Alþýðublaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 8
8
Föstudagur 12. apríl 1991
VBEBIIM
ALISTINN
Hverrtig framtíð? Hvernig atvinnustefnu? Hvefnig landbúnað?
Hvernig sjávarútveg? Hvernig lífskjör?
Hvernig skattheimtu? Hvernig
Hvernig ríkisstjórn?
-ísland í Aflokk!
15.APRÍL
í framhaldi af kaupum Landsbankans á Samvinnu-
bankanum hefur útibúi Samvinnubankans við
Tryggvatorg verið breytt í Landsbankaafgreiðslu
sem mun opna formlega þann 15. apríl.
Landsbankinn býður viðskiptavini velkomna og
óskar starfsfólki velfamaðar undir nýju merki.
Afgreiðslutími afgreiðslunnar við Tryggvatorg er
alla virka daga frá kl. 9:15 -16:00. Síminn er
98-22177.
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna
Vatnsútflutningur í samstarfi viö
dótturfyrirtœki Carlsberg
„Kaldár
spring
water##
Fyrirtækið Vatnar er nú við
þröskuldinn að hefja útflutning
á fersku vatni. Er það framhaid
af verkefni sem unnið hefur ver-
ið aö í Grænlandi í nokkur ár
ineð stuðningi á vegum Vest-nor-
ræna samstarfsins. Þar sem um
viðamikið verkefni var að ræða
á Grænlandi sem byggðist á að
bræða ís til framleiðslu neyslu-
vatns reyndist hagkvæmara að
nýta íslenskt ferskvatn í þeim til-
gangi.
Að sögn eins talsmanns fyrirtæk-
isins, Erlings Þorsteinsonar, er fyrir-
tækið með samstarfsaðila bæði
hvað varðar tæknihlið málsins og
markaðshliðina. Orana AS-Rynke-
by, dótturfyrirtæki Carlsberg Inter-
national, hefur verið tæknilegur
ráðgjafi fyrirtækisins frá upphafi og
hafa þeir að hluta til með markaðs-
færslu vatnsins erlendis að gera.
Auk þess sagði Erlingur að Vatnar
væri í sambandi við markaðsfyrir-
tæki í Houston í Bandaríkjunum og
þegar hefðu borist frá þeim svo
miklar pantanir að ekki hefur verið
hægt að sinna þeim vegna þess hve
vanþróaður íslenskur vatnsiðnaður
væri enn sem komið er. „Við höfum
þegar leitað til þeirra aðila sem þeg-
ar hafa hafið vatnsútflutning hér á
landi en þeir hafa ekki getað full-
nægt þörfum þessa markaðar,
hvorki hvað magn eða verð snerti,"
sagði Erlingur
„Við höfum þegar fengið mjög
ákveðið vilyrði fyrir vatnstöku í
Kaldárbotnum í Hafnarfirði sem fyr-
irhugað er að selja undir vörumerk-
inu „Kaldár spring water“. Sam-
kvæmt okkar athugunum er í Kald-
árbotnum besta vatn sem hægt er
að fá hér á íslandi. Ætlunin er að
koma upp átöppunarverksmiðju í
Hvaleyrarhúsinu sem er í eigu Hag-
virkis, þar sem áður var Bæjarút-
gerð Hafnarfjarðar," sagði Erlingur
Þorsteinsson einnig.
í byrjun er miðað við að vatninu
verði pakkað í 10—20 lítra umbúðir
en stefnt verður að því að pakka
vatninu í neytendaumbúðir í fram-
haldi af því. Erlingur segir að síðar
sé fyrirhugað að reisa stóra vatns-
verksmiðju sem getur mætt kröfum
sívaxandi ferskvatnsmarkaðar víða
um heim, jafnt hvað varðar magn,
verð og gæði. Greinilegt er að vatns-
útflutningur sem atvinnugrein á ís-
landi á mikla framtíðarmöguleika.
Vigdis Finnbogadóttir forseti og Erik Bye.
Bjargaði sjón-
varpskvöldinu
— segir Arbeiderbladet um sjónvarpsþátt meö Vigdísi
Þáttur norska sjónvarpsins
„Gjestebud for Vigdis“ fékk
mjög góða dóma í Arbeiderbla-
det. Segir þar ad Vigdís Finn-
bogadóttir forseti og listavinir
hennar hafi bjargað sjónvarps-
kvöldinu. Sjónvarpið hér hefur
nú fengið þáttinn til skoöunar og
verdur brátt ljóst hvort hann
verður sýndur hér eda ekki.
Það var hinn kunni norski sjón-
varpsmaður Erik Bye sem bauð frú
Vigdísi Finnbogadóttur forseta ís-
lands að vera heiðursgestur í sjón-
varpsþætti sínum laugardagskvöld-
ið 6. apríl. Haft er eftir honum i
norskum blöðum að hann hafi lengi
langað til að gera sjónvarpsþátt
með forsetana. Vigdís sé ....en
knakende kjekk jente ...“ og hann
hafi orðið mjög ánægður er hún
þekktist boðið. Einnig hafi íslenskir
listamenn þekkst boð um að koma
þar fram. Þátturinn stóð í klukku-
tíma og 15 mínútur.
í sjónvarpsumfjöllun í Arbeider-
bladet segir Turid Larsen meðal
annars að Vigdís Finnbogadóttir
forseti og listavinir hennar hafi
bjargað sjónvarpskvöldinu. Viðtal
við forseta hafi verið á huggulegum
nótum en þó hafi verið broddur í
orðum Vigdísar forseta er hún
minntist á umfjöllun fjölmiðla um
Persaflóastríðið. Meðal annarra sem
fram komu í þættinum var Ase Kle-
veland menntamálaráðherra Nor-
egs sem er þekkt vísnasöngkona.