Alþýðublaðið - 09.07.1991, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 09.07.1991, Blaðsíða 2
2 Þriðjudaqur 9. júlf 1991 HmilBÍÍBÍ!) HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566 Útgefandi: Blað hf. Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson (í starfsleyfi) Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Dreifingarstjóri: Sigurður Jónsson Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Oddi hf. Eftir lokun skiptiborðs: Ritstjórn: 625538 Dreifing: 625539 Tæknideild: 620055 Fax: 627019 N eytendaf rædsla brýnt viöfangsefni Neytendamál og neytendaréttur hvers konar verður sífellt meira áberandi í umræðum manna á milli. Neytendamál eru víða orðin að sér- stöku námsefni í skólum og fólk er að verða meðvitaðra um að neyt- endafræðsla gerir einstaklinginn færari um að takast á við hið marg- slungna neyslusamfélag. Ekki síst vegna hinnar hröðu þróunar sem átt hefur sér stað í þjóðfé- laginu á síðustu árum, m.a. með breyttum lifnaðarháttum, aukinni fjöl- miðlun og markvissum auglýsingaáróðri, er nauðsynlegt að efla neyt- endafræðslu. Efling neytendafræðslu getur orðið þýðingarmikið skref í þá átt að tengja skólana betur við þjóðfélagið og daglegt líf nemenda. Varlega áætlað er talið að bein neysla íslenskra unglinga sé á biiinu 5—10 millj- arðar króna á ári. í niðurstöðum nefndar, sem kannað hefur stöðu þessara mála hér á landi, er m.a. bent á að kennarar og skólastjórnendur eru almennt já- kvæðir gagnvart því að auka vægi neytendafræðslunnar. Þá er það mat nef ndarinnar að ekki þurfi að koma til formleg breyting á aðalnámsskrá grunnskólans til að koma slíkri fræðslu inn í skólastarfið. Það mun vera álit flestra sem til þessara mála þekkja að gera beri neytendafræðslu að hluta hverrar námsgreinar í stað sjálfstæðrar kennslugreinar. Neytendamál og umhverfisvernd eru í eðli sínu náskyldir hlutir. Þess- ir málaflokkar krefjast sífelldrar endurskoðunar og nýrra rannsókna. Þetta eru málaflokkar sem hafa víðtæk áhrif á allt daglegt líf fólks og þetta eru mál framtíðarinnar. Afskiptaleysi og áhugaleysi hafa einkennt nokkuð umfjöllun um þessi mál. Á því er vonandi að verða bót. í þess- um málaflokkum verður að gera þá kröfu til stjórnvalda að þau horfi fram á veginn, en ekki sé einungis gripið til skyndiráðstafana til að bjarga sér út úr bráðavanda. Neytendamál og EES Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir í viðtali við Neyt- endablaðið að náist samningar um evrópskt efnahagssvæði geti það orðið íslenskum neytendum til verulegra hagsbóta. Þá fullyrðir ráð- herrann jafnframt að aðlögun okkar að Evrópu muni leiða til lægra vöruverðs hér á landi án þess að nokkuð verði slakað á kröfum um holl- ustu og öryggi. Og síðast og ekki síst er það álit ráðherrans að samning- urinn, verði hann að veruleika, muni þrýsta mjög á yfirvöld um að gefa neytendamálum meiri gaum en áður. Neytendamál hafa ekki verið fyrirferðarmikil í umræðum á Alþingi á liðnum árum. Viðskiptaráðherra segist hafa nokkur slík mál í undir- búningi um þessar mundir og búast megi við að neytendamál margs- konar verði áberandi á næstu misserum. Hversu vel sem stjórnvöld kunna að standa að þessum málum er ábyrgð hvers og eins mikilvæg. Því ber að fagna öflugu starfi Neytenda- samtakanna og annarra sem láta sig þessi mál varða. En aðeins með vakandi áhuga og árvekni almennings getum við vænst þess að ná ár- angri í neytendavernd og neytendarétti almennt. Og til að gera almenn- ingi fært að fylgjast með þróun þessara mála þarf að sinna stöðugu upp- lýsingastarfi. — BEH Lokað vegna jarðarfarar Afgreiösla, skrifstofur og ritstjórnir Alþýðublaðsins og Pressunnar verða lokaðar kl. 10—13 í dag vegna útfarar Þóru Sveinsdóttur. Blað hf. Skrifstofa Alþýðuflokksins verðurlokuðfrá kl. 10—13 í dag, þriðjudaginn 9. júlí, vegna jarðarfarar Þóru Sveinsdóttur. Skrifstofa Alþýðuflokksins. MINNING Þóra SveinsdóÉtir I ædd 20. apríl 1052 - Látin 2. jálí 1001 Þóra Sveinsdóttir, samstarfsmað- ur okkar á Blaði hf. til margra ára, er látin, aðeins 39 ára að