Alþýðublaðið - 24.01.1992, Side 6
6
Föstudaqur 24. janúar 1992
fllverö heldur á uppleiö
Álútflutningur Rússa hefur dregist
saman um 40% í upphafi ársins
Jón Sigurðsson á ráðstefnunni um aðstoð við fyrrum
Sovétlýðveldi í Washington
r
Á ráðstefnu í Washington um
aðstoð við fyrrum Sovétlýðveldi
sagði Jón Sigurðsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, í gær að
ríkisstjórn íslands hefði ákveðið
að veita framlag til aðstoðar hin-
um nýju lýðveldum. Einnig að
vonast væri eftir framlögum fyr-
irtækja og einstaklinga í sama
skyni.
Jón sagði frá tækniaðstoð fslend-
inga við Sovétríkin á sviði jarðhita,
fiskeldis og sjávarútvegs og þeirri
hugmynd sinni að bjóða ungu at-
hafnafólki frá lýðveldunum til náms
og þjálfunarstarfa á íslandi í rekstri
fyrirtækja og markaðsmáium. Loks
minnti ráðherrann á aðstoð Norður-
ianda við Eystrasaitsríkin, sem nú
er hafin.
Fulltrúar 60 ríkja sitja ráðstefn-
una, sem George Bush Bandaríkja-
forseti boðaði til, í þeim tilgangi að
samræma aðstoðina við hin nýju
iýðveldi og styðja við bakið á lýð-
ræðisöflunum í þessum ríkjum.
Þannig yrði dregið úr hættunni af
félagslegu og efnahagslegu öng-
þveiti.
Jón Sigurðsson situr ráðstefnuna í
umboði utanríkisráðherra. Með
honum sitja ráðstefnuna þeir Tómas
Tómasson sendiherra og Jón Egils-
son, sendiráðunautur í sendiráðinu í
Washington.
Álverð er heldur á uppleið það
sem af er á þessu ári. I Financial
Times í síðustu viku er skýrt frá
8% hækkun á heimsmarkaðs-
verði á áli eða úr um 1.140
Bandaríkjadölum tonnið í 1.230
dollara. Það verð hefur haldið
sér.
Mikil óvissa ríkir þó enn á álmörk-
uðum og skiptar skoðanir um hvort
búast megi við hærra áiverði á
næstunni. Ódýrt ál frá Rússlandi
hefur keyrt heimsmarkaðsverðið
niður. í þessum mánuði hefur hins
vegar útflutningur á áli frá Rúss-
landi dregist saman um 40%.
Sérfæðingar á sviði álmála virð-
ast ekki á eitt sáttir um hvort botnin-
um hefur verið náð í álverði eða
hvort það kemur til með að lækka
aftur. Enginn virðist vita með vissu
hversu mikið framboð af áli kunni
að verða á alþjóðamarkaði frá Rúss-
landi í nánustu framtíð. Almenn
efnahagskreppa í Bandaríkjunum
spilar þar talsvert inn í en hún virð-
ist ekki vera í rénun. Verð og fram-
boð á þessum markaði mun vænt-
anlega fara nokkuð eftir því hversu
hratt Rússar taka upp markaðsbú-
skap og hvort þeir munu halda
áfram að selja ái og aðra málma á
útsölu í knýjandi þörf fyrir erlendan
gjaldeyri.
ictiii ( glysix<;\n
Þórshöfn
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á íbúðarhúsnæði á
ÞÓRSHÖFN.
Um er að ræða einbýlishús, par- og/eða raðhús,
u.þ.b. 150—200 m2 að stærð að meðtalinni bíl-
geymslu.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár
og -efni, fasteigna- og brunabótamat, verðhug-
mynd og áætlaðan af hendingartíma, sendist eigna-
deild fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150
Reykjavík, fyrir 3. febrúar 1992.
Fjármálaráðuneytið, 23. janúar 1992.
Til sölu einbýlishúsið
Sunnuvegur 6, Hafnarfirði
Kauptilboð óskast í einbýlishúsið Sunnuveg 6,
Hafnarfirði, samtals 556 m3 (206 m2) að stærð.
Brunabótamat er kr. 13.010.000,- Húsið verður til
sýnissunnudaginn26.janúarnk. kl. 14—15 og mið-
vikudaginn29. janúarnk. kl. 15—16ogáöðrum tím-
um í samráði við Erling Hansson í síma 92-41872.
Tilboðseyðublöð verða afhent hjá ofangreindum
aðila og á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboð merkt „Útboð nr. 3775/92" skulu berast fyrir
kl. 11.00 þriðjudaginn 4. febrúar 1992 þar sem þau
verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda.
