Alþýðublaðið - 16.05.1991, Síða 2
2
UFRÉTTA SK ÝRING
Fimmtudagur 16. maí 1991
Ný stjórn hjá
Alþýðusambandi
Suðurlands
A 11. þingi Alþýðusambands
Suðurlands sem haldið var á Sel-
fossi 4.-5. maí sl. var kjörin ný
stjórn. Formaður var kjörin Han-
sína Á. Stefánsdúllir, varafor-
maður Eiríkur Runólfsson,
gjaldkeri Hafsteinn Stefánsson
og meðstjórnendur Dorothy
Senior, fíált Jónsson, Gudrún
Daníelsdóttir og Gudrún Har-
aldsdóttir
Margbrotnir
tónleikar
Skemmtistaðurinn Tveir vinir og
annar í fríi hefur á síðustu mán-
uðum staðið fyrir margskonar
skemmtunum og tónlistaruppá-
komum. í kvöld verða haldnir
stórtónleikar þar sem fram kem-
ur m.a. INFERNO 5 hljómsveitin,
sem hefur vakið mikla athygli
fyrir líflega sviðsframkomu og
margslungna hljómleika. Ýmsir
fleiri listamenn heiðra samkom-
una með nærveru sinni og hugs-
anlega óvæntum uppákomum
og má þar m.a. nefna skáldið
Sjón.
Sænskur kórsöngur
Blandaður kór frá Stokkhólmi er
væntanlegur í heimsókn hingað
til lands um helgina. Kórinn
heldur hér þrenna tónleika í
Norrœna húsinu laugardaginn
18. maí kl. 18, í Fellaog Hóla-
kirkju sunnudaginn 19. maí kl.
17 og síðan í Hveragerdiskirkju
mánúdaginn 20. maí kl. 20.30.
Þótt höfuðverkefni kórsins sé að
syngja við guðsþjónustur hefur
hann bæði kirkjutónlist og tón-
list við veraldlega texta á efnis-
skrá.
Stjórnandi kórsins er Inger Nor-
debo.
Málvísindarit
Málvísindastofnun Háskóla ís-
lands hefur nýverið gefið út ritið
Papers from the Twelfth Scand-
inavian Conference of Linguist-
ics. Þá hefur stofnunin einnig ný-
lega gefið út ritið Beygingartákn
íslenskra orda, Nafnord, eftir
Helga Haraldsson dósent. í fyrra
ritinu eru birtir fyrirlestrar sem
fluttir voru á ráðstefnu um mál-
vísindi sem stofnunin stóð fyrir
fyrr á þessu ári. í seinna ritinu
setur höfundur fram kenningar
sínar um r.ýjar leiðir til að spara
pláss í orðabókum með því að
nota ýmis tákn í stað flókinna út-
skýringa með orðum.
Fræðslunámskeið
Ftauða krossins
Rauði kross íslands stendur jafn-
an fyrir margvislegum fræðslu-
námskeiðum fyrir almenning.
Fræðslufulltrúi Rauða krossins
er Sigrún Arnadóttir. Hún segir
að margan lærdóm megi draga
af starfi við fólk sem kemur frá
öðrum menningarsvæðum. Á
síðustu misserum hafa t.d. verið
haldin nokkur námskeið fyrir
innflytjendur. Þar kom m.a. fram
að ýmsir siðir Víetnama hvað
reykingar áhrærir eru ólíkir því
sem hér gerist. Hjá þeim reykja
karlmennirnir en konur alls
ekki.
Þingið hefur á mörgum sviðum starfað á hefðinni. Nú er hún lögfest í þingsköp, og ýmis ákvæði sem íslendingar tóku í nýlenduarf falla brott. Á myndinni
sjást þrír þingmanna okkar á „alþingi götunnar", við Landsbankahornið, þar sem þeir ræða vandamálin. A-mynd: E.ÓI.
