Alþýðublaðið - 22.12.1990, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR
22. DESEMBER 1990
TÓNLEIKAR ELSU
WAAGE: Einsöngstón-
leikar Elsu Waage verða í
Víðistaðakirkju í Hafnarfiði
fimmtudaginn 27. desem-
ber kl. 20. Elsa syngur
gamlar ítalskar aríur, sí-
gaunalög Dvorak, lög úr
söngleikjum eftir Kurt Weil
og fleira. Elsa mun
snemma á næsta ári syngja
hlutverk Maddalenu í Rigo-
letto hjá Salisbury-óperunni í Massachusetts í Bandaríkj-
unum, en áður heldur hún þrenna einsöngstónleika í Fær-
eyjum.
DREGIÐ ÚR VERÐTRYGGINGU: Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra tilkynnti á Alþingi í gær að ríkisstjórn
og Seðlabanki hefðu gert samkomulag um að minnka í
áföngum á næstu tveimur árum vægi verðtryggingar á
fjárskuldbindingum og um opnun lánamarkaðarins. Væri
það liður í að samræma lánamarkað á lslandi þeim lána-
markaði sem íslendingar tengdust stöðugt nánar. Formað-
ur stjórnar Búnaðarbanka upplýsti að 60% af útlánum
bankans væru á verðtryggðum kjörum.
FJÁRLÖG AFGREIDD: Frumvarp til fjárlaga fyrir árið
1991 varð að lögum í gærmorgun. Fyrir þriðju umræðu
lágu fyrir fjöldi tillagna um hækkanir, en einnig er nú gert
ráð fyrir meiri tekjum ríkissjóðs en ætlað var. Tekjur eru
áætlaðar 101,7 milljarðar króna og útgjöld um 4 milljörð-
um hærri. Fara fjárlög nú í fyrsta sinni yfir 100 milljarða.
Útgjöld ríkisins verða að jafnaði um 300 milljónir á dag.
Lánsfjárlög fyrir árið 1990 voru afgreidd í gær og sömu-
leiðis viðamikið frumvarp um tryggingargjöld, þar sem
fimm gjöldum atvinnurekenda er steypt í eitt. Auk þessara
frumvarpa urðu fjölmörg önnur að lögum í fyrrinótt og í
gær, og höfðu þingforsetar vart undan að setja fundi, slíta
fundum og setja aðra að nýju til þess að koma málum í
gegn.
MEIRA í BYGGINGARSJÓÐINN: Framlög í Bygg-
ingarsjóð verkamanna hækkuðu um 200 milljónir við
þriðju umræðu fjárlaga í gær.
2
dagar
tiljóla
HVERS ÓSKAR ÞÚ ÞÉR Í JOLAGJÖF?
Ólafur Sigtryggsson jólabarn::
„Ég er bara 6 daga gamall og hlakka mikið til að
koma heim og halda upp á fyrstu jólin mín með
pabba og mömmu. (Það er líka mynd af mér inni
í blaðinu.)"
LEIÐARINNIDAG
Boðskapur jólanna nefnist jólaleiðari Alþýðublaðs-
ins. Leiðarahöfundur bendir m.a. á, að kjarni kristinn-
ar trúar, kærleikurinn og fyrirgefningin, er ekki að-
eins siðfræðilegur boðskapur heldur einnig boðun
friðar á jörðu. Fæðing frelsarans er meira en helgi-
saga; hún er tímamótaviðburður í siðferðilegri og
trúarlegri sögu mannkyns og minnir okkur á um-
burðarlyndi og friðsamlega lausn á vanda og deilu-
efnum jarðarbúa.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 2: BOÐSKAPUR JÓLANNA.
érkennileg jól
Tryggi Harðarson blaðamað-
ur segir frá fernum jólum í Kína
og Jón Birgir Pétursson frétta-
stjóri segir frá aðfangadags-
kvöldi með lögreglunni í Suð-
ur-Bronx.
Jólakrossgátan
IJólakrossgátan er að sjálf-
sögðu í jólablaðinu okkar, flett-
ið upp á gátunni og hefjist
handa (með blýanti), krossgát-
an er hæfilega létt viðfangs.
Góða skemmtun!
Tölvujól
IBörnin sem léku glöð með
legg og skel gefa í dag leikföng
í jólagjafir sem eru nokkuð
annars eðlis, — tölvuleikföng,
sem nú eru mjög í tísku.
GRÆNN SKÓGUR
GÓÐRA TÍÐINDA
— segir vidskiptarádherra um mat Sedlabanka á efnahagsmálum, en forsœtisráöherra segir
nauðsynlegt aö vinna sig át úr ,,hávaxtastefnu“.
Snörp umræða varð á Al-
þingi síðdegis á gær eftir
að eiginlegum deildar-
fundum var lokið. Stein-
grímur Hermannsson for-
sætisráðherra kallaði
stefnu ríkisstjórnarinnar
hávaxtastefnu og iðraðist
þess að hafa sjálfur tekið
þátt í að hækka vexti í rík-
isstjórnum með Sjálfstæð-
isflokknum.
Þorsteinn Pálsson kvaddi
sér hljóðs utan dagskrár
klukkan þrjú, þegar þing-
menn hugðust halda heim til
að halda upp á jólin. Vildi
hann fá að vita hvað ríkis-
stjórnin hygðist gera í kjölfar
ummæla forsætisráðherra
um að nafnavaxtahækkun
Búnaðarbanka væri aðför að
þjóðarsátt og að ekki bæri að
endurkjósa bankaráðsmenn.
Bauð Þorsteinn forsætisráð-
herra að breyta lögum um
Búnaðarbanka og kjósa í ráð-
ið að nýju, ef það mætti verða
til þess að í ljós kæmi hverj-
um forsætisráðherra treysti
til að sitja í stjórninni. Guðni
Ágústsson, formaður banka-
ráðs Búnaðarbankans og
flokksfélagi forsætisráð-
herra, varði gjörðir banka-
stjórnar í umræðunni og taldi
gróða Búnaðarbanka verða
um 100 milljónum minni í ár
en í fyrra.
Steingrímur Hermannsson
sagði að hann hefði undir
höndum stöðuyfirlit Lands-
banka eftir fyrstu 9 mánuði
ársins. Eftir að hundruð millj-
óna hefðu verið lögð í vara-
sjóði væru vænar fúlgur eftir.
Sagði forsætisráðherra að
það myndi „hrikta í“ ef af-
koma ríkisbankanna yrði í
samræmi við horfurnar í
Landsbankanum. Forsætis-
ráðherra sagði að takast
myndi að vinna sig út úr þeim
vanda sem stafaði af allt of
háum vöxtum á tímabilinu
1984—1988. Stefnu ríkis-
stjórnar kallaði forsætisráð-
herra þó „hávaxtastefnu."
Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra taldi ríkisstjórnina
vera á réttri leið. Tók hann
undir með formanni Sjálf-
stæðisflokksins, sem sagði
skilyrði hafa skapast fyrir
efnahagsjöfnuði. Um það
væru sérfræðingar sammála,
t.d. mætti lesa um það í síð-
ustu skýrslu Seðlabankans.
Kallaði Jón skýrsluna „græn-
an skóg góðra tíðinda."
RITSTJÖRN (f 681866 — 83320 • FAX 82019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR r 681866