Alþýðublaðið - 22.09.1990, Page 12
• ••• •••• • •••••••••• ••••
• •• •••• ••
•••• •••• • • • •••• ••••
• •• •••• ••
• • •••• ••• • •••• • •
NIKOSIU ! írösk yfirvöld, sem virðast undirbúa stríð, vís-
uðu vestrænum erindrekum úr landi í gær. Með því vilja
þeir hefna fyrir brottvísun íraskra sendifulltrúa frá Vestur-
löndum í síðustu viku. Egypskum hermálafulltrúa og 2
starfsmönnum hans var einnig vísað á brott. Egypsk
stjórnvöld hafa svarað fyrir sig og lokað hermálaskrifstofu
Iraka í Kairó og yfirvöld í Washington hafa vísað þremur
íröskum stjórnarerindrekum úr landi í kjölfar brottreksturs
þriggja bandarískra erindreka frá Baghdad.
MOSKVU ! Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi segist hugs-
anlega verða að auka völd forseta og gera aðrar neyðar-
ráðstafanir til að tryggja reglu og yfirstíga hindranir í vegi
fyrir umbótum í landinu. Æðsta ráðið frestaði fram á
mánudag að taka ákvörðun um hvort auka skuli völd for-
setans.
WASHINGTON: George Bush Bandaríkjaforseti segist
óttast að hryðjuverkasamtök hliðholl írökum láti til skara
skríða gegn Bandaríkjamönnum. Hann varar við að slíkt
muni hafa alvarlegar afleiðingar.
MADRID: Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Dick
Cheney, segir að yfirvöld í Washington hyggist selja
Saúdí-Aröbum auknar vopnabirgðir vegna Persaflóadeil-
unnar en sagði að ekki hefði verið ákveðið hversu mikil
söluaukningin yrði.
LIBREVILLE: Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Gabon
sem krafist hafa þess að þingkosningar verði endurteknar,
segjast hafa tekið boði Omars Bongo forseta um að kosn-
ingarnar verði endurteknar í helmingi kjördæma landsins.
WASHINGTON: Nelson
Mandela segir að Afríska
þjóðarráðið muni útvega
stuðningsmönnum sínum
vopn til að verjast árásum
stríðsmanna Inkatha-hreyf-
ingarinnar, grípi stjórnvöld
hvítra ekki til aðgerða til að
binda enda á ofbeldið.
Buthelezi, leiðtogi Inkatha.
LONDON ! Uppreisnarmenn Kúrda segja að írakar hafi
flutt um 9000 manns frá írak til Kúvæt og að þeim hafi ver-
ið veitt fölsuð kúvæsk vegabréf.
NYJU-DELHI: Indverskir og pakistanskir hermenn
skiptust á skotum eftir að þeir síðarnefndu reyndu að ráð-
ast inn í Kashmir, að sögn indverska varnarmálaráðuneyt-
isins. Ekki var tilkynnt um dauðsföll.
Olíuborar í Saúdi-Arabíu.
L0ND0N ! Olíuverð hefur aldrei verið hærra í níu ár en
það tók mikið stökk upp á við í kjölfar yfirlýsingar Sadd-
ams Husseins, þar sem hann hvetur landa sína að búa sig
undir langvarandi stríð.
BELGRAD ! Lögreglan handtók fyrrverandi forsætisráð-
herra Kosovo og sex aðra leiðtoga Albana fyrir að lýsa yfir
sjálfstæði fylkisins og segja það úr lögum við lýðveldið
Serbíu.
0SL0: Sjóher Sovétríkjanna stöðvaði skip Green-
peace-manna, þar sem það tók jarð- og vatnsýni nærri
norðurskautseyjunni Novaja Zemlja, þar sem Sovétmenn
stunduðu í eina tíð kjarnorkusprengingar í tilraunaskyni.
ERLENDAR FRÉTTIR
Umsjón: Glúmur Baldvinsson
Strídslíkur aukast aftur viö Persaflóa:
Saddam útilok-
ar eftirgjöf
Irösk yfirvöld, sem forð-
ast nú allar friðarumleit-
anir og segjast tilbúin að
heyja langvarandi stríð,
vísuðu í gær nokkrum
stjórnarerindrekum frá
Vesturlöndum úr landi.
Með því voru þau að hefna
fyrir brottrekstur íraskra
sendifulltrúa frá ríkjum
Vesturlanda í kjölfar inn-
rásar íraskra hermanna í
sendiráð vestrænna ríkja í
Kúvæt-borg.
Meðal þeirra sem vísað var
úr landi voru 11 Frakkar, 3
Bretar, 2 V-Þjóðverjar og 2
Spánverjar. Spænsk yfirvöld
hafa enn ekki vísað íröskum
erindrekum úr landi en segj-
ast ætla að gera slíkt í næstu
viku.
Brottvísunin kom í kjölfar
hörðustu yfirlýsingar Sadd-
áms Husseins í deilunni hing-
að til. Yfirlýsingin var lesin í
sjónvarpinu í Baghdad
skömmu eftir miðnætti í gær
og þar kom fram að írakar
myndu aldrei draga her sinn
frá Kúvæt og friðarviðræður
voru ekki nefndar á nafn.
„Gerum öllum heyrinkunn-
ugt að þetta stríð mun verða
mest allra stríða," sagði í yfir-
lýsingunni.
Skömmu eftir að yfirlýsing-
in var lesin skýrði sjónvarpið
í Baghdad frá því að tvær
flugvélar sem komu úr átt frá
Saúdí-Arabíu hefðu rofið loft-
helgi íraks.
