Alþýðublaðið - 01.02.1991, Side 5
Föstudagur 1. febrúar 1991
UMRÆOA
Nœsti leikur:
Islcmd i A-flokk!
Um þessar mundir laðar Alþýðuflokkurinn til sin
fólk úr öllum áttum. Kvikuhreyfing á sór stað i is-
lenskum stjómmálum. Lifsviðherf jafnaðarmanna
hefur fengið góðan meðbyr, eftir langan blund i
brjóstum fjöldans. Stór hluti þeirra hefur beðið
tœkifœra með rifuð seglin. Nú hefur framganga Al-
þýðuflokksins i rikisstjóm yfirstandandi kjörtima-
bils gefið verkunum mál, sem heyrist víða.
Á sama tíma hefur Alþýðuflokk- laun og skattfrelsismörkin. Stytta
urinn mótað stefnuskrá fyrir þarf vinnutima. Vítahring yfir-
næstu framtíð. Kjarni stefnunnar
hefur mótast af eðli hins sanna ís-
lenska hjartalags. Verði þessi
vandaða stefnuskrá framkvæmd í
verki, þá er eitt víst: Hér verður
enn auðugra mannlíf og ísland
kemst loks í A-flokk.
Markmiðið er ljóst. Leiðirnar
eru mótaðar. Ég ætla hér að skoða
nokkurn hluta þeirra.
Þjóðarsáttin
' - ' '
Islendingar eru enn að venjast
lífi án óðaverðbólgu. Menn eru
enn að átta sig á stöðugleika og
flestir fagna miklum árangri. En
sáttin var mörgum dýrkeypt.
Óviðunandi launakjör voru sett á
kaldan klaka. Launamisrétti var
fryst. Margir hafa þurft að herða
ólarnar. Megnri óánægju hefur
veri haldið í skefjum. Engum skal
detta í hug, að óbreytt þjóðarsátt
verði framlengd næsta haust.
Stöðu láglaunamannsins verður
að bæta. Hækka verður lægstu
vinnunnar þarf að brjóta, án
skerðingar launa. Samtímis þarf
að draga úr framfærslukostnaði.
Launakerfin þurfa allsherjar
endurskoðunar við. Vinnuveit-
endur bera ábyrgð á auknum
ójöfnuði með krónísku launa-
skriði útvalinna, í skjóli myrkurs.
Feluleikinn þarf að stöðva. Menn
verða að taka sönsum. M.a. á ofan-
greindum forsendum verður hægt
að gera nýja þjóðarsátt næsta
haust. En þar munu fleiri þurfa að
bera þungann. Með hagræðingu
og sparnaði á vegum hins opin-
bera og með bættu rekstrarum-
hverfi fyrirtækja, verður hægt að
bera uppi kostnað endurnýjaðrar
þjóðarsáttar.
Byggdastefna ________________
Stærsta þjóðarsátt framtíðar
mun fjalla um nýtt skipulag
byggða á íslandi. Forsenda skyn-
samlegrar stefnu í helstu atvinnu-
greinum landsmanna er byggðar-
stefna, sem víðtæk samstaða næst
um. Ekki verður hægt að hagræða
byggð landsins með því að stöðva
atvinnulíf fólks á tilteknum svæð-
um.
Við getum ekki breytt búsetunni
með því að fæla fólk burtu með
skertri heilbrigðisþjónustu og
óviðunandi kennslumálum, svo
dæmi séu tekin. Fyrst verður að
ná sáttum um framtíð byggðanna.
Síðar er raunhæft að koma á eðli-
legu rekstrarformi í sjávarútvegi,
landbúnaði og fyrirkomulagi
þjónustugreinanna.
Sjávarútvegur_______________
Við lausn vandamála í sjávarút-
vegi eru engar patenthugmyndir.
Viðtækur skilningur er fyrir hendi
á helstu vandamálunum. And-
stæðan við kvótakerfið eykst stöð-
ugt. Auðsöfnuður kvótakónganna
er þekktur. Kvótabrask og byggða-
röskun eru daglegar fréttir. Kvót-
ann ber að leggja af í áföngum.
Flotinn er of stór. Fiskstofnanir
eru eign landsmanna. Nýting
þeirra þarf að stjórnast af réttlátu
stjórnunarkerfi, t.d. með leiguskil-
málum. Heildarskipulagið þarf að
mótast af áður samþykktri
byggðastefnu.
Landbúnadur_________________
Eitt sinn stóð landbúnaður undir
sjálfum sér. Síðar komst hann á
framfærslu sjávarútvegsins. Eftir
það fóru menn að deila á landbún-
aðarstefnuna. Bændur eru flestir
dugmikið fólk. Þetta fólk hefur
lengi setið undir stöðugri ádeilu.
