Alþýðublaðið - 03.12.1992, Side 6

Alþýðublaðið - 03.12.1992, Side 6
6 Fimmtudagur 3. desember 1992 EINSTAKT TÆKIFÆRI aö eignast helstu dægurkög Hauks Morthens sem hljómaö hafa í eyrum þjóöarinnar í gegnum árin. Fundist hafa nokkur eintök úr hljómplötusafni Hauks Morthens og veröa þau seld á kostnaðarverði. Þrjár plötur saman kosta aðeins 2300 krónur. Allur ágóði rennur til ekkju Hauks Morthens. Upplýsingar í síma 677053 Auglýsing um innflutning á landbúnaðarafuróum Aö gefnu tilefni vill landbúnaöarráöuneytiö taka fram aö innflutningur landbúinaöarafuröa takmarkast af lögum nr. 46/1985 um framleiðslu, verölagningu og sölu á bú- vörum. Innflutningur landbúnaöarvara í tollskrárnúm- erum 1-24, sem lotiö hefur takmörkunum skv. auglýs- ingu nr. 313/1990 um innflutnings- og gjaldeyrisleyfi er háöur leyfi stjórnvalda og því óheimill nema að fyrir liggi heimild landbúnaðarráöuneytisins. Landbúnaöarráöuneytinu, 1. desember 1992. __ eftir Astrid Lindgren Fnmisýiiing annan í jólum ld. 15.00 Munið gjafakortin okkar, frábær jólagjöf. Borgarleikhús LEIKF5LAG REYKJAVIKUR m sími: 680680 JAFNAÐARMENN NORÐURLANDI EYSTRA Hinn árlegi jólafundur veröur haldinn í Reynishúsi Furuvöllum 1, Akureyri, laugardaginn 5. desember kl. 19.30. Matur - skemmtun - Veitingar á vægu verði. Þátttaka tilkynnist fyrir miðvikudaginn 3. desember í síma 96-22290. Skemmtun okkur saman fyrir jólin - allir velkomnir. Stjórnin. un á fullveldi flokkanna í samskiptum þeirra, og hún leiðir í ógöngur, til sambandsleysis og tor- tryggni.“ Af þessu má sjá að sam- þykkt landsfundar Al- þýðubandalagsins hefur fljótlega orðið umdeild. Enn héldu nefndir til Rúmeníu 1973 og 1976. 1972-1976 störfuðu nefndir á vegum Alþýðu- bandalagsins, sem sáu um samskipti við erlenda stjómmálaflokka. Ein- stakir nefndarmenn lýstu áhuga sínum á því að auka samskipti við erlenda flokka, t.d. með því að stoíha aftur til tengsla í Austur-Evrópu, en lagst var gegn því. „Getum lært ýmislegt af A-Þjóðverjum“ Soffía Guðmundsdóttir hvatti til þess að Alþýðubandalagið tæki upp samskipti við austur-þýska kommún- ista. f grein í Rétti 1978 sagði hún: Nú er það rétt að fram komi, að þessa flokka greinir á um veigamikil atriði, en með leyfi að spyrja, stóð það einhvern tímann til, að sósíalísk- ir flokkar skvldu ævinlega vera sam- mála íeinu og öllu? Soffía taldi íslenska sósfalista geta lært ýmislegt af Austur-Þjóðverjum, enda væri siðferðisþreki stuðnings- manna Alþýðubandalagsins teflt í tví- sýnu vegna stöðugt návígis við „auð- valdið". Austur-þýskir kommúnistar gætu á hinn bóginn lært talsvert af ís- lenskum „félögum". Valdið gæti „svif- ið á" austur-þýska valdhafa, ekki síst þar sem engin stjórnarandstaða væri í alþýðulýðveldinu. íslendingar gerðu sér ákveðnar hugmyndir um „lýðræðis- legan veruleika". Raunar var það svo að þótt margir alþýðubandalagsmenn stilltu sig um að þiggja opinberlega boð til austantjaldsríkja í nafni flokks- ins var ekkert lát á ferðum þangað. Verkalýðsfélögin héldu uppi austur- tengslum