Alþýðublaðið - 01.02.1991, Qupperneq 3
Föstudagur 1. febrúar 1991
INNLENDAR FRÉTTIR
*
I dag verdur samningur lœkna birtur:
3
FRÉTTIR
1HNOTSKURN
MÓTMÆLA FASTEIGNAGJALDAHÆKKUN:
Mótmælum rignir inn á ritstjórnina frá ýmsum aðilum
vegna hækkunar fasteignagjalda víða um landjð. Nú síðast
mótmælir stjórn Verslunarmannafélags Árnessýslu
hækkun gjaldanna á Selfossi. Stjórnin bendir á að um leið
og fasteignagjöld hækka um 10—12% á milli ára hafa
launahækkanir verið í lágmarki. Skorað er á bæjarstjórn
Selfoss að lækka álagninguna og koma þannig til móts við
bæjarbúa. Þess skal getið að á Eyrarbakka og á Stokkseyri
var álagningarhlutfall lækkað um 10%.
MEISTARARNIR Á UPPBOÐI: Gaiien Borg heldur
málverkauppboð í samvinnu við Listmunauppboð Sigurð-
ar Benediktssonar hf. í Súlnasal Hótel Sögu á sunnudags-
kvöldið. Áttatíu verk, nær öll eftir þekkta listamenn, verða
boðin upp. Verkin verða sýnd í Gallerí Borg í dag og um
helgina frá 14—18.
STARFSMENN KAUPA ÞROTABÚIÐ: Starfsmenn
Pólstækni hf. á ísafirði, sem nú er gjaldþrota, hafa ákveð-
ið að kaupa þrotabúið og halda áfram starfseminni. Allt
búið verður keypt, ef undan eru skilin einn bíll og húseign-
in. Fyrirtækið mun nú heita Póls rafeindavörur hf. Ellefu
starfsmenn standa að kaupunum — framkvæmdastjóri er
Sigurjón Sigurjónsson.
/ /
VIKSKALHUN HEITA: Ný endurhæfingarstöð SÁÁ í
nágrenni Reykjavíkur hlýtur nafnið Vík. Efnt var til sam-
keppni um nafn og bárust nokkur þúsund tillögur. Ails 89
tillögur komu um nafnið Vík og var dregið úr þeim nöfn-
um. Sá heppni reyndist vera Sævar Rúnar Einarsson á
Hvammstanga. Hann hlýtur 200 þúsund króna ferðalag
með Landi og Sögu. Bygging endurhæfingarstöðvarinnar
hefst fljótlega, enda þótt staðsetning Víkur hafi ekki end-
anlega verið ákveðin. Þar munu rúmast 30 sjúklingar
hverju sinni. Kemur hin nýja stöð í staðinn fyrir Sogn, sem
SÁÁ missir afnot af í vor. Á myndinni dregur Þorkell
Gíslason, borgarfógeti, út nafn Sævars Rúnars úr bunkan-
um. Með honum á mynd til vinstri er Grettir Pálsson úr
stjórn SÁÁ.
SJONHVERFINGAR: Félag íslenskra náttúrufræðinga
segir í tilefni af reglum um greiðslur fyrir stundakennslu
við háskólann, sem menntamálaráðuneytið hefur gefið út:
„Skorað er á félagsmenn .og aðra háskólamenn að láta
ekki blekkjast af þessum sjónhverfingum."
LÁNSKJARA- 0G LAUNAVÍSITÖLUR: Lítn breyt-
ing hefur orðið á þessum vísitölum. Lánskjaravísitala fyrir
febrúar er 3003 stig, 1,15% hækkun frá janúar. Launavísi-
tala fyrir janúar miðað við meðallaunin í desember er
120,6 stig, eða 2,6% hærri.
SALTFISKUR FYRIR 12 MILLJARÐA: mírii verð-
mætisaukning varð á saltfiski á síðasta ári. Hvert tonn sem
SÍF seldi utan hækkaði í verði um 31%. Flutti SÍF út fyrir
12 milljarða króna 49 þúsund tonn af góðgætinu, sem er
þó 13 þúsund tonnum minna en árið 1989. Til Portúgals
fóru 15.300 tonn og til Spánar 13.700 tonn, en þar varð
mikil aukning á sölu. Söluaukning varð líka umtalsverð,
10% og í Þýskalandi 35%.
