Alþýðublaðið - 16.11.1990, Blaðsíða 4
4
Föstudagur 16. nóvember 1990
MPYÐUBUÐIÐ
Ármúli 36 Sími 681866
Útgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Dreifingarstjóri: Sigurður Jónsson
Setning og umbrot: Leturval, Ármúla 36
Prentun: Oddi hf.
Áskrifarsími er 681866
Áskriftargjald 1100 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 75 kr. eintakið
VILLANDI UMRÆÐA
UM HÚSBRÉF
Er húsbréfakerfið aðfalli komið? Sú stofnun sem átti
að „vaka yfir" húsbréfunum neitaði skyndilega að
kaupa bréfin. Almenningur hefur ekki minnstu hug-
mynd um hvað það þýðir. Enda ekki von. Fjölmiðlar
hafa fyrst og fremst beint spjótum sínum að einum
anga bréfanna. Þeim sem snýr að því að selja bréfin.
Upphaflega eru húsbréfin greiðsla fyrir fasteign.
Seljandi fær húsbréf í hendur sem hluta greiðslu. En
húsbréfin gegna í sjálfu sér þríþættum tilgangi: 1)
Seljandi getur notað þau til frekari fasteignakaupa, ef
hann er að skipta um húsnæði (selja eitt og kaupa
annað). Þá greiðir hann hluta fasteignar með bréfinu
(eins og hann fékk bréf við eigin sölu). Við slík skipti
eru engin afföll á bréfunum. Bréf sem hljóðar upp á
eina milljón kr. er jafnmikils virði í kaupunum. 2) Ein-
staklingurgeturgeymt bréfin sem hann hefurfengið
í hendur við sölu. Þá fær hann vexti af bréfunum eins
og um hverja aðra innistæðu væri að ræða. Þá eru
engin afföll. Viðkomandi er með prýðisgott skulda-
bréf í höndunum sem er í raun ríkistryggt og fast-
eignatryggt. Betri tryggingu er tæplega að fá. 3) í
þriðja tilvikinu er um að ræða að einstaklingur sem
hefur bréf í höndunum þarf að selja bréfið. Hann þarf
af einhverjum ástæðum á peningum að halda. Það er
þá sem hann heldur í Landsbankann (Landsbréf) og
selur með afföllum. Þetta gildir um öll verðbréf. Afföll
húsbréfa í dag eru hins vegar minni en afföll af al-
mennum skuldabréfum, enda tryggari ávöxtun í ríkis-
tryggðum bréfum.
Vandinn í dag erað mikið kemurfram af bréfum og
þá verða afföll meiri. Fjölmiðlar og stjórnmálamenn
hafa lagst á eitt og mæna á afföll bréfanna, en gleyma
því gjörsamlega að húsbréfin gegna öðrum hlutverk-
um og í hvorugu þeirra tilvika er um afföll að ræða.
Það gleymist sem sé að benda á að húsbréf eru eitt-
hvert albesta sparnaðarform sem um getur. Lausnin
á þeim vanda sem Landsbankinn hefur sett á svið nú
er pólitísk fyrst og fremst. Aðilar geta auðveldlega
leyst hnútinn, ef vilji er fyrir hendi.
Verkalýðshreyfingin ætti til dæmis að íhuga það al-
varlega að krefjast þess að lífey rissjóðirnir komi miklu
betur inn í húsbréfadæmið en nú er. Húsbréf eru al-
besta kerfi sem tekið hefur verið upp í húsnæðismál-
um, sagði formaður Félags fasteignasala í gær. Tillaga
félagsmálaráðherra um að húsbréf skuli leysa vanda
þeirra sem eru í greiðsluerfiðleikum bjargarfjölmörg-
um félögum í launþegahreyfingunni frá því að missa
íbúðir sínar. Það er hagur launþega að húsbréfakerfið
standi — og blómgist.