II\II\IKAUPAST0FI\IUN RIKISINS
BORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK
FÉLAG JÁRNIÐNAÐARMANNA
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar atkvæða-
greiðslu við kjörstjórnarog trúnaðarmannaráðs Fé-
lags járniðnaðarmanna fyrir næsta starfsár.
Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs félagsins skal skila til kjörstjórnar félagsins, á
skrifstofu þess á Suðurlandsbraut 30, 4. hæð,
ásamt meðmælum a.m.k. 77 fullgildra félags-
manna.
Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins
og auk þess tillögur um 14 menn til viðbótar í trún-
aðarmannaráð og 7 varamenn þeirra.
Frestur tilk að skila tillögum um skipan stjórnar og
trúnaðarmannaráðs rennurút kl. 18.00 þriðjudaginn
4. febrúar 1992.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.
w
w
f-, FELAG
r/ JÁRNIÐNAÐARMANNA
Félagsfundur
verður haldinn þriðjudaginn 28. janúar 1992 kl. 8
eh., að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Samningamál/launakönnun
3. Verktakamál: Ásmundur Hilmarsson /erindi —
umræða
4. Önnur mál
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin
. 41
tarfíð
Bæjarmálaráð
Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði
Sérstakur bæjarmálaráðsfundur verður haldinn í
Firðinum föstudaginn 24. janúar kl. 19.30.
Dagskrá:
1. Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri kynnir
drög að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar árið
1992.
2. Kynnt þriggja ára áætlun.
3. Almennar umræður um fjárhagsáætlun.
Allir í trúnaðarstörfum fyrir Alþýðuflokkinn, jafnt
aðal- sem varamenn í nefndum eru hvattir til að
mæta.
Allir Alþýðuflokksmenn velkomnir.
Hittumst hress í Firðinum á föstudagskvöld.
Bæjarmálaráð
Aðalfundur
Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur
verður haldinn í Félagsmiðstöð jafnaðarmanna,
Hverfisgötu 8—10, laugardaginn 25. janúar 1992 kl.
14.00.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Lagabreytingar
3. Önnur mál
Stjórn Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur
Rósin á föstudag
opið hús
Opið hús verður í Rósinni, Fé-
lagsmiðstöð jafnaðarmanna, á
vegum FUJ föstudaginn 24.
janúar.
Sigurður Pétursson, formaður
SUJ, ræðir stjórnmálaástandið
við gesti og gangandi.
Húsið verður opnað klukkan 21.00 og opið frameftir
kvöldi.
Boðið verður upp á léttar veitingar á vægu verði.
Vonast er til að sem flestir sjái sér fært að mæta.
FUJ
Fulltrúaráð Alþýðuflokks-
félaganna á Akureyri boðar til
tveggja funda komandi helgi.
Fundur með Jóni Baldvini og
Sigbirni Gunnarssyni.
Fyrri fundurinn verður haldinn í Reynishúsinu
föstudaginn 24. janúar og hefst kl. 20.30.
Málefni fundrins verður flokksstarfið og stjórn-
málaviðhorfið. Framsögumenn verða Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráðherra og formaður Al-
þýðuflokksins, og Sigbjörn Gunnarsson alþingis-
maður. Það er ástæða til að hvetja alla flokksmenn
til þess að mæta á þennan fund.
Fundur um húsnæðismál flokksins
á Akureyri.
Seinni fundurinn verður haldinn í húsnæði flokksins
við Strandgötu, laugardaginn 25. janúar kl. 13.30.
Sigurður Arnórsson, formaður Alþýðuflokksfélags
Akureyrar, heldur framsögu um húsnæðismál
flokksins.
Það er skemmst frá því að segja að húsnæðismál
flokksins hafa oft komið til umræðu undanfarin
misseri og er það skoðun margra flokksmanna að
segja eigi upp leigusamningi um núverandi hús-
næði við Strandgötu. Ef af verður þarf að taka
ákvörðun um hvernig húsnæðismál flokksins verða
leyst og hvað gert verður við eigur flokksins, sem
nú eru geymdar á Strandveginum.
Fulltrúaráði flokksins fannst ástæða til þess að
halda sérstakan fund um þetta mál, og eru allir sem
einhvérja skoðun hafa á því hvattir til að mæta á
fundinn og láta þá skoðun í Ijós.
Munið:
Fundur með Jóni Baldvini og Sigbirni föstudag
kl. 20.30 í Reynishúsinu.
Fundur um húsnæðismál flokksins laugardag kl.
13.30 á Strandgötunni.