Alþýðublaðið - 22.12.1990, Síða 8

Alþýðublaðið - 22.12.1990, Síða 8
8 Laugardagur 22. desember 1990 Á slysavarðstofunni er William Carton að undirita skýrslu vegna manns sem skotinn hafði verið í fótinn þetta aðfangadagskvöld. Eiginkona sem barin var af manni sínum vegna meints framhjáhak heimiliserja. GLÆPIR, eiturlyf, morð, likamsárúsir, bílþjófnað- ir og margt annað. Þetta var hið daglega brauð lög- reglumannanna, sem ég fékk að eyða aðfanga- dagskvöldi og fyrri hluta jólanætur með fyrir 12 ár- um siðan. Suður-Bronx var þá, og er kannski enn, hverfi andlegrar og veraldlegrar fátæktar, svo sárr- ar að erfitt var á að horfa og fylgjast með. Þó stóð þessi vakt blaðamannsins i Hverfisstöð númer 42 i aðeins 8 klukkutima. Á þeim tima hafði ég hins veg- ar fengið mig fullsaddan á hinum fjölbreytilegu veikleikum mannkynsins. Það er aðfangadagur á miðri Manhattan, fólk er á hraðri heim- ferð, klukkan að verða fjögur, sá tími sem íslendingar bíða með óþreyju eftir jólahaldinu með hefðbundnum kirkjuferðum, hlöðnum borðum af girnilegum krásum, jólapökkum og sannköll- uðu letilífi. Við blasti allt annars konar aðfangadagskvöld að þessu sinni. Leigubill i Bronx____________ Erfitt reyndist að ná í lausan leigubíl, og loks þegar það tókst, kom óttasvipur á andlit leigubíl- stjórans, þegar hann heyrði ákvörðunarstaðinn: „Fortysecond Precinct, South Bronx." Töluverðar úrtölur þurfti, — seinna kom í ljós að ótti mannsins var hreint ékki óeðlilegur. Bílferð- in gekk þó greitt, ekkert óvænt kom upp á, fátt fólk á ferli, en yfir stórborginni grúfði rigningin. Á löggustöð 42 — mest spenn- andi lögreglustöð heimsálfunnar Ameríku — að sagt var — var vel tekið á móti íslendingunum, sem komnir voru í heimsókn. Tveir ír- skættaðir lögreglumenn áttu að sýna blaðamönnum hvernig að- fangadagskvöld í þessu ógurlega hverfi líður, William Carton vakt- stjóri og Ray Calagher, óbreyttur lögreglumaður. Þeir reyndust hin- ir prýðilegustu, eins og títt er um Ira, bráðhressir menn, auk þess sem þeir voru greinilega vanir menn í þessari atvinnugrein. Hverfiö hroinlegq i rúst í fyrsta bíltúrnum um Suð- ur-Bronx með þeim félögum sýna þeir okkur ástand hverfisins, sem Bandaríkjaforseti var þá nýbúinn að skoða, sér til mikillar skelfing- ar. Víða eru húsin nánast rústir einar. Ágæt hús standa með tómar gluggatóttir sem gapa gegn svart- bólgnum desemberhimninum. Hvað hefur gerst? Jú, íbúarnir hafa sjálfir eyðilagt íverustaði sína. Sjálfseyðingarhvöt eiturlyfja- fólksins er algjör. Húsin voru upp- haflega rúin hurðum, hreinlætis- tækjum og öðru þar til aðeins pípulögnin var eftir, hún hvarf líka. Allt var selt til að eignast „skammt" fyrir daginn. Þeir félagarnir reyndust báðir fyrrverandi íbúar í Bronx, þegar hverfið var virt athafnahverfi með góð fyrirtæki, m.a. bílaverksmiðj- ur Chryslers. En fyrirtækin hurfu, og fólkið með. Nýtt fólk flutti inn. Oftar en ekki var það fátækt barnafólk frá fjarlægum slóðum, ekki hvað síst frá Puerto Rico. Eina