til dæmis í tengslum við Eystrasaltsvikuna langt fram á níunda áratuginn. Ferðir í sumarbúðir í Aust- ur-Þýskalandi vom vinsælar ferming- argjafir á Neskaupstað allt þar til sum- arbúðimar lögðust af með austur- þýska ríkinu. Þröstur Olafsson sem þá var félagi í Alþýðubandalaginu fór sem fulltrúi íslensks verkalýðs til Moskvu eftir miðjan níunda áratuginn og svo mætti lengi telja. Vildi Lúðvík flokksleg tengsl? Það var þó ekki fyrr en á þessu ári sem ljóst var að efasemdir um þá ákvörðun að slíta flokkstengslin austur hefðu verið jafnmiklar og raun ber vitni. Af sendiráðsbókum sovéska sendiráðsins er ljóst að eftir 1968 létu forystumenn Alþýðubandalagsins með Lúðvík Jósepsson í broddi fylkingar í veðri vaka við Sovétmenn að þá og þegar yrðu tekin upp flokkstengsl að nýju. Sovéskir kommúnistar sendu oft- sinnis fulltrúa til Islands á ámnum um og upp úr 1970 í því skyni að fá ís- lenska sósíalista til að ganga á ný inn í alþjóðahreyfingu kommúnista. Ein ástæða þess að Sovétmenn vom áhuga- samir um flokkstengsl var sú hve Al- þýðubandalagsmenn virtust gera sér dælt við rúmenska og júgóslavneska kommúnista. Lúðvík Jósepsson hefur í blaðavið- tali viðurkennt að hafa rætt við a.m.k. einn fulltrúa alþjóðadeildar miðstjóm- ar sovéska flokksins en vísað því á bug að þær viðræður hafi verið formlegar. Haustið 1970 sendi miðstjómin þá V.S. og Y. Zhilin til íslands til „óopin- berra viðræðna" til að kanna hvemig Sovétmenn gætu komið ár sinni best fyrir borð. Savko virðist hafa hitt Lúð- vík Jósepsson að máli í þessari ferð. Heim komnir mæltust fulltrú- arnir tveir til þess að tengsl við Alþýðubanda- lagið og Sósíalistafélagið yrðu þróuð áfram. Tekið var þó fram að um venju- leg flokkstengsl yrði ekki að ræða fyrr en landsþing Alþýðubanda- lagsins hefði tekið aftur samþykkt um samskipta- rof. Ekki var talið raun- sætt að stefna að „opin- bemm flokksnefnda- skiptum" við flokkinn eins og ástatt væri. Þess í stað var sendiráði Sovét- manna falið að reyna að sætta Alþýðubandalags- og Sósíalistafélagsmenn í þeirri von að nýr flokk- ur gæti litið dagsins ljós sem stjómað væri „samkvæmt gmnd- vallarreglum marx-lenínismans". Haustið 1970 barst þannig sendiráð- inu í Reykjavík skeyti þar sem því er skilað til Lúðvíks að hugmyndir hans um „óopinbert samband" flokkanna geti orðið grunnur að nýju samstarfi. Af þessu skeyti má einnig ráða að for- ystumenn Alþýðubandalagsins hefðu tjáð Sovétmönnunum að ákvörðun fiokksþingsins 1968 um sambandsslit hefði verið „djúpstæð mistök". Ynnu þeir að því að breyta þeirri ákvörðun. Ragnar Arnalds sagður áhrifalaus I sendiráðsbókununum sovésku var lögð áhersla á að Alþýðubandalagið væri gamalt vín á nýjum belgjum. Nýi formaðurinn, Ragnar Amalds, hefði „formlega" ekki verið í sósíalista- flokknum (hann var í Æskulýðsfylk- ingunni) og starfi flokksins væri í raun stjómað af þeim, Lúðvík Jósepssyni, Eðvarði Sigurðssyni og Magnúsi Kjartanssyni. Vorið 1971 var Lúðvík enn á ferð- inni í sovéska sendiráðinu og ræddi við