Alþýðublaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 PRESTURINN í FYRSTA SÆTI: Gunn- laugur Stefánsson, sóknar- prestur í Breiðdal, mun skipa efsta sæti á framboðs- lista Alþýðuflokksins við komandi kosningar. Þetta var samþykkt á kjördæmis- þingi Alþýðuflokksins á fullveldisdaginn. Stefán Benediktsson, fyrrverandi þingmaður, mun skipa heiðurssætið, en listinn lítur endanlega út þannig: 1. Gunnlaugur Stefánsson sóknarprestur, Breiðdal. 2. Hermann Níelsson íþróttakennari, Egilsstöðum. 3. Magn- hildur Gísladóttir húsmóðir, Hornafirði. 4. Magnús Guð- mundsson skrifstofumaður, Seyðisfirði. 5. Ásbjörn Guð- jónsson bifvélavirki, Eskifirði. 6. Björn Björnsson bóndi, Norðfirði. 7. Katrín Ásgeirsdóttir bóndi, Jökuldal. 8. Ari Hallgrímsson vélgæslumaður, Vopnafirði. 9. Sigfús Guð- laugsson rafveitustjóri, Reyðarfirði. 10. Stefán Benedikts- son þjóðgarðsvörður, Skaftafelli. ÁRNI LEIÐIR LIST- ANN: Árni Gunnarsson, þingmaður mun leiða fram- boðslista Alþýðuflokksins í Suðurlandskjördæmi í kosningum að vori. Þor- björn Pálsson aðalbókari í Vestmannaeyjum, verður í öðru sæti. Þetta var niður- staða kjördæmisráðs eftir fund á Selfossi á laugardag. Greidd voru atkvæði um skipan efsta sætis og hlaut Árni 14 en Þorbjörn 12 at- kvæði. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um frekari röðun á listann en því var hafn- að að viðhafa prófkjör um efsta sætið. Samkvæmt lögum Alþýðuflokksins á kjördæmisráð að raða á framboðslista að loknu prófkjöri. 20 dagfar til jóla HVERS ÓSKAR ÞÚ ÞÉR i JÓLAGJÖF? Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður: Ég óska þess að fá ánægjulega og hátíðlega stund með börnunum mínum, en ef ég ætti töfrastaf, myndi ég óska öllum þeim gleði sem eru sjúkir, sorgmæddir eða einmana á þessari hátíð ljóssins. LEIÐARINN Í DAG Leiðarar Alþýðublaðsins eru tveir í dag og fjalla báðir um sögulega samþykkt þingsflokks Sjálfstæðis- flokksins gegn þjóðarsáttinni. Blaðið er þeirrar skoð- unar að samþykktin sé enn eitt klúðrið í hrakfalla- sögu Sjálfstæðisflokksins á undanförnum árum. SJA LEIÐARA Á BLS. 4: HJÖRLEIFUR BRAUT KÓL- UMBUSAREGGIÐ og KLÚÐUR Á KLÚÐUR OFAN. Kann Davíö á landsmálin? Jólaglögg í kirkjunni Fyrstu (ál)spor Davíðs Odds- sonar hafa ekki verið gæfu- spor, segir Tryggvi Harðarson í fréttaskýringu. Boðið verður upp á jóla- glögg og piparkökur og kaffi í Neskirkju á laugardaginn kl. 3—5. Röng stefna — of hátt verð I„Neytendasamtökin segja ranga landbúnaðarstefnu leiða til of hás verðs og krefjast af- náms núverandi stefnu. Jm Hjörleifur Guttormsson: Tók kaleikinn fra Þorsteini Þingfundi var frestað í sameinuðu þingi klukk- an 13 í gær. Tuttugu mín- útum síðar sté Hjörleifur Guttormsson þingmaður í pontu og tiikynnti að hann myndi sitja hjá við afgreiðslu bráðabirgða- laganna. Þar með var kaleikurinn tekinn frá Davíð og Þorsteini og ekkert verður af þing- kosningum að sinni. í gærmorgun tók forsæt- isráðherra púls á sínu liði og afstaða þremenning- anna sem hafa lagst gegn bráðabirgðalögnum virtist