Alþýðublaðið - 22.09.1990, Blaðsíða 9
Laugardagur 22. sept. 1990
9
Iþróftafélag í sviðsljósi
Meistaraflokkur Hauka í knattspyrnu 1978. Þetta lið vann ser rett til að leika 11. deild eftir mikla baráttu og dugnað sem endaði með
silfurverðlaununum. Hér taka strákarnir við verðlaununum sínum á Laugardalsvellinum. Talið frá vinstri: Ólafur Sigurgeirsson, Ólafur
Jóhannesson, Axel Magnússon, Örn Bjarnason, Guðjón Sveinsson, Sigurður Aðalsteinsson, Guðmundur Sigmarsson, Árni Yngvi Her-
mannsson, Úlfar Brynjarsson, Daníel Hálfdánarson, Björn Svavarsson, Lárus Jónsson, Vignir Þorláksson, Haukur Hauksson, Hannes Sig-
marsson, Svavar Svavarsson, Ólafur Torfason, Þráinn Hauksson og Pétur Árnason, form. knattspyrnudeildar.
Knattspyrnufélagið
HAUKAR
Stofnað:
12. apríl 1931
Formaður:
Steinþór Einarsson
íþróttagreinar á
stefnuskrá:
Knattspyrna,
handknattleikur,
körfuknattleikur,
karate og skíðaíþróttir
HAIIKAR traust félag
i mikilli framför
Á næsta vori, nánar tiltekið 12. apríl, eru liðin 60
ár siðan Knattspyrnufélagið Haukar i Hafnarfirði
var stofnað, annað af stóru félögunum i Firðinum.
Eins og með svo mörg íþrótta-
eða knattspyrnufélög voru það 13
hafnfirskir drengir á fermingar-
aldri, sem stofnuðu Hauka. Slíkar
félagsstofnanir voru svo sem eng-
in nýlunda á þeim tíma. Flestir
hafa vafalaust álitið þessa félags-
stofnun bólu, sem brátt myndi
hjaðna, en það fór nú á annan veg.
Trúlega hefur það gert gæfumun-
inn, hvernig til þess var stofnað.
KFUM og sr. Friðrik_________
voru með i ráðum____________
Stofnendurnir 13 voru allir starf-
andi innan KFUM, en gæfa þeirra
var að njóta forystu valinkunnra
sæmdarmanna. Þar má nefna Jóel
Ingvarsson, æskulýðsleiðtoga í
KFUM, að ógleymdum höfuðleið-
toga KFUM ogÍCá íslandi, sr. Frið-
rik Friðrikssyni. Það var sr. Friðrik
sem gaf félaginu nafnið Knatt-
spyrnufélagið Haukar. Þessir
mætu menn studdu hina ungu
stofnendur fyrstu skrefin og lögðu
sig fram um að vel tækist til.
Ásvellir —__________________
framtiðarsvæði Haukq
Eitt af fyrstu verkefnum félags-
ins var að ræða vallarleysið og á
fundi um það mál, sem haldinn
var utandyra stakk einhver upp á
því að fá leyfi bóndans á Hrauns-
holti til að ryðja völl á mel í landar-
eign hans og leyfið fékkst góðfús-
lega. Ekki vantaði áhuga féiags-
manna, sem fjölgaði stöðugt og
það tókst að gera völlinn leikhæf-
an á ótrúlega skömmum tíma.
Þarna iðkuðu Haukar æfingar um
nokkurn tíma, en þegar knatt-
spyrnufélagið Þjálfi lognaðist út af
fengu Haukar Hvaleyrarvöllinn til
afnota og hafa enn. Félagið hefur
ekki enn fengið nýtískulegt
íþróttahús til æfinga í innanhúss-
íþróttum, t.d. í handbolta, körfu-
bolta o.fl. greinum. Notað hefur
verið bráðabirgðahúsnæði við
Flatahraun í allmörg ár, sem er
ágætt svo langt sem það nær.
Nú nýverið gerðist sá stórat-
burður í sögu þessa félags, að því
var úthlutað athafnasvæði í landi
Ass, sem er austan við Keflavíkur-
veginn. Þar eru nú þegar hafnar
framkvæmdir við íþróttasvæði
Hauka og fyrirhugað er að þar
verði knattspyrnu-, körfubolta- og
handknattleiksvellir ásamt
íþróttahúsi og félagsmiðstöð.
Svæðið er nefnt Asvellir. Ekki er
að efa, að þar verði tekið til hend-
inni. Framkvæmdir eru unnar í
samráði við Hafnarfjarðarbæ,
sem leggur fram 80% kostnaðar á
inóti 20% frá Haukum.