Bændur hafa tekið gagnrýninni
persónulega, því miður. Hér er
ekki verið að deila á bændur
sjálfa, heldur landbúnaðarstefn-
una og rekstur hennar. Bændur
hafa orðið fórnardýr eigin fyrir-
tækja, sem hafa gert út á þá og
safnað auði í hlutverki milliliða í
framleiðslunni. Nú sitja dugmiklir
bændur í gapastokki framleiðslu-
kvótans og geta engan veginn not-
ið sín. Kerfið hindrar aukna fram-
leiðni og lækkun verðlags. Það
þarf því að frelsa íslenska bændur
úr ánauð! Alþýðuflokkurinn hefur
mótað stefnu til að ná því marki.
Við breytta stefnu mun bændum
í fækka og byggðir breytast. Þjóðar-
,'sátt um byggðastefnu er forsenda
þess að framkvæma megi nauð-
: synlegar breytingar í rekstri land-
búnaðarins.
Lokaorð__________
Hér hefur verið minnst á nokkur
hinna mikilvægustu málefna.
Mörgum hefur verið sleppt, að
sinni. í raunhæfri og vandaðri
stefnuskrá Alþýðuflokksins er að
finna verklýsingu þá, sem nota
skal til að ná endurskipulagi og
hagræðingu í okkar helstu at-
vinnugreinum. Framkvæmdin
sparar þjóðarbúinu milljarða.
Þannig fást fjármunir án skatta-
hækkana. Þannig hafa íslendingar
efni á enn auðugra mannlífi í anda
réttlætis og jöfnuðar. Þannig
kemst ísland í Á-flokk!
Gunnar Ingi
Gunnarsson Iwknir
skrifar
Mannúð að leiðarljósi
UMRÆDA
Jafnaðarstefnan er hugsjón. Hún er þvi ekki föl
fyrir eitt nó neitt. Hún er ekki hlifðarfatnaður, sem
má bregða yfir sig eða klæðast að hentugleikum.
Hún er órjúfanleg i timanum.
ÞORLÁKUR HELGASON SKRIFAR
Á viðsjárverðum tímum er holit
að hyggja að hugsjónum okkar.
Það er brýnt að Alþýðuflokkurinn
hviki ekki undan merkjum, þó að
skammtímahagnaður virðist á
næsta leiti.
Andleg fátækt
- ■ ■ —--- ■■
Ymsir telja að baráttan um
brauðið sé liðinn tími.
Þjóðin lifir í allsnægtum á landa-
mælikvarða og miðað við meðal-
tal af höfðatölu. Það segir hins
vegar ekki alla söguna. Það er til
fátækt í samfélaginu. í allsnægtun-
um nærist líka hin andlega fátækt.
Lítum á nokkur dæmi:
a) Að undanförnu hefur komið í
Ijós að 500 unglingar eru taldir
vera í bráðri hættu af völdum
vímuefna eða reglulegrar neyslu
lyfja af ýmsum gerðum.
b) Einangrun gamals fólks er al-
þekkt.
c) Fjölmargar fjölskyldur eiga
um sárt að binda vegna þess að
endar ná ekki saman í lífinu. Það
hefur verið stefnt hátt og djarft út
yfir öll mörk.
d) Það er ekki samfella milli
skóla og heimilis, vinnu og heimil-
is. Þess hefur ekki verið gætt í kjöl-
far breyttra tíma að laga skóla og
vinnu að þörfum heimilisins.
Hoimilid viðbit i____________
þióðmálqumræóunni
Þegar lýsa á vanda þjóðarinnar
er yfirleitt gripið til talna. Þjóðar-
framleiðsla hefur dregist saman af
því að fiskveiðar brugðust, útflutn-
ingstekjur minnkuðu, ríkistekjur
nægðu ekki fyrir útgjöldum
o.s.frv.
Sjaldnast fjalla þessar tölur um
fólk. Heimilið, sjálf grunneining
samfélagsins, verður yfirleitt að-
eins viðbit í þjóðmálaumræðunni.
Hagfræðin á þó ættir að rekja til
heimilisrekstrar. Gríska orðið eo-
konomia (hagfræði) þýddi að
fornu ,,að reka heimili."
Því minnist ég á þetta að ég tel
að okkur væri hollt að hyggja að
„öfugurn" enda þegar vandræði
hagkerfisins eru skoðuð. Mörgu í
þjóðfélaginu væri betur komið ef
heimilið væri sett á oddinn. Lítum
á örfá dæmi:
1) Slys á börnum eru tíðust í
heimi á íslandi. Allir gera sér grein
fyrir því sem það kostar andlega
og fjárhagslega.