óbreytt. Steingrímur kann- aði ennfremur viðhorfin ut- an garðs og fékk fremur loðin svör frá sjálfstæðis- mönnum. Eftir sigur Hjör- leifs í forvali Alþýðubanda- lagsins á Austurlandi um helgina var fundinn veikur hlekkur í andstöðuliði bráðabirgðalaganna. Fram eftir morgni var málið rætt í þingliði Alþýðubandalags. Um hádegisbil var allt á huldu, en klukkan 12.50 í gær tilkynnti Hjörleifur þingflokknum ákvörðun sína og hálftíma síðar var hann kominn í ræðustól í sameinuðu þingi. Hjörleif- ur sagði að hann hefði meðal annars byggt ákvörðun sína á afstöðu þingflokks sjálfstæðis- manna og þeim hrossa- kaupum sem voru í tafli. Þingflokkur Sjálfstæðis- flokks hefur átt í vök að verjast að undanförnu. Allt frá því að tillaga Davíðs var samþykkt á þingflokks- fundi í fyrri viku, hefur ekk- ert lát verið á mótmælum úr innsta hring Sjálfstæðis- flokks sem og frá óbreytt- um liðsmönnum. í gær tók Hjörleifur af þeim ómakið. Sjálfstæðismenn reyna þó að halda dampi, því að í dag munu Davíð og Þor- steinn verða frummælend- ur á fundi á Hótel Borg um „nýja ríkisstjórn til þjóðar- sáttar." Þar er ætlunin var að kynna m.a. afstöðu sjálf- stæðismanna til bráða- birgðalaganna. Bráðabirgðalögin koma úr nefnd í dag og verða til umræðu í neðri deild eftir hádegi. Ef Hjörleifur hefði ekki tilkynnt þessa ákvörð- un sína í gær, hefði forsæt- isráðherra að líkindum rof- ið þing í dag og boðað til kosninga. Sjá nánar fréttir á síðu 3 og fréttaskýringu á síðu 2. Hjörleifur Guttormsson tilkynnir þingheimi í gær aö hann muni sitja hjá við atkvæðagreiðslu bráðabirgðalaganna í neðri deild. Því verður ekkert af kosningum að sinni. A-mynd: E.ÓI. Áhafnir togara Síldarvinnslimnar Neskaupstad: Neita að ganga til skips Áhafnir tveggja togara Síldarvinnslunnar hf. á Neskaupstað neita að fara á sjó meðan ekki semst um aukið heimalöndunarálag. Finnbogi Jónssson, fram- kvæmdarstjóri Síldar- vinnslunnar, segir þær vera með kröfur sem ekki sé hægt að ganga að. Áhafnirnar vilja fá 28% álag á fiskverð fyrir allan fisk en nú skerðist álagið þegar fiskur er fluttur út. Þær hafa fengið sem samsvarar 28% álagi fyrir þann fisk sem unn- inn hefur verið í landi en að undanförnu hefur mikið ver- ið flutt út. Þar með hefur hlut- ur áhafnar rýrnað. Tveir af þrémur togurum Síldarvinnslunnar eru nú í landi og áhafnir þeirra neita áhafnir þeirra að ganga til skips fyrr en semst. Þriðji tog- arinn, Birtingur, er í sinni síð- ustu veiðiferð en hann er að klára kvóta sinn. Það eru áhafnir Bjarts og Barða sem neita að fara á sjó. Finnbogi sagðist vonast eft- ir að samkomulag næðist fljótlega, menn biðu þess að fiskverð yrði ákveðið en það er nú laust. Annar togarinn sem í landi væri ætti eftir 14 sóknardaga af kvóta sínum til áramóta. Hinn ætti lítið eftir og það færi eftir fiskiríi hversu langan tíma tæki að klára hann. Veiði hefði verið dræm undanfarið. RITSTJÖRN <C 681866 — 83320 • FAX 82019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR r 681866

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.