Alþýðublaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 6
6
Föstudagur 12. apríl 1991
Öflugur jafnaöarmannaflokkur veröur aö hafa
úrslitavald um myndun nœstu ríkisstjórnar segir
Jóhanna Siguröardóttir
Öflugur jafnaðar-
mannaflekkur tryggir
mannúðlega stefnu
Á fjölmennum fundi kvenna í
framvarðasveit Alþýðuflokksins
sagöi Jóhanna Sigurðardóttir
m.a. að á síðasta kjörtímabili
hefði orðið rúmiega 100% raun-
aukning á fjármagni sem færi til
félagslegra íbúðabygginga. Jó-
hanna sagði að brýnustu verk-
efnin framundan hjá félagsmála-
ráðuneytinu væri átak í húsnæð-
ismálum aldraðra og fatlaðra.
Jóhanna segist óttast að íhald og
framsókn taki saman höndum
og allir viti hvernig þeir hafi
haldið á stjórnartaumunum, því
þurfi öflugan jafnaðarmanna-
flokk.
Einfalda verður
lífeyrissjóðakerfið__________
Rannveig Guðmundsdóttir al-
þingismaður fjallaði í sinni fram-
sögu nokkuð um þá bakhlið sem
væri á velferðarkerfi okkar. Hún
sagði m.a. að aðeins eitt af hverjum
fimm börnum byggi með kjörfor-
eldrum sínum og að eitt af hverjum
fjórum börnum byggi hjá öðru for-
eldri. Rannveig sagði að röng stefna
í húsnæðismálum hefði haft í för
með sér margvísleg félagsleg
vandamál sem smátt og smátt væru
að koma í Ijós.
Rannveig sagði að forysta Alþýðu-
flokksins í félagsmálum hefði áork-
að feikilega miklu. „Löggjöf um fé-
lagslegar íbúðir hefur afstýrt fjár-
hagskreppu fjölda fjölskyldna og
þar með verið dregið úr þeim
vandamálum sem annars hefðu
komið til.“ Rannveig gerði að sér-
stöku umtalsefni nýjar tillögur Al-
þýðuflokksins í vörnum gegn fíkni-
efnavandanum. í tillögum flokksins
er m.a gert ráð fyrir að fíkniefnalög-
reglan fái fullt sjálfstæöi í störfum
sínum og traustari fjárhag. Rann-
veig sagði að á næsta kjörtímabili
ætlaði Alþýðuflokkurinn að beita
sér fyrir endurskoðun á lífeyris-
sjóðakerfinu m.a. með fækkun líf-
meirí háttar
osm
HLBOÐ
stendur tíl 19. apríl
á 1 kg stykkjum af brauðostinum góða.
Verð áður:
kr.J294/kílóið
Tilboðsverð:
kílóið
200 kr.
afsláttur pr. kg.
’ V 1'lUf /<
Félagsmálaráðherra Johanna Sigurðardóttir ráðfærir sig við Ragnheiði Dav-
iðsdóttur en fjær má sjá þær Valgerði Gunnarsdóttur og Ólínu Þorvarðardótt-
ur.
Baráttuglaðar konur og menn fjólmenntu á fund forystukvenna Alþýðuflokks-
ins og hlustuðu af athygli á málflutning framsögukvenna.
A fundinum var fóik á öllum aldri og svipurinn á þessu fólki bendir til þess aö
þarna hafi framsögumaður verið aö ræða grafalvarlegt mál.
eyrissjóða í huga.
Uppstokkun___________________
launastefnunnar______________
Valgerður Gunnarsdóttir sem
skipar fimmta sætið á lista Alþýðu-
flokksins í Reykjavík koma víða við
í framsögu sinni en gerði að sér-
stöku umtalsefni launa- og skatta-
mál. Valgerður segir það stefnu Al-
þýðuflokksins að hækka skattleysis-
mörk eins fljótt og auðið er í 65 þús-
und. Og stefnt skuli að því að skatt-
leysismörkin verði komin í a.m.k.