aldri. Hún hafði barist hetjulegri baráttu við ill- vígan sjúkdóm um margra ára skeið. Til þeirrar baráttu gekk hún með bjartsýni sína og von að vopni. Margar og erfiðar læknisaðgerðir á síðustu árum fengu ekki bugað eðl- islæga létta lund Þóru og einstakt jafnaðargeð, né heldur þann mikla dugnað og kraft sem hún alla tíð bjó yfir. Hún barðist eins og hetja þar til yfir lauk aðfaranótt 2. júlí síðastlið- ins. Þóra var fædd á Akureyri 20. apríl 1952, dóttir hjónanna Guðrúnar Árnadóttur og Sveins Ólafssonar. Hún ólst upp hjá móðurömmu sinni og afa að Þverá í Eyjafirði, þeim Þóru Jónsdóttur og Árna Jóhannes- syni, sem þar bjuggu. Ung að árum kynntust þau Þóra og Hákon Hákonarson, nú fram- kvæmdastjóri Blaðs hf. Hófu þau búskap í Kópavogi 1979 og giftust 1982. Þóra átti fyrir dóttur, Guðrúnu Erlu Brynjólfsdóttur, sem nú er 21 árs að aldri, en hún á dótturina Þóru, 3 ára eftirlæti ömmu sinnar. Saman áttu þau Hákon einn son, Ól- af Hauk, sem nú er 11 ára gamall. Stjúpbörn Þóru, börn Hákonar, eru þau Gunnar 18 ára, sem verið hefur á heimili þeirra Þóru og Hákonar frá 8 ára aldri, Helga 19 ára, Hákon 13 ára og Hulda 11 ára og voru þau að sjálfsögðu hinir mestu aufúsugestir á myndarlegu heimili þeirra Þóru og Hákonar, sem þau höfðu reist sér af miklum dugnaði að Funafold 59 í Grafarvogi. Barnahópurinn sem oft á tíðum fyllti heimili þeirra var því stór og getur nærri að þar var oft og einatt glatt á hjalla. Reyndist Þóra þeim öllum hin besta móðir og sameinaði hópinn í skemmtilegum leik og starfi. Þóra starfaði í hlutastarfi við inn- heimtustörf og dreifingu á Helgar- póstinum 1984, og síðar á Press- unni. Þessi störf vann hún af mikilli alúð og dugnaði. Hafði hún umsjón með þremur borgarhverfum, Mið- bænum, Vesturbænum og Breið- holti. Myndaðist hið ágætasta sam- band milli hennar og viðskiptavin- anna, enda var auðvelt að efna til vináttu við Þóru, svo ljúf kona sem hún var. Þóra starfaði allt fram á þetta ár hjá Blaði hf. af sama áhuga og dugn- aði. Samstarfsfólkið saknar Þóru. Hún var einstök í allri viðkynningu, hæglát en hafði þægilega nærveru. Um árabil var okkur kunnugt um sjúkdóm hennar, en við höfðum von, alveg eins og hún og hennar nánustu. Nú er sú von úti. Við kveðjum Þóru og þökkum henni margar ánægjustundir í starfi og leik. Hákoni, börnunum öllum, litlu dótturdótturinni, og aðstand- endum öllum, sendum við hugheil- ar samúðarkveðjur. Söknuður þeirra er djúpur og sár. Eftir lifir minningin um heilsteypta og eftir- minnilega konu. Samstarfsfólk hjá Blaði hf. Meðan við lifum verðum við stundum fyrir því láni að kynnast fólki sem við getum lært af; mann- eskjum sem gera lífið þolanlegra og betra. Þóra Sveinsdóttir var slík mann- eskja. Hún kaus ávallt að horfa á þær lausnir sem gáfust hverju sinni, mætti þrengingum með yfirvegun og var einatt áhugasöm um velferð annarra. Hún var í senn jákvæð og fórnfús. Það er einmitt fólk með þessa eiginleika sem skilur eftir sig staerstu skörðin, sárustu eftirsjána. Ég var svo lánsamur að kynnast þeim hjónum Hákoni Hákonarsyni og Þóru Sveinsdóttur fyrir hartnær áratug. Bæði urðu þau vinir og sam- starfsmenn. Þóra innti störf sín af hendi með samviskusemi og prúð- mennsku í stormasömum erli blaða- útgáfunnar, fyrst við Helgarpóstinn og síðar við Álþýðublaðið og Press- una. Hún sá um innheimtu og tengsl við söluaðila og með fágaðri og íhugulli framkomu var hún mikil- væg lífæð milli blaðanna og lesenda þeirra. Það er ekki tekið út með sældinni að vera framkvæmdastjóri peninga- snauðra og stundum umdeildra blaða; þá reynir oft og iðulega á þol og útsjónarsemi stjórnandans. Ég dáðist ósjaldan að því, hve vel og dyggilega Þóra stóð við hlið eigin- mannsins þegar öll sund virtust lok- uð. Því hraðari og miskunnarlausari sem atburðarásin varð, þeim mun rólegri og yfirvegaðri varð Þóra. Hún tók öllum erfiðleikum með jafnaðargeði og vissu; lausnin var handan við hornið. Hún tók veikindum sínum með sama æðruleysinu og þolgæðinu. Árum saman barðist hún óhrædd og óbuguð við vágestinn sem hægt og sígandi náði