Alþýðublaðið - 19.09.1990, Qupperneq 3
Miðvikudagur 19. sept. 1990
INNLENDAR FRETTIR
3
FRÉTTIR
Í HNOTSKURN
SAMTÖKSEM MÆTTU VERA MINNI: Landssam-
tök hjartasjúklinga voru stofnuö 1983 af 230 stofnfélögum
— í dag eru félagar orðnir um 1700. Því miður verður það
að segjast eins og er að þessi samtök mættu vera minni,
hjartasjúkdómar ógna mjög lífi og tilveru allt of margra
einstaklinga og fjölskyldna. Árlegur fjöldi hjartatilfella er
talinn vera 400—500, — ástæða er því til að ætla að félaga-
fjöldinn aukist enn að mun. Samtökin eru orðin það stór
að talið er nauðsynlegt að skipta þeim upp í deildir eftir
landssvæðum. Stofnfundir tveggja slíkra deilda voru
haldnir um helgina, — í Reykjavík og á Akureyri. Fleiri
munu fylgja á eftir.
GÆSASKYTTUR FELLU A SJALFS SIN BRAGÐI:
í blaðinu Feyki á Sauðárkróki er sögð skemmtileg saga af
gæsaskyttum tveim. Sveipuðu skyttur þessar sig með
hrosshúð til að komast nær fuglunum. Læddust kapparnir
nú um í stóðhestahólfi innan í húðinni. En þá gerðist það
óvænta. Graðfoli einn fékk ómælda ást á „yngismerinni"
nýkomnu og tók nú að bera sig til við hana. Þarf ekki að
orðlengja að skytturnar sáu sitt óvænna og áttu fótum fjör
að launa.
BIFREIÐASKOÐUN LÆKKI GJÖLDIN: Fulltrúaráð
verkalýðsfélaganna í Reykjavík hefur gert ályktanir þar
sem mótmælt er hækkun á þjónustugjöldum bifreiða. Slík-
ar hækkanir komi mjögilla við flestalla landsmenn og ekki
síst almennt launafólk. Hækkun Bifreiðaskoðunar Islands
sé ögrun við kjarasamningana frá 1. febrúar. Er skorað á
stjórn Bifreiðaskoðunar að lækka umrætt gjald og gæta
hófs við ákvörðun gjalda. Þá mótmælir Fulltrúaráð verka-
lýðsfélaganna hækkun gjalds á bílastæðum hjá Reykjavík-
urborg á sömu forsendum.
STEFNUBREYTING EIMSKIPS: Skipstjórafélagið
fagnar þeim ummælum Harðar Sigurgestssonar, for-
stjóra Eimskips, að það sé stefna félagsins að manna skip
í Islandssiglingum með íslendingum. Hér kveður við nýjan
tón og geðfelldari en verið hefur í langan tíma, til dæmis
frá Sambandi ísl. kaupskipaútgerða og stjórnarformanni
Eimskips á síðasta aðalfundi félagsins, segir Heiðar B.
Kristinsson, formaðurSkipstjórafélags íslands, um þetta.
Hins vegar segir formaðurinn að félagið hafni alfarið hug-
myndum um að fella niður skattgreiðslur áhafna kaup-
skipa að danskri fyrirmynd, félagið telur að allir þjóðfé-
lagsþegnar eigi að greiða skatta sína og skyldur til að
halda uppi velferðarþjóðfélaginu sem ísland á að vera.
NJÓSNARINN K0MINN AFTUR: Það er vissulega
að gefnu tilefni að bókin Njósnarinn sem kom inn úr kuld-
anum eftir John le Carré kemur nú út aftur. Kalda stríðinu
er lokið. Almenna bókafélagið sendi bókina frá sér í gær.
Bókin kom fyrst út hér á landi 1965, og á einum aldarfjórð-
ungi er heimsmyndin gjörbreytt frá því sem lýst er í bók-
inni. Engu að síður, frábær lesning um togstreitu og skærur
stórveldanna meðan kalda stríðið var í hámarki.
