Alþýðublaðið - 22.01.1991, Blaðsíða 5
P&Ó/SÍA
Þriðjudagur 22. janúar 1991
5
Einar Pétursson í Reykjavíkurhöfn.
Allir landsmenn eeta
eignast
ÍSLANDSBRÉF
Bjartsýni og baráttuandi hafa
ætíð einkennt stóru stundirnar í
lífi og starfi íslensku þjóðarinnar.
Þegar miklir hagsmunir eru í húfi
stöndum við saman og fáum
miklu áorkað. Á þeirri hugmynd
grundvallast íslandsbréf.
íslandsbréf eru eignarhluti í sam-
eiginlegum sjóði sparifjáreigenda,
sem fjárfestir í ýmsum tegundum
vel tryggðra verðbréfa. Með því að
eignast hlutdeild í sjóðnum geta
einstaklingar notið þess ávinnings
sem felst í því að dreifa fjárfesting-
um og njóta góðrar ávöxtunar.
Fæstir sparifjáreigendur hafa tíma,
þekkingu og fjárráð til að notfæra
sér þá kosti, sem dreifing fjár-
festinga býður upp á. íslandsbréf
gera þetta kleift.
íslandsbréf eru nánast fyrirhafn-
arlaus fjárfesting og henta vel
ungum jafnt sem öldruðum hvort
sem um er að ræða háar eða
lágar upphæðir.
Reglubundinn sparnaður er mikil-
vægur. Þannig öðlast fólk skilning á
gildi sparnaðar og lærir að bera
virðingu fyrir verðmætum. Þótt
upphæðirnar séu ekki háar, er gott
að venjasig áað leggja hluta af tekj-
um sínum í örugga og arðbæra fjár-
festingu. Á nokkrum árum getur
þannig myndast álitlegur sjóður.
Dæmi:
Fermingarbarn fær íslandsbréf
að upphæð 20.000 krónur. Á
hverju ári leggur það fyrir svipaða
upphæð af sumarlaunum og
kaupir íslandsbréf. Tíu árum
síðar er sjóðurinn orðinn næstum
290.000 krónur á núvirði*
* Fyrir innlausnargjald og miöaö viö aö 8% árleg raun-
ávöxtun náist á sparnaðartímanum.
Sérfræðingar Landsbréfa h.f. sjá
um alla umsýslu, svo eigendur
íslandsbréfa geti notið áhyggju-
lausrar ávöxtunar.
Leitið ráða hjá Landsbréfum h.f.
Komið og fáið frekari upplýsingar,
bæklinga og aðstoð hjá ráð-
gjöfum okkar og umboðsaðilum í
útibúum Landsbanka íslands og
Samvinnubankans um land allt.
LANDSBRÉF H.F.
Landsbankinn stendur með okkur
Suöurlandsbraut 24, sími 606080
Löggilt veröbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands. .