undirtökunum í hinni ójöfnu lífsglímu. Þóra missti aldrei móðinn, hana brast aldrei kjark og hún glataði ekki eitt andartak áttum; brosti og heilsaði hlýlega og viðhélt sínu já- kvæða yfirbragði. Hún tók því sem að höndum bar með fullri ró og still- ingu. Slíkar manneskjur sigra í raun dauðann og gera hann ásættanlegri fyrir okkur hin sem eftir lifum. Við Jóhanna vottum Hákoni, börnunum og öðrum aðstandend- um Þóru Sveinsdóttur okkar dýpstu hluttekningu. Ingólfur Margeirsson Fallegt bros, hlýjar kveðjur, já- kvætt viðhorf er það fyrsta sem okkur dettur í hug þegar við hugs- um um Þóru. Ef einhver þurfti á hjálp að halda var hún alltaf á und- an að bjóða fram aðstoð, alltaf var svarið; „ekkert mál, alveg sjálfsagt". Lífsviðhorf hennar og hluttekning í gleði og sorg annarra var okkur sem henni kynntumst mikils virði. Við kynntumst Þóru mjög náið er við bjuggum saman fjölskyldurnar „undir sama þaki“ í 16 mánuði, byggðum svo saman og vorum ná- grannar í 5 ár. Allan þennan tíma og 2 árum betur háði hún hetjulega baráttu við krabbamein, meinið sem hafði betur að lokum. Æðru- leysið sem þessi hæga og rólega kona hafði til að bera var einstakt og til hinstu stundar var það velferð fjölskyldunnar sem hún bar fyrir brjósti. Það var lærdómsríkt að fylgjast með hvað þau Þóra og Há- kon lögðu mikla rækt við fjölskyldu- lífið og bjuggu börnum sínum gott heimili. Það er erfitt að kveðja góðan vin en við erum þakklát fyrir að hafa kynnst Þóru og eiga um hana fal- lega minningu. Háa skilur hnetti himingeimur, blaö skilur bakka og egg; en anda, sem unnast, fœr aldregi eitífd aö skiliö. (Jónas Hallgrímsson: Ferdalok) Þetta erindi úr fallegasta ástar- ljóði sem ort hefur verið á íslenska tungu finnst okkur eiga við þegar við hugsum um fjölskylduna Funa- fold 59. Elsku Hákon og börn megi góður guð styrkja ykkur og blessa á þess- ari erfiðu stundu. Fjölskyldan Funafold 67. Hví fölnar jurtin fríöa og fellir blóm svo skjótt? Hví sveipar barniö blíöa svo brátt hin dimma nótt? Hví veröur von og yndi svo varpaö niöu 'r í gröf? Hví berst svo burt í skyndi hin bezta lífsins gjöf? (Björn Halldórsson frá Laufási) Vœna konu, hver hlýtur hana? hún er miklu meira viröi en perlur. Hjarta manns hennar treystir henni, og ekki vantar aö honum fénist. Hún gjörir honum gott og ekkert illt alla œfidaga sina. Hún sér um ull og hör og vinnur fúslega meö höndum sínum. Hún er eins og kaupförin, sœkir björgina langt aö. Hún fer á fœtur fyrir dag, skammtar heimilisfólki stnu og segir þernum sínum fyrir verkum. Hún hefir augastaö á akri og kaupir hann, af ávexti handa sinna plantar hún víngarö. Hún gyröir lendar sínar krafti og tekur sterklega til armleggjunum. Hún finnur, aö atvinna hennar er arösöm; á lampa hennar slokknar eigi um nœtur. Hún réttir út hendurnar eftir rokknum, og fingur hennar grípa snœlduna. Hún breiöir út lófann móti hinum bágstadda og réttir út hendurnar móti hinum snauöa. Hún er ekki hrœdd um heimilisfólk sitt, þótt snjói þvi aö allt heimilisfólk hennar er klœtt skarlati. Hún býr sér til ábreiöur; klœönaöur hennar er úr baömull og purpura. Maöur hennar er mikils metinn í borgarhliöunum þá er hann situr meö öldungum landsins. Hún býr til skyrtur og selur þœr, og kaupmanninum fœr hún belti. Kraftur og tign er klœönaöur hennar, og hún hlær aö komandi degi. Hún opnar munninn meö speki, og ástúöleg frœösla er á tungu hennar Hún vakir yfir því, sem fram fer á heimili hennar, og elur ekki letinnar brauö. Synir hennar ganga fram og segja hana sœla, maöur hennar gengur fram og hrósar ‘wnni: „Margar konur hafa sýnt dugnaö, sen þú tekur þeim öllum fram!" Yndisþokkinn er svikull og fríöleikinn hverfull, en sú kona, sem óttast Drottin, á hrós skiliö Gefiö henni af ávexti handa hennar, og verk hennar skulu lofa hana í borgarhliöunum. Oröski'. 31/10-31. Hvíli elsku Þóra í friði og hafi hún þökk fyrir allt og allt. Eiginmanni, börnum og öðrum aðstandendum sendum við hugheilar samúðar- kveðjur. Haraldur og Anna Gígja

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.