Alþýðublaðið - 26.03.1991, Blaðsíða 1
AltYBUBUBIB
47.TÖLUBLAÐ- 72. ÁRGANGUR
26. MARS 1991
HASETAHLUTUR 5,2 MILUONIR KR.: í fyrra var
hásetahlutur á Guðbjörgu frá ísafirði rúmlega 400 þúsund
krónur á mánuði, eða 5,2 milljónir kr. yfir árið. Guðbjörgin
sker sig úr meðal ísfisktogara, samkvæmt upplýsingum
Fiskifrétta.
TJÓN ÓBREYTT SL. ÞRJÚ ÁR: Tjón í umferðinni
hafa verið svo til óbreytt sl. þrjú ár, þegar þau eru metin
á sama verðlagi. í fyrra námu tryggingaiðgjöld af ökutækj-
um 4,4 milljörðum kr. og kostnaður var 974 milljónir kr.
Tjón í fyrra eru metin á 3,7 milljarða króna.
VARÐSKIPIN MEIRA VIÐ BRYGGJU: Fjárveiting-
arvaldið hefur stytt úthaldstíma varðskipanna um tvo
mánuði á þessu ári og lækkað fjárframlög til flugreksturs
sem nemur 100 flugtímum til að mæta auknum viðhalds-
kostnaði skipa og flugvéla.
Þetta kemur fram í fréttablaðinu Gæslutíðindi. Þar segir
að fjárveiting til Landhelgisgæslunnar sé 660 milljónir
króna á þessu ári, sem sé 11% raunhækkun frá í fyrra. Það
ár voru varðskipin Týr, Ægir og Óðinn gerð út í 10 mánuði
hvert um sig. Þau sigldu alls um 62 þúsund sjómílur, sem
er 18% aukning frá árinu 1989. A þessu ári verður stærsta
viðhaldsverkefnið í Óðni.
Þar verður meðal annars skipt um tvær ljósavélar og akk-
erisspil og endurnýjaðar smurolíu- og sjódælur aðalvéla
sem hafa enst frá upphafi, eða í 31 ár. Einnig þarf að gera
við höfuðdekk Óðins en mikil tæring er komin í það. Skip-
inu verður lagt í byrjun apríl og áætlað að viðgerð ljúki um
miðjan júní.
50 tonn af
páskaeggjum
ofan í landann
2—3 þúsund Islendingar
dveljast erlendis um páskana.
Hinir borða 300 þúsund páska-
egg og verða 50 tonnum
þyngri (samanlagt). — Sjá
fréttaskýringu Björns Haf-
bergs.
Orkulindir og
almenningsheill
Eignarréttur á afréttum og
almenningum skipta verulegu
máli varðandi orkulindir okkar,
segir Jón Sigurðsson iðnaðar-
ráðherra.
Listi
Alþýðuflokksins
á Reykjanesi
Einvalalið jafnaðarmanna
skipar framboðslista Alþýðu-
flokksins á Reykjanesi í kom-
andi Alþingiskosningum.
„LÆKNAR LÁTA
SJÚKUNGA
SÍNA DEYJA"
*
Lœknafélag Reykjavíkur mótmœlir ásökunum Olafs Ragnars
„í þessum ummælum
yðar ásakið þér lækns
um að láta hagsmuni
sjúklinga víkja fyrir eig-
in hagsmunum, þér
ásakið lækna um að
hætta að sinna sjúkum
og ennfremur ásakið þér
lækna um að beita ríkis-
valdið fjárkúgun og jafn-
vel að láta sjúklinga sína
deyja, fái læknar ekki
það fé úr ríkissjóði sem
þeir vilja.“ Þetta kemur
fram í harðorðu bréfi
Læknafélags Reykjavík-
ur til Ólafs Ragnars
Grímssonar fjármála-
ráðherra vegna ummæla
hans í Sjónvarpinu sl.
laugardag.
Stjórn Læknafélags
Reykjavíkur krefst skrif-
legra skýringa fjármálaráð-
herra á ummælum hans og
fer jafnframt fram á afsök-
unarbeiðni sem birt verði í
Sjónvarpinu. Verði Ólafur
Ragnar ekki við því hótar
Læknafélagið að íhuga
leiðir til að fá ummæli hans
dæmd ómerk.
í fyrsta lagi krefst Lækna-
félag Reykjavíkur að ráð-
herra styðji með rökum
það sem fréttamaður Sjón-
varpsins hefur eftir honum
,,en það var að flestir lækn-
ar hefðu meiri áhuga á
verktakabisness en þjón-
ustu við sjúka.“ Þá segir í
bréfinu: „1 öðru lagi stað-
hæfið þér, að læknar muni
hætta að lækna sjúka, fái
þeir ekki greidd laun sín.
Hafið þér beinar sannanir
fyrir þessari fullyrðingu, þá
eruð þér beðnir að greina
frá þeim.
í þriðja lagi staðhæfið
þér, að læknar myndu láta
sjúklinga sína deyja, fengju
læknar ekki sem mesta
peninga í sinn hlut úr hin-
um sameiginlega sjóði
landsmanna. Eruð þér beð-
inn um að skýra frá stað-
reyndum máli yðar til sönn-
unar.“ Þá er að sjá hvort Ól-
afur Ragnar stendur fastur
á því að læknar séu tilbúnir
að fórna sjúklingum sínum
í kjarabaráttu.
RITSTJÓRN © 625566 - 625538 • FAX 627019 • ÁSKRIFT <
AUGLÝSINGAR © 625566
KARNIVAL í K0LAP0RTI: Kolaportið verður tveggja
ára á laugardaginn og ætla aðstandendur þess að halda
upp á afmælið með ýmsum hætti. Markaðurinn verður á
sínum stað og má búast við látlausri karnivalstemmningu
frá kl. 10 til 16.
KARFI í KJÚKLINGAVÉL: Heilfrystur karfi í Granda er
nú flokkaður í tækjum sem upphaflega voru þróuð fyrir
kjúklinga. Þykja vélarnar hin mestu þarfaþing segir í
fréttabréfi Granda. Afli Grandatogara varð 1600 tonnum
meiri í fyrra en árið áður og aflaverðmætin voru nærri níu
hundruð milljónir kr.
LEIÐARINN í DAG
Harkan vex frá hægri heitir leiðari Alþýðublaðsins i
dag. Blaðiðfjallarum hina nýju sál Sjálfstæðisflokks-
ins eftir formannsskiptin. í leiðara blaðsins segir
m.a.: „DV birti í gærfyrstu skoðanakönnun um fylgi
flokkanna eftir að nýr formaður tók við Sjálfstæðis-
flokknum. Flokkurinn hefurfarið niður um 2%. Það
segir sína sögu. Kjósendur fagna ekki nýjum for-
manni. Kjósendur hræðast hina vaxandi hörku frá
hægri." »
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: HARKAN VEX FRÁ HÆGRI.
Samvinna í verki. íslendingar hafa boðið handboltalandsliði Litháa í heimsókn til íslands og leikur liðið hér
tvo leiki, í dag og á morgun. Handboltamennirnir sögðu að þessir leikir þeirra væru ekki bara mikilvægir fyrir
handbolta heldur væru þetta í raun fyrstu landsleikir þeirra og því hefðu þeir táknræna merkingu ekki síður.
Þeir vildu engu spá um úrslitin en sögðu að þeir vissu að íslenska liðið væri mjög gott.