Alþýðublaðið - 23.06.1989, Page 6
6
Föstudagur 23. júní 1989
Reiðnámskeið
fyrir fatlaða
Þaö er jákvæö nýbreytni í
tómstunda-og íþróttaþjálfun
fatlaðra aö I sumar verða
starfrækt reiðnámskeið við
Reykjalund í Mosfellsbæ.
Námskeiöin standa öllum
fötluðum einstaklingum til
boða. Þátttakendum verður
skipað í barna- og unglinga-
hópa en fullorðnir verða i sér
flokki. Fullt tillit verður tekið
til getu hvers og eins. Starf-
semin er styrkt úr sameigin-
legum sjóði Landssamtak-
anna Þroskahjálp og Öryrkja-
bandalags íslands.
Aðstandendur námskeið-
anna þær Hjördís Bjartmars
og Sigurveig Magnúsdóttir
hafa margra ára reynslu af
reiðþjálfun fatlaðra.
Nánari upplýsingar eru
veittar í síma 667126 á mánu-
dögum og miðvikudögum á
milli kl. 10 og 12 f.h. og á
fimmtudögum frá kl. 18—20.
Borgarbúar
safni saman
notuðum raf-
hlöðum
Á fundi borgarráðs
13. október 1987 lagði Katrín
Fjeldsted fram tillögu um
flokkun og endurvinnslu
húsasorps. Tillaga hennar var
síðan endurflutt og samþykkt
á fundi borgarstjórnar
2. febrúar árið 1989.
Hinn 18. apríl sl. fól borgar-
ráö Reykjavíkur gatnamála-
stjóra, framkvæmdastjóra
Heilbrigðiseftirlits Reykjavík-
ur og forstöðumanni Sorp-
eyðingar höfuðborgarsvæðis-
ins að vinna að innsöfnun
notaðra rafhlaðna í Reykjavik.
Markmiðið með söfnuninni er
að draga eins mikið og unnt
er úr umhverfismengun af
völdum kadmíums og kvika-
silfurs.
Innsöfnunin hefst næstu
daga og verður farið þess á
leit við forráðamenn bensin-
stöðva, matvöru- og Ijós-
myndavöruverslana, að þeir
veiti móttöku notuðum raf-
hlöðum í þar til gerð ílát. Það
er von okkar, sem standa að
innsöfnuninni, að þessir aöil-
ar taki málaleitan okkar vel.
Stafsmenn hverfamiðstöðva
borgarinnar munu losa ílátin
reglulega og eftir þörfum. Á
hverfamiðstöövunum verður
einnig tekið á móti notuðum
rafhlöðum og íbúum hverf-
anna veitt margs konar þjón-
usta varðandi umhverfis-
vernd.
Borgaryfirvöld hafa gefiö
út bækling um umhverfi og
mengun. Bæklingurinn, sem
borinn verður í öll hús borg-
arinnar mun að þessu sinni
veita upplýsingar og leiðbein-
ingar um tilgang söfnunar-
innar og starfsemi hverfamið-
stöðva borgarinnar. Ætlunin
er að gefa út fleiri bæklinga
um umhverfismál, sérstak-
lega jsau, sem efst eru á
baugi hverju sinni og varða
heill íbúanna. Borgaryfirvöld
vilja hvetja borgarbúa til þess
að taka virkan þátt í söfnun
notaðra rafhlaðna með því að
koma þeim til framangreindra
móttökustaða í borginni.
Höfundur ís-
fólksins til
íslands
Væntanlegur er hingað til
lands höfundur bókaflokks-
ins vinsæla um ísfólkið. Það
er skáldkonan Margit
Sandemo, sem er sænsk að
uppruna og ætt og skrifar á
sænsku, en býr og starfar í
Noregi. Margit Sandemo er
þekkt og mikils metin af öll-
um þeim sem lesa vikublöð,
enda hefur hún samiö rúm-
lega 50 framhaldssögur.
Sennilega eru smásögurnar
hennar ennþá fleiri og hafa
sumar þeirra birst í VIKUNNI.
Sögurnar um ísfólkið skrifar
hún hins vegar samkvæmt
beiðni norska útgáfufyrirtæk-
isins Bladkompaniet a.s.
