Alþýðublaðið - 04.09.1992, Blaðsíða 8
/3x67
Aílar stærðir sendibíla
SÍMAVAKT ALLA DAGA
TIL KL. 23.30
ÍLM Ð U BIJIDIII
Einkadraugur forsetans
- fjallað um draugagang á forsetasetrinu í dönsku blaði
Danska blaðið Jyliandsposten, eitt
víðlesnasta blað Danmerkur skrifar
ítarlega um draugagang á forseta-
setrinu að Bessastöðum. Blaðið segir
að hinn vinsæli forseti Islands, Vig-
dís Finnbogadóttir, sé ekki ein
heima, meðan 21 árs dóttir hennar,
Astríður Vigdísardóttir, sé við nám
„einhvers staðar í Evrópu“ eins og
það er orðað. Forsetinn vill ekki til-
greina við hvaða háskóla dóttirin
nemur, fremur en aðrir þjóðhöfð-
ingjar.
Forsetinn greinir blaðamanninum
frá sögu Appollóníu Schwartzkopf,
sem var trúlofuð dönskum amtmanni,
Niels Furmann, í upphafi 18. aldar.
Amtmaðurinn, sem Islendingum líkaði
vel við, sigldi upp hingað án þess að
giftast Appollóníu. Hún sigldi hinsveg-
ar með næsta skipi og kom
til Bessastaða. Þá kom í Ijós
að Furmann ætlaði ekki að
giftast stúlkunni. Hún klag-
aði til konungs, sendi bréf,
bæði með vorskipi og
haustskipi, en fékk ekki
svar. Talið var að stúlkunni
hafí verið fyrirkomið með
eitri. Vigdís segir blaða-
manninum að hún telji að
Appollónía hafi látist úr
sorg. Bæði liggja þau í
kirkjugarðinum á Bessa-
stöðum, Appollónía og
Furmann. Amtmaðurinn
liggur á milli unnustunnar
sem hann vildi ekki giftast,
og dóttur ráðskonu sem
kom með honum frá Dan-
Vigdís og dóttir heima á Bessastöðum.
mörku.
Sagt er að það hafi einmitt
verið dóttirin sem eitraði fyr-
ir Appollóníu Schwartzkopf.
Móðirin hafi aftur á móti
gefið Bessastaðakirkju
nokkra stóra ljósastjaka til að
hreinsa sig af áburðinum.
„I mörg ár töldu sumir sig
verða vara við Appollóníu á
Bessastöðum. Því miður hef
ég aldrei orðið hennar vör,
en ég lít á hana sem vinkonu
mína“, er haft eftir forsetan-
um. „Eg veit að hún er héma.
Virðuleg, hvíthærð kona
með mikla staðfestu og skap.
Hún teflir skák, svo hún er
greind heimsmanneskja.
Furmann var góður maður,
en hann vildi ekki giftast henni. Það er
leitt þegar ástin leiðir til dauða. Það er
erfitt að hafa stjóm á ástinni", segir
Vigdís í viðtalinu við Jyllandsposten.
Blaðið segir að ísland sé nánast par-
adís yfimáttúrlegra fyrirbæra. Menn
leggi vegi og götur með tilliti til álfa-
byggða. Nokkur mannvirki hafi búið
við vandamál vegna þess að arkitektar
og verkfræðingar tóku ekki tillit til bú-
staða huldufólksins.
Ennfremur segir að Reykjavíkur-
borg hafi látið útbúa kort þar sem bent
er á 68 staði í borginni hvar álfar og
huldufólk búa.
Samkvæmt því korti er álfabyggð
við sjálft stjómarráðshúsið, - og em þá
nágrannar okkar hér á Alþýðublaðinu,
sem okkur þykja að sjálfsögðu mikil
tíðindi og merk.
1 4%
ISLENSKT
BERGVATN H F
■Æk ijð&
W 9 W
I