Alþýðublaðið - 22.12.1990, Side 3
Laugardagur 22. desember 1990
3
INNLENDAR FRETTIR
FRÉTTIR
Í HNOTSKURN
ARAMOTADANSLEIKIR: M sjálfsögðu eru flestir
farnir að huga að áramótadansleikjum. Slíkar samkomur
eru nú mjög í tísku. Alþýðublaðinu er kunnugt um ára-
mótadansleik á Borginni, þar leikur Síðan skein sól á
gamlárskvöld og fram eftir morgni fyrsta dags nýja ársins.
Hótel Island verður með dansieik á nýársnótt þar sem
þrjár hljómsveitir ieika, — og á nýárskvöld er mikill fagn-
aður að vanda, skemmtiatriði þar sem Spaugstofan mun
væntanlega fara á kostum, og Stjórnin leika undir dansi.
Á Hótel Sögu er allt lagt upp úr glæsilegu kvöldi nýársdags
í Súlnasal. Þar verður Davíð Oddsson aðalræðumaður
kvöldsins, en ýmsir kunnir gleðigjafar leggja sitt af mörk-
um, að ekki sé talað um matreiðslumeistarana, sem samið
hafa og prófað hátíðamatseðilinn undir stjórn Hafsteins
Egilssonar veitingastjóra. Einsdæmi leikur þar fyrir
dansi. MYNDIN: Gleðigjafar nýárskvölds á Sögu.
AÐSTOÐ í FOSSVOGSKIRKJUGARÐI: aö venju
munu fjölmargir huga að leiðum ástvina sinna í kirkju-
görðunum nú fyrir jólin. Starfsmenn Kirkjugarðanna í
Reykjavík munu verða til aðstoðar á Þorláksmessu og að-
fangadag. Talstöðvabílar verða dreifðir um Fossvogs-
kirkjugarð og verður þar hægt að fá leiðbeiningar í sam-
vinnu við skrifstofu. í kirkjugörðunum við Suðurgötu og í
Gufunesi verða einnig starfsmenn til aðstoðar. Hægt er að
fá uppgefin leiðisnúmer fyrir fram í síma 18166. Hjálpar-
stofnun kirkjunnar selur kerti í kirkjugörðunum báða dag-
ana.
ANNATÍMAR Á UMFERÐARMIÐSTÖÐ: Ætia má
að 2500 til 3000 farþegar eigi leið um Umferðarmiðstöðina
í Reykjavík á degi hverjum síðustu daga fyrir jól og áramót.
Þar koma og fara 50 stórir sérleyfisbílar á degi hverjum, 55
þúsund jólapakkar fara um afgreiðsjuna fyrir jólin. Síðustu
ferðir til Akureyrar eru á Þorláksmessu kl. 8 og 17, til
Hornafjarðar kl. 8.30, á Snæfellsnes kl. 17 og 19 og til
Hólmavíkur kl. 10. Á aðfangadag er ekið kl. 13 til Borgar-
ness, Laugarvatns, Þorlákshafnar og í Hreppana, kl. 13.30
á Hellu og Hvolsvöll, kl. 15 til Hveragerðis og Selfoss og kl.
15.30 til Keflavíkur.
„FJÁRHÚS" VIÐ NESKIRKJU: Klukkan hálffimm á
Þorláksmessu syngur kvartett Óperusmiðjunnar jólalög
við ,,fjárhús“ sem komið hefur verið fyrir framan Nes-
kirkju. Þar leikur líka Lúðrasveit Melaskólans undir stjórn
Páls Pampichlers Pálssonar. Fólki er gefinn kostur á að
komast að jötunni með börn sín og leyfa þeim að gefa til
Hjálparstofnunar kirkjunnar. Fleira verður á dagskránni,
Barnakór Melaskólans syngur, Birna Hjaltadóttir segir
frá jólum í Austurlöndum og Sigríður Ella Magnúsdóttir
og Simon Vaughn syngja einsöng og tvísöng. Þá verður
almennur söngur og séra Frank M. Halldórsson flytur
lokaorð og bæn.