Margir góðir sigrar
hafa unnist
Knattspyrnan er sú grein sem fé-
lagið var stofnað um og þó að oft
hafi náðst góður árangur í þeirri
íþrótt innan Hauka hefur félaginu
aldrei fallið í skaut sigur í 1. deild
eða bikarmeistaratitill. Meistara-
flokkur hefur oftast leikið í 2. deild
með allgóðum árangri og einu
sinni, 1979, lék liðið í 1. deild, en
dvölin var alltof stutt. Sigur hefur
unnist í Litlu bikarkeppninni og
góðir sigrar í yngri flokkum, þó
árangur hafi oft verið misjafn.
Kannski er samheldnin og gott fé-
lagslíf innan knattspyrnudeildar
ein sterkasta hliðin, en slíkt er
hverju íþróttafélagi brýn nauðsyn.
HandknaHleikur i____________
Haukum nærri________________
jqfngamall félaginu
Hin vinsæla íþrótt, handknatt-
leikur er svo til jafngamall félag-
inu en Haukar höfðu ekki náð eins
árs aldri, þegar rætt var um að
hefja æfingar í þeirri grein. Og það
var ekki staðið við orðin tóm, æf-
ingar hófust 1933 undir stjórn
Óskars Evertssonar. Ekki er mögu-
iegt að rekja sögu íþróttarinnar í
þessu stutta yfirliti, en Islands-
meistaratitlar ásamt bikarmeist-
aratitlum hafa unnist. Haukar áttu
mjög sterkt lið, bæði í karla og
kvennaflokkum á fimmta áratugn-
um svo og í lok þess áttunda og í
byrjun þess níunda. Hæst ber sig-
ur karlaflokksins 1943, er félagið
varð íslandsmeistari og stúlkurnar
hlutu titilinn bæði 1945 og 1946.
— Karlaflokkurinn var Islands-
meistari utanhúss 1978 og 1979 og
bikarmeistari 1980. Haukar tóku
þátt í Evrópubikarkeppninni árið
eftir og voru slegnir út af vestur-
þýsku meisturunum, Nettelstedt,
sem síðar urðu Evrópumeistarar.
Margir sigrar i_____________
körfuknattleik
Körfuknattleikur komst á dag-
skrá hjá Haukum fyrir um það bil
tveimur áratugum. Uppbygging
íþróttarinnar gekk vel hjá félaginu
og margir snjallir menn lögðu þar
hönd á plóginn. Margir sigrar hafa
unnist í þessari grein, m.a. bæði Is-
lands- og bikarmeistaratitlar. Eins
og í öðrum deildum hjá þessu
ágæta félagi hefur samheldnin og
góður félagsandi ráðið ríkjum.
Nýjar íþróttagreinar
og björt framtið
..--------------------------
A þessu ári hafa tvær nýjar
íþróttagreinar verið teknar á
stefnuskrá félagsins, þ.e. karate og
skíðaíþróttir. Ekki er að efa, að þar
verður haldið vel á málum eins og
í öðrum greinum félagsins. Fram-
tíð Hauka er björt, handknatt-
leiksmenn unnu sér rétt til að leika
í 1. deild í sumar, knattspyrnu-
menn urðu í 2. sæti í 3. deild og
leika því í 2. deild að ári. Þá eru
hafnar framkvæmdir við íþrótta-
mannvirki félagsins við Ásvelli og
ekki er að efa, að þar verður hald-
ið vel á málum.
Örn Eiðsson
skrífar
Bikarmeistarar Hauka. Efri röð frá vinstri: Sigurður Guðmundsson
liðsstjóri, Viðar Símonarson þjálfari, Árni Hermannsson, Ingimar
Haraldsson, Guðmundur Haraldsson, Þórir Gíslason, Sigurgeir
Marteinsson, Júlíus Pálsson, Hörður Harðarson og Guðmundur
Aðalsteinsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka. Fremri röð
frá vinstri: Árni Sverrisson, Stefán Jónsson, Ólafur Guðjónsson,
Andrés Kristjánsson með bikarinn, Gunnar Einarsson, Þorlákur
Kjartansson og Gunnlaugur Gunnlaugsson.
Meistaraflokkur Hauka á árunum 1939—41, Guðmundur Eyþórsson, Friðþjófur Sigurðsson, Jón Eg-
ilsson, Lárus Bjarnason, Karl Auðunsson, Lárus Sigurðsson, Helgi Hóseason, Páll, Sævar Magnússon,
Stefán Egilsson, Sigurbjörn Þórðarson.