George Bush Bandaríkja-
forseti lýsti í gær yfir áhyggj-
um sínum af hugsanlegri
hryðjuverkaöldu gegn
Bandaríkjamönnum vegna
deilunnar um Kúvæt. Hann
varaði við að hryðjuverk
gegn Bandaríkjamönnum
myndu hafa alvarlegar afleið-
ingar í för með sér og að þeim
yrði mætt af fullri hörku.
Talsmaður forsetans neitaði
því að yfirlýsing Bush sýndi
þess merki að hann undir-
byggi stríð gegn írökum.
Æösta ráö Sovétríkjanna frestar ákuardanatöku um efnahagsstefnu:
Ryzhkov vill málamiðlun
Þing Sovétríkjanna
frestaði í gær atkvæða-
greiðslu um hvaða áætlun
eigi að fylgja til að koma
markaðsvæðingu í land-
inu vegna þess hversu fáir
þingmenn voru mættir til
þingfundarins.
Æðsta ráð Sovétríkjanna
frestaði í dag að taka ákvörð-
un um hvort taka beri upp
áætlun er kveður á um mark-
aðsbúskap vegna þess hversu
fáir meðlimir mættu til at-
kvæðagreiðslu.
Ráðið fyrirhugar að koma
aftur saman á mánudaginn til
þess að greiða atkvæði um
áætlanir er varða framtíðar-
stefnu Sovétstjórnarinnar í
efnahagsmálum en mest púð-
ur þingmanna hefur farið í
deilur um þau mál undan-
farnar vikur.
Míkhaíl Gorbatsjov Sovét-
leiðtogi og Níkolaj Ryzhkov,
forsætisráðherra hvöttu
menn fyrr um daginn til þess
að taka ákvörðun um málið
tafarlaust.
Ryzhkov hefur lagst gegn
áætlun um róttækar breyt-
ingar á hagkerfi Sovétríkj-
anna og hefur sjálfur lagt
fram áætlun sem gerir ráð
fyrir mun hægari breyting-
um. Hann hefur sætt gífur-
legri gagnrýni undanfarið og
honum kennt um allt sem af-
laga hefur farið í efnahags-
stjórn Sovétríkjanna. Rúss-
Nicu Ceausescu, sonur
hins fallna einræðisherra
Rúmeníu, var í gær dæmd-
ur í 20 ára fangelsi fyrir að
eiga þátt í morðum á 91
óbreyttum rúmenskum
borgara í desember bylt-
ingunni gegn föður hans.
Öllum á óvart felldi herrétt-
urinn í Búkarest niður ákæru
neska þingið hefur hvatt
hann og ríkisstjórnina til að
segja af sér og hann hefur lýst
því yfir að hann muni gera
slíkt verði hin róttæka áætlun
samþykkt.
í gær hvatti hann til að gerð
yrði málamiðlun um áætlan-
irnar og hvatti þingmenn til
að taka það besta úr báðum.
um þjóðarmorð sem falið
hefði í sér lífstíðardóm. Nicu
fékk hins vegar þyngstu
mögulega refsingu fyrir að
hafa staðið að morði af hæstu
gráðu. Rétturinn úrskurðaði
að hann hefði gefið fyrirskip-
anir sem leiddu til drápanna.
Nicu var einnig sviptur yfir-
mannstign sinni í hernum og
fær ekki kosningarétt fyrr en
Líklegt þykir að hin rót-
tæka áætlun sem kennd er
við hagfræðingin Staníslav
Sjatalín verði samþykkt. Hún
kveður á um að frjálsu mark-
aðskerfi verði komið á í Sov-
étríkjunum á innan við 500
dögum.
10 árum eftir afplánun dóms-
ins.
Nicu áfrýjaði dómnum þeg-
ar í stað til yfirréttar en verið
getur að dómur hans verði
endurskoðaður í næstu viku
komist rétturinn að þeirri
niðurstöðu að hann þoli ekki
fangelsisvist sökum heilsu-
leysis.
Dómur fallinn í máli Nicus Ceausescu:
20 ára fangelsi
Erjur franskra og ítalskra hjóna:
Eiginkoncm fryst
Tæplega þrítugur
franskur póstburðarmað-
ur, Patrice Berne, hefur
verið ákærður fyrir að
myrða eiginkonu sína á
óhugnanlegan hátt.
Berne mun hafa kyrkt
konu sína, Nicole, eftir að
hún sakaði hann um getu-
leysi í rúminu, að því loknu
skar hann konuna í búta og
kom þeim fyrir í frystikistu
heimilisins.
Nágrannar hjónanna segja
að þau hafi komið fram í sjón-
varpsþætti um fyrirmyndar-
hjón árið 1988.
Lögreglan hafði leitað Nic-
ole í þrjá mánuði þegar leifar
hennar fundust í frystikistu á
heimili þeirra hjóna.
Meira um hjónaerjur. '
ítalskur vörubílstjóri frá bæ
einum í nágrenni Teramo á
Ítalíu ætlaði að stytta sér
stundir á vændihúsi bæjarins
en brá illilega við þegar dyrn-
ar voru opnaðar af drottn-
ingu hússins — eiginkonu
hans.
Lögreglan á staðnum segir
að þegar maðurinn hafði
jafnað sig af áfallinu hafi
hann lamið, sparkað í og út-
húðað fáklæddri eiginkonu
sinni. Henni var bjargað af
viðskiptavinum og starfs-
mönnum vændishússins.
Lögreglan segist nú vera að
rannsaka ákærur eiginkon-
unnar.