2) Enn sem komið er hefur ekki
verið lögð nægileg áhersla á for-
varnir í samfélaginu, þó að sýnt sé
að sparnaður þjóðarinnar sé gífur-
legur ef hægt er að koma í veg fyr-
ir slys. Þá á ég við margs konar
varnir, í umferð, gegn vímuefnum
og óheilbrigðu líferni o.s.frv.
3) Heimilisfriður samkvæmt
stjórnarskrá lýðveldisins virðist
brotinn, ef yfirvöld sjá ástæðu til.
Grófast allra brota í því dæmi er
tvímælalaust, þegar vísitalan var
tekin úr sambandi fyrir um það bil
sjö árum. Ríkið tryggði sig þá fyrir
skakkaföllum en lagði byrðarnar á
fólkið, á heimilin. Launin voru
fryst en verðbólgan lagði mörg
hjörtun að velli.
Til umhugsunar_________________
Eitt meginverkefni jafnaðar-
manna næsta áratug verður að
leggja grunn að fjölskyldustefnu
sem hefur að markmiði að vernda
heimilið. Ég tek skólann inn í þetta
dæmi, þar sem skólinn og heimilið
eru stofnar af sama meiði. Mig
langar að nefna fáein atriði sem
íhuga þarf þegar bitunum veríur
raðað saman í bygginguna:
a) í dag býr skólinn börn ein-
göngu undir atvinnulíf (það er líka
mjög óljóst) en ekki heimilislíf.
b) Það er barist um fjölskylduna
úr öllum áttum. Hún fær ekki að
vera í friði í bókstaflegri merk-
ingu. Mest er að öllu jöfnu aðför
ríkisvaldsins oft á tíðum (sbr. lið 3
hér að ofan).
c) Skólinn er ósamfelldur og
ekki í takt við vinnu og heimili.
d) Launastefna ríkisvaldsins er
fyrir löngu brostin. Ég hef áður
minnst t.d. á skólann sérstaklega í
því sambandi (í dagblaðsgrein í
DV 29.1. sl.). Launastefnan er ekki
fyrst og fremst spurning um pen-
inga, heldur hitt að lagst er á
ákveðnar greinar samfélagsins.
Uppeldis- og heilbrigðisstörf eru
vanmetin. Það kemur til lengdar
niður á gæðunum. Gæðin í heil-
brigðisþjónustunni og í skólakerf-
inu eru ekki metin í krónum og
aurum, heldur í vellíðan og
menntun komandi kynslóða (þá í
hagvexti framtíðarinnar).
e) Breytingin á að gerast innan
frá. Ekki með valdboðum að utan.
Þess vegna verður m.a. að auka
sjálfstæði stofnana hins opinbera
og gera þær ábyrgari en nú er. Á
heimilinu sjálfu er þetta augljós-
ast. Heimilunum er ekki gert kleift
að rækja uppeldistörfin. Árekstr-
arnir við það sem er utan heimilis
brjóta niður, þó að fyrir sé á heim-
ilunum ásetningur um bætta
hegðun.
f) Almennt kæruleysi um hverju
fram vindur er áberandi. Það er
ekki beint neinum mælistikum að
þeim stofnunum sem eiga að
vernda og hlúa að einstaklingn-
um. Skólinn er á óræðu landi,
vinnan er ekki metin í samhengi
við heimilið o.s.frv.
g) Þjóð sem skynjar ekki upp-
runa sinn á á hættu að færast
ótímabundið úr þeim skorðum
sem eru æskilegar. Alls kyns tæki-
færissinnuð afskipti af þróuninni
sjálfri hafa á undanförnum árum
dregið hulu yfir það sem er í raun
að gerast. Hér eru bein afskipti
stjórnmálamanna (í eigin þágu)
ljósust. Fjölmörg dæmi eru til um
að fólki sé hleypt út í (ævintýra)at-
vinnumennsku, það síðan dregið
á asnaeyrunum og með fjárhags-
aðstoð er endanleg kollsteypa
gerð þeim mun alvarlegri. Hér
nægir að nefna ýmsar nýgreinar í
atvinnulífi. Heimilin verða ævin-
lega verst úti.
Bjartir Hmar framundaw
Verkefnin sem ég minnist hér á
eru til að takast á við, en ekki til að
bugast á.
Það er ekki síst fyrir tilstilli Al-
þýðuflokksins að það eru tví-
mælalaust bjartir tímar fram und-
an. Hann hefur þorað að horfast í
augu við sannleikann, þegar ein-
faldara virtist að hörfa undan.
Þess vegna getum við með reisn
litið til framtíðar undir merkjum
jafnaðarstefnunnar. Við höldum
kúrsi með hjálp góðra manna og
með mannúð að leiðarljósi.
Valgerðar Gunnarsdóttur
að Ármúla 38,3* hæð
verður opin laugardag og
sunnudag á meðan kosið er.
Verið velkomin.
Síml 680789
Kosningaskrlfstoia