Alþýðublaðið - 22.06.1990, Qupperneq 8
Föstudagur
22. júní 1990
RITSTJÓRN
681866 - 83320
FAX 82019
• • • • • • • •
• • • • • • • • •
• • • • • • • • • • • • • • • • • • •
• • • • • • • • •
• • • • • • • • • • • • • • • •
WASHINGTON: Varnarmálaráð Bandaríkjanna fór í
gær fram á við þing landsins að það hætti við framkvæmd
hátt í 70 verkefna, á vegum hersins, flestra í Vestur-Þýska-
landi. Áætlað var að verja 327,4 milljónum bandaríkjadala
til þessara framkvæmda á árinu.
MOSKVA: Boris Jeltsín,
forseti Sovétlýðveldisins
Rússlands, lýsti því yfir í
gær að hann teldi líklegt að
Mikhail Gorbatsjov, forseti
landsins, myndi segja af sér
embætti leiðtoga sovéska
kommúnistaflokksins inn-
an skamms. Jeltsíns kvaðst
sjálfur hafa ráðlagt Gorbat-
sjov að segja af sér embætti
leiðtoga flokksins.
PORT-AU-PRINS : Að minnsta kosti fjórir menn skutu
úr byssum á fundi fulltrúa verkafólks á Haítí og þarlendra
stjórnvalda með þeim afleiðingum að einn maður lést og
að minnsta kosti tveir særðust alvarlega.
H0FÐAB0RG: Samningamenn suður-afrískra stjórn-
valda segja að aukins óróa gæti meðal Afríska þjóðarráðs-
ins vegna þeirra tafa sem orðið hafa á samningaviðræðum
um mótun nýrrar stjórnarskrár.
AMSTERDAM: Maður sem talinn er vera meðlimur
Irska lýðveldishersins var í gær kærður fyrir morð á tveim
Ástralíumönnum í síðasta mánuði að sögn hollensku lög-
reglunnar.
L0ND0N: Bresk stjórn-
völd reyna nú allt hvað þau
geta til að sannfæra önnur
ríki efnahagsbandalags
Evrópu um afstöðu sína í
málefnum bandalagsins.
Bretar telja áætlanir um
myntbandalag rikjanna
stórgallað. Fundur leiðtoga
EB-ríkjanna verður hald-
inn í Dyflinni í næstu viku.
AUSTUR-BERLIN: Utanríkisráðherrar beggja þýsku
ríkjanna og fjórveldanna, Bretlands, Frakklands, Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna, sitja nú svokallaða tveir plús
fjórir ráðstefnu þar sem málefni sameinaðs Þýskalands eru
rædd.
KARLSRUHE: Vestur-Þjóðverjar vinna að rannsókn
ákæru á hendur fyrrum leiðtoga Austur-Þjóðverja, Erich
Honecker, en hann er sakaður um að hafa komið í veg fyrir
að grunaðir hryðjuverkamenn sem handteknir voru í
Austur-Þýskalandi hlytu dóm.
C0LUMB0: Sri lanskar öryggissveitir hafa hrakið
skæruliða Tamila frá austurhéruðum landsins eftir 11 daga
skotbardaga að sögn aðstoðar varnarmálaráðherra lands-
ins.
NEW YORK: Nelson Mandela, leiðtogi Afríska þjóðar-
ráðsins, og stjórnvöld í Pretoríu deildu í gær sitt hvoru
megin við Atlandshafið. Báðir aðilar saka hinn um að tefja
fyrir samningum um hvernig skuli binda enda á kúgun
hvíta minnihlutans í Suður-Afríku. Mandela er nú á ferð
um Bandaríkin eftir að opinberri heimsókn hans til Kan-
ada lauk á þriðjudag.
ERLENDAR FRÉTTIR
L0ND0N: í brýnu skarst milli Bandaríkjanna og ríkja
þriðja heimsins á alþjóðlegum fundi þar sem rætt er hvern-
ig fjármagna skuli aðgerðir sem banna notkun ósoneyð-
andi efna.
VARSJÁ: Fyrrum stuðn-
ingsmenn Lech Walesa
ásökuðu hann í gær um að
tefla viðkvæmum efnahagi
Póllands í hættu með yfir-
lýsingum gegn stjórn
Mazowiecki, forsætisráð-
herra.