fyrirtækið sem enn var við lýði var hafnaboltafélagið Yanke- es, frægt um öll Bandaríkin. Völl- urinn er í útjaðri hverfisins næst brúnni yfir á Manhattan. Þangað sækja áhorfendur leiki, þeir sem fífldjarfastir eru. Snögg viðbrögd þegar félagi var talinn i vanda Fyrsta klukkutímann gerist fátt eitt. Og þó. Lítill, aflóga sendi- ferðabíll með suður-evrópsku firmanafni skröltir á undan okkur. Lögreglumennirnir segja að hann geti allt eins verið stolinn, þeir stöðva þó ekki ökuþórinn, segja það ekki skipta máli, kraftarnir muni fara í aðra og stærri hluti þetta kvöld. Skyndilega kemur kvaðning um talstöðina, sem virðist staðfesta þetta — hljómþýð kvenrödd til- kynnir: Liðsmenn í vanda! Sírena og blikkljós eru sett á og bláa og hvíta Dodge-inum snarsnúið á göt- unni. Ekið er á ofsahraða um göt- urnar sem nú eru orðnar blautar af rigningu. Eftir fimm mínútna akstur komum við inn á lítið torg og þar er snarhemlað og félagar okkar þeysa að húsi handan torgs- ins. í sama mund koma lögregiu- bílar úr öllum áttum. Aðgerðir eru samræmdar, og lið manna fer inn í húsið með skammbyssur á lofti. Fljótlega kemur í ljós að hér er um gabb að ræða, enginn lögreglu- maður í vanda hér. En þarna mátti þó kynnast hröðum viðbrögðum og því hvernig brugðist er við, ef ráðist er á lögreglumann. Óvenjulegt aðfangadags- kvöld og upphaf jólanœtur í mesta glæpahverfi Ameríku — Suður-Bronx — Óvenjuró- leg jólavakt var meira en ís- lenskur blaðamaður gat ímyndað sér Paudaslys i umferðinni Ekki líður löng stund þar til eftir- litsbíllinn okkar er beðinn að fara á slysstað í grenndinni. Þar er ljótt um að litast, blóðið rennur út úr öðru bílflakinu og blandast regn- vatninu á götunni. Hér varð dauðaslys og nokkrir illa slasaðir. Á staðnum ríkir angist og fólk grætur. Viðdvölin á slysstaðnum er stutt. Aðrir lögreglumenn tóku til við rannsókn fljótlega. Inni á lögreglustöðinni aftur. Kaffibolli og kleinuhringur — jóla,,steik“ blaðamanna og lög- reglumanna þetta kvöld. Þeir vin- irnir, William og Ray, sýna okkur ýmislegt á veggjum stöðvarinnar. Minningarskildi um félaga, sem látið hafa lífið í starfi sínu í S- Bronx, myndir og nákvæmar lýs- ingar á ótal eftirlýstum, vafasöm- um mönnum, myndir úr friðsam- legu tómstundastarfi og silfurbik- arar, laun fyrir unnin afrek í íþrótt- um. Géðkunningjar______________ lögreglunnar_______________ Við afgreiðsluborðið hangir létt- rugluð kvensa, dökk á brún og brá, eins og títt er um íbúa hverfis- ins. Hún tautar alls konar vitleysu, talar mest við sjálfa sig og er greinilega ekki í neinu sambandi við jólin. Hún er ein af þessum góðkunningjum lögreglumann- anna, nágranni sem gerir engum mein. Komið er með lítið barn, sem fundist hefur á viðsjárverðum götum þessa borgarhverfis. Barn- ið getur ekki talað ensku, leitað er Ekkert að óttast, segja þeir Bill Carton og Ray Calagher, þegar þeir koma niður stigann. Tilkynnt hafði verið um árás á lögreglumann.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.