Alþýðublaðið - 22.06.1990, Side 7
Föstudagur 22. júní 1990
7
NÆSTAFTASTA SÍDAN
Atvinnuleysi eykst
í Austur-E vrópu
Vofa gengur nú ljósum logum um
Austur-Evrópu og er það vofa at-
vinnuleysisins. Hún hefur verið einn
af fylgifiskum hinna miklu.breyt-
inga frá kommúnisma til kapítal-
isma.
Rétturinn til vinnu var tryggður á
tíma kommúnistastjórnanna en sá
réttur var afiagður í fyrra og at-
vinnuleysi hefur skotið upp kollin-
um og er talið að það muni stórauk-
ast á næstunni. Hagfræðingar
benda þó á að þó ekki hafi verið
skráð atvinnuleysi í kommúnista-
ríkjunum hafi það þó vissulega ver-
ið til staðar en dulið sjónum manna.
Margir hafi verið í vinnu án þess að
þörf væri fyrir þá. Það er sögð sú
saga að eitt sinn hafi Janos Kadar,
fyrrverandi leiðtogi kommúnista í
Ungverjalandi, verið að sýna er-
lendum gestum einhverja verk-
smiðju. Þegar einn gestanna spurði
hve margir ynnu í verksmiðjunni
svaraði hann að bragði: „Um helm-
ingur þeirra." Þetta svar lýsir vel
þeim mikla vanda sem við er að
glíma.
í Austur-Þýskalandi, sem nú býr
sig undir myntbandalagið við Vest-
ur-Þýskaland, jókst atvinnuleysið
um rúmlega 50% í síðasta mánuði
og eru nú um 100.000 manns án at-
vinnu þar í landi. Hagfræðingar spá
því að þetta atvinnuleysi muni stór-
aukast eftir að myntbandalagið er í
garð gengið og ýmsir stjórnarmenn
telja að rúmlega milljón Aust-
ur-Þjóðverjar muni ganga atvinnu-
lausir en þjóðin telur um 16 milljón-
ir manna.
Pólverjar fóru geyst í breytingar á
hagkerfi sínu og höfðu heimspekina
í máltækinu illu er best af lokið að
leiðarljósi. Þeir hafa orðið illilega
fyrir barðinu á atvinnuleysinu. í maí
síðastliðnum voru um 443.222
Einn
með kaffínu
Vegalögreglan: — Veistu, að
konan þín datt úr bílnum fyrir
stundu?
Ökumaðurinn: — Guði sé lof,
ég hélt að ég væri orðinn
heyrnarlaus!
manns atvinnulausir en það eru
3,3% þjóðarinnar. Jerzy Szreter, að-
stoðar atvinnumálaráðherra Pól-
lands, segir þessa tölu geta þrefald-
ast til áramóta.
Atvinnuleysisbætur hafa verið
greiddar í nokkrum löndum en rík-
isstjórnir vara við að hugarfars-
breytingar sé þörf hjá verkafólki svo
vel takist til með umbreytinguna frá
kommúnisma til kapítalisma. Fjár-
málaráðherra Póllands, Leszek
Balcerowicz, sagði núna fyrr í mán-
uðinum að sum fyrirtækjanna væru
aðgerðalaus og hefðu ekki lært að
afla nýrra viðskiptavina með því að
framleiða ódýrari og betri vörur.
Vestrænn embættismaður í Aust-
ur-Þýskalandi sagði það margir
væru óvanir því að þurfa að keppa
sín á milli um vinnu eins og tíðkast
á Vesturlöndum: „Þetta fólk hefur
aldrei á ævi sinni keppt um vinnu.
Eins og stendur er það vanalegt að
fimm til sex manns vinni eins
manns verk“.
Nýtt vaxmynda-
safn i Moskvu
Nú nýverið opnaði nýtt vax-
myndasafn í Sokolniki garðinum í
Moskvu. Þar eru til sýnis vaxmyndir
af fjölmörgum þekktum persónum
úr sögu Sovétríkjanna og þá aðai-
lega Rússlands og eru þar jafnt
grimmir sem góðir.
