnaðarmennsku liggja nú
stríðir straumar úr öllum áttum. A undanförnum vikum og
mánuðum hefur félögum fjölgað mjög, og þá ekki síst meðal
félaga yngri jafnaðarmanna. Þingið er því haldið á góðum tíma,
þegar menn geta fagnað aukinni velgengni.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ ræddi í gær við formannsframbjóðendurna
þrjá og lagði fyrir þá fjórar spurningar. Viðtölin fara hér á eftir:
Jón Baldur Lorange kennari
Margrét Haraldsdóttir kennari
Sigurður Pétursson sagnfræðingur:
Viðfangsefnið að sameina
alla unga jafnaðarmenn
Mikilvægast að túlka
skoðanir ungs fólks
— það gerist aðeins með góðu skipulagi og samstöðu
— Hvers vegna býður þú þig fram til formennsku í
SUJ?
„Ég hef starfað innan SUJ í nokkur ár, bæði setið í stjórn
FUJ í Reykjavík og Kópavogi, ásamt því að hafa starfað sem
framkvæmdastjóri Alþýðufiokksins. Þannig tel ég mig hafa
þá reynslu og þá þekkingu á starfsemi sambandsins og
flokksins sem til þarf til að byggja upp traustvekjandi og öfl-
ugt SUJ. Nú bíð ég fram starfskrafta mína í þágu SUJ og mun
leggja mitt af mörkum til að bregðast ekki félögum mínum
innan SUJ.“
— Hver eru og verða helstu viðfangsefni SUJ?
„Viðfangsefni SUJ hefur verið og verður að sameina unga
jafnaðarmenn um allt land undir merkjum Alþýðuflokksins
— eina íslenska jafnaðarmannaflokksins. Það gerist aðeins
með góðu skipulagi og samstöðu þeirra sem innan sam-
bandsins starfa. Okkar hlutverk er að halda uppi merki jafn-
aðarstefnunnar, jafnt í ræðu sem riti, sem víðast og oftast."
— Eiga ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna rétt
á sér? Ef svo er hvert er þá hlutverk þeirra?
„Ungliðasamtök flokkanna eiga fullan rétt á sér en þau
verða hins vegar að sanna tilverurétt sinn með öflugu og já-
kvæðu starfi. Róttæk stefna og nýstárleg vinnubrögð hafa
löngum gert SUJ umdeilt innan flokksins en það sýnir aðeins
að það hefur verið líf í sambandinu. Að mínu áliti er hlutverk
sambandsins m.a:
Að vera sameiginlegur vettvangur ungra jafnaðarmanna
um allt land fyrir umræður og rökræður um stjórnmál og
þjóðfélagsmál.
Að vera uppspretta nýrra og rótækra áherslna í stjórnmál-
um.
Að tryggja ungu fólki áhrif og aðstöðu innan Alþýðu-
flokksins jafnframt því að hvetja og styrkja ungt fólk til pólit-
ískra starfa.
Og síðast en ekki síst, að vera hollur og þroskandi félags-
skapur fyrir ungt fólk.
— Ef þú verður kjörinn formaður SUJ, hvaða málefn-
um munt þú einkum beita þér fyrir persónulega?
„Þýðingarmesta skrefið til að byggja upp öflugt SUJ er að
auka skipulag þess og samheldni SUJ-ara. Við höfum hæfi-
leikaríkt fólk innan okkar raða — en þurfum að stilla betur
saman strengina.
Húsnæðismál sambandsins þarf jafnframt að leysa til
frambúðar, hvað varðar skrifstofu- og fundaraðstöðu. Þegar
þetta hefur tekist verðum við að hefja landvinninga og
stofna ný félög á landsbyggðinni með öllu því áhugasama
fólki sem þar er að finna. Eins þurfum við að laða að nýtt fólk
í þau félög sem fyrir hendi eru. Markmið okkar hlýtur að
vera að auka áhrif SUJ innan flokksins og þjóðfélagsins og
með því móti efla Alþýðuflokkinn.
Hvað snertir stjórnmálalegu hliðina verðum við að efla og
breikka umræðuna um þjóðfélagsmál innan SUJ og ég nefni
hér sérstaklega umhverfismál. Atak í þeim málum þarf að
koma til ef komandi kynslóðir eiga að fá að njóta sömu lífs-
gæða og við gerum kröfu til.“
Var bóndi í sjö ár
— og starfar nú sem menntaskólakennari
— Hvers vegna býður þú þig fram tii formennsku í
SUJ?
„Ég hef áhuga á því að starfa að uppbyggingu ungliða-
hreyfingarinnar og ég tel að hæfileikar mínir nýtist best þar.
F.g er með BA-próf í stjórnmálafræði, starfa sem mennta-
skólakennari, hef reynslu úr atvinnulífinu, var m.a. bóndi í
7 ár, og hef trú á möguleikum ungs fólks til að hafa áhrif ef
rétt er staðið að málum."
— Hver eru og verða helstu viðfangsefni SUJ?
„Það sem er brýnast er að virkja ungt fólk til starfa fyrir
Alþýðuflokkinn. Það fer fyrst og fremst innan FUJ-félaga á
hinum ýmsu stöðum á landinu. SUJ á hins vegar að halda ut-
an um ungliðahreyfinguna, aðstoða ungt fólk við að stofna
og endurreisa félög, skipuleggja útgáfu- og fræðslustarf-
semi, stuðla að málefnavinnu og tengja ungliðahreyfinguna
við forystu flokksins.
