Alþýðublaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 8
Uftry^ngar
lll
ALW(>ÐA
UFTRYGGINGARFEIAGIÐ HF.
UG.MÍU S - RF.YKJAVtK
681644
OYÐWBUSBIfi
GEVALIA
Paö er kaffið 687510
• • • • • • • • • •
• • • • •
• • • • • • • • • •
• • • • •
• • • • • • • • •
• •••••••• ••••
• • • •
• •••• ••••
• • • •
• • • • • • •
UPPREISNIARGENTÍNU: Argentíski herinn heldur
uppi sprengjuárásum á hóp uppreisnarmanna, sem lögðu
undir sig aðalstöðvar hersins í miðborg Buenos Aires og
fleiri byggingar í borginni í blóðugum bardögum í gær.
Uppreisnin á sér stað aðeins tveimur dögum fyrir áætlaða
heimsókn George Bush Bandaríkjaforseta til landsins en
hann segist ekki ætla að hætta við.
1.400 BÖRNSÖGÐLÁTIN: Útvarpið í Baghdad hafði
eftir heilbrigiðismálaráðherra íraks, Abdul-Salam Moham-
med Saeed, að meira en 1.400 börn undir fimm ára aldri
hefðu látið lifið vegna skorts á lyfjum í kjölfar viðskipta-
banns Sameinuðu þjóðanna gegn írak.
SOVÉSKIR ÞEGNAR FRÁ ÍRAK: U.þ.b. þriðjungur
sovéskra þegna sem enn eru í írak munu snúa heim innan
þriggja vikna að sögn sovéska sjónvarpsins. Sovétmenn
kvörtuðu yfir því í síðustu viku að yfirvöld í Baghdad
kæmu i veg fyrir að 3.300 sovéskir þegnar, sem verið hafa
í Irak síðan innrásin var gerð í Kúvæt í ágúst sl., fengju að
fara úr landi.
„STRÍÐSÓGNUN
NAUÐSYNLEG": Dick
Cheney, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði
þinginu í gær að ógnun um
stríð væri nauðsynleg til
þess að neyða Saddam Hus-
sein íraksforseta til þess að
hverfa með her sinn frá Kú-
væt. Cheney var þarna að
svara röddum um að stjórn-
in ætti að bíða lengur eftir
þvi að viðskiptabannið færi að hafa áhrif á íraka. Um 50
þúsund hermenn fóru í kveðjugöngu í Stuttgart í gær
skömmu áður en fyrstu hermennirnir héldu af stað til
Persaflóa í framhaldi af ákvörðun Bush Bandaríkjaforseta
um að fjölga í herliði sínu þar upp í um 400 þúsund.
BARIST I AFRIKU: Bardagar milli stríðandi fylkinga
brutust út í hverfum svartra í Jóhannesarborg í gær með
þeim afleiðingum að 64 týndu lífi. Dómsmálaráðherra
S-Afríku setti á útgöngubann í fjórum hverfum.
FRJÁLSIR DEMÓKRATAR GERA KRÖFUR: Frjáis-
ir Demókratar, sem unnu góðan sigur í kosningunum í
Þýskalandi í gær, krefjast þess að ný ríkisstjórn gefi þeim
sem vilja fjárfesta í A-Þýskalandi miklar skattaívilnanir.
FIMMTAN FELLU: Fimmtán manns létust og fjöldi slas-
aðist i skotbardögum i tveimur iýðveldum Sovétríkjanna,
Uzbekistan og Azerbaijan, að sögn Tass fréttastofunnar.
NEYÐARÁSTANDI AFLÉTT: Hinn umdeildi forseti,
Hossein Mohammad Ershad, sagði að neyðarástandi, sem
hann lýsti yfir í Bangladesh til að reyna að bæla niður her-
ferð stjórnarandstæðinga, yrði aflétt 16. desember. Hann
bauð einnig upp á friðaráætlun sem felur í sér afsögn hans.
SVARTSYNI: Viðræður EB og EFTA um sameiginlegt
evrópskt efnahagssvæði hófust í gær í Brussel. Svartsýni
þótti gæta meðal manna í upphafi viðræðnanna, sérstak-
lega vegna deilna um landbúnaðarstefnu en bændur
efndu til mótmæla á götum Brussel vegna ótta við minnk-
andi tekjur.
ERLENDAR FRÉTTIR
Kohl sigurvegari
Núverandi stjórnar-
flokkar Þýskalands unnu
mikinn sigur í kosningun-
um í landinu í gær. Flokk-
ur Kohls kanslara, Kristi-
legir demókratar, og syst-
urflokkurinn í Bæjara-
landi fengu 43,8 prósent
atkvæða. Frjálsir demó-
kratar unnu einnig á í
kosningunum og hlutu 11
prósent atkvæða. Þessir
flokkar hafa nú samtals
398 þingsæti af 663 og
mikinn meirihluta.
Kohl var að vonum kampa-
kátur eftir sigurinn í þessum
fyrstu kosningum sameinaðs
Þýskalands. Hann sagði að
þetta væri stærsti sigur sem
lýðræðislegur flokkur hefði
unnið í sögu Þýskalands.
Kohl hefur ekkert viljað segja
um stjórnarmyndun. Þó má
gera ráð fyrir að sömu flokk-
ar muni standa að henni en
líklegt er að flokkur Hans-Di-
etrichs Genschers utanríkis-
ráðherra, Frjálsir demókrat-
ar, muni nú setja strangari
skilyrði fyrir stjórnarþáttöku
og heimta meiri áhrif eftir
góða útkomu í kosningunum.