Það tók eitt ár að undirbúa þá sýn-
ingu sem nú er í safninu en þar eru
ýmis atriði sett á svið. Sem dæmi má
nefna að ein vaxmyndanna sýnir
ívan grimma myrða skáldið Alex-
ander Pushkin. Á myndinni hér til
hliðar sést Lavrenti Beria, skó-
sveinn Stalíns, tefla skák við Malíúta
Skúratov en hann var fyrsti yfirmað-
ur hinnar keisaraiegu lögregiu og á
hinni myndinni sést félagi Brezhnev
en við hlið hans mun standa síðasti
keisari hins rússneska keisaradæm-
is, Nikulás II. Af þessu sést að frjáls-
lega eru leiddir saman menn sem
voru uppi á mismunandi tímum og
því ekki um að ræða það sem kallast
á vondu máli „söguleg samfella".
Nikolai Zelentskí, en hann hefur
haft veg og vanda af sýningunni,
segir að ef þessi fyrsta sýning gangi
vel þá sé von á vaxmyndum af ýms-
um fleirum t.d. Andrei Sakharov,
Katrínu miklu og þekktum mönn-
um úr kirkjusögu Rússlands.
Leonid Brezhnev, fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna.
DAGFINNUR
Fálkaorður embættismanna
t*á er búið að úthiuta fálkaorð-
unni enn einu sinni.
Eða réttara sagt fálkaorðunum,
því þær eru orðnar ansi margar og
fer fjölgandi á hverju ári.
Eg las með nokkrum spenningi
listann yfir orðuþega ársins. Eg
hef nefnilega alltaf tilfinningu fyr-
ir því, að brátt komi að mér. Eg hef
sem landsþekktur dálkahöfundur
skrifað lengi í virt landsmálablað
og verið um tíma á leiðarasíðu.
Mér þykir því eðlilegt að ég
hefði verið sæmdur fálkaorðunni
„fyrir skrif um þjóðfélagsleg efni."
En það hefur ekki orðið enn.
Mér er reyndar löngu orðið ljóst
hverjir fá fáikaorðuna. Stjórn-
málaflokkarnir skipa sínum
mönnum í Orðunefnd. Erindrekar
flokkana tilnefna síðan sína menn
í kerfinu. Þar af leiðandi hljóta pól-
itískt skipaðir embættismenn í rík-
iskerfinu langflestar tilnefning-
arnar. Yfirleitt eru þetta afdankað-
ir embættismenn sem setið hafa á
sínum ríkiskontór vegna þess að
koma þurfti þeim úr pólitík eða
setja þá í haggæslu fyrir Flokkinn.
Áð lokum fá þeir svo fálkaorð-
una fyrir störf í þágu þjóðar.
Þess vegna verður bið á því að
framfarasinnaðir menn eins og ég,
sem hvergi láta fanga sig í net
hagsmunagæslu, fái fálkaorðuna.
Orðunefnd mun seint fá upphring-
ingu og beiðni um að orðan verði
sett um minn háls. Það gerir held-
ur ekkert til. Ég held áfram að
skrifa fyrir því. Og betur og beittar
en fyrr. Orðudinglið getur ekki
sljógvað penna minn.
Dagfinnur lætur ekki deigan
síga.
Annars er ég með nokkrar til-
nefningar. Mér finnst til dæmis að
hagfræðingur Stéttarsambands
bænda ætti að fá fálkaorðuna fyrir
marghliða búvörusamningagerð
fyrir ríki jafnt sem bændur. Mér
finnst líka að krókódílamaðurinn
fyrir austan eigi að fá fálkaorðuna
fyrir störf í þágu gæludýraræktun-
ar. Þá finnst mér að Guðjón B. Ól-
afsson eigi að fá fáikaorðuna fyrir
störf í þágu hlutafélaga á íslandi.
Að lokum finnst mér að öll
stjórn Arnarflugs eigi að fá Bjart-
sýnisverðlaun Bröstes. En þau
verðlaun hafa víst ekkert að gera
með fálkaorðuna sem reyndar
eykur trúverðugleika þeirra.
Lavrenti Bería, skósveinn Stalíns, teflir skók við Maliuta Skúratov, lögreglustjóra keisarans.
DAGSKRAIN
Sjónvarpið
17.50 Fjörkálfar 1&20 Unglingarnir í
hverfinu 18.50 Táknmálsfréttir 18.55
Poppkorn 19.20 Reimleikar
a Fáfnishóli 19.50 Maurinn og jarð-
svínið 20.00 Fréttir og veður 20.35
Sissel Kyrkjebö 21.30 Bergerac
22.25 Lúxusvændi í Beverlyhæðum
(Beverly Hills Madam) OO.OOÚt-
varpsfréttir í dagskrárlok.
