Alþýðublaðið - 06.10.1990, Side 3
INNLENDAR FRETTIR
FRÉTTIR
í HNOTSKURN
ÆRKJÖTTIL PERSAFLÓA: AF 140 milljón króna
fjárframlagi til neyðarhjálpar vegna Persaflóadeilunnar
mun Rauði kross Islands ráðstafa 90 milljónum. Þar af eru
50 milljónir vegna aðstoðar við flóttamenn í Egyptalandi
og er ráðgert að kaupa matvæli og hjálpargögn hérlendis
fyrir þessar fjárhæðir. Meðal matvæla sem send verða til
Persaflóasvæðisins eru 10 tonn af niðursoðnu ærkjöti frá
Kjötiðnaðarstöð KEA á Akureyri. Einnig mun ætlunin að
senda reykta síld og kex.
VINNA VIÐ TÖLVUR:
Vinnueftirlit ríkisins hefur
gefið út nýtt fræðslu og
leiðbeiningarit sem nefnist
Vinna við tölvu. Þessi bæk-
lingur kemur í stað bæk-
lings frá 1984 um svipað
efni. Leitast er við að gefa
sem sem skýrasta mynd af
því hvernig góð vinnuskil-
yrði eiga að vera fyrir fólk
sem vinnur við tölvur.
Reynt er að svara spurning-
um sem alltaf eru að koma upp og vekja stundum kvíða,
einkum varðandi húðútbrot, ofnæmi og meðgöngu. Bæk-
lingurinn fæst hjá Vinnueftirliti ríkisins.
FRETTALJOSMYNDIR: Hin árlega fréttaljósmynda-
sýning World Press Photo verður opnuð í Listasafni ASÍ á
morgun og verður hún opin til 14. október. Miklir atburðir
hafa gerst í Evrópu á liðnu ári og eru fréttaljósmyndirnar
meðal annars lýsandi myndræn frásögn af þeim viðburð-
um.
HATIÐARMESSA: Sérstök hátíðarmessa verður í Kópa-
vogskirkju á sunnudaginn í tilefni þess að þá verður lokið
uppsetningu altaristöflu í kirkjunni. Þetta málefni á sér
langan aðdraganda því það var árið 1971 sem safnaðar-
fundur samþykkti að koma upp altaristöflu í kirkjunni. Að
undangenginni samkeppni sem lauk í febrúar síðastliðn-
um var Steinunn Þórarinsdóttir, myndlistarmaður, ráðin til
að gera altaristöfluna og er hún gerð af steini og gleri. Við
hátíðarmessuna prédikar biskup Islands, herra Olafur
Skúlason, og listamenn sjá um söng og hljóðfæraleik.
SÝNINGAR í NÝLISTASAFNI: Tvær sýningar hafa
verið opnaðar í Nýlistasafninu við Vatnsstíg í Reykjavík. Á
efri hæðum sýnir Haraldur Jónsson þrívíð verk og í neðri
sölum sýnir Ingileif Thorlacius málverk. Þetta er önnur
einkasýning þeirra beggja. Safnið er opið daglega kl.
14—18 og er aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
MÁLVERKAUPPBOÐ: Gallerí Borg efnir til málver-
kauppboðs í samvinnu við Listmunauppboð Sigurðar
Benediktssonar hf. í Súlnasal Hótel Sögu á sunnudaginn.
Um 60 verk verða boðin upp, flest öll eftir þekkta lista-
menn, þar af mörg eftir „gömlu meistarana". Uppboðið
hefst kl. 20.30, en verkin verða til sýnis í Gallerí Borg á
morgun og sunnudag kl. 14—18.
K0NUR 0G BYGGÐAÞRÓUN: Norræn ráðstefn'a um
byggðaþróun á Norðurlöndum og stöðu kvenna verður
haldin að Hótel Örk í Hveragerði í lok næstu viku. Það er
Jafnréttisráð sem stendur fyrir ráðstefnunni í samvinnu
við Byggðastofnun og hliðstæða aðila á Norðurlöndum.
Kynntar verða stjórnvaldsaðgerðir sem sérstaklega hafa
verið miðaðar við þarf ir og hagsmuni kvenna í dreifbýli og
fjallað um vænlega framtíðarþróun byggðamála frá sjónar-
hóli kvenna. Fyrirlesarar verða frá Noregi, Svíþjóð, Dan-
mörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi og Islandi, en
samtals er boðið til ráðstefnunnar um 70 þátttakendum.
Ráðstefnustjórar verða Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytis-
stjóri í félagsmálaráðuneytinu, og Kristófer Óliversson,
skipulagsfræðingur hjá Byggðastofnun.
