Alþýðublaðið - 19.05.1990, Side 4
4
VIÐHORF
Laugardagur 19. maí 1990
MMMItUDIÐ
Ármúli 36 Simi 681866
Útgefandi: Blaö hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Dreifingarstjóri: Siguröur Jónsson
Setning og umbrot: Leturval, Ármúla 36
Prentun: Oddi hf.
Áskriftarsíminn er 681866
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuöi innanlands.í lausasölu 75 kr. eintakið
Nýttafl
i Reykjavík
Niðurstöður í könnun Félags-
vísindastofnunar á fylgi flokk-
anna sem bjóða sig fram í borg-
arstjórnarkosningunum í
Reykjavík voru birtar í Morgun-
blaðinu í gær. Niðurstöðurnar
eru afar athyglisverðar. Sam-
kvæmt þeim hlýtur Sjálfstæðis-
flokkur tæp 56 % en Nýr vett-
vangur tæp 24 % en Kvennalisti,
Aiþýðubandalag og Framsókn-
arflokkur mun minna eða á bii-
inu 6—7 %.
ið. Framboð sjálfstæðismanna í
borgarstjórnarkosningunum
hefur aðeins snúist um einn
mann, borgarstjórann Davíð
Oddsson. Hann hefur trónað
efst á einveldislistanum sem
hann stillti sjálfur upp gegnum
strengjabrúður uppstillingar-
nefndar. Áróður sjálfstæðis-
manna hefur fyrst og fremst tek-
ið mið af Davíð sem hinum
mikla stjórnanda, pólitískum
leiðtoga og fjármálasnillingi.
Hessar tölur sýna og sanna að
nýtt afl hefur risið gegn ofur-
veldi sjálfstæðismanna í Reykja-
vík. Hiö nýja afl er Nýr vettvang-
ur. Samkvæmt skoðanakönnun-
inni fengi framboðið þrjá menn
kjörna og á mjögstutt í fjórða og
fimmta mann. Þessi skoðana-
könnun er áfall fyrir sjáifstæðis-
menn og sýnir að einveldi þeirra
í höfuðborginni stendur óstyrk-
ari fótum en margur hefði hald-
Kosningabaráttan síðustu daga
hefur leitt ýmislegt i ljós sem
sannar hið gagnstæða. Sannað
hefur verið meö tölum og stað-
reyndum að skattheimta í borg-
inni hefur stóraukist og borgar-
báknið hefur þanist út undir
stjórn núverandiborgarstjóra og
reyndar þvert á yfirlýsta stefnu
Sjálfstæðisflokksins um umsvif
hins opinbera valds. Alþýðu-
blaðið birti í gær niðurstöður
starfshóps á vegum Nýs vett-
RADDIR
vangs um fjármál borgarinnar.
Þar kemur meðal annars í ljós að
Reykjavíkurborg viðhefur mjög
óvenjulegar reikningsskilaað-
ferðir og felur raunverulegan og
gífurlegan hagnað borgarinnar.
Með skynsamlegri fjármála-
stjórn og lítt breyttum tekjum frá
því sem nú er, má hins vegar
veita árlega yfir tólf hundruð
milljónum króna til ýmissa verk-
efna sem nú eru vanrækt. Davíð
Oddsson borgarstjóri er með
öðrum orðum fyrst og fremst
skattheimtustjóri á gífurlegum
þenslutímum Reykjavíkurborg-
ar. Hinum miklu tekjum borgar-
innar er hins vegar eytt á alrang-
an hátt; áherslurnar liggja í
byggingaframkvæmdum á ráð-
húsi og veitingastöðum auk þess
sem borgarstjóri hefur keypt
stór veitingahús eins og Hótel
Borg og Broadway án sýnilegs
tilgangs. Á samatíma eru önnur
verkefni vanrækt eins og dag-
vistarrými, öldmnarmál og sjálf-
ur miðbærinn sem grotnar og
hrynur niður og strandlengja
höfuðborgarinnar er menguð
og daunill.
A sama tíma og Nýr vettvang-
ur hefur náð miklu fylgi á ör-
skömmum tíma, hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn og borgarstjóri
greinilega tekið þá ákvörðun að
þegja mótframboðið af sér. Þetta
er gamalþekkt aðferð og var
mikið beitt í Austur-Evrópu og
Sovétríkjunum meðan stalín-
isminn var þar við völd. Þá var
engin stjórnarandstaða til sam-
kvæmt opinberri skiigreiningu.
Allir studdu Flokkinn og ein-
valdinn. Skoðanakönnun Fé-
lagsvísindastofnunar sem Morg-
unblaðið birti í gær, sprengir í
tætlur goösögnina um samstöðu
borgarbúa um Davíð Oddsson.
