Alþýðublaðið - 22.01.1993, Side 14
+
14
Föstudagur 22. janúar 1993
Cheko mæjor líkist ekki þingmanni
I við fyrstu sýn. Fúlskeggjaður og með
hárlubba niðrá herðar minnir hann
frekar á Raspútín; vitfirringinn djöful-
lega sem var einna valdamestur í Rúss-
landi þegar sól keisaradæmisins var að
hníga til viðar.
En Cheko - sem raunar heitir Milika
ÍDacevic - er einn þeirra manna sem
hafa örlög þúsunda í hendi sér: tilheyr-
ir nýrri stétt manna sem kölluð er
stríðsherramir á Balkanskaga. Cheko
situr að vísu í fangelsi í Svartfjalla-
landi um þessar mundir, en þaðan var
kröftugri kosningabaráttu stjómað í
desember. Cheko flaug inná þing enda
kynntu stuðningsmenn hans, vopnaðir
Ifantar sem skírðir voru í blóði Króatíu
og Bosníu, óspart undir hatur og for-
i!5 dóma hæstvirtra kjósenda gagnvart
„óæðri“ þjóðabrotum í Júgóslavíu heit-
inni.
Burt með þjóðabrotin!
Serbía og Svartfjallaland em einu
lýðveldin sem eftir eru í „Júgóslavíu".
Svartfellingar hafa verið taglhnýtingar
Serba í stríðsrekstrinum: fyrst gegn
Króötum og síðan gegn Bosníumönn-
um. Þess er væntanlega skammt að
bíða að uppúr sjóði í Kosovohéraði
þarsem tvær milijónir Albana mynda
90% meirihluta. Cheko mæjor og aðrir
stríðsherrar hafa einna efst á stefnu-
skránni að flæma Albanina burtu; enda
líta þeir á Kosovo sem heilaga jörð
þarsem slær hjarta Serbíu. Það á rætur
að rekja allar götur aftur til ársins 1389
þegar Tyrkir gereyddu liði Serba í
stórkostlegri orrustu: öllum er hulið af-
Ihverju Serbum er þessi tapaða ormsta
heilagri viðburður en samanlögð saga
1 þeirraönnur.
Cheko er 36 ára, lítt menntaður,
fyrmrn kokkur á sjúkrahúsi í Belgrad.
Þegar stríðið í Króatíu byrjaði lagði
hann frá sér sleifina og tók sér byssu í
5 hönd; og barðist á nálega öllum blóð-
ugustu vígvöllunum.
Síðan sneri hann til Pljevlja í norð-
urhluta Svartfjallaland en þangað á
hann rætur að rekja. Þetta var að undir-
lagi Vojislavs Seselj, einhvers grimm-
asta morðingjaforingja Balkanstríðs-
; ins: Seselj er leiðtogi cétníka í Serbíu,
hefur á sínum snæmm illvígan og mis-
; kunnarlausan einkaher sem ber ábyrgð
; á fjölmörgum ómannlegum hryðju-
f| verkum.
Framhald heimsstyrjaldarinnar
Cétníkamir. já. Stríðið innan Júgó-
slavíu heitinnar nú er aðeins framhald
i; seinni heimsstyijaldarinnar. Hlé varð á
átökum í 45 ár en að öðm leyti hefur
1 lítið breyst. Þá börðust cétníkar við
vf kommúnistasveitir Títós í grimmilegri
borgarastyrjöld. Tító vann og cétníkar
| hurfu af sjónarsviðinu. Flestir héldu að
þeir heyrðu sögunni til. En nú er annað
komið á daginn. Cétníkamir biðu síns
tíma, ólu upp nýjar kynslóðir í hatri og
undirbjuggu enn nýtt uppgjör. Og það
er kaldhæðnislegt að nú em þeir
vopnabræður og vinir, fasistinn Seselj
og Slobodan Milosovic, forseti Serbíu,
fyrmrn kommúnisti sem skírðist til
öfgafullrar þjóðemisstefnu.
Slobodan er undarlegur maður og á
fáa vini, en Seselj er semsagt í þeim
litla hópi. Það er sagt að Seselj segi
það sem Slobodan hugsar. Hvað segir
Seselj? Þetta til dæmis, þegar hann var
spurður um áramótaóskina fyrir 1992:
Stríð! Stríð! Stríð!
Honum varð að ósk sinni.
Særðist sex sinnum
Seselj bemski, sem svo er kallaður
af því honum vex ekki skegg, fól
Cheko mæjor að „hreinsa" Pljevlja af
múslímum. Cheko safnaði saman 4000
manna her og hófst handa.