TÓNLEIKAR í HAFNARBORG: Ármann Helgason
klarinettuleikari og David Knowles píanóleikari halda
tónleika í Hafnarborg í Hafnarfirði sunnudaginn 30. des-
ember og hefjast þeir kl. 20.30. Ármann er við nám í Lond-
on auk þess sem hann er klarinettuleikari kammerhljóm-
sveitarinnar Salomon Ensemble. Á efnisskránni eru verk
eftir Sehumann, Poulenc, Saint-Saens, Messianen, Lut-
oslawski og Carl Nielsen.
STRÆT0 UM J0L: Á Þorláksmessu verður ekið skv.
áætlun helgidaga hjá SVR. Á aðfangadag og gamlársdag
eins og á virkum dögum til kl. 17. Á jóladag hefst akstur
kl. 14 og er þá fylgt tímaáætlun helgidaga. Á annan í jólum
gildir helgidagaáætlun. Ókeypis er í vagnana 22. og 24. til
26. desember að báðum dögum meðtöldum.
JÓLASÖNGVAR í LANGHOLTSKIRKJU: í kvöld
kl. 23 hefjast Jólasöngvar Langholtskirkju, athöfn sem
án efa verður áhrifarík og falleg eins og undanfarin ár. Á
efnisskrá tónleikanna eru innlend og erlend jólalög og
jólasálmar auk þess sem tónleikagestir frá tækifæri til að
láta í sér heyra. Kórar Langholtskirkju og barnakór Árbæj-
arskóla koma fram, einsöngvarar Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir og Ragnar Davíðsson. Kirkjan verður upplýst
með kertaljósum og í hléi verður boðið upp á heitt kakó.
Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans:
Fáránleg umræða
um vaxtamálin
Það er bara einn flokkur manna vitlausari en hagfræðingar og
það eru pólitíkusar, segir Sverrir Hermannsson.
„Það eru ástæður til að
breyta vöxtum eins og allir
vita sem fylgjast með verð-
lagi í þjóðfélaginu. Lands-
bankinn ákvað hins vegar
að fresta ákvörðun um
þetta til 28. desember. En
umræðan í þessu vesal-
ings þjóðfélagi um vexti er
fáránleg. Hér er það eitt
landa í veröldinni þar sem
háir vextir eiga að vera
verðbólguaukandi en alls
staðar í veröldinni er
hækkun vaxta notuð til að
draga úr verðbólgu,“ sagði
Sverrir Hermannsson
bankastjóri í Landsbank-
anum í samtali við Alþýðu-
blaðið.
Nafnvextir sparisjóðanna
og Búnaðarbankans voru
hækkaðir í gær. Vextir
skuldabréfa hjá Búnaðar-
banka hækkuðu um 1,25%
og um hálft prósent hjá spari-
sjóðum. Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra
hefur gagnrýnt þessa vaxta-
hækkun harkalega, sem og
Guðmundur J. Guðmundsson
sem segir hagnað Búnaðar-
banka í byrjun desember
vera 900 milljónir og millj-
arður í Landsbanka. Sverrir
var spurður hvort rétt væri
farið með hagnað Lands-
bankans.
„Þetta er fjarri öllu lagi og
ég hef aldrei heyrt aðrar eins
ýkjusögur. Það hefur ekki
verið tekin afstaða til af-
skrifta sem vegna aðstæðna í
þjóðfélaginu geta verið mjög
miklar. Þegar vextir eru ann-
ars vegar kemur margt til
álita, til dæmis að hér hefur
Vöruskiptajöfnurinn í ár
er hagstæður um 3,6 millj-
arða króna. Innflutningur
til landsins hefur þó aukist
verulega í ár, þegar miðað
er við síðasta ár. Munar
þar mest um stóraukin
flugvélakaup Flugleiða hf.
á þessu ári. Fyrstu eliefu
mánuði ársins voru fluttar
inn vörur og þjónusta að
verðmæti 80,5 milljarðar
en út fyrir 84,1 milljarð.
Hagstofan greindi frá því í
gær að verðmæti útflutnings-
ins væri 5% meira á föstu
gengi en á sama tíma í fyrra.
Sjávarafurðir voru um 76%
alls útflutningsins, og voru
12% meiri en á sama tíma í
fyrra. Útflutningur á áli og
kísiljárni dróst verulega sam-
an.
