Alþýðublaðið - 16.11.1990, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 16.11.1990, Blaðsíða 5
Föstudagur 16. nóvember 1990 5 ntTTASKÝMNG HÆTTU I Talið or að 500 ungmenni milli tektar og tvitugs eigi við bráðan vimuefnavanda að glima. Þetta eru unglingar sem neyta vimuefna af einhverju tagi tvisvar eða oftar i viku. Landlseknir og fersvars- menn ýmissa stofnana vilja stórefla forvamir. Að mati þeirra liggur vandinn fyrst og fremst hjá heim- ilum og skólum. Unglingarnir sem leiðast út í vímuefnin hefja langflestir písiar- gönguna í áfengi. Þeir sem lenda að lokum á algjörum glapstigum hafa áður flosnað upp úr skóla, orðið atvinnulausir og stela til þess að komast yfir peninga til vímuefnakaupa. Þá er leiðin á Litla-Hraun orðin stutt. Hvaðan koma þeir? Hvert halda þeir?____________ Starfsmenn Fangelsismálastofn- unar ríkisins hafa kannað aðstæð- ur þeirra ungiinga á suðvestur- horninu, sem hafa ,,lent“ í afbrot- um en komist hjá refsingu vegna þess að ákæru hefur verið frestað. Annar hver unglingur hefur ekki lokið 9. bekk, 36% eru í skóla, 48% í vinnu, sjötti hver er atvinnu- laus eða veikur og tíundi hver er í fíkniefnaneyslu. Miðað við reynslu er líklegt að 20% af þeim lendi um síðir í fangelsi vegna þess að þeir rjúfa skilorðið. í dag eru 233 unglingar með ákærufrestun og miðað við þann fjölda „má ætla að 50 unglingar af suðvesturhorni landsins stefni sem stendur í fangelsisklefann," segir Haraldur Johannessen, for- stöðumaður Fangelsismálastofn- unar ríkisins. Svipaðar sögur eru frá öðrum aðilum sem sinna sérstaklega þeim unglingum sem lenda á glap; stigum (eða eru á leið þangað). í fyrra leituðu 63 unglingar til at- hvarfs Rauðakrossins við Tjarnar- götu. Af þeim voru 41, eða 65%, atvinnulausir og 22 neyttu hass næstum daglega. 25 höfðu flosnað upp úr skóla en 35% voru enn í vinnu eða í skóla. Fíkniefnadeild lögreglunnar hafði í fyrra afskipti af 206 ungmennum. Af þeim hópi voru 30% atvinnuleusir. Fjórði hver sjúklingur á SÁÁ yngri en 30 ára hefur ekki lokið skyldunámi og 40% er atvinnulaus. Magnús Gunnarsson hjá Kross- inum segir að til þeirra leiti fjöl- margir og það sé reynslan að þeir yngstu séu forfallnastir í neysl- unni. Hversu stér er hópurinn? Af tölum Hagstofunnar sem Al- þýðublaðið greindi frá í vikunni, má ráða að hundruð ungiinga séu gleymd í kerfinu. Þeir hafa fallið í skóla, flosnað upp úr kerfinu og eru gleymdir. Nokkur hópur þeirra er líklegast á skrá lögreglu og meðferðarstofnana. í könnun- um í skólum hefur komið í ljós að rúmlega einn af hverjum hundrað unglingum í hverjum árgangi á við vímuefnavanda að glíma. Margt styður það að hópurinn sé mun fjölmennari. Þeir sem eru illa staddir eru í flestum tilvikum þeg- ar falinir úr skóla og í þvílíku öng- stræti að til þeirra næst alls ekki til að byggja einhverjar upplýsingar á. Einar Gylfi Jónsson, forstöðu- maður Unglingaheimilis ríkisins, segir að líklegt sé að hópur ung- linga sem á í verulegum vanda sé um 500. Þetta eru ungmenni sem neyta vímuefna tvisvar eða oftar í viku. Enginn hefur þó tölu yfir hópinn sem slíkan. Hann gæti þess vegna verið enn stærri. Hvad er Hl róða?_____________ Vandinn er mikill og hann er bráður. Eru fimm hundruð ung- lingar á ystu nöf? Sem betur fer skila sér flestir unglingar í rétta höfn um síðir — ekki síst vegna góðra verka margra starfsmanna á ýmsum stofnunum í þjóðfélag- inu, þar sem reynt er að hjálpa. En meira þarf til ef skila á þeim ár- angri sem sérfræðingar telja að hægt væri að ná. Á blaðamannafundi sem for- svarsmenn ýmissa stofnana héldu í gær til að kynna aðstæður ung- linganna, kom fram sú eindregna skoðun að efla bæri forvarnir. Ól- afur Ólafsson landlæknir, sem hef- ur verið í eins konar forsvari fyrir hópnum, kynnti tillögur til úrbóta. taldi hann þetta helst til ráða: 1) Efla aðstoð við heimili og fjöl- skyldur. 2) Styðja skólann í hví- vetna, m.a. með því að auðvelda nemendum að hljóta starfsréttindi í skóla. 3) Stórefia rannsóknir um uppeldi og skóla. 4) Taka upp kennslu í uppeldisfræðum. 5) Vímuvarnarráð leysi Áfengisvarn- arráð af hólmi. 6) Með sérstökum forvarnarsjóði verði starfssemi ýmissa aðila styrkt. 7) Undirrita samning Sameinuðu þjóðanna gegn verslun með fíkniefni. 8) Styðja við bakið á þeim sem stunda forvarnir og reka meðferð- arheimili eins og það sem nú rís á Tindum á Kjalarnesi. Er of dýrt að______________ bjargq mann»IHum? Landlæknir og fleiri telja pen- ingum vel varið ef hægt er að forða unglingi frá því að verða vímuefnum að bráð. Á hverju ári brjóta unglingarnir af sér með ómældum afleiðingum. Vistun þeirra á meðferðarheimilum er dýr. Hver fangi kostar 2,5—3 millj- ónir króna á ári. Það sem aldrei verður metið til fjár eru afleiðing- arnar sem einstaklingurinn ber, þjóðfélagið kostar og heimili við- komandi greiðir í gráti yfir glötuð- um syni. Áhugahópurinn fer fram á 20 milljónir í forvarnarsjóð. Það væri auðvelt að reikna himinháa „ávöxtun" slíks sjóðs. Hver sem bjargast er í raun óreiknanlegur á nokkrum mælikvarða. Það liggur á. „Stór hópur ung- linga í þjóðfélaginu á verulega erf- itt,“ sagði landlæknir í gær.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.