Alþýðublaðið - 16.05.1991, Qupperneq 6
6
Fimmtudagur 16. maí 1991
„Þetta mál hef ur ekki komið til
umræöu, en mér sýnist full
ástæða til að kanna þessar send-
ingar Stððvar 2 á efni CNN ef þar
er að finna áfengisauglýsingar.
Slíkar auglýsingar eru fortaks-
Iaust bannaðar í innlendum fjöl-
miðlum sem og tóbaksauglýs-
ingar,“ sagði Ingimar Sigurðs-
son lögfræðingur í heilbrigðis-
ráðuneytinu í samtali við AI-
þýðublaðið.
Norska útvarpsstjórnin ákvað í
gær að banna útsendingar CNN
sjónvarpsstöðvarinnar um kapal-
kerfi í Noregi frá 1. ágúst. Ástæðan
er sú að áfengi er auglýst í CNN, en
eins og hér á landi eru áfengisaug-
lýsingar bannaðar í Noregi. Bannið
nær til um 50 þúsund áskrifenda
CNN um kapalkerfi í Noregi, en ékki
er hægt að amast við þeim sem ná
stöðinni um gervihnattadiska. j Út-
yarpsyfirvöld höfðu beðið CNN um
að sía út vinauglýsingar en því var
neitað. Önnur erlend sjónvarpsstöð
féllst hins 'vegar á að sía út slfkar
auglýsingar að kröfu Norðmanna.
I Úngimar Einarsson sagði að ekki
væri hægt að banlna móttöku sjón-
varpsefnis erlendis frá um gervi-
hnattadiska jafnvel þótt þar birtust
, áfengisauglýsingar. Öðru máli
, gengdi hins vegar þegar innlendur
aðili dreifði slíku efni, eins og Stöð 2
í þessu tilviki. Því þyrfti að taka
þetta mál upp.
Stöð 2 hóf að endurvarpa send-
ingum CNN í janúar í þann mund að
Persaflóastríðið hófst. Sendingarnar
eru enn við lýði og eru á dagskrá
þann tíma sem Stöð 2 sendir ekki út
sína dagskrá. Auglýsingar birtast í
dagskrá CNN til áskrifenda Stöðvar
2 og eru vínauglýsingar þar á með-
al.^
Ólafur Haukur Árnason áfengis-
varnaráðunautur tjáði blaðinu að
kvartanir hefðu borist yfir þessum
áfengisauglýsingum.
Sigurros Sveinsdóttir
Hafnarfirði lótin
Sigurrós Sveinsdóttir, fyrr-
um formaður Verkakvennafé-
lagsins Framtíðarinnar í Hafn-
arfirði, lést sl. mánudag á Sól-
vangi á 94. aldursári.
Sigurrós fluttist barn að aldri til
Hafnarfjarðar. Hún átti sæti í
fyrstu stjórn Verkakvennafélags-
ins Pramtíðarinnar í Hafnarfirði
og var formaður félagsins samtals
í hátt í fjóra áratugi. Hún var fyrsti
formaður Kvenfélags Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði árið 1937.
Sigurrós hefur gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir Aljíýðuflokkinn
og verkalýðshreyfinguna í gegn-
um tíðina. Hún sat um árabil í mið-
stjórn Alþýðuflokksins og í stjórn
Alþýðusambands íslands. Um átta
ára skeið var hún varabæjarfull-
trúi í Hafnarfirði.
Sigurrós verður jarðsett frá
Hafnarfjarðarkirkju nk. miðviku-
dag kl. 13.30.
Dan Quayle betri en enginn í Hvíta húsinu
Djarfur og
úrræðagóður
— segja nýjustu fréttir
Bandarískir repúblikanar
standa nú frammi fýrir þeim
vanda að hefja leit að nýju for-
setaefni fyrir næstu kosningar.
Vandamálið er ekki síst maðurinn
sem nú situr í stól varaforseta. Vara-
forsetinn, Dan Quayle, hefur unnið
sér traust og virðingu innan Hvíta
hússins. hann er sagður hafa veitt
forsetanum mikinn stuðning á með-
an stríðið við Irak geisaði. Þá er
hann sagður hafa verið úrræðagóð-
ur og djarfur á erfiðum augnablik-
um.
En Quayle nýtur ekki mikils áiits
eða trausts hjá almenningi. Honum
var mjög úthúðað í forsetakosning-
unum vegna þess að hann þjónaði
ekki í Víetnam á sínum tíma. Heilsu
George Bush hefur hrakað upp á
síðkastið og beinist athyglin því
meira en áður að varaforsetanum.
Sagt er að repúblikanar verði að
gæta að því að velja varaforseta sem
fólk geti hugsað sér sem forseta, en
sú sé ekki raunin með Dan Quayle.
Vonast eftir v
snjóléttu sumri
-segir Magnús Jónsson veöurfrœðingur sem engu vill spá um veður sumarsins,
en segir vorrigningar samkvœmt venju.
Miklar rigningar á síðustu
dögum hafa valdið sumum leið-
indum en glatt aðra. Þeir sem
sitja sveittir yfir próflestri telja
sér jafnan trú um að maí sé sól-
ríkasti mánuður ársins og aó
varla falli dropi af himni þennan
ágæta mánuð.
I stuttu spjalli við Aiþýðublaðið
sagði Magnús Jónsson veðurfræð-
ingur að ekkert væri óvenjulegt við
rigningarnar sem verið hefðu síð-
ustu mánuðina. Magnús sagði að
maímánuðir að undanförnu hefðu
að vísu verið nokkuð öðruvísi en
maímánuðir á árum áður. Á tímabil-
inu frá 1930—1960 hefði maí jafnan
verið þurrasti mánuður ársins en
mörg undanfarinn ár hefði hann
verið nokkuð vætusarnur.
Magnús sagðist engu vilja spá um
sumarið, sagðist þó vonast til að það
yrði a.m.k. snjólétt. Magnús sagði
að skilyrðin í hafinu við landið gæfu
ekki tilefni til annars en bjartsýni.
Hafið væri yfir meðaltali í hita og
það mætti túlka á þann veg að líkur
á hlýju sumri væru ekki slæmar.
Um helgina er gert ráð fyrir svip-
uðu veðri og verið hefur síðustu
daga. Ríkjandi verða suðvestlægar
áttir, sem þýðir úrkomu á Suður- og
Vesturlandi, en þurrt norðanlands
og austan.
Líflegur
fundur
Reykjavíkur-
krata
í síðustu viku hélt Alþýðuflokkur-
inn í Reykjavík fund í Holiday-Inn
þar sem rætt var um stjórnarsam-
starfið við Sjálfstæðisflokkinn. Var
fjölmennt á fundinum og umræður
mjög líflegar. Skoðanir voru nokkuð
skiptar um ágæti þess að ganga til
stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðis-
flokkinn. Frummælandi á fundinum
var Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins og utanrík-
isráðherra. A-mynd: GTK.