Stöð 2
16.45 Nágrannar 17.30 Emilía 17.35
Jakari 17.40 Zorro 18.05 Ævintýri á
Kýþeríu 1B30 Bylmingur 19.19 19.19
20.30 Ferðast um tímann 21.20 Vertu
sæl, ofurmamma (Goodbye, Super-
mom) 22.55 í Ijósaskiptunum 23.20
Svikamyllan (The Black Windmill)
01.05 Samningsrof
02.35 Dagskrárlok.
(Severance)
Rás 1
06.45 Veðurfregnir. Bæn 07.00 Fréttir
07.03 í morgunsárið 09.00 Fréttir
09.03 Litli barnatíminn: Ketill Larsen
segir eigin ævintýri 09.20 Morgun-
leikfimi 09.30 Innlit 10.00 Fréttir
10.03 Þjónustu- og neytendahornið
10.10 Veðurfregnir 10.30 Á ferð 11.00
Fréttir 11.03 Samhljómur 11.53 Á
dagskrá 12.00 Fréttayfirlit 12.01 Úr
fuglabókinni 12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Dánarfregnir.
Auglýsingar 13.00 í dagsins önn
13.30 Miðdegissagan: „Vatn á myllu
kölska" eftir Ólaf Hauk Símonarson
14.00 Fréttir 14.03 Ljúflingslög 1500
Fréttir 1503 Skuggabækur 1500
Fréttir 1503 Að utan 1510 Dagbókin
1515 Veðurfregnir 1520 Barnaút-
varpið 17.00 Fréttir 17.03 Tónlist á
síðdegi 1500 Fréttir 1503 Sumaraft-
ann 1530 Tónlist. Auglýsingar. Dán-
arfregnir 1545 Veðurfregnir. Auglýs-
ingar 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Aug-
lýsingar 19.32 Kviksjá 20.00 Hljóm-
plöturabb 20.40 Af mætum Borg-
firðingum 21.30 Sumarsagan: „Við-
fjarðarundrin" eftir Þórberg Þórðar-
son 22.00 Fréttir 22.07 Að utan 22.15
Veðurfregnir. Orð kvöldsins 22.25 Úr
fuglabókinni 22.30 Danslög 23.00
Kvöldgestir 24.00 Fréttir 00.10 Sam-
hljómur 01.00 Veðurfregnir 01.10
Næturútvarp.
Ráa 2
07.03 Morgunútvarpið 0500 Morg-
unfréttir 09.03 Morgunsyrpa 11.03
Sólarsumar 12.00 Fréttayfirlit. Aug-
lýsingar 12.20 Hádegisfréttir 14.03
HM-hornið 14.10 Brot úr degi 1503
Dagskrá 1503 Þjóðarsálin 19.00
Kvöldfréttir 19.32 Söðlað um 20.30
Gullskífan 21.00 Frá norrænum
djassdögum í Reykjavík 22.07 Næt-
ursól 01.00 Næturútvarp.
Bylgjm
07.00 Pétur Steinn Guðmundsson
og Hulda Gunnarsdóttir 09.00 Fréttir
09.10 Ólafur Már Björnsson 11.00 í
mat með Palla 13.00 Stefnumót í
beinni útsendingu. Valdís Gunnars-
dóttir 1500 Ágúst Héðinsson 17.00
Kvöldfréttir 17.15 Reykjavík síðdegis
1530 Kvöldstemmning í Reykjavik
22.00 Á næturvaktinni 03.00 Frey-
móður T. Sigurðsson.
Stjaman
07.00 Dýragarðurinn 10.00 Snorri
Sturluson 1500 Kristófer Helgason
17.00 Á bakinu með Bjarna 19.00
Arnar Albertsson 22.00 Darri Ólason
0500 Næturvakt.
Aðalstöðin
07.00 Á nýjum degi 10.00 Kominn
tími til 13.00 Með bros á vör 1500
Rós í hnappagatið 1500 í dag í kvöld
19.00 Við kvöldverðarborðið 20.00
Undir feldi 22.00 Kertaljós og kaviar
02.00 Næturtónar.