Alþýðublaðið - 06.10.1990, Síða 8
Gabriel
höggdeyfar
Verslið hjá fagmanninum
GS varahlutir
Hamarshðlda 1 Simar 36510S83744 ■ Fax 673703 i
••• ••••
• •
• • • • •
• • ••••• •••• ••••
• • • • • •
• • • ••••••••
• • • • • •
• •• • •••• • •
LUNDÚNUM: Bretar
féllust í dag á að tengja
pundið við gengi gjald-
miðla Evrópubandalags-
ríkjanna innan svokallaðs
EMR kerfis. Tilkynnt var að
sterlingspundið myndi í
fyrstunni verða skráð á
2,95 þýsk mörk og að það
gæti sveiflast til um 6%.
Akvörðun Breta kom á
óvart, en sumir fréttaskýrendur telja að Margaret Thatcher
forsætisráðherra hafi látið undan nú m.a. til að hressa upp
á fylgi ílialdsflokksins. Efnahagslíf er í öldudal í Bretlandi,
en aðgerðum sem fylgdu ákvörðuninni í gær, t.d. vaxta-
lækkun, er ætlað að koma stöðugleika á og koma hjóli
efnahagslífs á hraðari snúning. Thatcher ítrekaði mótmæli
sín við tillögum um sameiginlegan gjaldmiðil innan Evr-
ópubandalagsins sem er ætlað að styrkja enn frekar bönd
aðildarríkja bandalagsihs.
LUNDÚNUM: Hlutabréf
féllu á mörkuðum í Evrópu
í gær eftir að fulltrúadeild
bandaríska þingsins hafði
neitað að fallast á aðgerðir
til að rétta við halla á fjár-
lögum. Þá hefur aukið at-
vinnuleysi í Bandaríkjun-
um, sem tilkynnt var um
fyrr í gær, minnkað vonir
um að efnahagslíf rétti betur úr kútnum vestra.
BAGDAD: Prímakov, sérlegur sendimaður Gorbatsjovs
Sovétleiðtoga, hitti Saddam Hussein og færði honum bréf
frá Gorbatsjov.
AÞENU: Bjóða á út 49% hlut í gríska ríkisflugfélaginu
Olympic Airways. Fyrirtækið dragnast með jafngildi 43
milljarða króna skuldar og hefur ekki skiiað arði síðastlið-
inn áratug.
PRETORIU : Hvítir landeigendur fóru fram á að de Klerk
forseti hætti við áform um að fella úr gildi aðskilnaðarlög
varðandi eign á landi. Sögðust þeir margir ekkert hafa á
móti því að eignast svarta granna en reynslan hvarvetna
úr Afríku sýndi að svartir gætu ekki ræktað land með nógu
góðum árangri og að þeir eyddu því.
KIGALI: Franskir, belgískir og zairískir herflokkar hafa
verið sendir til Rwanda þar sem uppreisnarmenn hótuðu
að reka Habyrarima forseta frá völdum.
HELSINGFORS: Sovésk yfirvöld fóru fram á að Finnar
afhentu þeim flugræningja sem rændi Aeroflotvél. Ræn-
inginn hefur beðið um hæli sem pólitískur flóttamaður.
NYJU-DELHI: Að minnsta kosti níu manns voru drepnir
og 200 særðir þegar lögregla hóf skothríð á fanga í gær til
að bæla niður óeirðir í fangelsi þar í borg.
OSLO : Norska ríkisstjórn-
in hafnaði enn í dag kröfu
stjórnarandstöðunnar um
að mál Syses forsætisráð-
herra yrði tekið upp að
nýju. Gro Hariem Brundt-
land, leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar, sagði að hún
myndi áfram krefjast þess
að hlutlaus athugun færi
fram á athöfnum Syses, en
hann hefur verið sakaður
um að brjóta hlutafélaga-
lög.
ERLBNDAR FRÉTTIR
Umsjón: Þorlákur Helgason
Norska fjárlagafrumvarpiö fyrir áriö 1990:
Skattalækkcmir
Norski fjármálaráðherrann lækkar beina skatta en hækkar þá
óbeinu.
Fjárlagafrumvarp
norska ríkisins fyrir árið
1991 var lagt fram í gær.
Reiknað er með að fatið af
oiíu verði um 20 dollarar á
næsta ári. Beinir skattar
lækka en sértekjur ríkis-
ins hækka á móti.