Alþingi fjallar um breytingar á þingsköpum og stjórnarskrá
lögfest
Hefðin
Meginmál vorþings eru að fjalla nm breytingar á stjórnarskrá og
þingsköpum. í kjölfar þess að Alþingi mnn framvegis starfa í einni
málstofa breytist vinnutilhögun í þinginu. Búast má við því að fleiri
mál verði afgreidd og færri „sofni“ á leið sinni í gegnum tvær mál-
stofur hið minnsta — eins og gamla skipanin bauð upp á. Enn heyr-
ast þær raddir sem óttast að mál fari á of mikilli hraðferð um þing-
sali og illa unnin og ótímabær frnmvörp kunni að verða að lögum.
ÞORLÁKUR HELGASON SKRIFAR
I gær mæltu þau Margrét Frí-
mannsdóttir og Páll Pétursson fyr-
ir frumvörpum sem annars vegar
gera ráð fyrir breytingu á stjórn-
skipunarlögum og bins vegar á
þingsköpum.
Forsætisnefnd yfir ■ einni deild.
Þingflokkar skilgreindir
Framvegis starfar Alþingi í einni
málstofu. Efri og neðri deild og
sameinað þing heyra því sögunni
til, þegar breytingin verður um
garð genginn. Stjórn þingsins
verður önnur. Aðalforseti fer með
æðstu stjórn þingsins. Hann ásamt
fjórum varaforsetum mynda for-
sætisnefnd þingsins. Hún á að
gera starfsáætlun fyrir fram fyrir
hvert þing og skipuleggja störf
þingsins nánar í samráði við for-
menn þingflokka. Aðalforseta er
ætlað að bera undir forsætisnefnd-
ina málefni stofnana sem heyra
undir Alþingi, alþjóðasamstarf
sem Alþingi á þátt í og um ráðn-
ingar t.d. ríkisendurskoðanda.
Þingflokkar eru ekki eftirleiðis
hvað sem er. Tveir þingmenn
þurfa hið minnsta að vera undir
sama merki svo að kallast megi
þingflokkur. Framvegis er bundið í
þingsköpum að forseti hafi form-
legt samband við formenn þing-
flokka, en það hefur verið venja
að forsetar hafi rætt málin við
þingflokksformenn.
Umhverfisnefnd ný af nálinni.
Nefndum fækkar
Fastanefndum þings fækkar úr
23 í 12. Nefndarmenn verða níu í
staö sjö áöur. Fjárveitinganefnd
fær virðulegra nafn og heitir fjár-
Iaganefnd, líklega í samræmi við
heilbrigðari starfsemi. Fjárhags-
og viðskiptanefnd breytir um for-
lið og kallast efnahags- og við-
skiptanefnd.
Fjárlaganefnd vísar málum til
nefnda og aðrar fastanefndir
munu t.d. taka að sér viðtöl sem
áður hafa verið á hendi fjárveit-
inganefndar. Þá geta fastanefndir
skilað fjárlaganefnd áliti við fyrstu
umræðu. Kveðið er skýrt á um
störf í nefndum, hvenær fundur er
ályktunarbær og að nefnd geti
kallað til sín sérfræðinga. Þá er
það þingflokkur en ekki einstakir
þingmenn sem ákveður manna-
skipti í nefndum. Er það talið
nauðsynlegt t.d. þegar þingflokk-
ur klofnar eða hættir stuðningi við
ríkisstjórn.
Ræðumanni svarað strax_________
Nýmæli er, að ræða getur kallað
á andsvar strax. Er það gert til að
lífga upp á. Nú geta liðið klukku-
stundir þar til þingmaður getur
komið andsvörum að við ræðum
annarra. Orðaskipti í andsvörum
mega mest taka 15 mínútur.
Ræðutími verður takmarkaður,
t.d. verður ótakmarkaður ræðu-
tími ráðherra einungis bundinn
við þann ráðherra sem flytur mál
eða ber ábyrgð á því máli sem er
til umfjöllunar.
Rafeindabúnaður við
atkvæðagreiðslu.
Málum vísað oftar í nefndir
Skylt verður að vísa máli til
nefndar við aðra umræðu hafi
málið breyst á annan hátt en
nefndin lagði til. Breytingartillög-
ur geta nú komið fram á ýmsum
tímum, m.a. við 3. umræðu og
fresta má umræðu á hvaða stigi
sem er.