Verðmæti vöruinnflutnings
fyrstu 11 mánuði þessa árs
var 10% meiri en á sama tíma
í fyrra. Munar þar verulega
um flugvélakaupin eins og
fyrr greinir, þau voru tvöfalt
meiri en í fyrra. Þá var inn-
flutningur til stóriðju rúm-
lega fjórðungi meiri en í
fyrra.
Ef nóvembermánuður er
skoðaður einn út af fyrir sig
er vöruskiptajöfnuðurinn
orðið misgengi á verðtryggð-
um kjörum og nafnvöxtum
og svo framvegis. Það er ekk-
ert sem liggur fyrir um það,
að þótt bankar hækki vexti
þá gefi það eina krónu í ábata
fyrir okkur. Innlánsvextir
verða að hækka líka. Þetta er
undir kjörunum komið út og
inn,“ sagði Sverrir.
Hann var spurður hvort
hækkun vaxta samrýmdist
þjóðarsátt og hvort bankarnir
hefðu ekki haft forgöngu um
vaxtahækkanir.
„Sá sem hefur haldið uppi
háum vöxtum í íslensku þjóð-
félagi allt síðasta ár einhendis
heitir Ólafur Ragnar Gríms-
son og er fjármálaráðherra.
Eða öllu heldur hefur hann
gert þetta í umboði ríkis-
stjórnarinnar með yfirboðum
á spariskírteinum og ríkis-
víxlum þar sem þeir hafa ver-
ið að smala inn peningum í
botnlausa ríkissjóðshít. Sjá
menn þetta ekki heldur? Eru
blaðamenn og fjölmiðlar svo
af baki dottnir að þeir hafa
bara episodíur í fjölmiðlum
Húsnæðismálastofnun
ríkisins segir að Bygg-
þann mánuð óhagstæður um
800 milljónir, flutt var út fyrir
nær 7 milljarða en inn fyrir
7,8 milljarða.
með Gvendi Joð Guðmunds-
syni þar sem hann bölsótast
út í vexti. Skyldi hann Guð-
mundur fara með lífeyrissjóð-
speningana sína og biðja um
lægri vexti á þeim í bönkum."
— En Sverrir, hagfræðing-
ar hafa . ..
„Það er bara einn flokkur
manna vitlausari en hagfræð-
ingasjóður ríkisins kaupi
íbúðir á nauðungarupp-
boðum til þess eins að
verja útlán sín til þeirra.
Við sölu og meðferð upp-
boðsíbúða fari sjóðurinn
eftir reglum, sem ríkis-
endurskoðun hafi stað-
fest. Byggingarsjóðurinn
reyni að selja þær aftur á
eðlilegu markaðsverði eða
sér að skaðlausu. Þrátt
fyrir það séu flestar þess-
ara íbúða seldar með nei-
kvæðum mismun.
Samkvæmt útreikningi á
þeim 47 kaupsamningum um
uppboðsíbúðir, sem nú eru í
gangi, skila einungis 3 já-
kvæðum mismun, samtals
ingar. Það eru pólitíkusar.
Popúlisminn hjá pólitíkusum
er orðinn slíkur að ég hef
aldrei kynnst öðru eins og er
þó ýmsu vanur frá minni tíð.
Þá kom það þó fyrir að menn
kæmu til dyranna eins og
þeir voru klæddir," sagði
Sverrir Hermannsson.
um einni milljón króna en 44
eru með neikvæðum mun,
samtals nálægt 39 milljónum
króna. Er þá miðað við, að
kaupsamningar séu færðir til
núvirðis og kostnaðarverð
framreiknað.
„Gróðasjónarmið gilda
ekki við kaup Byggingarsjóðs
ríkisins á uppboðum. Hins
vegar telur sjóðurinn sér al-
gjörlega óheimilt að gefa frá
sér verðmæti í þeim örfáu til-
vikum, sem jákvæður munur
kann að vera á kostnaðar- og
söluverði.
Vöruskiptajöfnudur fyrstu 11 mánudina:
Hagstæður um
3,6 milliarða
Kaup Byggingarsjóðs á uppboðsíbúðum:
„Gróðasíónarmið
gilda ekki"