Með nokkrum rétti má
segja að fjárlagafrumvarpið
skiptist í tvennt. Annars veg-
ar það sem varðar tekjur (og
kostnað) af olíunni í Norður-
sjó og hins vegar af athöfnum
manna uppi á landi. Gert er
ráð fyrir þjóðarframleiðsla á
„fastalandinu" vaxi um 2‘/4 af
hundraði á næsta ári, og að
þannig verði hægt að draga
úr atvinnuleysi í landinu.
Arne Skauge fjármálaráð-
herra segir frumvarpið vin-
samlegt börnum, landsbyggð
og hagvexti.
Það einkennir mjög áætl-
anir ríkisstjórnarinnar að
dregið er úr beinum sköttum
en neysluskattar auknir í
staðinn. Beinir skattar lækka
samanlagt 'um 2,6 milljarða
norskra króna en á móti er
áætlað að ýmsar sértekjur
■hækki um 2,4 milljarða
króna. Efsta þrepið í tekju-
skattinum er lækkað niður í
56,8% og segir fjármálaráð-
herra að skattinum sé ætlað
að skilja meira eftir í budd-
unni eftir að tekjuskattur hafi
verið greiddur. ,,Ef launa-
samningar fyrir 1990—1991
verða á skaplegum nótum,
mega launþegar gera ráð fyr-
ir batnandi kaupmætti,“ segir
Skauge fjármálaráðherra.
Samanlagt munu tekjur rík-
isins lækka um 790 milljónir
norskra króna, en ríkisstjórn-
in stefnir að því að einka-
væða opinberar stofnanir og
breyta ríkisbönkum í hlutafé-
lög. Útgjöld til varnarmála
verða óbreytt og sömuleiðis
niðurgreiðslur í landbúnaði.
Sérstakur mengunarskattur
verður lagður á bensín til að
draga úr koltvísýringi og
einnig hækka gjöld á áfengi
og tóbak. Gjöld á áfengi
hækka í samræmi við styrk-
leika þess.
Minnkandi kaupmáttur í Bandaríkjunum og fallandi gengi á uerdbréfamörkudum:
Minni hagnaður fyrir Japana
Áhrif olíuverðshækk-
ana eru far nar að gera vart
við sig í viðskiptum milli
Havel vill ræöa við Gorbatsjov
um oltu.
Olía, olía ...
Havel
óskar
neyðar-
fundar
Vaclav Havel, forseti
Tékkóslóvakíu, hefur
reynt að fá neyðarfund
með Gorbatsjov til að
ræða versnandi hag Tékka
og annarra Austur-Evr-
ópubúa í kjöifar hækkandi
olíuverðs og óska eftir að
geta fengið sovéska olíu.
Tékkar hímdu í bílum sín-
um í fyrrinótt til þess að kom-
ast að bensíntönkum, því að
boðað var að frá og með laug-
ardegi yrði byrjað að
skammta bensín í Tékkóslóv-
akíu. Til októberloka verður
aðeins leyft að kaupa 25 lítra
í einu á gangverði. Sömu
sögu er að segja úr Búlgaríu
og í Póllandi hækkaði verð í
gær og er nú 50% hærra
núna en fyrir innrás Iraka í
Kúvæt.
j'
landa. Þannig hafa Banda-
ríkjamenn dregið úr kaup-
um á vörum frá Japan og
er það ein meginástæða
minni hagnaðar Japana á
viðskiptum við útlönd.
Viðskiptahagnaðurinn í
ágúst varð jafngildi um 45
milljarða íslenskra króna,
en var um 200 milljarðar
króna fyrir sama mánuð í
fyrra.
Tekjur Japana af fasteign-
um og fjármunum erlendis
hafa minnkað og er m.a. um
kennt fallandi gengi á verð-
bréfamörkuðum. Olía er um
það bil 14% af innflutningi,
en hún hefur hækkað úr 20
dollurum tunnan í 36 dollara
eftir innrás Iraka í Kúvæt.
Hagfræðingar telja að hækk-
andi verð geti dregið það
mikið úr eftirspurninni er-
lendis og aukið svo kostnað
Japana af kaupum á olíu að í
byrjun næsta árs geti við-
skiptajöfnuður jafnvel orðið
óhagstæður fyrir Japan. Út-
flutningur Japana hefur um
langa hríð verið Japönum
hagstæður og því hefur gjald-
eyrisstaða þeirra verið ákaf-
lega styrk. I fyrra varð af-
gangurinn um 42 milljarðar
dollara, eða jafngildi 2.500
milljarða króna.
HIÐ NÝJA ÞÝSKALAND
REUTER
36%
□ Annað
O Landbúnaður
□ Iðnaður
□ Þjónusta