Kosningarnar voru veru-
legt áfall fyrir Oskar Lafonta-
ine, kanslaraefni jafnaðar-
manna, flokkur hans hefur
ekki fengið eins lítið fylgi í 33
ár. Þeir fengu 33,5 prósent en
höfðu gert sér vonir um 40
prósent. Margir flokksmenn
vilja nú að Lafontaine hætti
formennsku en þeir eru flest-
ir úr röðum stuðningsmanna
Hans-Johens Vogels. Stuðn-
ingsmenn Lafontaines segja
þó að hann eigi góða mögu-
leika næst.
Annars vakti það mikla at-
hygli að flokkur Græningja
þurrkaðist út af þingi en þeir
höfðu áður 43 þingsæti. Lík-
legt þykir að arftaki gamla
kommúnistaflokksins, sem
Fyrirhugadar vidrœdur Bandaríkjanna og íraks:
BANDAMENN
EKKIMEÐ
Yfirvöld Bandaríkjanna
og fraks hafa komið sér
saman um að hugsanlegar
viðræður utanríkisráð-
herra þjóðanna sem miða
eiga að því að afstýra
stríði við Persaflóa verði
eingöngu þeirra á milli.
Bush Bandaríkjaforseti,
sem boðaði til fundarins,
áætlaði að bjóða sendiherr-
um bandamanna Bandaríkj-
anna til viðræðnanna. Irakar
vildu þá fá fulltrúa frá Frelsis-
samtökum Palestínumanna
til fundarins en Bush hafnaði
því.
Talsmaður bandaríska ut-
anríkisráðuneytisins sagði að
írakar hefðu enn ekki sam-
þykkt tilboð Bush opinber-
lega um að senda utanríkis-
ráðherra sinn, Tareq Aziz, til
Washington í næstu viku og
að leyfa James Baker, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
að koma til Baghdad fyrir 15.
janúar nk.
Talsmaðurinn sagði enn-
fremur að bandarískur erind-
reki hefði rætt tvisvar við
háttsettan mann í íraska ut-
anríkisráðuneytmu í Baghd-
ad um helgina. Á fyrsta fund-
inum afhenti hann tilboð
Bush formlega en á seinni
fundinum ræddu þeir skilyrði
íraka.
Muhammad Ali, fyrrum
heimsmeistari í hnefaleikum,
fékk 15 bandaríska gísla
leysta úr haldi um helgina en
10 þeirra eru sjúklingar. Nú er
um 88 Bandaríkjamönnum
haldið sem gíslum i miklvæg-
um hermannvirkjum í írak og
21 þeirra er við slæma heilsu.
nú kennir sig við lýðræðis-
lega jafnaðarstefnu, hafi
fengið mikið af fylgi Græn-
ingja. Flokkurinn hlaut 2,4
prósent atkvæða og 17 menn
kjörna. Formaður flokksins,
Gregor Gysi, þykir snjall
ræðumaður og höfðaði mikið
til ungs fólks á vinstra kanti
stjórnmála.
Úrslit þýsku
kosninganna
REUTER
Tveir létust,
fimm slösuðust
þegar 50 uppreisnar
menn tóku
aðalstöðvar hersins
■ ■ ■
w
Ti'x-x'xv
Níunda júlí
stræti
Skrifstofa
Menem's
forseta^
Umsátursástand í Arqentínu
Uppreisn i Argentinu
Uppreisnarmenn úr röð-
um argentínska hersins
náðu á sitt vald aðalstöðv-
um hersins í Buenos Aires
og öðrum byggingum í
blóðugum átökum í gær.
Ríkisstjórnin sendi her-
menn og skriðdreka út á
götur borgarinnar með
skipanir frá Menem for-
seta um að brjóta upp-
reisnarmenn á bak aftur.
Einn forsprakka uppreisn-
armanna sagði í viðtali við út-
varpstöð í Buenos Aires að
tilgangur uppreisnarinnar
væri að gera breytingar á
stjórn hersins og að henni
væri ekki beint gegn ríkis-
stjórninni.
Auk aðalstöðva hersins
hafa uppreisnarmenn lagt
undir sig virki setuliðs borg-
arinnar og skriðdrekaverk-
smiðju í úthverfi borgarinnar.
Menem forseti hefur lýst yfir
umsátursástandi og veitt ör-
yggisliði sínu aukin völd til að
bæla uppreisnina niður.
Að minnsta kosti þrír her-
menn hliðhollir stjórninni
féllu og sex aðrir særðust í
bardögum í gærmorgun.
Einnig bárust fréttir um að
tveir blaðamenn sem fylgd-
ust með atburðunum hafi
særst. í yfirlýsingu hersins
sagði að ástandið á öðrum
stöðum í landinu væri eðli-
legt.
Þessi uppreisn á sér stað
aðeins tveimur dögum fyrir
fyrirhugaða heimsókn Ge-
orge Bush, Bandaríkjafor-
seta, til Argentínu en hann
hefur sagt að uppreisnin
muni ekki breyta fyrirætlan
hans.
Stjórn Menems á við mik-
inn vanda að glíma. Verð-
bólga er gífurleg í landinu og
hann er að reyna að koma
þjóðinni út úr verstu efna-
hagskreppu sem dunið hefur
á í sögu hennar. í síðustu viku
hótaði hann miklum niður-
skurði í hernum.