Alþýðublaðið - 12.04.1991, Side 9
Föstudagur 12. apríl 1991
9
Rannsóknir á hörpudiski og veidarfœrum í Arnarfirdi
Fundu nýtt svæði
- plógurinn betri
Við stofnmælingar á hörpu-
diskamiðum í Arnarfirdi fundu
starfsmenn Hafrannsóknastofn-
unar nýtt svædi þar sem talsvert
var af hörpudiski. Einnig var
könnuð veiðihæfni á plógi sem
tekinn hefur verið notkun og
bendir allt til þess að hann sé
veiðnari en menn áöur héldu.
„Þetta var hefðbundin stofnmæl-
ing á skel eða hörpudiski í Arnar-
firði. i öðru lagi vorum við að afla
nánari upplýsinga um veiðihæfni
veiðarfærisins, bæði með þvi að
taka myndir neðansjávar og eins
með því að sleppa merktum skelj-
um fyrir framan plógopið og athuga
hvaða hlutfall skilar sér,“ sagði
Hrafnkell Eiríksson fiskifræðingur í
samtali við Alþýðublaðið.
400 tonna kvóta af hörpudiski
hefur verið úthlutað í Arnarfirði í ár.
Þegar mest var veitt þar árin
1982—186 var árlega veitt yfir 600
tonn og allt upp i 850 tonn. Talið er
að það hafi verið meiri veiði en
stofninn þoldi. Lögðust veiðar alveg
af árin 1988 og 89 enda voru mark-
aðir fyrir hörpudisk þá lélegir.
Hrafnkell kvaðst ekki geta sagt til
um hvort rannsóknir þeirra nú í
Ál-
samn-
ingar
♦
a
öruggri
leið
Samkomulag hefur náðst um
orðalag flestra greina í aðal-
samningi um byggingu og rekst-
ur álvers á Keilisnesi. Stefnt er
að því að í maí verði gengið end-
anlega frá samningum. Þá geta
þeir sem standa að Atlantsáls-
fyrirtækjunum hafið lokavið-
ræður um fjármögnun fram-
kvæmdanna.
Samninganefnd Islendinga og
sérfræðingar hennar áttu i síðustu
viku fund með fulltrúum Atlantsáls-
hópsins. Jón Sigurðsson iðnaðar-
ráðherra sagði í samtali við Alþýðu-
blaðið að hann væri ánægður með
þann árangur sem náðst hefði í
þessum samningum.
„Þarna var lokið ýmsu því sem
hefur lengi vafist fyrir mönnum um
form aðalsamningsins og núna er
brautin lögð fyrir lokaáfangann í
málinu. Óhætt er að segja að málið
er núna á öruggri leið.“
Jón Sigurðsson sagði að fyrirtæk-
in hefðu nú þegar hafið undirbún-
ingsviðræður við lánastofnanir,
fyrst og fremst í Evrópu. Um þessar
mundir er ástandið á evrópskum
fjármálamörkuðum miklu betra en
var í upphafi ársins og því væri
ástæða til bjartsýni hvað varðaði
fjármögnun, sagði iðnaðarráð-
herra.
Um það hvenær framkvæmdir
kynnu að hefjast sagði ráðherrann
að hann vonaðist til þess að málið
yrði komið svo vel áleiðis að hægt
yrði að fara af stað með virkjunar-
framkvæmdir með haustinu.
Arnarfirði myndu leiða til aukinnar
kvótaúthlutunar á næstu árum.
Hrafnkell sagði að ekki hefði ver-
ið hægt að gera nógu góðar veiðar-
færaprófanir á plógnum sem notað-
ur var, menn hefðu verið að byggja
á niðurstöðum frá öðrum plóg. „Við
vissum að þessi plógur sem við vor-
um með er veiðnari en hinn en nú
bendir ýmisiegt til að hann sé jafn-
vel ennþá veiðnari en við héldum.
Það er þó erfitt að fullyrða það á
3
o
I
Hf
þessu stigi málsins," sagði Hrafnkell
Eiríksson ennfremur.
Þá kom fram hjá Hrafnkatli að
áhugi fyrir hörpudiskaveiðum hefði
aukist með nýjum mörkuðum í
Frakklandi. Áður hefðu markaðir
nær eingöngu verið í Bandaríkjun-
um. Um það svæði sem fannst og
ekki hefur verið nýtt hingað til sagði
Hrafnkell að það væri ekki mjög
stór partur af firðinum og skipti eng-
um sköpum um veiðarnar.
Flol
iK;
- *
tarfið
Jaf naðarmenn í Haf narfirði
Fundur í bæjarmálaráði Alþýðuflokksins í Hafnar-
firði mánudag 15. apríl kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu.
Efni fundarins:
Málefni ferðamálanefndar, Bláfjallanefndar og
Reykjanessfólksvangs.
Mætið vel.
Alþýðuflokkurinn.
Maðurinn, sem
Davíð þorir
ekki að mæta
Jón Baldvin
Hannibalsson
á Akureyri
á almennum stjórnmálafundi í
Alþýðuhúsinu, föstudaginn 12. apríl
kl. 20.30.
Umræðuefni:
Kjörseðillinn, skattseðillinn,
launaseðillinn, auði seðill
fhaldsins og týndu
minnisseðlarnir hans
Steingríms.
Ávörp flytja tveir efstu menn á A-lista f
Norðurlandskjördæmi eystra, Sigbjörn
Gunnarsson og Sigurður Arnórsson.
ALÞÝÐUFLOKKURINN
Sigbjörn Gunnarsson
Sigurður Arnórsson