Dusko Doder, hinn kunni blaðamað-
ur sem eitt sinn sendi stórfréttir frá
Kreml, hitti Cheko laust áður en hon-
um var stungið í svartholið. „Hann var
svartklæddur til minningar um eldri
bróður, sem drepinn var í Vukovar,"
segir Doder. Við hús mæjorsins var
hið gamalkunna merki cétníka: Kross
með fjórum s-um á kýrflsku letri. Fyrir
neðan stóðu orðin: Bog cuva Srbe:
Guð vemdar Serba.
Merki cétníka voru hvarvetna og
fólk talaði um mæjorinn í sérstökum
tóni. Yngri bróðir Chekos sagði að
mæjorinn væri langtímum saman í
símanum að leggja á ráðin með Seselj.
Þegar stjömufféttamaðurinn hitti
hinsvegar mæjorinn var hann að huga
að sári á fæti sem leyniskytta hafði
veitt honum í grennd við hina hrjáðu
borg Gorazde í Bosníu. Hann var stolt-
ur yfir því að hafa særst sex sinnum en
hafði engan áhuga á að ræða smáatriði.
„Þarsem ég hef særst sex sinnum
geturðu notað ímyndaraflið," sagði
Cheko við Doder. „Við skulum segja
að ég hafi lent í varhugaverðum að-
stæðum."
Herferðir í gin Ijónsins
Síðan setti Cheko á langar tölur um
hina hugrökku liðsmenn sína sem
hverja nótt fara yfir landamærin til
Bosníu; í sjálft bæli Ijónsins, að þeirra
eigin mati: Gorazde, þarsem 37.000
íbúar hafa verið í herkví mánuðum
saman.
Er það hetjudáð að læðast í skjóli
myrkurs til þess að varpa sprengjum á
óbreytta borgara f umsetinni borg?
Greinilega.
Múslímamir í Pljevlja, um 18% af
íbúunum, lýsa hvemig Cheko safnaði
um sig gengi af byssumönnum. „Þetta
er lítill bær. Við vitjum hverjir þeir
em. Þeir vita hver við erum,“ sagði
múslímskur kennari í samtali við Do-
der.
„Þetta em aðallega atvinnuleysingj-
ar og smáglæpamenn. Margir þeirra
eru fyrrum nemendur mínir sem tókst
ekki að ljúka námi.“
Cheko handtekinn
!)) Cheko sigaði rökkum sínum á músl-
ímana í Pljevlja: rúður vom brotnar í
verslunum og fólki var hótað dauða.
Flestir múslímamir tóku saman fóggur
sínar í flýti og fóm. Aðrir freistuðu
þess að bíða lengur; eftir að Cheko var
handtekinn íyrir að rífa niður myndir
af Jósef sáluga Tító og setja í þeirra
stað myndir af Seselj.
Cétníkar mæjorins bmgðust hart
við, settu upp vegartálma og tóku her-
skildi opinberar byggingar í Pljevlja.
Stjómvöld í Svartfjallalandi, sem
höfðu ætlað að sýna vott sjálfstæðis og
viðleitni til að halda uppi lögum og
reglu, létu undan. Cheko var látinn
laus og menn hans fógnuðu með linnu-
lausri skothríð og fýlleríi.
En þrátt fyrir að Cheko hefði ljóm-
andi góð sambönd við æðstu menn í
Belgrad var hann handtekinn aftur
nokkmm vikum síðar. Enn reyndu
stjómvöld í Svartfjallalandi að halda í
síðustu tutlur sjálfsvirðingarinnar.
Fasistar í oddaaðstöðu
En Cheko er nú kominn á þing og
lögfræðingar hans heimta að hann
verði látin laus; enda njóta þingmenn
hvarvema friðhelgi. Hann var einn af
mörgum öfgamönnum sem náðu kjöri;
Ínú er svo komið að Slobodan Milosov-
ic þarf að reiða sig á fasistaflokk þeirra
til að koma málum í gegnum þingið.
Leiðtogar Serba hafa undirritað
óteljandi samninga um vopnahlé en
það em ævinlega Cheko og hans líkar
sem eiga síðasta orðið: og þeir kjósa
!j fremur geltið f vélbyssunum og
sprengjudrunumar.
Kokkurinn fyrrverandi af sjúkrahús-
Jinu í Belgrad er þannig einn af þeim
mönnum sem í reynd ráða því hvort
Í stríðinu lýkur á Balkanskaga. Það gcf-
| ur hvorki góð né fögur fyrirheit.
HJ/Að nokkru byggt á
The European
II
„Guð tfemdar
Serba"
- k/örorð hintta
\ ittrœnutu cétníka
1 sem ftestir hétttu
I að fieyrðu
1 söyunni tii
&
1
.