BUDAPEST: Ungversk stjórnvöld tilkynntu í gær að þau
hygðust opna hlutabréfamarkaði að nýju í landinu. Komm-
únistar lokuðu öllum hlutabréfamörkuðum í Ungverja-
landi fyrir 42 árum.
Umsjón: Laufey E. Löve
Gífurlegur jarð-
skjálfti i íran
(TEHERAN, Reuter) Gífur-
legur jarðskjálfti reið yfir
norðurhluta írans
snemma á fimmtudag. Tala
látinna er komin upp í 10
þúsund manns og er talið
að enn séu hundruð
manna grafnir í rústum
húsa sem féllu er skjálft-
inn sem mœldist 7,3 stig á
Richter kvarða reið yfir.
Mörg afskekkt héruð hafa
einangrast og ekki er bú-
ist við því að heildartala
látinna og særðra verði
kunn fyrr en að nokkrum
dögum liðnum. Ali Akbar
Hashemi Rafsanjani, for-
seti landsins, hefur lýst yf-
ir þriggja daga þjóðarsorg
og hvetur íbúa landsins til
að koma til hjálpar.
Skjálftinn jafnaði að veru-
legum hluta við jörðu þorp
og bæi í 150 kílómetra radíus
frá upptökum hans. í fyrstu
var tjónið talið mun minna en
þegar líða tók á daginn kom
í ljós hversu gífurlegt mann-
tjón hafði orðið. Að sögn út-
varpsins í Tehran, höfuðborg-
ar landsins, stóð skjálftinn yf-
ir í eina mínútu og fannst allt
til Sovétlýðveldisins Azerb-
aijan.
írönsk stjórnvöld greindu
frá því í gær að fjölmennar
björgunarsveitir væru á leið á
vettvang og fluttu þyrlur slas-
að fólk til Tehran, höfuðborg-
ar landsins þar sem allir spít-
alar á jarðskjálftasvæðinu
voru þegar orðnir yfirfullir.
Helsti vandi björgunarsveita
London:
Sprengja
springur
(LONDON, Reuter) Bresk
lögregla handtók í gær tvo
menn grunaða um aðild að
sprengjutilræði í norð-
vesturhluta Lundúna. Eng-
an sakaði en talsvert tjón
varð þegar sprengjan
sprakk við herstöð breska
flughersins. Sprengjunni
hafði verið komið fyrir í
bakpoka.
Mennirnir tveir voru hand-
teknir í nágrenni herstöðvar-
innar þegar verið var að
rýma svæðið og voru þeir
færðir til yfirheyrslu. Að sögn
lögreglu er talið að írski lýð-
veldisherinn, IRA, standi að
baki tilræðinu. Enn hefur þó
enginn lýst ábyrgð á spreng-
ingunni á hendur sér.
Oryggisverðir fundu
sprengjuna einni og hálfri
stundu áður en hún sprakk
og tókst að rýma herstöðina
þar sem um 200 manns ýmist
búa eða starfa.
IRA samtökin hafa að und-
anförnu staðið fyrir sprengju-
tilræðum við byggingar
breska hersins í London og á
meginlandi Evrópu.
Skemmst er að minnast þess
er meðlimir IRA sprengdu
sprengju í skála í miðborg
Lundúna 10. júní síðastliðinn
með þeim afleiðingum að 7
ungmenni slösuðust.
að sögn yfirvalda er að koma
hjálp til afskekktra sveita-
þorpa sem hafa einangrast en
fréttir hafa borist af gífurlegu
tjóni á ýmsum þessara staða.
Frakkar hafa boðið írönum
aðstoð vegna náttúruhamfar-
anna og sendi utanríkisráð-
herra Frakka írönum samúð-
arskeyti í gær.
Upptök skjálftans voru í
norðvésturhluta landsins,
héruðunum Zanjan og Gilan
sem eru helstu landbúnarð-
arhéruð írans. Talið að um 4
milljónir manna búi á þessum
svæðum en te og tóbak er
helsta framleiðsluvara þeirra.