Handauppréttingar verða vænt-
anlega úr sögunni. Rafeindakerfi
verður tengt við hvern og einn, og
greidd verða atkvæði með því að
styðja á hnapp. Ekki verður skylt
að segja frá hvernig hver einstak-
ur ráðstafaði atkvæði sínu. Nánar
er kveðið á um ályktunarbæran
fund. 33 þingmenn þurfa að vera á
fundi, og allir eru taldir taka þátt í
atkvæðagreiðslu. Líka þeir sem
ekki styðja á atkvæðahnappinn.
Áður misstu þingmenn þingfar-
arkaup sitt ef þeir greiddu ekki at-
kvæði. Um langa hríð hafa þing-
menn „setið hjá“ við atkvæða-
greiðslu. Nú er það staðfestur
skilningur á þátttöku að sitja hjá.
Það gera menn framvegis með því
að ýta ekki á rafeindahnappinn.
Svar við fyrirspurn
er ekki skýrsla________________
Skrifleg svör við fyrirspurnum
verður að vera hægt að lesa á
fimm til tíu mínútum. Annars kall-
ast það skýrsla. Ef um skýrslu er
að ræða geta þingmenn farið fram
á umræðu í þinginu, en ekki við
skriflegu svari. Þá er nýmæli að
bera má fram munnlega fyrir-
spurn til ráðherra án sérstaks fyr-
irvara, en sú umræða er takmörk-
uð við hálftíma.
Alþjóðanefndum verður skylt
að gera þinginu grein fyrir störf-
um sínum árlega. Þingið getur
ályktað um skýrslu með dagskrár-
tillögu.
Fullt nafn en ekki
endilega kjördæmi.
Aldnrsforseti hefnr
lengstan starfsaldnr
Viðvistarskylda verður ekki í
fyrirspurnartímum. Ræðumaður
þarf ekki að segja úr hvaða kjör-
dæmi sá þingmaður er sem nefnd-
ur er, en nefna verður hann fullu
nafni.
Aldursforseti verður sá sem hef-
ur lengstan starfsaldur á þingi en
ekki endilega sá sem er elstur
samkvæmt almanakinu. Ákvæðið
um að elsta mann sem aldursfor-
seta er úr dönskum lögum, en
Danir breyttu þessu ákvæði sjálfir
fyrir 38 árum. Framvegis er því
útilokað að nýliði geti orðið ,,ald-
ursforseti."
Annað ákvæði frá Dönum fellur
nú brott. Kjörbréfanefnd sem á að
fjalla um kjörgengi þingmanna
verður kosin á þingsetningar-
fundi. Núverandi ákvæði um rann-
sókn kjörbréfa á þingsetningar-
fundi er frá Dönum komið, en þeir
afnámu það 1920. Nú fetum við
enn í þeirra fótspor.
Skrifarar verða úr sögunni og
starfsmenn skrifstoíu Alþingis
taka við þeirra störfum. Er það í
samræmi við starfshætti þinga í
nálægum löndum, eins og fleiri
breytingar sem nú eiga sér stað á
þingsköpum. Verið er að færa
vinnubrögð á elstu löggjafarsam-
komu heims til nútímalegri hátta.
Stjórnarskrárbreytíngar
Á síðasta þingi var frumvarp um
stjórnarskrárbreytingar sam-
þykkt. Nú kemur það frumvarp
aftur fyrir Alþingi, þar sem tvö
þing þurfa að samþykkja stjórnar-
skrárbreytingar og kosningar að
fara fram í milli.
í frumvarpinu er helsta breyt-
ingin að þingið starfi í einni mál-
stofu. Þá er kveðið á um að þing
verði kallað saman eigi síðar en
tíu vikum eftir almennar kosning-
ar og ekki síðar en 45 dögum eftir
að þingrof var tilkynnt. Þá halda
alþingismenn umboði sínu til kjör-
dags, en eins og kunnugt er spratt
nokkur umræða um það í vor
hvort þingmenn hefðu fullt um-
boð, liðu meira en fjögur ár milli
kosninga. Þá má nefna að bráða-
birgðalög falla sjálfkrafa úr gildi
hafi Alþingi ekki loki'ð afgreiðslu
þeirra innan sex vikna frá því að
þing kom saman.