Alþýðublaðið - 29.12.1990, Side 24
24
Laugardagur 29. desember 1990
Áriö 1990 er senn „liðið í ald-
anna skaut'*. Þaö kemur vissu-
lega ekki til baka, en hvaða at-
burðir ársins munu ekki líða svo
glöggt úr minni. Þjóðir berast á
banaspjót við Persaflóa, Evr-
ópa er á góðri leið með að veröa
ein heiid. Hér heima sköruðu
einstaklingar fram úr á ýmsum
sviðum mannlífs og þjóðin tók
sig til og barði á verðbóigunni,
En hvað finnst fólki um atburði
liðins árs? Hvað situr eftir í minning-
unni? Hvað er framundan? Við lögð-
um nokkuð óvenjulega þraut fyrir
nokkra einstaklinga.
Um liðið ár, 1990.
1) Afrek ársins.
2) Vitlausasta ákvörðun á árinu.
3) Menningarviðburður ársins.
4) Besta sjónvarpsefnið.
5) Versta sjónvarpsefnið.
6) Ummæli ársins.
7) Stjarna ársins.
8) Skot ársins á menningarsviði.
9) Skot ársins á viðskiptasviði.
10) Skot ársins á stjórnmálasviði.
11) Maður ársins.
12) Óvæntasti atburður ársins.
13) Árið 1990 í einni setningu.
Framtíðin.
14) Brýnustu verkefni á næsta ári,
1991.
15) Mikilvægustu verkefni á næsta
áratug.
Og hér koma svörin frá þessu mæta
fóiki, sem vildi taka þátt í áramóta-
þraut Alþýðublaðsins:
SVÖR VIÐ SPURNINGUM
UM ÁRIÐ 1990
Ólína Þorvaröardóttir,
borgarfulltrúi í Reykjavík
1) Lækkun verðbólgu, aukinn
kaupmáttur og bætt staða at-
vinnuveganna.
2) Ákvörðun Framsóknarflokks,
Kvennalista og Alþýðubanda-
lags að skerast úr leik vegna
sameiginlegs framboðs í Reykja-
vík fyrir síðustu sveitarstjórnar-
kosningar.
3) Listahátíð.
4) Spaugstofan.
5) Líf í tuskunum.
6) Davíð Oddsson á öfugmæli árs-
ins, er hann sagði fyrir borgar-
stjórnarkosningar: „Á þessu
hausti munu öll börn í Reykjavík
njóta leikskólavistar."
7) Þær eru f jórar og á þær fær ekk-
ert skyggt. Það eru börnin mín.
8) Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleik-
ari.
9) Pharmaco.
10) Nýr vettvangur.
11) Guðmundur Árni Stefánsson.
12) Innrásin í Kúvæt og afsögn
Margrétar Thatchers.
3) Viðburðaríkt ár.
4) Á innlendum vettvangi: Áfram-
haldandi stöðugleiki í efnahags-
lífi og öflugt félagshyggjumál-
gagn. Á erlendum vettvangi:
Friðsamleg lausn Persaflóadeil-
unnar.
15) Sameining félagshyggjuaflanna.
María Ingvadóttir, fjármála-
stjóri Útflutningsráðs
1) Að forkólfum verslunar á fslandi
skuli hafa tekist að fæla stóran
hluta jólaverslunar landsmanna
úr landi.
2) Bráðabirgðalögin á samninga
BHMR, og þegar saksóknari í
Hafskipsmálinu ákvað að áfrýja
málinu til Hæstaréttar.
3) Á sama tíma og ákveðið er að
stækka Þjóðleikhúsið fyrir fleiri
hundruð milljónir og ekki látið
duga að halda í núverandi
mynd, er reynt að bregða fæti
fyrir Islensku óperuna.
4) Spaugstofan.
5) Barnaefni á sunnudögum á Stöð
2.
6) Þegar Óli Kr. sagðist í sjónvarp-
sviðtali lítið vita um hlutabréfa-
eign sína og lítið vit hafa á því-
líkum pappírum, verðbréfum og
þess háttar gögnum.
7) I mínum huga eru stjörnur árs-
ins þeir sem hafa bjargast úr alls
kyns mannraunum, oft í baráttu
við óvægin náttúruöfl.
8) Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleik-
ari.
9) Pharmaco og Delta með Werner
Rasmusson.
10) Björn Bjarnason.
11) ÓÍi Kr. Honum tókst að selja
bréfin sem hann sagðist ekkert
vit hafa á.
12) Sú valdníðsla sem bráðabirgða-
lögin voru.
13) Gjöfult ár en mörgum erfitt og
léleg og ráðvillt stjórn hefur sáð
mikilli óvissu og tortryggni
þannig að traust og álit á stjórn-
málamönnum er í lágmarki.
14) Að losna við núverandi ríkis-
stjórn og hrinda af okkur höft-
um ofstjórnar og miðstýringar
sem núverandi ríkisstjórn hefur
komið á, einkum í heilbrigðis-
málum, í menntakerfi og í
skattamálum. Koma þarf á ytri
skilyrðum þannig að atvinnulíf
geti fengið ákjósanlegan farveg,
þannig að hér dafni blómlegt
mannlíf fyrir alla.
15) Að nota öll tækifæri til að fylgja
eftir þeim stórkostlegu breyting-
um sem eiga sér stað í Evrópu.
Vinna að því yfirvegað og með
festu að nýta okkur aðstæður
þannig að viðskiptahagsmunir
okkar verði tryggðir sem best,
þannig að við stöndum vörð um
sjálfstæði okkar og menningu.
Sigurjón Þorvaldur Árnason,
verkfræðinemi og formaöur
Stúdentaráðs Háskóla
íslands.
1) Sameining Þýskalands.
2) Samþykkt þingfiokks Sjálfstæð-
isflokksins gegn bráðabirgða-
lögunum, þó að hún væri sið-
ferðilega rétt.
3) Menningarvakan á fullveldishá-
tíð stúdenta 1. desember.
4) Fréttir ríkissjónvarpsins og 90 af
stöðinni.
5) Ástralski spennumyndaflokkur-
inn og sápuóperan Grannar á
Stöð 2.
6) Ræðan sem Shevardnadze hélt
þegar hann sagði af sér sem ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna.
7) Gíslinn Gísli.
8) Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleik-
ari.
9) Werner Rasmusson stjórnarfor-
maður með meiru (Pharmaco).
Hann virðist vera búinn að
hreppa titilinn „Stjórnarformað-
ur Islands" af Halldóri H. Jóns-
syni, þar sem Werner er nú
stjórnarformaður í 13 fyrirtækj-
um.
10) Sveinn Andri Sveinsson, yngsti
borgarfulltrúinn og stjórnarfor-
maður SVR.
11) Jón Sigurðsson, viðskipta- og
iðnaðarráðherra.
12) ísland lenti í 4. sæti í söngva-
keppni evrópskra útvarps-
stöðva.
13) Þjóðarsátt.
14) Tryggja undirstöður íslensks at-
vinnulífs og skapa þann grunn
sem til þarf svo að verðbólga
haldist niðri og stöðugleiki sé í
efnahagsmálum.
15) Gera þær efnahagsráðstafanir
sem til þarf svo að hrakspár um
að Island dragist aftur úr öðrum
þjóðum hvað varðar hagvöxt og
velmegun verði ekki að veru-
leika. I því felst meðal annars að:
* Stokka upp úr sér gengið land-
búnaðarkerfi sem kostar okkur
milljarða á hverju ári.
* Taka upp veiðileyfasölu í ein-
hverri mynd svo að hagræðing
náist í sjávarútvegi.
* Bæta nýtingu sjávarfangs, hugsa
um gæði sjávarafurða ekki bara
magn.
* Tryggja aðgang íslenskra afurða
á markaði EB-landa.
* Virkja orkulindir landsins, fall-
vötn, jarðhita og koma orkunni
í verð t.d. með byggingu álvers
(álvera).
* Tryggja stöðugleika í íslensku
þjóðfélagi svo að fyrirtæki geti
gert raunhæfar áætlanir.
Jafnframt er mikilvægt að hlúa
að íslenskri tungu og menningu
sem á nú í erfiðri samkeppni við
stórar menningarheildir Evrópu
og Bandaríkjanna.