Alþýðublaðið - 03.12.1992, Page 2

Alþýðublaðið - 03.12.1992, Page 2
2 Fimmtudagur 3. desember 1992 fimiiiiíifiiin HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566 Útgefandi: Alprent hf. Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason Setning og umbrot: Leturval Prentun: Oddi hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566 Fax: 629244 Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 90 Besta kjarabótin, - betri innkaup s A n efa eru góð innkaup verslunarinnar í landinu sú besta kjarabót, sem launþegar eiga kost á um þessar mundir. Aðeins bryddar á að kaupmenn snúist til varnar verslunum sínum, en langt í frá er að nóg sé að gert. Alþýðublaðið hefur margoft á síðustu mánuðum bent á versl- anir, sem hafa Iækkað verð sín til muna. I stétt kaupmanna eru til ein- staklingar sem skilja kall tímans og freista þess að semja betur við framleiðendur á erlendri grund. Sumum hefur tekist það og bjóða nú til muna betra verðlag en áður og er það vel. Það er dýrt að vera íslendingur. Við höfum lengi þurft að greiða lífs- nauðsynjar okkar mun hærra verði en fólk í menningarlöndum allt í kringum okkur. Verslunin hefur ekki staðið sig sem skyldi, auk þess sem dagvaran er háð virðisaukaskatti. Fyrir neytandann er verð mat- vörunnar stærsti liðurinn í útgjöldunum, og þar af er landbúnaðarvar- an langþyngsti liðurinn. Það er því sérkennilegt að skoða t.d. helgar- steikumar í bandarískum stórmörkuðum á 150-200 krónur kflóið, epli á 75 krónur kflóið, mjólk á 30 krónur lítrinn og annað í þá veruna, og bera saman við verðlag á íslandi. iNúna fyrir þessi jól er reiknað með að allt að 15 þúsund ábyrgðar- menn fjölskyldna á fslandi taki sér far með flugvélum og fari í inn- kaupaferðir til útlanda. Þetta er furðuleg þróun svo ekki sé meira sagt. Hinsvegar þarf engan að undra að þetta gerist. Fatnaður og ýmis tæki og gjafavara, fæst á mun lægri verðum í erlendum borgum, allavega telja forsvarsmenn fjölskyldnanna að með ferðalögum þessum megi spara fjölskyldunni stórfé. JVIorgunblaðið gerði úttekt, að vísu mjög óvísindalega, á sunnudag- inn var og komst að raun um að fatnaður fyrir 5 manna fjölskyldu kost- aði nærri 200 þúsund krónum meira hér á landi en í ensku borginni Newcastle. Þessu hefur Mikligarður nú svarað eins og kunnugt er af fréttum. Þeir segjast geta boðið betur. Þetta staðfestir, að það getur ver- ið fullt eins hagkvæmt að versla á íslandi og erlendis og það ættu menn að hafa hugfast í jólavertíðinni. En til þess að svo megi verða, þurfa neytendur að gera vandaðan samanburð á hinum einstöku verslunum. Sjúkraliðar síst of sælir Flestir eða allir eru sammála um að sjúkraliðar hafí síst of góð kjör og eru illa launaðir. Þeir sem eru innan vébanda Sjúkraliðafélags Islands standa nú í viðkvæmri launadeilu við fjármálaráðuneytið. Félagið kaus að standa utan við þjóðarsáttarsamningana í vor og hafur ekki enn náð samningum við ríkið eftir að samningar þeirra hafa verið laus- ir í á annað ár. Eflaust hefur félagið ætlað sér betra hlutskipti en