„STRÍÐ í ST0FUNNI" í ENDURSKOÐUN: aö sögn
útvarpsstjóra, Markúsar Arnar Antonssonar, mun Rík-
isútvarpið endurskoða útsendingar sínar á SKY-fréttunum
bresku allan sólarhringinn. Það mun verða gert nú um
mánaðamótin. Talsverðrar þreytu er tekið að gæta meðal
fólks á stríðsbollaleggingum stöðvanna tveggja. RÚV
borgar 100 pund á sólarhring fyrir þessa þjónustu, auk
launa fyrir fréttamann á vakt. Blaðið náði ekki tali af Páli
Magnússyni á Stöð 2 í gærkvöldi og veit því ekki um
framhald CNN-frétta stöðvarinnar.
LÆKKUN KJÖRVAXTA VERÐTRYGGÐRA ÚT-
LANA: Landsbankinn tilkynnti í gærkvöldi um lækkun
kjörvaxta verðtryggðra útlána um 0,25%, úr 6,75% í
6,50%. Þá var samþykkt hækkun vaxta á óverðtryggðum
útlánum um 1,5% til að halda jafnvægi milli kjara verð-
tryggðra og óverðtryggðra lána. „Miðað við núverandi
verðlagshorfur og spár Seðlabanka er reiknað með að
hægt verði að halda vöxtum óbreyttum, a.m.k. fram á mitt
ár og að vaxtamunur verði ekki meiri en undanfarna mán-
uði," sögðu talsmenn Landsbankans.
Falin ákvæði?
A-mynd: E.ÓI.
FRÉTTASKÝRING EFTIR
BJÖRN HAFBERG
Samningurinn _ á milli
Læknafélags Islands og
Læknafélags Reykjavíkur
hefur verið undirritaður
en samningurinn verður
kynntur félagsmönnum í
dag, föstudag. í samningn-
um eru m.a. ákvæði um að
yfirvinna lækna skuli ekki
veröa meiri en 90 stundir á
mánuði nema í undantekn-
ingatilfellum, að dregið
verði eins og kostur er úr
löngum vöktum, sem gátu
orðið allt að 26 klukku-
stundum, og að allsherjar
endurmat fari fram á öllu
vaktafyrirkomulagi spítal-
anna. Innihald samnings-
ins sem gerður var aðfara-
nótt fimmtudags fer ann-
ars leynt. Sumir sem talað
var við í gær, sögðust hafa
slæma reynslu af Iækna-
samningum. Þeir töldu að
verið gæti að í honum
væru falin ákvæði. Það
hefði gerst áður.
Minna má á að vorið 1981
var gerður samningur við
lækna sem var á nótum þjóð-
arsáttar, sem þá var meðal
þjóðarinnar. Þá hafði áður
verið samið við aðra laun-
þegahópa, en læknar felldu
Áskoruit
Við undirrituð, fyrrver-
andi nemendur Þorláks
Helgasonar úr Mennta-
skólanum við Hamrahlíð,
hvetjum jafnaðarmenn til
að fylkja sér um framboð
Þorláks í prófkjöri Al-
þýðuflokksins í Reykjavík
um helgina.
Hugsjónir Þorláks, víðtæk
reynsla hans og störf, teljum
við að nýtist vel á vettvangi
þjóðmála.
Hrefna Haraldsdóttir
kennari, Jóhann Pétur
Sveinsson lögfræðingur,
Jón Orri Guðmundsson
bókagerðarmaður, Magnús
H. Magnússon lögfræðing-
Unnið að lausn deilu læknanna,
samninginn. Að sögn Þrastar
Olafssonar, sem þá var að-
ur, Jörundur Guðmunds-
son heimspekingur, Sigríð-
ur Indriðadóttir kennari,
Valborg Kjartansdóttir lög-
fræðingur, Helga Haralds-
dóttir kennari, Valdimar
Flygenring leikari, Adolf H.
Petersen fjölmiðlafræðing-
ur, Pétur Steinn Guð-
mundsson fjölmiðlamaður,
Björn Guðbrandur Jons-
son líffræðingur, Heimir
Þór Sverrisson verkfræð-
ingur, Ólöf Hafsteinsdóttir
matvælafræðingur, Halldór
Laxness leikstjóri, Harald-
ur Böðvarsson lögfræðing-
ur, Júlíus Aðalsteinsson
bankamaður, Linda Kon-
ráðsdóttir kennari.
