Alþýðublaðið - 01.02.1991, Blaðsíða 2
2
Föstudagur 1. febrúar 1991
Frambjóðendur í prófkjöri Al-
þýöuflokksins töluðu oft á
fundinum en stutt í einu.
■
Fundargestir hlýða andaktugir á hvernig frambjóðendur hyggjast auðga mannlífið og koma ís-
landi í A-flokkl þjóðanna.
Guömundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, gat setiö rólegur enda var hann búinn að
vinna sina kosningabaráttu þó að á öðrum vettvangi vaeri.
Þessi ungi maöur sá ekki ástæðu til að punkta niður hjá sér kosningaloforð frambjóðenda en
notaði tímann til að lita undir ræöuhöldunum.
Eins og sjá má voru fundargestir fjölmargir og báru fram 40 fyrirspurnir til einstakra frambjóð-
enda.
Fundur
frambjóöenda
í prófkjöri
Alþýduflokksins
í Reykjavík:
60 RÆÐUR 06
40 FYRIRSPURNIR!
„Ég minnist þess ekki að hafa komið ó jafn-
skemmtilegan og góðan fund hjá Alþýðuflokknum
hér i Reykjavík i langan tíma. Það er greinilegt að
margir sækjast eftir að starfa fyrir Alþýðuflokk-
inn," sagði Sigurður iónsson, kosningastjóri Al-
þýðuflokksins i Reykjavik, eftir fund frambjóðenda
i prófkjöri Alþýðuflokksins i höfuðborginni.
Nú um helgina fer fram prófkjör
Alþýðuflokksins í Reykjavík sem
mun skera úr um hverjir koma til
með að skipa efstu sæti lista
flokksins við alþingiskosningarn-
ar í vor. Kynning á þeim sem gefa
kost á sér í prófkjörinu fór fram á
Holiday lnn hótelinu á þriðjudags-
kvöldið. Vel á annað hundrað
manns sóttu fundinn.
„Mér lýst ákaflega vel á fram-
bjóðendur í prófkjörinu og aðrir
flokkar hafa ekki upp á annað eins
mannval að bjóða,“ sagði Sigurður
Jónsson. „Ef við stöndum vel að
málum er það alveg Ijóst að Al-
þýðuflokkurinn á eftir að vinna
glæsilegan sigur í alþingiskosning-
unum í vor. Við í Reykjavík stefn-
um að því að fá fjóra menn
kjörna," sagði Sigurður ennfrem-
ur.
Allir frambjóðendur í prófkjör-
inu voru mættir á fundinn og
héldu ræður nema Birgir Arnason
sem starfar erlendis. Fyrst fengu
frambjóðendur þrjár mínútur hver
til kynna sig og helstu stefnumál
sín. Síðan voru fyrirspurnir utan
úr sal. Tekin var fyrir ein fyrir-
spurn í einu og fékk sá frambjóð-
andi sem spurningu var beint til
eina mínútu til að svara.
Fundarstjóri var Pétur Jónsson
og tímavörslu annaðist Birgir Dýr-
fjörð. Var það mál manna að þeir
hefðu sýnt mikla festu og góða
fundarstjórn og fundurinn því
gengið vel fyrir sig. Engar mála-
lengingar voru leyfðar.
Fundurinn hófst klukkan hálf-
átta og lauk að ganga tólf. Á þeim
tíma fluttu frambjóðendur yfir
sextíu ræðu og bornar voru fram
40 fyrirspurnir frá fundargestum
utan úr sal.