Það er ennfremur athyglisvert,
að samhliða þagnartækninni
notar borgarstjóri aðra gamal-
kunna pólitíska aðferð: Að opna
stofnanir og vígja opinberar
byggingar rétt fyrir kosningar til
marks um framkvæmdagetu
sína. Lagður er hornsteinn í
Nesjavallavirkjun, þrjú dag-
heimili opnuð samtímis, hús-
dýragarður opnaður um helg-
ina; allt eru þetta skrautsýning-
ar sem eiga að slá ryki í augu
fólks. Jafnframt eru þessar
gömlu aðferðir til þess gerðar að
misnota fjölmiðla í ,,frétta-
skyni.” Það er eftirtektarvert að
Sjálfstæðisflokkurinn sem lagði
mikla áherslu á að undirrita
samkomulag við aðra flokka í
Reykjavík um bann við pólitísk-
um auglýsingum í ljósvakamiðl-
um, skuli ekki liika við að gera
tilraunir til að misnota sömu
ljósvakamiðla gegnum opinber-
ar uppákomur rétt fyrir kosning-
ar.Á sama tíma gefur borgar-
stjóri miskunnarlaust út áróð-
ursbæklinga um sjálfstæðis-
menn i Reykjavík á kostnað
borgarbúa og kallar kynningar-
bæklinga. Kosningabarátta
borgarstjóra er því ekki ýkja
geðþekk: Tilraun til alræðis-
þagnar svo goðsögnin um ein-
valdinn lifi áfram, kosninga-
áróður á kostnað Reykvikinga
og misnotkun á fréttatímum
ljósvakamiðlanna með opinber-
um uppákomum. Nú reynir á
dómgreind fréttastjóra útvarps-
og sjónvarpsstöðvanna. Næsta
skref sjálfstæðismanna í höfuð-
borginni verðureflaust hræðslu-
áróðurinn um að allir mæti á
kjörstað til að firra Davíð falli.
Sér að óvörum hafa sjálfstæðis-
menn ástæðu til herópsins: Nýr
vettvangur hefur hafið loka-
sóknina gegn íhaldseinveldinu í
Reykjavík.
*
Hvernig líst þér á hugmyndir stjórnar Sambandsins aö gera SIS aö hlutafélagi?
Gísli Níelsson 33 ára flokksstjóri
„Eitthvað verður stjórnin að
gera til að koma í veg fyrir að Sam-
bandið líði undir lok. Þetta virðist
vera tískufyrirbrigði að gera fyrir-
tæki að hlutafélögum og finnst
mér margir treysta á að það muni
leysa öll vandamál. Ég hef nú trú á
því að SIS muni standast þessa
kreppu en fyrirtækið mun aldrei
ná aftur sama styrk."
Höröur Friðfinnsson 37 ára bíl-
stjóri
„SÍS hefði fyrir löngu átt að gera
sér grein fyrir að samvinnurekstur
er deyjandi rekstarfyrirkomulag.
Það er e.t.v. skiljanlegt að fyrirtæk-
ið reyni eitthvað til að bjarga því
sem bjargað verður en ég er ekki
bjartsýnn að það takist. Hlutafé-
lagsformið er svo vanþróað hér á
landi að það er ekki fýsilegt fyrir
almenning að kaupa hlutabréf. Ég
geri mér hins vegar grein fyrir að
stjórn SÍS ætlar sér ekki að afsala
neinum völdum út fyrir fyrirtækið
þannig að ég er ekki viss um hvað
þeir meina með þessari hluta-
bréfaumræðu."
Bergþóra Sigurðardóttir 26 ára
skrifstofumaður
„Það er löngu orðið tímabært
að stokka upp Sambandsveldið.
Það á selja deildirnar einkaaðilum
því það er fullt af einstaklingum
sem geta rekið þessar einingar
betur út af fyrir sig en SÍS-bákniö
gerir. Hins vegar held ég að þessar
hugmyndir hjá stjórn Sambands-
ins gangi nú ekki langt því þeir
hafa ekki áhuga á því að missa þau
völd og áhrif sem þeir hafa, eða
réttara sagt höfðu. Þess vegna
held ég að hugur fylgi ekki máli
þegar stjórnin talar um einhvers
konar hlutabréfaform."
Ágúst Erlingsson 35 ára slökkvi-
liðsmaður
„Ég hef nú ekki séð neinar
ákveðnar tillögur þar að lútandi
þannig að ég get lítið tjáð mig um
slíkar hugmyndir. Hins vegar er
það Ijóst að úreltur rekstur SÍS á
undanförnum árum er að koma
fyrirtækinu á vonarvöl. Mér finnst
ekkert að því að selja deildirnar til
einkaaðila því það hefur margsýnt
sig að einkarekstur er það form
sem skilar bestum árangri hér á ís-
landi."
Vilhjálmur Jónsson 71 árs for-
stjóri Olíufélagsins
„Ég vil ekki tjá mig um þetta
mál."