Bækurnar koma samtímis út
á íslandi og í Noregi og Sví-
þjóð.
Hér á Islandi mun Margit
Sandemo hafa vikudvöl. Hún
mun skoða sig um bæði á
Suðurlandsundirlendinu og
fyrir norðan. Hún mun einnig
hitta ýmsa aðila hérlendis
sem tengjast yfirnáttúruleg-
um fyrirbærum, en hún er
mikill áhugamaður og sér-
fræðingur um slík mál. Þá
mun hún hitta íslensk starfs-
systkini sín, heimsækja fjöl-
miðlana, hitta íslenska les-
endur sína í nýju húsnæði
PRENTHÚSSINS að
Faxafeni 12 i Skeifunni og
árita bækur þeirra ef þeir
óska.
Með Margit Sandemo í för
er 19 ára norsk stúlka, Marit
Kjellevold, sem tekur þátt í
afarvinsælli spurninga-
keppni í norska ríkissjónvarp-
inu. Hefur hún valið sér ís-
fólkið að sérsviði, en dómari
á því spurningasviði erein-
mitt sjálf Margit Sandemo.
Saga Vest-
mannaeyja
komin út
í tilefni af 70 ára afmæli
Vestmannaeyjakaupstaðar
hefur forlagið Fjölsýn endur-
útgefið Sögu Vestmannaeyja
eftir Sigfús M. Johnsen, rit-
höfund og fyrrverandi bæjar-
fógeta í Vestmannaeyjum.
Formála að þessari endurút-
gáfu skrifar Haraldur Guðna-
son, fyrrverandi bókavörður í
Eyjum.
Saga Vestmannaeyja kom
fyrst út árið 1946 en hefur
verið ófáanleg um margra ára
skeið. Ýmsir fræðimenn töldu
þá að Eyjasaga Sigfúsar væri
nýjung í ritun héraðssagna.
Var það fyrst og fremst vegna
ítarlegrar haglýsingar, þjóð-
Iífslýsinga og annarra frá-
sagna, sem beindust fremur
að almennri sögu Eyjanna en
persónusögu. Þau miklu um-
brot sem uröu vegna eld-
gossins á Heimaey gera nýrri
kynslóð örðugra að tengjast
sögu og staðháttum fyrri
tíma. Þeim mun mikilvægari
er Saga Vestmannaeyja.
í þessa endurútgáfu hefur
verið bætt fjölmörgum mynd-
um og þar af fjölda litmynda,
sem ekki hafa birst á prenti
áður. Auk þess er sérstakur
myndaþáttur um fornleifa-
rannsóknir í Herjólfsdal.
Megintexti bókarinnar var
Ijósmyndaður og prentaður
upp á nýtt með áorönum leið-
réttingum.
Saga Vestmannaeyja er um
800 blaðsíður aö stærð í lit-
öskju.
Skúli Sigurðs-
son fékk styrk
úr Minningar-
sjóði Jóns Jó-
hannessonar
Nýlega var veittur styrkur
úr Minningarsjóði dr. phil.
Jóns Jóhannessonar
prófessors. Styrkinn hlaut að
þessu sinni Skúli Sigurðs-
son, en hann er nú að semja
ritgerð til doktorsprófs í vís-
indasagnfræði við Harvardhá-
skóla í Bandaríkunum.
Minningarsjóður dr. phil.
Jóns Jóhannessonar
prófessors er eign Háskóla
Islands. Vaxtatekjum sjóðs-
ins er varið til að veita stúd-
entum eða kandidötum í ís-
lensku og sagnfræði styrki til
einstakra rannsóknarverkefna
ertengjast námi þeirra.
Siglingar fyrir
Almenning á
Rauðavatni
í sumar mun siglingaað-
staða íþrótta- og tómstunda-
ráös á Rauðavatni verða opin
almenningi á eftirfarandi tím-
um: Þriðjudögum
kl. 16:00—16:30. Fimmtu-
dögum kl. 16:00—18:30. Laug-
t
Útför heiðursborgara Eyrarbakkahrepps
Vigfúsar Jónssonar
fyrrverandi oddvita
verður gerð frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 24. júní
n.k. kl. 14.00.