75 þús við lok kjörtímabilsins. Val-
gerður segir að mjög brýnt sé orðið
að taka til rækilegrar endurskoðun-
ar launakerfi ríkisstarfsmanna með
það fyrir augum m.a. að einfalda
kerfið. Hún segir að það sé óverj-
andi að stór hluti launa margra op-
inberra starfsmanna sé í formi
margskonar bitlinga og krafan hljóti
að vera sú að fá launin upp á borðið.
Valgerður segir að stefna verði
markvisst að því að 40 stunda
vinnudagur nægi fólki til að afla
eðlilegra tekna og miða verði launa-
umræður út frá dagvinnutekjum og
engu öðru.
Mjúku mólin mól allra
Ragnheiður Davíðsdóttir sem
skipar sjötta sætið á lista Alþýðu-
flokksins í Reykjavík sagði m.a. að
brýnt væri að fólk áttaði sig á því að
hin svokölluðu mjúku mál væru
hagsmunamál allra, ekki bara
kvenna.
Ragnheiður spurði hvort það væri
einkamál kvenna að vilja samfelld-
an skóladag og dagvistarrými fyrir
öll börn. Eða hvort það væri einka-
mál kvenna að vilja bæta kjör og að-
búnað aldraðra og öryrkja. Eða
hvort það væri einkamál kvenna að
vilja jafna tekjuskiptingu milli karla
og kvenna. I lok framsögu sinnar
sagði Ragnheiður: „Við skulum vera
minnug þess að undirstaða ham-
ingju og velferðar er heilbrigt og
eðlilegt fjölskyldulíf. Og í flestum
fjölskyldum eru bæði karlar og kon-
ur. Þess vegna eru mjúku málin ekki
einkamál kvenna. Þau eru einfald-
lega jafnaðarstefnan í hnotskurn
sem endurspeglast best í orðunum
— frelsi — jafnrétti og bræðralag."
Öflugur_____________________
jafnaðqrmqnnqflokkur
forsenda mannúðar___________
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra sem skipar annað
sætið á lista Alþýðuflokksins í
Reykjavík rakti í fáum orðum árang-
ur af starfi Alþýðuflokks í síöustu
ríkisstjórn. Jóhanna sagði að raun-
aukning á fjármagni til félagslegra
íbúðabygginga á þessu kjörtímabili
næmi tæpum 100%. Ein af hverjum
þrem félagslegum íbúðum sem nú
eru til í landinu hafa verið byggðar
á síðasta kjörtímabili. Jóhanna
sagði að það væri mikilvægt rétt-
indamál að koma til móts við hús-
byggjendur á allan tiltækan hátt því
margir hefðu ekki kost á að koma
þaki yfir höfuðið nema í gegnum fé-
lagslega kerfið.
Jóhanna sagði að manneskjulegt
húsnæðiskerfi væri forsenda eðli-
legs og heilbrigðs fjölskyldulífs og
rót margvíslegra vandamála mætti
rekja til mála sem tengdust erfið-
leikum við að koma sé upp hús-
næði. Jóhanna sagði að eitt stærsta
viðfangsefni félagsmálaráðuneytis-
ins á næsta kjörtímabili væri að
halda áfram þeirri uppbyggingu
sem orðið hefur í félagslega íbúða-
kerfinu.
Auk þess yrði að gera átak í hús-
næðismálum aldraðra og fatlaðra
samkvæmt framkvæmdaáætlunum
sem lægju fyrir um það efni. Hún
sagði að Alþýðuflokkurinn legði
mikla áherslu á að koma á húsa-
leigubótum og flytja þjónustu Hús-
næðisstofnunar út á landsbyggðina.
Jóhanna sagði að verkefni nýrrar
ríkisstjórnar væri að jafna eigna- og
tekjuskiptinguna í landinu m.a. með
hækkun skattfrelsismarka og að
jafna aðstöðuna á milli höfuðborg-
arbúa og landsbyggðarinnar. Tillög-
ur Alþýðuflokksins í skattamálum
eru raunhæfar en aðrir flokkar eru
með yfirboð sem aldrei munu stand-
ast sagði Jóhanna.