Alþýðublaðið - 18.12.1990, Blaðsíða 6
6
Þriðjudagur 18. desember 1990
Tíu bækur frá Bókmenntafélaginu
Sverrir Kristinsson, framkvæmdastjóri Bókmenntafélagsins, lengst til vinstri
og Sigurður Líndal, forseti félagsins, við hlið hans, greina frá nýjum bókum fé-
lagsins. A-mynd: E.ÓI.
Það eru svo sannarlega engin elli-
mörk á Hinu íslenska bókmenntafé-
lagi, sem var stofnað árið 1816. Nú
voru að koma á markað 10 bækur
frá félaginu og hefur útgáfan vart
verið meiri í annan tíma í sögu fé-
lagsins. Auk þess komu út tvö Lær-
dómsrit á árinu og má því segja að
útgáfa félagsins standi með miklum
blóma. Þá má geta þess að nú er að
koma út 164. árgangur Skírnis, sem
er elsta tímarit á Norðurlöndum.
Hér á eftir verður greint nokkuð frá
bókunum tíu.
Fimmtn bindi sögu Íslnnds
I þessu bindi er sagan rakin frá því
um 1400 til 1542 þegar einokunin
hefst — kirkjusagan þó frá miðri 14.
öld. Meginkafli bókarinnar nefnist
enska öldin og er eftir Björn Þor-
steinsson og Guðrúnu Ásu Gríms-
dóttur. Ritstjóri bókarinnar, Sigurð-
ur Líndal, hefur samið nokkra við-
auka. í síðustu köflum bókarinnar
er fjallað um það, hvernig landa-
fundirnir miklu á síðari hluta 15.
aldar koma við sögu íslendinga:
Grænland týndist og grænlenska
þjóðin leið undir lok, ísland ein-
angraðist meira en áður og hag
landsmanna hnignaði. Þrátt fyrir
þetta voru íslendingar ekki með
öllu áhrifalausir um gang mála og
má minna á för Kristófers Kólumb-
usar til íslands í því sambandi, sem
var mjög mikilvægur áfangi í undir-
búningi leiðangursins mikla til Am-
eríku 1492.
Jónas Kristjánsson ritar bók-
menntasögu tímabilsins til miðrar
16. aldar og myndlistarsaga er eftir
Björn Th. Björnsson. Fjöldi mynda
er í bókinni og nokkrir uppdrættir.
Sigurður Líndal sagði á fundi með
fréttamönnum að hann ætti von á
að Saga íslands yrði 10 bindi í heild.
Skálholt II — Kirkjur
--5-----------------------5--
I þessari bók fjallar Hörður Ag-
ústsson um allar kirkjur er staðið
hafa í Skálholti frá öndverðu og
fram að sóknarkirkjunni sem rifin
var 1956. Hver kirkja fær sína sér-
stöku umfjöllun, en þær eru alls níu
talsins. Má nefna að leitast er við í
máli og myndum að endurgera við-
komandi kirkjur í teikniformi. End-
urgervingu er þó ekki hægt að gera
nema af fjórum yngstu kirkjunum.
Ein þeirra er miðaldakirkja sú sem
stærst var timburkirkna á Norður-
löndum. Bókin er ríkulega mynd-
skreytt með 300 myndum og teikn-
ingum sem einstæðar þykja. Þessi
bók hefur verið tilnefnd til íslensku
bókmenntaverðlaunanna.
Upplýsingin ó islandi,
Tiu ritgerðir________________
Upplýsingin, hin alþjóðlega hug-
myndastefna, hafði mikil áhrif í Evr-
ópu og víðar á 18. öld og fram á 19.
öld. Upplýsingin á íslandi er fyrsta
bókin um áhrif stefnunnar á íslenskt
samfélag. Fremst í bókinni er yfir-
litsritgerð eftir ritstjórann, Inga Sig-
urðsson dósent. Þar er fjallað um
upplýsingunasem alþjóðlega stefnu
og dregin upp heildarmynd af sögu
hennar á íslandi með skírskotun til
annarra ritgerða í bókinni. Aðrir
höfundar eru Harald Gustafsson
sagnfræðingur, Davíð Þór Björg-
vinsson dósent, Lýður Björnsson
sagnfræðingur, Loftur Guttormsson
dósent, Hjalti Hugason dósent,
Helgi Magnússon sagnfræðingur,
Helga K. Gunnarsdóttir bókavörður
og Haraldur Sigurðsson fyrrverandi
bókavörður. '
Stoypu lögð og_______________
steinsmið ris________________
Hér er um að ræða 5. bindi af
Safni til iðnsögu íslendinga undir
ritstjórn Jóns Böðvarssonar, en
þessi bók er skrifuð af Lýð Björns-
syni sagnfræðingi. Samfelld stein-
steypusaga hefur ekki áður verið rit-
uð hér á landi þar sem greint er frá
hinum miklu umskiptum frá því
torf, grjót og timbur voru einu bygg-
ingarefnin hérlendis. Fyrsta bókin í
þessum flokki kom út árið 1985.
Islonsk bóktræði_____________
Hér er um að ræða þriðju útgáfu
helstu heimilda um íslenskar bækur
og handrit, aukin og endursamin af
Einari G. Péturssyni og Ólafi F. Hjart-
ar. í bókinni er fyrst gerð grein fyrir
bókaskrám almennt. Meginpartur
bókarinnar er skrá, oftast með um-
sögnum, um íslenskar bókaskrár og
seinast er nákvæm greinargerð fyr-
ir handritaskrám íslenskum. Aftast
er lykill að flokkun og registur.