Sameining þýsku ríkjanna:
Viðurkenna
landamærin
(AUSTUR-BERLÍN, Reuter)
Þing Austur-Þjóðverja
samþykkti í gær frumvarp
þar sem landamæri Pól-
lands eru formlega viður-
kennd. Búist var við að
þing Vestur-Þýskalands
samþykkti einnig sam-
hljóðandi frumvarp síð-
degis í gær. Markmiðið
með þessum aðgerðum
mun vera að auka traust
þjóða á utanríkisstefnu
sameinaðs Þýskalands.
Austur-þýska þingið sam-
þykkti jafnframt sam-
komulag um efnahagslega
sameiningu ríkjanna í gær
sem tekur gildi 1. júlí
næstkomandi. Með þessu
hefur tveim hindrunum
fyrir sameiningu þýsku
ríkjanna verið rutt úr vegi.
Eftir seinni heimsstyrjöld-
ina var Pólverjum fengið mik-
ið þýskt landsvæði sem
bandamenn höfðu hertekið í
lok styrjaldarinnar sem
skaðabætur fyrir landsvæði
sem þeir höfðu þurft að láta
af hendi við Rússa. Fyrrum
Kohl, kanslari Vestur-Þýska-
lands kvaöst harma þann
sársauka sem viöurkenning
þingsins á Pólskulandamær-
unum yllu þeim milljónum
þjóðverja sem hraktir voru frá
heimkynnum sínum vegna
samninga bandamanna í lok
síðari heimstyrjaldarinnar.
kommúnistastjórn Aust-
ur-Þýskalands hafði viður-
kennt Oder-Neisse landa-
mærin en vestur-þýka ríkis-
stjórnin hafði aldrei gert það.
Óvissa um landamæri land-
anna hefur skapað erfiðleika
í samskiptum Pöllands og
Vestur-Þýskalands. PÓlverjar
hafa krafist þess að landa-
mærin verði endanlega stað-
fest áður en af sameiningu
Þýsku ríkjanna getir orðið.
PÖlsk stjórnvöld segjast fagna
samþykktum þýsku þing-
anna en að aðeins formlegur
samningur við sameinað
Þýskaland geti endanlega
bundið enda á þetta deilu-
mál.
í ræðu á vestur-þýska þing-
inu í gær sagði Kohl, kanslari,
að viðurkenning þýsku ríkj-
anna á landamærum Pól-
lands væru forsenda þess að
alþjóðleg viðurkenning feng-
ist á fyrirhugaðri sameiningu
þýsku ríkjanna. Hann sagðist
jafnframt harma þann sárs-
auka sem þetta ylli þeim
milljónum þjóðverja sem yf-
irgefa þurftu heimkynni sín í
lok stríðsins.
Jórdanir harma
ákvörðun Kana
(AMMAN, Reuter) Jórdan-
ir segjast harma ákvörðun
bandarískra stjórnvalda
um að hætta viðræðum við
Frelsissamtök Palestínu,
PLO, og segjast vona að
Bandarikjamönnum muni
snúast hugur. Viðræðurn-
ar hafa staðið hátt í átján
mánuði. Jórdönsk stjórn-
völd teija að með þessari
ákvörðun sé friðarumleit-
unum í Miðausturlöndum
stefnt í hættu.
George Bush, Bandaríkja-
forseti, tilkynnti ákvörðun
sína á miðvikudag. Hann
sagði að þeim takmörkuðu
diplómatísku tengslum sem
stofnað hefði verið til milli
PLO og Bandaríkjanna væri
slitið, þar til PLO samtökin
Talin er hætta á að alda
hryðjuverka brjótist út í Miö-
austurlöndum vegna ákvörð-
unar Bandaríkjamanna.
hefðu fordæmt árásir skæru-
liða á ísrael í síðasta mánuði.
Stjórnmálaskýrendur telja að
ákvörðun Bandaríkjamanna
muni leiða til aukinnar ólgu
og hryðjuverka í Miðaustur-
löndum.
ísraelskir embættismenn
hafa fagnað ákvörðun
Bandaríkjamanna. Þeir hafa
haldið því fram að Frelsis-
samtök Palestínu væru
hryðjuverkasamtök og
benda á að með þessu hafi
Bandaríkjamenn sýnt í verki
stuðning við þá skoðun.
Jórdanir styðja friðarstefnu
Yassers Arafats, leiðtoga PLO,
og hcifa viðurkennt kröfur
Palestínumanna til sjálfstæðs
Palestínuríkis.