Alþýðublaðið - 22.12.1990, Side 21

Alþýðublaðið - 22.12.1990, Side 21
Laugardagur 22. desember 1990 21 skjáinn og hefur hann flust bú- ferlum frá New York til Chicago og rekur þar útvarpsstöð. Hann fæst þar við harðsvíraða bófa. Eftir að þeir hafa nauðg- að og myrt dóttur hans hefst miskunnarlaus eltingaleikur. Eyjaskeggjar útvarpa Útvarp Jólarásin FM 102 í Vestmannaeyjum hóf útsend- ingar um miðjan mánuðinn og verður með útsendingar til árs- loka. Þetta er fjórða árið sem hún er starfrækt. Reksturinn er á ábyrgð Tómstunda- og íþróttafulltrúa Vestmanna- eyjabæjar og fer starfsemin fram í félagsmiðstöð bæjarins. Það eru unglingarnir í Eyjum sem sjá að mestu um rekstur stöðvarinnar. Þorláksmessa Sungið og leikið á Þorláks- messu: Nemendur í tónlistar- skólum á höfuðborgarsvæð- inu eru gestir í útvarpshúsinu og stytta landsmönnum stundir með söng og leik. Rás 1 kl. 14.00 Hver er þessi Þorlákur? Inger Anna Aikmann. Jólatón- ar og tal um tilveruna. Aðalstöðin kl. 16.00 Jólabókaflóðið: Rósa Guðbjartsdóttir tekur fyrir nýjar bækur, kynnir höf- unda þeirra og lesnir verða kaflar úr bókum. Bylgjan kl. 17.00 Aðfangadagur Að bíta í á jólunum: Umsjón: Ævar Kjartansson Rás 1 kl. 13.00 Aftansöngur í Dómkirkjunni: Prestur: Séra Hjalti Guð- mundsson. Dómkórinn syng- ur. Rás 1 kl. 18.00 Jólaávarp: Séra Halldór S. Gröndal ALFA kl. 18.00 Jóladagur Bernskujól mín: Emma Hansen, fyrrum bóka- vörður, ræðir við Asdísi Skúla- dóttur um bernskujól sín á Sauðárkróki og jólin á prest- setrinu Hólum í Hjaltadal. Rás 1 kl. 10.25 Fíflar í augasteina stað: Samantekt um þýðingar Helga Hálfdanarsonar á Ijóðum frá ýmsum löndum og leikritum Shakespears. Umsjón: Stein- unn Sigurðardóttir. Rás 1 kl. 15.15 „Jól barns í Wales": Jólasaga eftir Dylan Thomas. Árni Blandon les eigin þýðingu. Rás 1 kl. 18.00 Þorlákstíðir: Skyggnst inn í samtíð Þorláks helga. Sveinbjörn Rafnsson flytur erindi um Þorlák bisk- up. ísleifsreglan syngur Þor- lákstíðir og Kór Menntaskól- ans við Hamrahlíð, einsöngv- arar og hljóðfæraleikarar flytja verk eftir Misti Þorkels- dóttur og Þorkel Sigurbjörns- son byggð á stefjum úr Þor- iákstíðum. Þorgerður Ingólfs- dóttir stjórnar. Rás 1 kl: 20.00 Annar dagur jóla Litlu jólin: Þessi dagskrárliður er tileink- aður ungu kynslóðinni. Barna- sögur og ævintýri. Barnalög Frá vélstjóra- félagi íslands Aðalfundur félagsins verður haldinn laugardaginn 29. desember kl. 13:30 að Borgartúni 18, Reykja- vík. Daaskrá samkvæmt félagslögum. Á fundinum verour borin fram stjórnartiílaga um úrsögn úr Far- manna- og fiskimannasambandi íslands. Félagsfundir að Borgartúni 18, 3. hæð Með farskipavélstjórum fimmtudaginn berkl. 13:00. Með fiskiskipavélstjórum föstudaginn berkl. 13.00. 27. desem- 28. desem- Stjómin verða leikin og hver veit nema jólasveinar líti inn. Aðalstöðin kl. 8.00 Jólagestir Jónasar Jónasson- ar: Gestir hans eru: Árni Pétur Guðjónsson leikari, Bjarni Þór Jónatansson píanóleikari,Jó- hanna Þórhallsdóttir söng- kona, Margrét Pálmadóttir kór- stjóri, Valgeir Guðjónsson söngvari og tónskáld og Ung- lingakór Flensborgarskóla. Rás 1 kl. 13.00 Jól með Bítlunum: Skúli Helgason tekur saman þátt um jólahald Bítlanna. Rás 2 kl. 15.00 Jólatréð og brúðkaupið: Jólasaga eftir Fjodor Do- stojevskí. Þýðing: Baldur Pálmason. Róbert Arnfinns- son les. Rás 1 kl. 22.20. SVO ALLIR HAFI NÓ6 RAFMAGN UM JÓLIN ooooc w 5 Jafnið notkun yfir daginn Reynið að dreifa eldun yfir daginn eftir því sem kostur er, einkum á aðfangadag og gamlársdag. Notið ekki mörg straumfrek tæki samtímis að óþörfu, t.d. rafmagnsofn, hraðsuðuketil, þvottavél, þurrkara og uppþvottavél. Forðist brunahættu Farið varlega með öll raftæki til að forðast hættu á bruna og raflosti. Gamlar, slitnar leiðslur og lélegar jólaljósasamstæður geta verið hættulegar. Eigið alla vartappa í flestum nýrri húsum eru útsláttarrofar, en í eldri húsum eru vartappar (öryggi) og rétt er að eiga birgðir af þeim. Helstu stærðir eru 10 amper (Ijós), 20-25 amper (eldavélar o.fl.) og 35 amper (aðalvör fyrir íbúð). Ráðstafanir í straumleysi Ef straumlaust verður skal gera eftirfarandi ráðstafanir: Taka straumfrek raftæki úr sambandi, skipta um viðkomandi vartappa ef straumleysi nær til hluta íbúðar, skipta um aðalvar ef straumleysi nær til allrar íbúðar. Lekastraumsrofi Hafi lekastraumsrofi leyst út er rétt að taka öll raftæki úr sambandi og reyna síðan að setja rofann inn. Síðan má setja tækin í samband aftur, eitt af öðru, þar til bilaða tækið finnst. Bilanatilkynningar Tekið er á móti tilkynningum um bilanir í síma 686230 hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur allan sólarhringinn. Á aðfangadag og gamlársdag er einnig tekið á móti bilanatilkynningum til kl. 19 í síma 604600. Gleðileg jól og farsælt komandi ár! RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR SUÐURLANDSBRAUT34 108 REYKJAVÍK SÍMI 60 46 00 •T RESTAURANT BAR leknr ftór opmnn örnuiin Rauöi sófinn, Laugavegi 126, s: 16566

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.