Undir oki siðmenningur
Bókin er eitt af síðustu ritum Sig-
mundar Freuds. Hún er samin síðla
árs 1929, réttum áratug fyrir andlát
hans. Sigurjón Björnsson þýddi bók-
ina og skrifar inngang. Hér er um að
ræða þriðju bókina í flokki Sálfræði-
rita Bókmenntafélagsins.
Almunnuhugur______________
Þessi bók er eftir Þorvald Gylfa-
son prófessor og geymir safn sjötíu
og fimm ritgerða um hagfræði og
efnahagsmál. Höfuðtilgangur útgáf-
unnar er að bregða birtu á þrálátan
efnahagsvanda íslensku þjóðarinn-
ar og vekja lesendur til umhugsunar
um það, með hvaða ráðum sé hægt
að vinna bug á vandanum til fram-
búðar.
Munngorðir og_____________
Lof hoimskunnur___________
Fyrri bókin er eftir Þeófrastos sem
var uppi 372—287 fyrir Krist og er í
íslenskri þýðingu Gottskálks Þórs
Jenssonar, sem einnig ritar inn-
gang. Þeófrastos var grískur heim-
spekingur sem stundaði nám í Aka-
demíu Platóns og var handgengin
Aristótelesi.
Lof heimskunnar eftir Erasmus
frá Rotterdam birtist hér í íslenskri
þýðingu þeirra Þrastar Ásmunds-
sonar og Arthúrs Björgvins Bolla-
sonar sem einnig ritar inngang. Er-
asmus frá Rotterdam (1469—1536)
var einn merkasti fræðimaður á
sinni tíð.
Sugu timuns___________________
Þessi bók er eftir hinn fjölfatlaða
Breta, Stephen W. Hawking og hef-
ur vakið heimsathygli. Guðmundur
Arnlaugsson þýddi bókina en inn-
gang ritar Lárus Thorlacius. Saga
tímans er skrifuð fyrir almenning
fremur en sérfræðinga og hefur
hvarvetna hlotið fádæma góðar við-
tökur.
Afslátiur fll félugsmunnu
Allir sem vilja geta gerst meðlimir
Bókmenntafélagsins og fá þá bækur
félagsins á sérstöku afsláttarverði.
Forseti félagsins er Sigurður Líndal
prófessor, en framkvæmdastjóri er
Sverrir Kristinsson fasteignasali.
RAÐAUGLYSINGAR
um styrki til leiklistarstarfsemi
í fjárlögum fyrir árið 1991 er gert ráð fyrir sérstakri
fjárveitingu, sem ætluð ertil styrktar leiklistarstarf-
semi atvinnuleikhópa, er ekki hafa sérgreinda fjár-
veitingu í fjárlögum.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki af
þessari fjárveitingu. Umsóknareyðublöð fást í ráðu-
neytinu.
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneyt-
inu fyrir 20. janúar nk.
Menntamálaráðuneytið, 17. desember 1990.
H)
FJÓROUNQSSJÚKWAHÚSIP
A AKUREYRI
Slysadeild
Starfsfólk í heilbrigðisþjónustunni
Við þörfnumst ykkar við uppbyggingu nýrrar
slysadeildar, sem tekurtil starfa 1. apríl 1991. Auk
þess að flytjast í nýtt húsnæði, verður aukning og
breyting á starfssviði deildarinnar. Við leitum að
áhugasömu og hressu fólki til þess að undirbúa og
síðan annast bráðamóttöku allan sólarhringinn á
slysadeild FSA.
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru nokkrar stöður til umsóknar. Boðið
verður upp á fræðslu í bráðahjúkrun og einstakl-
ingsbundna aðlögun. Deildarstjóralaunaflokkur
fyrir 60% næturvaktir.
Upplýsingar gefa Svava Aradóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, og Birna Sigurbjörnsdóttir, deildar-
stjóri, í síma 96-22100.
Aðstoðarlæknar
Starf aðstoðarlæknis við bæklunardeild FSA er
laust til umsóknarfrá og með 01.04.1991. Starfinu
fylgir vinnuskylda við nýja slysadeild FSA á móti
öðrum aðstoðarlækni bæklunardeildar og aðstoð-
arlæknum handlækningadeildar. Ráðningartími er
6—12 mánuðir, styttri tími kæmi þó til greina.
Nanari upplýsingar gefur Júlíus Gestsson, yfir-
læknir bæklunardeildar, í síma FSA 96-22100, eða
heimasíma 96-21595.
Starfsstúlkur
Til umsóknar eru stöður í almennum ræstingum
og stöður aðstoðarfólks á næturvaktir. Til greina
kemur að ráða sérstaklega á 40—60% næturvakt-
ir. Starfsfólk fær fræðslu og einstaklingsbundna
aðlögun.
Upplýsingargefa Svava Aradóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, og Birna Sigurbjörnsdóttir deildar-
stjóri, í síma 96-22100.
Móttökuritari
Til umsóknar eru tvær 50% stöður í móttöku.
Æskilegt erað umsækjendur hafi reynslu af tölvu-
notkun.
Upplýsingar gefur Svava Aradóttir hjúkrunar-
framkvæmdastjóri, í síma 96-22100.
Umsóknarfrestur um ofantalin stör fer til 15. janú-
ar1991.
(fZ
U 0«
ur
v
Látum fara vel um barnið,
og aukum öryggi þess
um leið!
||UMFERÐAR
Iráð
Vinningstöiur laugardaginn
15. des. '90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 0 6.311.884
2. 8 83.335
3. 4af 5 170 6.764
4. 3af5 6.676 401
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
10.805.520 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002