Alþýðublaðið - 24.08.1990, Síða 8

Alþýðublaðið - 24.08.1990, Síða 8
•••• •••• • • • •••• •••• • • • • • • • • • NIKOSIU ! Hættuástandið í Persaflóanum hefur haft áhrif á heimili um alian heim. Meira en tvær milljónir útlend- inga eru innílokaðar á svæðinu og verðbréfahallir frá Tók- íó til Wall Street titra og skjálfa. NIKÓSÍU; Saddam Hus- sein Iraksforseti var sýndur í félagsskap breskra gísla í sjónvarpinu í Baghdad í gær. Nokkur börn voru á meðal gíslanna. BAHRAIN ; Liðhlaupar úr íraska hernum flýja frá Kúvæt yfir til Saúdí-Arabíu á hverjum degi, að því er sendiherra Saúdí-Arabíu í Bahrain sagði í gær. NIKOSIU ; Rafsanjani, forseti írans, ítrekaði á fundi sínum með utanríkisráðherra Kúvæts, Sabah al-Ahmed al-Sabah, í Tehran beiðni sína til íraka um að draga her sinn til baka frá Kúvæt. SAN'A: Hussein Jórdaníukonungur er nú staddur í Ye- men. Hann er nú á ferð um arabalönd til þess að freista þess að finna lausn á ílóadeilunni og afstýra stríði. SAMEINUÐU ÞJÓÐ- UNUM: Öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna hefur samþykkt að heimila vald- beitingu til að framfylgja viðskiptabanninu á Irak en bíður samþykkis ríkis- stjórna stórveldanna fimm. VIN-OPEC: Ráöherrar OPEC-ríkjanna áforma að hitt- ast í Vín á sunnudaginn til þess að ræða hvort auka eigi ol- íuframleiðslu til að koma í veg fyrir olískort vegna ástands- ins við Persaflóa ROM : Meira en 130 Vesturlandabúar fóru frá Kúvætborg í mörgum langferöabílum og héldu áleiðis til Baghdad, að sögn utanríkisráðherra ltalíu. BONN: Helmut Kohl, kanslari V-Pýskalands, var sigur- reifur í dag þegar austur-þýska þingiö ákvað aö Þýskaland yrði sameinaö 3. október. Hann hefur lengi barist fyrir sameininguni og fær nú alft hrósið. BONN: Fjármálaráöherra V-Pýskalands, Theo Waigel, flaug í gær til Moskvu til þess að semja við yfirvöld þar um mikla fjárhagsaðstoð sem nota á til þess að flytja sovéskt herlið frá Austur-Þýskalandi. MOSKVU : Armenía hefur lýst yfir sjálfstæði frá Moskvu. Pað áskilur sér rétt til að fá í sínar hendur stjórn á varnar-, utanríkis-, og fjármálum landsins. BUKAREST: í fyrsta skipti í langan tíma hunsuöu Rúm- enar einn sinn helsta hátíðisdag undanfarin ár, 23. ágúst, sem var notaður til að hylla fyrrverandi leiðtoga þeirra, Ceausescu. Hátíðisdagurinn er tilkominn vegna upphafs opinberrar andstöðu við nasismann í Þýskalandi. LEIÐRETTING : í þriðjudagsblaðinu var sagt hér á síð- unni að sovésku Scud-B eldflaugar Iraka drægju 2700 km. Paö mun vera rangt. Nærri lagi er að þær dragi u.þ.b. 300 km. ERLENDAR FRÉTTIR Umsjón: Glumur Baldvinsson • •• •••••• •••• •••• •••• • • • Hussein ræðir við breska gisla Bandarískir nyliöar pússa byssur sinar. Saddam Hussein, íraks- forseti, birtist í gær í sjón- varpinu í Baghdad ásamt hópi breskra gísla, þar af nokkrum börnum. I samræðum sínum við gísl- ana, sem fóru fram með að- stoð túlks, sagði Saddam að þeir væru ekki gíslar en sagð- ist þó hefði viljað hitta þá undir öðrum kringumstæð- um. Hann skýrði innrás sína í Kúvæt fyrir gíslunum með þessum orðum: „Hvernig myndi ykkur líða ef hluti Eng- lands yrði tekinn burt frá landi ykkar? Þætti ykkur jraö ekki slæmt?" Móðir í hópi gíslana spurði Saddam hvort láta mætti son hennar lausan svo hann gæti mætt í skóla í næstu viku. Hún fékk þau svör að sérfræðingar úr Menntamálaráðuneyti hans myndu hjálpa drengnum. ()nnur kona í hópnum fór fram á að fá að senda fjöl- skyldu sinni heima skilaboð og féllst Hussein undir eins á það. Samræðurnar fóru fram í, að því er virtist, litlu herbergi þar sem Hussein sat á stól með gíslana í sófum báðum megin viö sig. Þetta mun vera fyrsta sinn sern Hussein kemur fram í sjónvarpinu eft- ir innrásina í Kúvæt. „Væri ég ekki svona upptekinn hefði ég gjarnan viljað snæða með ykkur hádegisverð," voru lokaorð Saddams til gíslana. Þrátt fyrir góðlátlegt bros og örugga framkomu í sam- ræðum sínum.