Að ósk aðstandenda eru blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast Vigfúsar er bent
á að láta Sólvelli, dvalarheimili aldraðra á Eyrarbakka
njóta þess.
Bílferð verður frá B.S.Í. kl. 12.30.
Hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps
• Krossgátan
□ 1 2 i hriÉ 3.=.-’ 4..,.
5^oi S&t ■ to V/ p'-* 1 '•
6 o. □ 7
é 9 7
10 ■ □ 11
□ 12 V .
13 □ *;■ > □i
Lárétt: 1 úrgangsefnið, 5 ófús,
6 gjalli, 7 bardagi, 8 starfar, 10
sem, 11 þjóta, 12 tónn, 13
fiskar.
Lóðrétt: 1 fátækir, 2 hægfara, 3
þyngdareining, 4 skelfur, 5 ull-
arvinna, 7 fé, 9 viðkvæma, 12
lindi.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 gráta, 5 slen, 6 kal, 7
ól, 8 aulana, 10 nm, 11 ræð, 12
miði, 13 iðaði.
Lóðrétt: 1 glaum, 2 rell, 3 án, 4
aflaði, 5 skanki, 7 ónæði, 9
arið, 12 MA.
• 6engi8
Gengisskráning nr. 116 — 22. júní 1989
Kaup Sala
Bandarikjadollar 58,100 58,260
Sterlingspund 90,645 90,894
Kanadadollar 48,719 48,853
Dönsk króna 7,6473 7,6673
Norsk króna 8,1773 8,1999
Sænsk króna 8,7990 8,8233
Finnskt mark 13,3104 13,3471
Franskur franki 8,7665 8,7906
Belgiskur franki 1,4217 1,4256
Svissn. franki 34,4807 34,5757
Holl. gyllini 26,4271 26,4999
Vesturþýskt mark 29,7491 29,8310
Itölsk lira 0,04102 0,04113
Austurr. sch. 4,2285 4,2402
Portúg. escudo 0,3542 0,3551
Spánskur peseti 0,4677 0,4690
Japanskt yen 0,41160 0,41274
Irskt pund 79,292 79,510
SDR 72,7226 72,9229
Evrópumynt 61,5686 61,7381
ardögum kl. 13:00—17:00.
Afnot af bátum og björgunar-
vestum er ókeypis. A staðn-
um verða starfsmenn til leið-
beiningar.
Brúðubíllinn í
Skerjafirði
í sumar mun Brúðubíllinn
verða með sýningar á gæslu-
völlum borgarinnar, eins og
undanfarin ár. í upplýsinga-
bæklingi um sumarstarf í
Reykjavfk 1989 og á gæslu-
völlum eru nánari upplýs-
ingar um hvar og hvenær
sýningar verða. Sýningum
hefur sfðan verið bætt við í
Skerjafirði og verða þær á
leikvellinum við Einars-
nes 26, mánudaginn 26. júní
kl. 14:00 og miðvikudaginn
12. júlí kl. 10:00.
RAÐAUGLÝSINGAR
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Stúdentar verða bautskráðir frá skólanum laug-
ardaginn 24. júní kl.14.00.
Nýstúdentar eru beðnir að koma í skólann á
æfingu föstudaginn 23. júní kl. 18.00.
Rektor
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Umsóknarfresturum áðurauglýstarkennarastöðurviðeftir-
talda skóla framlengist til 30. júní.
Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki eru lausar til umsókn-
ar kennarastöður í þýsku, stærðfræði og eölisfræöi.
Að Kvennaskólanum í Reykjavík vantar kennara í stærð-
fræði.
.Flokksstarfið
Kópavogur
Kveðjusamsæti fyrir Huldu Finnbogadóttur
bæjarfulltrúa f Kópavogi verður í sal alþýðu-
flokksins Hamraborg 14a laugardaginn 24.06.
kl. 20.00.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
150 Reykjavík fyrir 30. júnf n.k.
Veitingar.
Félagar fjölmennið.
Menntamálaráðuneytið
Stjórnin