MINNINGARSJOÐUR: Stofnaður hefur verið sjóður
til minningar um Ragnar Emilsson arkitekt sem lést 27.
september. Útför hans verður gerð frá Grindavíkurkirkju
á laugardaginn kl. 14. Þeim sém vildu minnast hans er bent
á að láta sjóðinn njóta þess.
Sjóðurinn er á sparisjóðsreikningi 175511 í Landsbanka
Íslands og verður honum varið til styrktar Grindavíkur-
kirkju sem Ragnar teiknaði. Hanp teiknaði auk hennar
m.a. Mosfellskirkju og kirkju í Þykkvabæ, í Stóradal undir
Eyjafjöllum og í Höfn í Hornafirði.
Dregið úr bensínhœkkun:
Rikið lækkar
tollgjaldið
Fjármálaráðherra hefur
í samráði við ríkisstjórn-
ina ákveðið að beita sér
fyrir breytingu á tollalög-
unum þannig að hlutur
ríkisins af bensínverði
hækki ekki I krónutölu frá
því sem var við síðustu
verðlagningu. Bensíntoll-
ur er nú 50% en mun að
samþykktu frumvarpi fjár-
málaráðherra iækka í um
30—35% og hlutur ríkis-
ins í bensínverði hækkar
því aðeins um löngu
ákveðin 6%.
Verð á bensínlítra hækkaði
í morgun úr 52 krónum í
56,80 samkvæmt ákvörðun
Verðlagsráðs í gær. Ef ekki
hefði verið tekið tillit til
ákvörðunar fjármálaráð-
herra og ríkisstjórnar um
tollalækkun til næstu ára-
móta hefði bensínverð á lítra
orðið 59,80 kr. Samþykkt
frumvarpsins á þingi jafngild-
ir því 3 króna tímabundinni
niðurgreiðslu á bensínlítr-
ann.
Hækkun á bensínverði nú
mun jafngilda 0,40% hækk-
un framfærsluvísitölu, en
hefði orðið 0,65% ef ekki
hefði verið gefið fyrirheit um
hina tímabundnu tollalækk-
un. Tekjur ríkissjóðs af bens-
íni rýrna um 50 milljónir
króna á mánuði vegna þess-
arar ákvörðunar.
Fulltrúar ASÍ, BSRB og VSÍ
hafa að undanförnu átt í við-
ræðum við fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar og fjármála-
ráðuneytisins um þessi mál.
Til grundvallar þeim viðræð-
um hefur legið mat ráðuneyt-
. isins á áhrifum hærra bensín-
verðs á verðlag og afkomu
ríkissjóðs. Aðilar eru sam-
mála um að varanleg hækk-
un á olíuverði mundi valda
verulega þungum búsifjum
og tekjuskerðingu hjá ríkis-
sjóði líkt og á öðrum sviðum
efnahagslífsins. Ákvörðun
um lækkun bensíntolla er
tekin í samráði við þessa að-
; ila og er ætlað að styrkja
■ þjóðarsáttina.
Gervihnattadiskar:
Eftirlit
eða frelsi
„Við vitum að okkar að-
staða til að fylgjast með
þessu er afar bágborin,“
sagði Steingrímur Sigfús-
son samgönguráðherra,
þegar hann var spurður
um aðgerðir ráðuneytis-
ins vegna fjölda ólöglegra
gervihnattadiska, sem Al-
þýðublaðið greindi frá í
gær. „Við höfum viijað
reyna að fá menn til sam-
starfs með góðu og höfum
í raun orðið að treysta á
löghlýðni manna. En ef
þetta lagast ekki sýnist
mér ekki vera nema um
tvennt að ræða. Annað
hvort verðum við að stór-
auka eftirlit og grípa til
viðurlaga eða þá að gefa
þetta alveg frjálst."
Þessi ummæli Steingríms
áttu að fylgja fréttaskýringu
Alþýðublaðsins í gær en af
einhverjum ástæðum komust
þau ekki í gegn um vinnslu-
feril blaðsins. Samgönguráð-
herra er beðinn velvirðingar
á þeim mistökum.
Ekki var þverfótaö fyrir traktorsgröfum við húsakynni borg-
arverkfræðings i gærmorgun eins og sjá má. Það er Ágúst
Nordgulen, forsvarsmaður eigenda þessara tækja sem
stendur í forgrunni. Eigendur voru að mótmæla þvi að
Reykjavíkurborg þvingar eigendur til að selja þjónustu sína
undir kostnaðarverði og ákveður einhliða greiðslutaxta. Er
nú þolinmæði gröfueigenda á þrotum og voru aðgerðirnar í
gær liður í að knýja fram leiðréttingu. A-mynd: EÓL.