Ef ungliðahreyfingin á að hafa áhrif á stefnu flokksins og
starfsemi, þá verður hún aö hafa málsvara sem getur fylgt
málefnum hennar eftir.“
— Eiga ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna rétt
á sér? Ef svo er hvert er þá hlutverk þeirra?
„Ungliðahreyfingar eiga ekki aðeins rétt á sér, þær eru
nauðsynlegur partur af heilbrigðum flokki. Þar á sér stað
hin pólitíska nýliðun og þar er sá vettvangur þar sem ungt
fólk fær tækifæri til að láta til sín taka og koma málum sínum
á framfæri.
Hlutverk ungliðahreyfingarinnar á einnig að vera jarðveg-
ur fyrir frumlegar hugmyndir, vera það afl sem stýrir flokkn-
um áfram til framtíðar og vera aðhald að forystunni."
— Ef þú verður kjörin formaður SUJ, hvaða máiefn-
um munt þú einkum beita þér fyrir persónulega?
„Fyrst vil ég taka það fram að formaður SUJ á að mínu áliti
að vera spegill fyrir skoðanir félaga sinna, þ.e. þeirra sem
hann er fulltrúi fyrir. Persónulegar skoðanir formanns eru
því ekkert mikilvægari en annarra félaga í ungliðahreyfing-
unni.
Ég hef mestan áhuga á að beita mér fyrir breyttri stefnu
í landbúaðarmálum og nýjum áherslum í fjölskyldupólitík. I
landbúnaðarmálum er orðin brýn nauðsyn að endurskipu-
leggja kerfið frá grunni. Það er ekki lengur hægt að plástra
kerfið sem fyrir er, því það byggir á úreltum forsendum og
er því handónýtt. Menn verða að fara að horfast i augu við
staðreyndir og takast á við vandamálin.
í fjölskyldupólitík vantar nýjar áherslur sem taka mið af
breyttu fjölskyldumunstri, ekki síst þegar haft er í huga, að
annað hvert hjónaband á íslendi endar með skilnaði og oft-
ast eru þá börn í spilinu.
Svo hef ég áhuga á menntamálum, sjávarútvegsmálum og
húsnæðismálum. Reyndar hef ég almennt áhuga á öllu sem
viðkemur stjórnmálum en það yrði of langt mál að fara út
í það allt nú.“
— finna þeim farveg og koma þeim é framfæri
— Hvers vegna býður þú þig fram til formennsku í
SUJ?
„Vegna brennandi áhuga á stjórnmálum og verkalýðsmál-
um ásamt draumnum um stóra og sterka jafnaðarmanna-
flokkinn. Markmiðið er að Alþýðuflokkurinn verði það afl.
Ég hef tekið virkan þátt i félagsstarfi innan Háskólans og
víðar. Ég er því tilbúinn að til að taka að mér þau verkefni
sem félagar mínir í SUJ treysta mér fyrir. Það er brýn þörf
á að efla starf Sambands ungra jafnaðarmanna þannig að
það verði samtök ungs fólks alls staðar að á landinu sem að-
hyllast réttlæti og jöfnuð í samfélaginu."
— Hver eru og verða helstu viðfangsefni SUJ?
„Fræðsla, umræður, áróður. Þessi þrjú orð lýsa því sem ég
sé sem helstu viðfangsefni SUJ. Það er að standa fyrir nám-
skeiðum, blaðaskrifum og slíku, auk þess að fjalla um sögu
og stefnu jafnaðarmanna og verkalýðshreyfingar í gegnum
tíðina. Þannig styrkjum við innviði hreyfingarinnar.
Þá er mikilvægt að SUJ veröi leiöandi í umræðunni um ný
og gömul stefnumið samtakanna. Þar verði farvegur nýrra
og ferskra hugmynda. Loks þarf að koma stefnu og mark-
miðum ungra jafnaðarmanna á framfæri við allt ungt fólk
með blaðaútgáfu og eftir öðrum leiðum. Allt þetta þrennt
þarf að fara saman.“
— Eiga ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna rétt
á sér? Ef svo er, hvert er þá hlutverk þeirra?
„Það fer fyrst og fremst eftir störfum ungs fólks hversu
mikil áhrif það hefur innan hvers flokks. Með kraftmiklu og
lifandi starfi á vegum SUJ og FUJ-félaganna um landið allt
munum við ná eyrum fólks, innan og utan flokks, og þannig
styrkja stöðu ungra jafnaöarmanna.
Mikilvægasta hlutverk samtakanna hlýtur að vera að
túlka skoðanir ungs fólks, finna þeim farveg og koma þeim
á framfæri. Þannig eiga þau fullan rétt á sér. Með öflugu
starfi innan Sambands ungra jafnaðarmanna leggjum við
grunninn að sterkari Alþýðuflokki í framtíðinni."
— Ef þú verdur kjörinn formaður SUJ, hvaða málefn-
um munt þú einkum beita þér fyrir persónuiega?
„Ég mun fyrst og fremst beita mér fyrir því að efla og
styrkja samtökin. Til þess þarf samhenta forystu. Með þeim
starfsháttum sem ég hef þegar lýst og með opinni umræðu
getum við gert Samband ungra jafnaðarmanna að öflugu
sambandi ungs fólks sem fylgir hugmyndafræði Alþýðu-
flokksins. Ég vii stefna að því að allt frjálslynt og vinstrisinn-
að ungt fólk sameinist í samtökum jafnaðarmanna.