Alþýðublaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991 FRAMSÓKN VINNUR Á NYRÐRA: Skoðanakönn- un Gallups í Sjónvarpinu sagði í gær að ef kosið yrði í dag fengju framsóknarmenn 33,2% atkvæða, en voru með 24,4% í kosningum 1987. Sjálfstæðismenn vinna einnig á, voru með 28% í könnuninni, en 20,9% í kosningunum. Al- þýðuflokkurinn er sem fyrr þriðji stærstur í kjördæminu með 12,5% atkvæða, tapar 1,8%. Alþýðubandalag tapar þó enn meiru, fer úr 13,1% í síðustu kosningum í 10,6%. Kvennalistinn er á svipuðu róli með 6,9%, sem er eilítil aukning. Þjóðarflokkurinn fékk 5,2% í könnun Gallups og Heimastjórnarmenn 2,6%. NJARÐVÍK ÍSLANDSMEISTARI: Maraþonviðureign grannanna á Reykjanesi, Keflvíkinga og Njardvíkinga lauk í „ljónagryfju" Njarðvíkinga t gærkvöldi. Enn einn hörkuleikurinn, og nú höfðu Njarðvíkingar sigurinn, 84:75. FLUGLEIÐIR í STÆRSTA SAMNINGI T0Y0TA: Toyota umboðið hefur gert samning við bílaleigu Flug- leiða, sem felur í sér kaup á bílum fyrir 200 milljónir króna. Fyrstu 33 bílarnir af um 220 hafa þegar verið afhentir, en Flugleiðir ætla sér að hafa um 200 bíla í flota sínum á þessu ári og er það um fjórðungs aukning frá því í fyrra. Bílaleig- an hefur tekið við Hertz umboðinu á íslandi og hefur fjóra afgreiðslustaði í Reykjavík, en rekur útibú á flugvöllunum á Egilsstöðum, í Höfn, í Vestmannaeyjum og á Keflavíkur- flugveli. AUSTFIRSKUR FRAMBOÐSFUNDUR í REYKJAVIK Séra Gunnlaugur Stefánsson í Heydöl- um, efstur á A-listanum á Austfjörðum, heldur framboðs- fund á Gauki á Stöng á sunnudag kl. 15. Séra Gunnlaugur vinnur vel að framboði listans og er talinn í vænlegri stöðu eystra. Hann tekur síðan þátt í flokkakynningu sjónvarps- ins á mánudagskvöldið. DANSKT V0R MEÐ BLÆSTRI: Blásarakvin- tett Reykjavíkur og píanó- leikarinn Peter Westen- holz munu leika á Dönsk- um vordögum í Norræna húsinu á mánudaginn. Á sunnudag verður Peter einn við píanóið og leikur þá meðal annars verk eftir þann ágæta tónsmið, Carl Nielsen. Hljómleikarnir hefjast bæði kvöldin klukk- an 20.30. Klukkan 17.15 á inánudag flytur danski tón- listarmaðurinn og rithöfundurinn Peter Bastian fyrirlest- ur, sem hann kallar „vitsmunir og tónlistargáfá'. LEIDARINN I DAG í fyrri leiðara Alþýðublaðsins er mannúð meirihluta sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi til umræðu. Bæj- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa samþykkt að varpa einhverfum börnum sem dvelja á Sæbraut 2 á dyr. Á sama tíma hreykir Sjálfstæðisflokkurinn sér undir kjörorðum mannúðar. í síðari leiðara blaðsins er Pálma Jónssonar í Hagkaup minnst. SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: FRELSI OG MANNÚÐ Á SELTJARNARNESI og PÁLMI JÓNSSON KVADD- UR. Allir eru að gera'ða gott Fyrirtæki landsins hafa greinilega gert það gott á síð- asta ári, starfsumhverfi þeirra eru gjörbreytt, þökk sé þjóðar- sátt. En nú óttast menn að ávinningnum kunni að verða spillt. mm Frjáls saltfiskur IJón Baldvin Hannibalsson tilkynnti þá ákvörðun sína í gær að sala á söltuðum fiski og fiskafurðum á markaði í Amer- íku verði frjáls. Áratuga einok- un hefur verið aflétt, og er það í takt við tímann. Vigdís bjargaði kvöldinu Norsku blöðin hæla Vigdísi Finnbogadóttur á hvert reipi fýrir sjónvarpsþáttinn um síð- ustu helgi. Hún bjargaði sjón- varpskvöldinu því, segir Ar- beiderbladet. BœjarstjórnSeltjcLrnarness ákveöur Einhverfir burt af Nesinu „Ég stend ekki að því að hverfa tíu til fimmtán ár aftur í tímann í málefnum fatladra þegar stofnana- ■ vist var eina úrrædid en ekki heimiii í eðlilegu um- hverfi,“ sagdi Jóhanna Sig- urðardóttir féiagsmála- ráðherra m.a. í samtali við Aiþýðublaðið vegna sam- þykktar meirihlutastjórn- ar sjálfstæðismanna í bæj- arstjórn Seltjarnarness um að heimili einhverfra á Sæbraut 2 verði flutt í burtu. Meirihluti sjálfstæðis- manna í bæjarstjórn Seltjarn- arness vill heimili einhverfra á Sæbraut 2 í burtu. Bæjar- stjórnin skorar á félagsmála- ráðherra að beita sér fyrir því að finna þessari starfsemi annan samastað. Af bókun bæjarstjórnar má það helst ráða að umhyggja þeirra fyrir því að börnin á Sæbrautinni fái heimili, þar sem betur megi sinna þörf þeirra fyrir útiveru og umhverfi, ráði mestu um þessa samþykkt. Jóhanna segir að stefnan sem mótuð hefur verið í þessu máli myndi bíða mikið skipbrot ef að því yrði gengið að eitt sveitarfélag neitaði því að heimili fatlaðra yrði með eðlilegum hætti í sveitarfé- laginu. Hún segir að verulega hafi verið komið til móts við íbúana og fyrir dyrum standi breytingar í þá veru að heim- ilisfólki verði fækkað úr sex í fjóra og einstaklingar sem betur eru taldir eiga saman verði fluttir á milli heimila. Jóhanna sagði að sér þætti samþykkt bæjarstjórnarinn- ar með ólíkindum og hefði komið sér mjög á óvart. „Fatlaðir eiga rétt á því aö lifa eðlilegu lífi í eðlilegu um- hverfi bæði að því er varðar búsetu og annað. Það hvarfl- ar ekki að mér eitt augnablik að breyta þeirri stefnu. Fatl- aðir eiga sinn rétt í þjóðfélag- inu og þetta eru sjónarmið réttlætis og mannúðar sem þarna er verið að gæta,“ sagði Jóhanna Sigurðardótt- ir. Sigríður Lóa Jónsdóttir for- stöðumaður heimilisins sagði í samtali við Alþýðublaðið að þessi bókun bæjarstjórnar hefði komið þeim mjög á óvart og valdið þeim von- brigðum. En hún hefði verið fegin þegar hún heyrði ákveðni félagsmálaráðherra í málinu og það veitti öllum þeim sem tengdust þessum málum öryggi, ekki síst for- eldrum barnanna sem þarna búa. Samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum sem Alþýðu- blaðið hefur aflað sér snýst málið ekki síst um það að íbú- ar í næsta nágrenni hafa einu sinni eða tvisvar á ári orðið fyrir lítilsháttar óþægindum vegna hrópa og hávaða sem berst frá húsinu. Sömu heim- ildamenn greindu einnig frá því að það væri ófrávíkjanleg regla að börnin færu aldrei út úr húsi án þess að vera í fylgd með starfsfólki.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.