Alþýðublaðið - 06.10.1990, Side 6
Kjördœmisþing Alþýduflokksins í Nordurlandskjördœmi:
íslenskir jafnaðarmenn
endurskoði ýmis stefnumið
Kjördæmisþing Alþýðuflokksins i Norðuriands-
kjördæmi eystra var haldið ó Akureyri laugardag-
inn 29. september sl. Þingið sóttu rúmlega 50 full-
trúar viða úr kjördæminu, og urðu miklar umræður
um stjórnmálaástandið, en þó einkum um atvinnu-
málin i kjördæminu.
Kosningar___________________
í stjórn kjördæmisráðsins voru
kjörin: Gunnar B. Salomonsson,
Húsavík, formaður, Ingólfur JÓns-
son, Akureyri, og Ríkharður Sig-
urðsson, Ólafsfirði. Til vara: Helga
Árnadóttir, Dalvík, og Sigurður
Oddsson, Akureyri.
í flokksstjórn Alþýðuflokksins
voru kjörin: Hulda Eggertsdóttir,
Akureyri, Brynjar Sigtryggsson,
Húsavík, Gísli Bragi Hjartarson,
Akureyri, og Steindór Gunnars-
son, Ákureyri. Til vara: Unnur
Björnsdóttir, Akureyri, og Kolbrún
Pálsdóttir, Akureyri.
í verkalýðsnefnd voru kjörnir:
Sævar Frímannsson, Akureyri, og
Jökull Guðmundsson, Akureyri.
Á kjördæmisþinginu voru sam-
þykktar nokkrar ályktanir, sem
hér fylgja með.
Stjérnmálaályktun___________
Kjördæmisþingið lýsir ánægju
sinni með þann árangur, sem ríkis-
stjórnin hefur náð, með dyggum
stuðningi verkalýðshreyfingar og
vinnuveitenda, í baráttunni við
verðbólguna. Brýna nauðsyn ber
til að viðhalda því jafnvægi, sem
náðst hefur í efnahagsmálum.
Kjördæmisþingið lýsir hins veg-
ar áhyggjum sínum vegna þróunar
atvinnumála víða á landsbyggð-
inni og bendir á, að á nokkrum
þéttbýlisstöðum í Norðurlandi
eystra er atvinnuleysi orðið við-
varandi. en ekki árstíðabundið
eins og áður var. Byggðaþróun á
landsbyggðinni bendir til þess, að
hún eigi nú mjög undir högg að
sækja gagnvart Stór-Reykjavíkur-
svæðinu.
í stjórnarsáttmála núverandi
ríkisstjórnar eru ákveðnar yfirlýs-
ingar um ,,að stefnt skuli að jafn-
vægi í byggð landsins". Kjördæm-
isþinginu þykir nokkuð á það
skorta að þessari yfirlýsingu hafi
verið fylgt eftir. Þingið bendir m.a.
á álversmálið í þessu sambandi.
Kjördæmisþingið lýsir ánægju
sinni með störf ráðherra flokksins
á ýmsum sviðum. Þingið þakkar
forgöngu viðskiptaráðherra í því
verki að færa íslenskan fjármagns-
markað í nútímalegra horf og að
hnika honum nær alþjóðlegum
peningamarkaði. Einnig baráttu
hans fyrir lækkun vaxta og fjár-
magnskostnaðar, fækkun banka
og beislun hins ,,gráa“ fjármagns-
markaðar.
Barátta félagsmálaráðherra hef-
ur sýnt og sannað, að mikil þörf
var á grundvallarbreytingu á hús-
næðiskerfinu. Húsbréfakerfið hef-
ur þegar sannað ágæti sitt, og
væntir kjördæmisþingið þess, að
félagsmálaráðherra haldi áfram
baráttu sinni fyrir félagslega hús-
næðiskerfinu.
Þingið lýsir ennfremur ánægju
sinni með skeleggt starf og fram-
göngu utanríkisráðherra sem for-
manns viðræðunefndar EFTA í
samningaviðræðum við Efna-
hagsbandalagið. Þessar samn-
ingaumleitanir eiga einn drýgsta
þáttjnn í því, að viðræður EFTA
við bandalagið hafa náð eins langt
og raun bera vitni. Þá minnir þing-
ið á frumkvæði, sem felst í tillög-
um utanríkisráðherra um afvopn-
un á Norður-Atlantshafi, sem hef-
ur gildi fyrir allt mannkyn, en ekki
síst mikla þýðingu fyrir okkur ís-
lendinga.
Nú, þegar skammur tími er til
flokksþings, vill kjördæmisþingið
benda á nauðsyn þess, að hafin
verði endurskoðun ýmissa stefnu-
miða íslenskra jafnaðarmanna í
ljósi breyttrar heimsmyndar. Þar
er m.a. nauðsynlegt að marka
mun skýrari stefnu flokksins í um-
hverfismálum.
Ályktun um byggða-
og atvinnumál________________
Kjördæmisþingið lýsir miklum
vonbrigðum með þá stöðu, sem
upp er komin í staðarvali álvers.
Miklar vonir höfðu verið við það
bundnar, að álver kæmi í Eyja-
fjörð. Það hefði gjörbreytt ótryggu
og slöku atvinnuástandi þar sem
atvinnuleysi hundruða karla og
kvenna er nú viðvarandi en ekki
árstíðabundið, eins og áður var.
Það er skýlaus krafa kjördæmis-
þingsins, að stórefld verði öll að-
stoð við uppbyggingu þeirra fyrir-
tækja, sem fyrir eru í kjördæminu,
svo og rannsóknarstarfsemi vegna
höfuðatvinnuveganna, ásamt
samtengingu við menntun á há-
skólastigi.