þeirra ungu og hinna eldri.
stoðarmaður fjármálaráð-
herra, var gerður annar
samningur við lækna, þar
sem samið var um ýmisiegt
sem ekki var í formi beinna
launahækkana. Þar á meðal
voru ferðalög vegna nám-
skeiða, og endurmenntunar
og bílapeningar lækna mið-
uðust t.d við að þeir keyrðu
8000 þús. km á ári. Útgjalda-
auki ríkissjóðs vegna þessara
földu viðbótarákvæða var
um eða yfir 20%.
Það að endurskoðun samn-
ingsins skuli eiga að vera lok-
ið eftir þrjá mánuði, bendir
að mati fróðra manna ein-
dregið til þess að hluta deil-
unnar hafi verið skotið á
frest.
I samtölum Alþýðublaðsins
við unga lækna í gær kom
fram að þeir væru ánægðir
með að nú hefðu komið inn í
samninginn skýr ákvæði um
vinnuvernd, en launahækk-
anir væru í samræmi við
þjóðarsáttina svo beinar
launahækkanir yrðu væntan-
lega ekki miklar. Davíð Arn-
ar, aðstoðarlæknir á Land-
spítalanum, sagði að það
væri mjög mikilvægt fyrir að-
stoðarlækna að nú væri ekki
hægt að skylda þá til að
vinna meira en 90 yfirvinnu-
tíma á mánuði.
„Búið er að skipa nefnd til
að endurskoða þessar löngu
vaktir og jafnframt að flokka
vaktirnar niður og endur-
skoða greiðslur fyrir þær. Það
gæti orðið til þess að betur
yrði greitt fyrir sömu vaktir
en áður,“ sagði Davíð.
Davíð sagði að skapast
hefði venja eða hefð fyrir
þessum löngu vöktum, en
breyttur tíðarandi og tilkoma
staðgreiðslunnar hefði m.a.
valdið því að menn vildu ekki
vinna eins mikið og áður og
því væru vinnuréttinda-
ákvæðin mikilvæg, en menn
hefðu alltaf vitað að launa-
hækkanir fram yfir þjóðar-
sátt kæmu ekki til greina.
Dggsbrún mótmœlir:
Sumir virðast undan-
þegnir þjóðarsáttinni
„Það var hugsun allra aö
stöðvun hækkana næöi til
allra, en sumir væru ekki
undanþegnir,“ segir í
ályktun sem stjórn Dags-
brúnar hefur sent frá sér.
Stjórnarfundur í Verka-
mannafélaginu Dagsbrún
hefur sent frá sér harðorða
ályktun vegna þróunar verð-
lagsmála. Ríkið, sveitarfélög,
bankar og tryggingafélög eru
meðal þeirra sem hækkað
hafa gjöld sín á sama tíma og
kaup verkafólks er óbreytt og
vinna hefur dregist saman,
segir ennfremur í ályktun-
inni.
Fyrstu dagana í janúar
hækkuðu gjöld Reykjavíkur-
borgar í gegnum Rafveituna
um 5%, Hitaveitan hækkaði
gjöld sín um 8,4%, fasteigna-
gjöld hækkuðu um 12% og
strætisvagnarnir bættu 9%
við gjaldskrá sína. í sumum
nágrannasveitarfélögum
Reykjavíkur hafa fasteigna-
gjöld hækkað um 15—20%
auk þess sem áætlað er að
ísienskum ríkisborgur-
um sem búsettir eru á
Noröurlöndum hefur fjölg-
að um rneira en helming á
síðustu fimmtán árum.
Árið 1975 bjuggu 3.655 ís-
lendingar á hinum Norður-
leggja á sérstakt sorpgjald.
Póstur og sími og Ríkisút-
varpið hafa hækkað gjöld sín
og það sama má segja um
vexti.
löndunum en árið 1989 voru
þeir orðnir 10.921, segir Hag-
stofan. Á sama tíma hefur
fólki með erlent ríkisfang,
sem býr hér á landi, fjölgað
úr rúmum 2.700 í tæp 5.000
þúsund. Samtals búa nú rúm-
Stjórn Dagsbrúnar mót-
mælir þessum vinnubrögð-
um og varar þá aðila, sem
standa fyrir þessum hækkun-
um, alvarlega við.
lega 16.500 íslenskir ríkis-
borgarar erlendis, þar af þar
af 5.300 í Svíþjóð. í Dan-
mörku búa 3.190 og í Banda-
ríkjunum tæplega 3.000 þús-
und, aðrir dreifast svo víðs
vegar um veröldina.
Islenskir ríkisborgarar á erlendri grund:
Nærri sjö af Kverjum
hundrað búa erlendis