FLEIRIVIÐVARANIR
ÍÁLMÁUNU
Ummæli Pers Olofs Aronsons, forstjóra sænska fyr-
irtækisins GRÁNGES í viðtali við sænska útvarpið
hafa vakið mikla athygli hér á landi. GRÁNGES er einn
þeirra þriggja erlendu aðila Atlantsáls-hópsins sem
hyggur á byggingu álsvers á Keilisnesi. Ummæli for-
stjórans voru endurleikin í hádegisfréttum Ríkisút-
varpsins í gær og við þá hlustun rann mörgum íslend-
inginum kalt vatn milli skinns og hörunds. Inntak orða
sænska forstjórans var, að vegna sundurlyndis og
erja pólitískrar flokka á íslandi, gæti svo farið, að
GRÁNGES drægi sig út úr Atlantsáls-hópnum. Nokk-
uð hefur verið rætt um, að orð forstjórans kunni að
hanga saman við þá staðreynd að sænska stórfyrir-
tækið Elekrolux sem á GRÁNGES, standi mjög höll-
um fæti í dag. Það breytirekki hinni staðreyndinni, að
séríslenskar erjur milli stjórnmálaflokka, hafa stefnt
framtíð álversins í mikla óvissu.
3ér í lagi hefur upphlaup hinna flokkapólitísku
stjórnar Landsvirkjunar sett álmálið í erfiðan farveg.
Skipun undirnefndarinnar sem í raun er orðin hin eig-
inlega samninganefnd um orkuverð, hefur komið hin-
um erlendu viðsemjendum í opna skjöldu og í raun
gert allar fyrri umræður ómerkar. Það er reyndar
makalaust að stjórn Landsvirkjunar haldi því fram að
hún hafi ekki verið upplýst um málið eftir 24 stjórnar-
fundi um orkuþátt álmálsins. Menn eiga erfitt með að
trúa slíkum fullyrðingum. Hinar sundurlyndu frásagn-
ir Davíðs Oddssonar og Páls Péturssonar frá fundi
samninganefndar Landsvirkjunar og fulltrúa Atlants-
áls-hópsins í London fyrir nokkru gera málið ekki
betra. Þvert á móti hafa hinar misvísandi frásagnir
gefið til kynna, að pólitískur daunn væri af málinu.
Viðskiptavild og samningstraust eru lykilatriði í jafn-
víðfeðmum og dýrmætum samningum fyrir land og
þjóð eins og álmálið er. Það er ofur skiljanlegt, að hinir
erlendu viðsemjendurokkarfari að horfa annað, þeg-
ar samningaviðræðurnar falla úr þeirri rás sem þær
hafa verið settar í og tímasetningar fara að riðlast
vegna pólitísks dægursþrass sem koma hinum eigin-
legu álviðræðum ekkert við. Slíkir viðsemjendur eru
að sjálfsögðu ekki trúverðugir. Á þá er varla eyðandi
dýrmætum tíma. Þetta verða menn að gera sér grein
fyrir, ekki síst þeir sem nú halda á fjöreggi álviðræðn-
anna. Ummæli Robert Millers, forstjóra Alumax fyrir
stuttu og nú síðast orð Aronsons, hins sænska for-
stjóra GRÁNGES, eru nægjanleg staðfesting á því að
við höldum ekki nógu vel á álmálinu í svipinn. Ábyrgð
þeirra manna er mikil sem klúðra álsamningunum
vegna pólitískra dægurmála heima fyrir.
FÖSTUDAGSSPJALL
Sögur frá Chicago
Það vantar ekkert nema Guðmundur G. Þórarins-
son standi með ffseturnar i steinsteypuhlunk og Finn-
ur só með hlaupsagaða haglabyssu. Ástandið i
Framsókn er orðið eins og i Chicago þegar brenni-
vínið var bannað.
Að liffa aff__________________
Framsóknarmörmum hefur
gengið heldur illa að halda próf-
kjör í Reykjavík gegnum árin. Það
kemur alltaf í ljós að í efsta sæti
lendir einhver annar en sá sem
átti að fá það.