LAUNAVÍSITALAN ST0PP: Hagstofan hefur reiknað
launavísitölu fyrir septembermánuð miðað við meðallaun
í ágúst. Vísitalan reyndist óbreytt frá fyrra mánuði, 116,9
stig. Samsvarandi launavísitala sem gildir við útreikning
greiðslumarks fasteignaveðlána er 2.560 stig í október
1990 — óbreytt frá fyrra mánuði.
ÁHYGGJUR VEGNA LAUNADEILNA: „Nám við
Háskólann getur lamast," segir Sigurjón Þorvaldur
Árnason, formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands. Ráðið
hefur sent Ólafi Ragnari Grímssyni fjármálaráðherra
bréf þar sem lýst er áhyggjum af því að stundakennsla skuli
falla niður i einstökum námskeiðum líffræðiskorar vegna
launadeilna. Hætta sé á að deilurnar muni ekki einskorð-
ast lengi við líffræðiskor eina. Segir Stúdentaráð að það
hafi góðar heimildir fyrir því að meirihluti verklegrar
kennslu í lífeðlisfræði, líffræði, hjúkrunarfræði og í tann-
lækningum sé í hættu.
SIGRAÐI í ESJUÞ0L-
GÖNGUNNI: Á mynd-
inni má sjá sigurvegarann í
Esjuþolgöngunni, sem
fram fór um helgina, Sig-
urgeir Svavarsson frá 01-
afsfirði. Þrátt fyrir fremur
svalt veður tóku 134 þátt í
keppnini. Gengið var frá
Mógilsá upp að fremstu
vörðu á Þverfellshorni.
Eðlilegur tími á þessari
gönguleið mun vera um
klukkutími — Sigurgeir var
kominn upp á rétt tæpum 29 mínútum! Hann var þó í
harðri keppni við Garðbæing nokkurn, Jóhann Ingi-
bergsson, hálfri mínútu á eftir sigurvegaranum. Þriðji
varð Halldór Matthíasson, höfuðborgarbúi, á rétt rúm-
um 30 mínútum. Góð verðlaun voru í boði, — Sigurgeir
fékk Apple Mackintosh SE-tölvu, Jóhann Goldstar sjón-
varpstæki og Halldór Goldstar ferðatæki.
Hvaleyri hf.
til sölu?
„Við höfum verið að
skoða, hvort það eru ein-
hverjir möguleikar á
ákveðnum breytingum
þarna,“ sagði Þorsteinn
Már Balvinsson, Sam-
herjamaður á Akureyri,
aðspurður um hvort
Samherji hygðist selja
sinn hlut í Hvaleyri hf. í
Hafnarfirði, áður Bæjar-
útgerð Hafnarfjarðar.
„Það er bara á skoðunar-
stigi,“ sagði Þorsteinn.
Alþýðublaðið hefur
áreiðanlegar heimildir fyr-
ir því að þreifingar um sölu
Hvaleyrar hafi átt sér stað.
Hvaleyrin gerir nú út einn
togara, Víði.
„íslensk fiskvinnsla get-
ur ekki þolað þetta mark-
aðsverð sem er á íslensku
fiskmörkuðunum," segir
Þorsteinn Már. „Menn eru
aðallega að klóra augun
hver úr öðrum.“
Togari Hvaleyrar hefur
lagt upp á fiskmarkaði og
því hefur frystihúsið þurft
að kaupa allt sitt hráefni á
markaði. Þorsteinn sagði
að það væri töluverður
munur á fiskverði á Akur-
eyri og á fiskmörkuðunum
fyrir sunnan. Það verð sem
væri nú greitt fyrir fisk á
mörkuðunum gengi ekki
upp til lengdar.