Þá beinir kjördæmisþingið því
til ^tjórnvalda, að mótuð verði
stefna í ferðaþjónustu. Ennfremur
beinir þingið því til stjórnvalda, að
þegar verði gripið til aðgerða, er
tryggi að tiltekinn hópur erlendra
ferðamanna verði látinn greiða
fyrir eðlilega þjónustu hér á landi,
þ.e. að takmarkaður verði inn-
flutningur erlendra ferðamanna á
matvælum og meira eftirlit haft
með umsvifum erlendra ferða-
skrifstofa hér á landi.
Þá hvetur kjördæmisþingið til
þess, að fjármagn verði veitt til
uppbyggingar á öflugri hvíldar- og
heilsuræktarstarfsemi við Eyja-
fjörð og til að Ijúka smíði heilsu-
hælis í Kjarnaskógi. Einnig verði
stuðlað að nýsköpun í matvæla-
iðnaði vegna útflutnings og efld
verði þjónusta í anda heilsu- og
umhverfisverndar.
Kjördæmisþingið skorar á
stjórnvöld, að velja varaflugvelli
fyrir millilandaflug stað í Aðaldal.
Þingið bendir á það beina flug,
sem hófst sl. sumar frá meginlandi
Evrópu til Akureyrar og hafði í för
með sér mikla fjölgun ferða-
manna í kjördæminu. Þingið vill
að á Akureyrarflugvelli verði góð
aðstaða vegna millilandaflugs,
m.a. sómasamleg fríhöfn, og að sú
aðstaða verði bætt þar til nýr vara-
flugvöllur hefur verið gerður.
RAÐAUGLÝSINGAR
Til sölu
Tllboð óskast í eftirtaldar bifreiðir og vélar vegna
Vélamiðstöðvar Reykjavíkurborgar.
1.R-42009 Isusu pallbíll árg. 1983
Susuki Alto 2ja dyra árg. 1983
M. Benz 6 m. hús pallur árg. 1977
Volkswagen Golf sendib. árg. 1983
M. Benz 6 m. hús pallur árg. 1977
Volkswagen DC 6 m. hús árg. 1984
Volkswagen DC 6 m. hús árg. 1982
Volkswagen DC 6 m. hús árg. 1983
Volkswagen CD 6 m. hús árg. 1982
Volkswagen Golf sendib. árg. 1983
Susuki Fox jeppi árg. 1984
Volkswagen Golf árg. 1981
Volkswagen Golf sendib. árg. 1983
M. Benz 203 mannfl.bifr. árg. 1981
Volkswagen Golf árg. 1981
Susuki Fox jeppi árg. 1984
Volkswagen Golf árg. 1982
Volkswagen Golf árg. 1982
Scania vörub. 17. T árg. 1984
M. Benz vörub. 13 T árg. 1982
M. Benz sorpbifr. árg. 1974
Marshall dráttarvél árg. 1984
Zetor7011 dráttarvél árg. 1982
P.Z. sláttuþyrla
Minitraktor Bolens árg. 1982
Vibrokefli A.B.G. árg. 1977
Tækin verða til sýnis í porti Vélamiðstöðvar Reykja-
víkurborgar, Skúlatúni 1, dagana 8., 9. og 10. októ-
ber.
Tilboðin verða opnuðfimmtudaginn 11. október kl.
14.00 á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar, Fríkirkjuvegi 3.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGA'R
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
2. R-42483
3. R-56263
4. GY-120
5. R-53713
6. R-51417
7. R-34559
í. R-44409
£. R-30067
10. R-42457
11. R-51042
12. R-23624
13. R-43048
14. R-73184
15. R-23622
16. R-51045
17. R-36073
18. R-30074
19. R-52104
20. R-38518
21. R-44027
22. RD-39
23. RD-637
24.
25.
26.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu
Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í smíði á Ijósstólp-
um og pollum úr rústfríu stáli fyrir útsýnishús á
Öskjuhlíð skv. eftirfarandi.
1. Ljósstólpur, gerð A fjöldi 29. stk.
2. Ljósstólpar, gerð B fjöldi 18 stk.
3. Ljóspollar, gerð A. fjöldi 31 stk.
4. Ljóspollar, gerð B. fjöldi 39 stk.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn 5.000 kr. skilatrygg-
ingu frá og með mánudeginum 8. október 1990.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn
17. október 1990 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Forval
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatna-
málastjórans í Reykjavík, auglýsir forval vegna
kaupa á skólpdælum ásamt stýri- og viðvörunar-
búnaði þeim tengdum.
Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, frá og með þriðjudaginum 9. október
n.k. gegn 1.000 kr. skilatryggingu.
Útfylltum gögnum skal skila á sama stað eigi síðar
en mánudaginn 29. október 1990.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGA'R
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Flokfc
. 41
tarfíð
Kjördæmisþing Alþýðuflokksins
í Vestfjarðakjördæmi
Kjördæmisþing Alþýðuflokksins í Vestfjarðakjör-
dæmi verður haldið í félagsheimili Alþýðuflokksins
á ísafirði, sunnudaginn 7. október þ.m.
Fundurinn hefst kl. 11.00 fyrir hádegi.
Dagskrá:
1. Stjórnmálaviðhorfið
2. Kjördæmismál
3. Undirbúningur þingkosninga
Stjórn kjördæmisráðs.
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur
Fulltrúar Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur á flokks-
þing.
Áríðandi fundur þriðjudagskvöldið kl. 20.00 í Rós-
inni.
Stjórnin.
Fulltrúar SUJ
Fulltrúar SUJ á komandi flokksþingi.
Fundur í félagsmiðstöð jafnaðarmanna Hamraborg
14 í Kópavogi, þriðjudaginn 9. október kl. 20.00.
SILL