Yfirlýsingar kandidatanna í
gegnum árin, t.d. þeirra Haraldar
tafssonar og Guðmundar G. Þór-
arinssonar, bera þess reyndar aug-
Ijós merki að framsóknarmenn
hafa algjörlega misskilið í hverju
prófkjör felast. Þeir halda að þau
snúist um lýðræði en það er al-
rangt. Prófkjör eru spurning um
útsjónarsemi.
Indíánar í Norður-Ameríku
höfðu í gamla daga sérstakar að-
ferðir til þess að herða ungu
mennina sína áður en þeir fóru út
í lífið. Þeim var þá gert að sigrast
á einhverjum ógnarverkefnum
svo sem eins og skjóta skógar-
birni, drekka kassa af vodka og
ræna stúlkum frá næstu ættbálk-
um. Þessar aðferðir voru taldar
aðgreina hina sterku sem erindi
áttu út í lífið og þá veiku sem held-
ur skyldu sitja heima.
Hemaðariistin______________
Stundum verða prófkjör á sama
hátt aðferð stjórnmálaflokkanna
til þess að velja úr einhverja og
leyfa þeim að lifa í pólitík. Látum
okkur aðeins sjá hvað þarf til að
ná árangri í prófkjöri.
Ef dæma má af slagnum síðustu
vikur er hægt að setja saman svo-
lítinn lista.
1. Gefa út gífurlegt magn af bækl-
ingum.
2. Skrifa ótölulegan fjölda greina í
blöðin.
3. Kaupa feikilegt magn dagblaða-
auglýsinga.
4. Gera drengskaparheit við and-
stæðinga sem enginn virðir.
5. Skrá félög og ættmenni í flokk-
inn.
6. Hafa aðgang að miklum pen-
ingum.
Sá frambjóðandi sem getur gert
þetta allt á nokkuð góða mögu-
leika á að komast inn á Alþingi.
Það er hins vegar augljóst að þetta
hefur miklu minna með lýðræði
að gera heldur en einfaldlega
gamla góða íslenska útsjónarsemi
og einhverja ófyrirleitni í bland.
Ekki sakar að vera hraustur til sál-
ar og líkama, geta sofið reglulega
og fara sem minnst á taugum.
Þegar einhver frambjóðandi
hefur klárað sig af öllu þessu er
loks hægt að fara að ræða við
hann um stjórnmál, samkvæmt
próf kjörsaðferðinn i.
Það verður t.d. ekki séð að
Reyknesingar hafi haft áhuga á
stjórnmálaskoðunum Árna Matt-
hiesen áður en þeir settu hann í
þriðja sætið hjá íhaldinu um dag-
inn.
ólfsson eiga ágætt erindi í stjórn-
mál. Guðmundur G. Þórarinsson
hefur skrifað með honum frábært
meðmælabréf til fulltrúaráðs
flokksins í Reykjavík þar sem
hann sýnir fram á að Finnur hafi
beitt öllum þeim brögðum sem,
prýða mega góðan stjórnmálam-
ann.
En það er eins og mig minni að
Haraldur Ólafsson hafi gefið Guð-
mundi G. Þórarinssyni svipuð
meðmæli fyrir fjórum árum.
Aðalatriðið hlýtur að vera að
læra bardagaaðferðir fruipskóga-
hernaðarins.
Þar skilur á milli þess útskrifaða
og útskúfaða.
„Finnur Ingólfsson virðist eiga ágsett erindi í stjórnmál. Guömundur G. Þórarinsson hefur skrifaö með honum frá-
bært meðmælendabréf til fulltrúaráðs flokksins í Reykjavík þar sem hann sýnir fram á, að Finnur hafi beitt öllum
þeim brögðum sem prýða mega góðan stjórnmálamann," segir Guðmundur Einarsson m.a. í Föstudagsspjalli
sínu.
Finnur er ffuilnuma___________
Samkvæmt skilgreiningunni
hér að framan virðist Finnur Ing-
Guðmundur Einarsson
skriiar