Þá sagði Þorsteinn: „Það
er búið að vera mín per-
sónulega skoðun lengi að
fiskvinnslufyrirtæki á ís-
landi almennt verði að
stækka til að ná fram við-
bótarhagræðingu og meiri
stöðugleika. Eg held að það
sé slagur sem við verðum
að taka og stjórnvöld verða
að pína menn út í. Hætta að
hlaupa alltaf undir bagga
með þeim verst settu og
pína menn frekar í ákveðn-
ar hagræðingar. Það hefur
ekki verið gert. Nú tala
menn um það að endilega
þurfi að fara að gerast eitt-
hvað en það er svolítið
blóðugt að sjá það eftir að
búið er að verja mörgum
milljörðum í svokallaða
fjárhagslega endurskipu-
lagningu án þess komi fram
önnur endurskipulagning."
íslenskir aöalverktakar sf. högnudust vel á síöasta ári
Stefán Friðfinnsson
ráðinn forstjóri
*
— Thor O. Thors stjórnarformadur fyrirtœkisins
Stefán Friðfinnsson
rekstrarhagfræðingur, að-
stoðarmaður utanríkis-
ráðherra, var í gærdag
ráðinn forstjóri Islenskra
aðaiverktaka sf. Á stjórn-
arfundi fyrirtækisins í
gær óskaði Thor Ó. Thors,
sem verið hefur forstjóri
fyrirtækisins frá upphafi,
eftir að láta af því starfi.
Ákvað stjórnin þá að ráða
Stefán til starfans. Mun
hann gegna starfi for-
stjóra ásamt Gunnari Þ.
Gunnarssyni, núverandi
forstjóra.
Á aðalfundi íslenskra verk-
taka sf. kom fram mjög góð
staða fyrirtækisins í hví-
vetna. Heildarvelta var 3.160
milljónir króna og hagnaður
fyrir skatta varð 297 milljónir
króna.
í samræmi við samkomu-
lag um útborganir og breyt-
ingar á eignarhlutum sem af
því leiða, hafa eignaraðilar
endurskoðað félagssamning
og hefur hann verið staðfest-
ur, segir í fréttatilkynningu
frá íslenskum aðalverktökum
sf. í gær, en fréttatilkynning-
ar frá fyrirtækinu hafa til
Stefán Friðfinnsson, hinn nýi
forstjóri íslenskra aðalverk-
taka sf.
þessa ekki margar borist fjöl-
miðlum.
Samkvæmt þessu tilnefnir
utanríkisráðherra 3 menní
stjórn, Reginn hf. einn og
Sameinaðir verktakar tvo
menn. Tilnefnt hefur verið í
stjórn, sem verður þannig
skipuð:
Thor Ó. Thors, stjórnarfor-
maður, Ragnar Halldórsson,
trésmíðameistari, Jón Sveins-
son, aðstoðarmaður forsætis-
ráðherra, Halldór H. Jóns-
son, arkitekt, Ingólfur Finn-
bogason, húsasmíðameistari,
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri.
Volvo hyggst halda
út i sjónvarpsrekstur
Frá Þorlííki Helgasyni, blaöamanni
Alþýöublaösins, Stohkbóbni
Per Gyllenhammar,
forstjóri VOLVO , er
kominn á fullt skrið við
að undirbúa Stöð 3, sjón-
varpsstöð með auglýs-
ingum. Eftir óvænta
samþykkt flokksþings
sænskra jafnaðarmanna
í gær um að leyfa skuli
auglýsingar í sjónvarpi
hafa hjólin byrjað að
snúast. Talað er um að
sjónvarpið verði ekki í
Stokkhólmi og þá koma
Maimö og Gautaborg
helst til greina.
Ef Volvo slær til, mun fyr-
irtækið leggja fram áhættu-
fjármagn, fyrirtækið stend-
ur vel og á í digra sjóði að
sækja. Stöð 4 sem hóf send-
ingar hér í Svíþjóð með tak-
mörkuðum glæsibrag fær
heldur betur hnífinn í bakið
ef stórfyrirtæki á borð við
Volvo hellir sér út á fjöl-
miðlamarkaðinn. Er því’
spáð að þar verði myndar-
lega að hlutum staðið.