S.T. Astavin sendiherra. Þar var haft eftir honum að flokkamir f Sovétríkj- unum og á Islandi „hefðu fjarlægst hvor annan vegna aukaatriða”. Sendi- herrann hafði eftir Lúðvík að hægt væri að taka upp flokksleg tengsl þegar að loknum þingkosningum á Islandi. I næsta skipti sem Lúðvík ræddi við Astavin sendiherra var það á skrifstofu sjávarútvegsráðherra en því embætti gegndi Lúðvík í vinstristjóminni 1971- 1974.1 þessu samtali sagði ráðherrann að lagt yrði fyrir næsta landsfund Al- þýðubandalagsins að tekin yrðu upp eðlileg flokkstengsl austur. Sovétmenn virðast hafa talið nauð- synlegt að grípa til nýrra aðgerða til að tryggja áhrif sin í íslenskum stjómmál- um árið 1972 enda hafði ekkert gengið eftir af því sem haft var eftir foringjum hans. Sjö foringjum Alþýðubandalags- ins var boðið til Moskvu. í þeim hópi vom Ragnar Amalds og eiginkona hans, Adda Bára Sigfúsdóttir varafor- rnaður, Ólafur R. Einarsson (Olgeirs- sonar), formaður framkvæmdastjómar, og Lúðvík Jósepsson sjávarútvegsráð- herra, auk tveggja manna frá Þjóðvilj- anum. Formaðurinn og varaformaður- inn a.m.k. höfnuðu boðinu. Alþjóðadeild miðstjómarinnar taldi ástæðu til að fá leyfi til að breyta áætl- unum sínum um samskipti við íslenska stjómmálaflokka. Vafalaust var það ekki tilviljun að í sömu ákvörðun mið- stjómar var að finna boð til Framsókn- arflokksins um að senda þriggja manna nefnd til Sovétríkjanna á vegum „Fé- Iags um vináttu og menningartengsl við útlönd". Lúðvík í „hressingarferðir“ Sovéskar sendiráðsbækur kunna að vera ótraustar heimildir en vafasamt er að sendiráðsmenn á íslandi hefðu blekkt yfirboðara sína í sovéska utan- ríkisráðuneytinu svo að árunt skipti. Hitt er svo annað mál að Lúðvík kann að hafa dregið sendiráðsmennina á asnaeyrunum, hugsanlega í þeim til- gangi að afla íslandi stuðnings í land- helgisdeilunni sem fór í hönd. Hins vegar er það forvitnilegt að Lúðvík, sá forystumaður Alþýðubandalagsins sem oftast hitti sovéska sendimenn, var einnig sá sem bcitti sérgegn samþykkt- um um Tékkóslóvakíu og samskipta- banni við innrásarflokkana. Hann þáði einnig boð um „hvfldar- og hressingar- ferðir" til Sovétríkjanna hvað eftir ann- að á þeint tíma sem hann hélt Sovét- mönnum volgum. ALÞÝÐUFLOKKURINN HLUSTAR Jóhanna Siguröardóttir félagsmálaráöherra, veröur meö viötalstíma á skrifstofu Alþýöuflokksins, Hverfisgötu 8-10, fimmtudaginn 3. des- ember næstkomandi frá kl. 16.30 til 18.30. Pantið tíma í síma 29244. Alþýöuflokkurinn - Jafnaöarmannaflokkur íslands Bæjarmálaráö Alþýðuflokksins í Hafnarfiröi Fundur veröur haldinn í bæjar- málaráði mánudaginn 7. des- eber í Alþýöuhúsinu viö Stand- götu og hefst fundurinn kl. 20:30 Fundarefni: Undirbúningur fjár- hagsáætlunar Hafnarfjarðar fyrir áriö 1993 Framsögumaöur: Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri Allir Alþýðuflokksfélagar velkomnir og fólk í nefndum, ráöum og stjórnum á vegum þæjarins er sérstaklega hvatt til aö mæta. Bæjarmálaráö

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.