í sjónvarpinu við gíslana, virðist margt benda til að örvæntingar sé farið að gæta hjá íraksforseta. Aðspurður um þetta sagðist Bush Bandaríkjaforseti telja að Saddam væri farinn að finna fyrir því aö hann stæði einn án bandamanna og því væri hann orðinn örvænting- arfullur. Bush hefur nú kallað út varalið bandaríska hersins en það hefur ekki verið kall- aö út síðan í Víetnamstríðinu. Fjöldi hermanna og vopna streymir nú daglega til Saúdí-Arabíu. Það renndi stoðum undir grun Bush þeg- ar Hussein hvatti Mubarak Egyptalandsforseta í gær til þess að styðja sig gegn kom ungi Saúdi-Araba, Fahd. I bréfi Saddams til Mubaraks, sem lesið var í sjónvarpinu, var Egyptalandsforseti hvatt- ur til að ganga til liðs við ar- aba í baráttunni gegn „trú- leysingjum og siðspilltu fólki" í Saúdí-Arabíu. Þar segir enn fremur að írakar hafi undir höndum hljóðsnældu sem sanni að Fahd konungur sé í samsæri gegn írösku þjóð- inni. Fyrr um daginn sakaði Ab- dul-Rahim Kital, fulltrúi íraskra stjórnvalda, erlenda heri í Saúdí-Arabíu um að vera vopnaðir kjarnorku- vopnum og að ógna þannig öryggi í þeim hcimshluta. Ki- tal sagði margt benda til að erlend herskip í Persaflóan- um væru búin kjarnorku- vopnum. Hann sagði íraka fylgjandi því að svæðið yrði gereyðingarvopnalaust og að það mætti tryggja með al- þjóðlegu eftirliti. Kital sagöi veru erlendra herja í flóíinum brjóta í bága við alþjóðalög. NATO-ríki sem hafa sendi- ráð í Kúvæt fiafa ákveðitÝ aö hunsa skipanir íraka um áö öllum sendiráðum beri að loka fyrir næsta föstudag, aö sögn háttsettra embættis- manna Nato í gær. Banda- ríska fréttastofan ABC segir að Irakar hyggist umkringja öll vestræn sendiráð í Kúvæt og varna mönnum inn- og út- göngu úr sendiráðunum frá og með föstudagsmorgni. Flestar þjóðir hafa ákveöiö aö virða ekki skipanir íraka. Þeir 90 Svíar og 24 Finnar sem fluttir voru til landa- mæra Tyrklands á miðviku- dag hafa enn ekki fengiö aö fara yfir landamærin. Hins vegar leyfðu írakar þúsund Pakistönum ásamt 300 Rúm- enum og 21 Svisslendingi aö fara yfir um í gær. Tyrkir ótt- ast nú mikinn flóttamanna- straum yfir landamæri sín þar sem Jórdanir hafa nú lok- að landamærum sínum við írak. Þýskaland eitt ríki 3. október Þýsku ríkin í austri og vestri renna saman i eitt þann 3,október nk. Dag- setningin var samþykkt í austur-þýska þinginu í gærmorgun eftir mara- þonfundasetu. Austur-Þýskaland mun hætta að vera til aðeins fjór- um dögum fyrir 41. afmælis- dag sinn en það var stofnaö 7.október 1949. Dagsetning sameiningarinnar er alfariö í höndum Austur-Þjóðverja og þurfa þeir ekki að fá sam- þykki stjórnvalda í Bonn fyrir henni. Með sameiningu ríkjanna verður Helmut Kohl kanslari alls Þýskalands þar til þing- kosningar fara fram í öllu landinu í desember nk. Dagsetning sameinigarinn- ar var samþykkt á aust- ur-þýska þinginu með 294 atvkæöum gegn 62 og 7 sátu hjá. Tvo þriöju hluta atkvæöa þurfti til þess að tillagan yrði samþykkt. Það var Lothar de Maiziére, forsætisráðherra Aust- ur-Þýskalands, sem kallaði þingheim saman til að láta á það reyna hvort samstaða næðist og lagöi með því líf vejkrar rikisstjórnar sinnar að veði. Útkoman er talinn sigur fyrir Maiziére. Flokkur hans, Kristilegir demókratar, hefur verið upp á kant við Jafnaðarmannaflokkinn und- anfarnar tvær vikur, en þessir flokkar berjast um stuðning almennings fyrir þýsku kosn- ingarnar í desember nk. Jafn- aðarmenn gengu út úr ríkis- stjórninni sl. sunnudag eftir að Maiziere rak tvo ráöherra þeirra úr ríkisstjórninni. Með málamiðluninni í gær er harðri og langri baráttu þess- ara tveggja flokka um máliö lokið. Hins vegar eru þeir sammála um sjálfa samein- inguna. Vestur-þýsk stjórnvöld hafa fagnað ákvörðuninni og segj- ast fegin því aö átökum um dagsetninguna sé nú loksins lokið. Leiötogi vestur-þýska Jafn- Breskir hermenn í Persaflóanum þurfa að sætta sig við það harðræði að hafast við í eyðimörk- inni án birgða af blöðum sem innihalda myndir af léttklæddum stúlkum. Breska varnamálaráðu- neytið segir að slík blöð muni ekki fylgja þeim dagblöðum og tímaritum sem send verða. bresku dátunum í múslíma- ríkinu Saúdí-Arabíu. „Við vitum að hermennirn- ir hafa gaman af þessum^ aðarmannaflokksins, Oskar Lafontaine, sagði að nú þyrftu menn að taka saman höndum til að halda ástand- inu í Austur-Þýskalandi stöö- ugu og að rétta við efnahag landsins. myndum og ég er viss um aö þeirra verður saknaö . . . en við verðum að forðast að móðga Saúdí-Araba," sagöi talsmaður Varnamálaráðu- neytisins. Mest selda blað Bretlands, The Sun, kvartaði yfir þessu banni í eintaki blaðsins í gær með þeim orðum að hinir hugrökku bresku dátar yrðu að þola að vera án uppá- haldsstúlkunnar sinnar til aö raska ekki ró teprulegra Saúdí-Araba. Breskir dátar undir heraga

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.