þjóð- arsáttarsamningamir buðu upp á en ekki fengið. Launastefna ríkisins hefur hins vegar verið á þann hátt að víða eru starfsmenn ríkisins með lægri laun en fólk í sambærilegum störfum hjá öðrum aðilum. Þannig hafa sjúkraliðar sem voru í starfsmannafélögum sveitarfélaga og eru enn, eftir breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, mun betri kjör en þeir sjúkraliðar sem nú standa í kjaradeilu við ríkið. Þann launamun hafa sjúkraliðar innan Sjúkraliðafélagsins eðlilega viljað jafna sér í hag. Sjúkraliðar eru síst of sælir af þeim launum sem þeim er ætlað að lifa af og vinnutími þeirra er óreglulegur. Þjóðarsáttarsamningamir vom hins vegar þess eðlis að ekki var farið út í neinar leiðréttingar á laun- kjömm einstakra hópa þrátt fyrir að full ástæða hefði verið til. Þannig hafa launþegar almennt mátt sætta sig við þá 1,7% kauphækkun sem samið var um í vor burt séð frá öllum sérkröfum. Hins vegar hefur nú hlaupið harka í kjaradeilu Sjúkraliðafélags Islands og fjármálaráðu- neytisins sem verður að leysa. Fyrsta skrefið verður að vera það að að- ilar ræðist við og reyni að komast að ásættanlegri niðurstöðu. Þegar mál em komin í hnút sem þennan verða aðilar að gleyma fyrri væring- um og horfa fram hjá formlegheitunum en einbeita sér þess í stað að leysa málið. Það verður að höggva á hnútinn. S Ævisögur aÖ minnsta kosti 25 Islendinga koma út þessa dag- ana. Þær eru helmingur afmest seldu hókunum. Það virðist réttnefni að tala einfaldlega um ÆVISAGN AF LÓÐ Samantekt: Hrafn Jökulsson "iNDRimii I'ORSTKINSSON jgTTJÖBÐ mm isami UPPHÁTT "Íí» - 'V* <eviNryp.A'BOKiN urn Ævisögur 25 íslend- inga koma út nú fyrir jólin, samkvæmt Bóka- tiðindum. Fjórtán þess- ara bóka eru samtals- bækur, sex gera látnum Islendingum skil en að- eins fimm skrá endur- minningar sínar sjálfir. Eigi færri en fjórar bækur koma út um látna stjómmálamenn: Asgeir Asgeirsson eftir Gylfa Gröndal (Forlag- ið, 3980 kr.), Dóms- málaráðherrann annað bindi verks Guðjóns Friðrikssonar um Jónas frá Hriflu (Iðunn, 3.480 kr.), Jón Þorláksson eft- ir Hannes Hólmstein Gissurarson (AB, 3995 kr.) og Ættjörð mín kæra, seinna bindi ævi- sögu Hermanns Jónasson- ar eftir Indriða G. Þor- steinsson (Reykholt, 3.480 kr.) Þá koma út tvær ævisögur merkilegra og óvenjulegra lista- manna sem dóu um aldur fram: Ævin- týrabókin um Al- freð Flóka eftir Nfnu Björku Ámadóttur (Foriagið, 2.980 kr.) og Minn hlátur er sorg, ævisaga Ástu Sigurðardóttur eftir Friðriku Benónýs (Ið- unn, 2.980 kr.) Aðeins fimm Islend- ingar skrá endurminn- ingar sínar sjálftr. Dansað í háloftunum er frásögn Þorsteins E. Jónssonar flugmanns (Setberg, 3.350 kr.), Horft til lands er eftir Þorstein Stefánsson rithöfund sem lengst af hefur búið í Dan- mörku (Skjaldborg, 2.480 kr.), Hugsað upphátt er eftir Svavar Gests (Fróði, 2.980 kr.), Kaddir í garð- T inum er heiti endurminninga I Thors Vil- hjálmssonar (Mál og menn- ing, 2.880 kr.)og Stormur strýk- ur vanga eru endurminningar Guðjóns Símon- arsonar sem Olaf- ur Haukur Símon- arson bjó til út- gáfu (Forlagið, 3.480 kr.) Og þá eru það samtalsbæk- umar. Þar kennir svo sannar- lega margra grasa. Allsherj- argoðinn Sveinbjöm Bein- teinsson segir Berglindi Gunn- arsdóttur frá (Harpa, 2.980 kr.), Alltaf til í slaginn er tninningabók Sigurðar Þor- steinssonar skipstjóra (Vaka-Helgafell, 2.980 kr.), Eyrnatog og steinbítstak er nafn á samtalsbók Guð- brands Hlíðars dýralæknis eftir Ásgeir Guðmundsson (Skjaldborg, 2.990 kr.), Guð- bergur Bergsson metsölu- bók er skrásett af Þóru Krist- ínu Ásgeirsdóttur (Forlagið, 2.980 kr.), Guðni rektor er eftir Ómar Valdimarsson (Vaka-Helgafell, 2.980 kr.), Ingólfur Margeirsson skráir minningar Bám Sigurjónsdótt- Lffssaga RaggaBJama sangmra og spmgrna ur í Hjá Báru (Öm og Örlygur, 2.980 kr.), Helgi Hallvarðsson segir Atla Magnússyni frá f bókinni I kröpp- um sjó (Öm og Örlyg- ur, 2.880 kr.), Eðvarð Ingólfsson setur saman Lífssögu Ragga Bjarna, Helga Guðrún Johnsen skráir Lífsgöngu Lydiu, ekkju Guðmundar frá Miðdal (Vaka-Helgafell 2.980 kr.), Lífsins dómínó er nafn á samtalsbók Ömólfs Ámasonar við Skúla Halldórsson tónskáld (Skjaldborg, 2990 kr.), Óskar Guðmundsson er höfundur viðtalsbókar við Guðlaug Bergmann kaupmann, Og náttúran kallar og hrópar (Iðunn, 3.480 kr.), Rósumál fjallar um líf og störf Rósu Ingólfs- dóttur, Jónfna Leósdóttir skrásetti (Fróði, 2.980 kr.), Thelma er ævi- saga Thelmu Ingvarsdóttur fyrirsætu, eftir Rósu Guðbjartsdóttur (Iðunn, 2.980 kr.) og loks Þórunn Maggý, bók um miðilsstörf hennar, skráð af Guðnýju Þ. Magnúsdóttur (Skjald- borg, 2.990 kr.) Tólf bókafor- lög - að minnsta kosti - gera út á þennan ævi- sagnamarkað. Iðunn, Forlagið og Skjaldborg gefa út fjórar ævisögur, hvert forlag, Vaka- Helgafell er með þrjár; Hörpuútgáfan, Öm og Órlygur og Fróði með tvær, en Set- berg, Mál og menning, Almenna bókafélagið, Æskan og Reykholt gefa út eina ævi- sögu. Og þetta vill fólk. Samkvæmt fyrsta metsölulista DV em ftmm ævi- sögur meðal tíu söluhæstu bókanna. Hjá Báru trónaði í fyrsta sæti, Rósu- mál númer þrjú, Lífsganga Lydíu í fjórða sæti, Dansað í háloftunum í sjöunda sæti og Ásgeir Ásgeirsson í því tíunda. V'YLH CltONFMt Ásgeir Asgdrsson “4 »«!-f Þrjár af fjórum söluhæstu bókunum hingað til era sem sagt viðtalsbækur við konur; játningabækur má sjálfsagt kalla þær, enda verður forvitni okkar vfst seint svalað. Metsölulistinn er varla marktækur ennþá og áreiðan- lega eiga fleiri ævisögur eftir að blanda sér f toppbaráttuna. Fróðlegt verður að fylgjast með afdrifum bókanna um Alfreð Flóka og Ástu Sigurð- ardóttur. Ekki hafa áður verið skrifaðar ævisögur um lista- fólk af þessari kynslóð án þess að það hefði sjálft hönd í bagga. Báðar hafa bækumar fengið prýðilega dóma. En samtalsbækumar hafa ávallt vinninginn og litlu virð- ist skipta þótt þær séu í mörg- um tilvikum einsog teygð tíma- ritsviðtöl. Því opinskárri, því betra. Og menn hljóta að dást að bókaútgefendum sem ævin- lega finna nýjar viðtalsbóka- hetjur þegar aðrir geta haldið að nú loks sé kvótinn búinn.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.