Alþýðublaðið - 22.01.1993, Blaðsíða 15
Föstudagur 22. janúar 1993
15
Atburðir dagsins
1666 Shah Jahan, hinn mikilfenglegi keisari Indlands, deyr
74 ára að aldri; átia árum eftir að hann var settur í varðhald
að undirlagi sonar síns, Aurangzebs. Shah Jahan lét reisa
hið undursamlega Taj Mahal musteri til dýrðar eiginkonu
sinni. Aurangzeb komst til valda með því að drepa bræður
sína; rétt einsog Shah Jahan gerði sjálfur árið 1628. Keisar-
inn gamli verður lagður til hvílu við hlið konu sinnar í Taj
Mahal.
1879 Zulumenn halda áfram að brytja niður breska hermenn
í Isandlwana.
1901 Viktoría Bretadrottning deyr á eynni Wight, 81 árs að
aldri; eftir að hafa ríkt í 64 ár.
1905 Kósakkasveitir keisarans brytja
niður 500 mótmælendur í Sankti Pét-
ursborg: gangan hafði farið friðsam-
lega ffam enda var fólk ekki vopnað
öðru en krossum og helgimyndum.
1924 Ramsay MacDonald verður
fyrsti forsætisráðherra Verkamanna-
flokksins í Bretlandi. Um þetta sagði
Georg V Bretakonungur: „I dag em 23
ár síðan mín kæra amma (Viktoría drottning) dó; ég velti
því fyrir mér hvað henni hefði fundist um ríkisstjóm Verka-
mannaflokksins."
1941 Bretar ná Tobmk af Þjóðverjum í seinni heimsstyrj-
öldinni.
1944 Herir bandamanna taka land á Arizo á Italíu; um
50.000 manna lið.
1949 Bændaher Maós formanns kemur til Peking; komm-
únistar orðnir alráðir um stjóm fjölmennasta ríkis veraldar.
1964 Kenneth Kaunda verður fyrsti forsætisráðherra Norð-
ur- Rhodesiu.
1972 Bretland, Danmörk og írland ganga í Efnahagsbanda-
lag Evrópu.
1972 Þegar Edward Heath forsætisráðherra Breta býr sig
undir að undirrita samning um inngöngu Breta í EBE er slett
á hann bleki; af andstæðingum endurskipulagningar Covent
Garden í Lundúnum.
1973 Lyndon Baines Johnson deyr; hann tók við forseta-
embætti í Bandaríkjunum þegar Kennedy var myrtur.
Afmœlisbörn dagsins
Francis Bacon 1561; enskur ráðamaður, rithöfundur, lög-
fræðingur og heimspekingur.
Byron lávarður 1788; enskt stórskáld sem var einna fræg-
ast á sinni tíð fyrir einkar litríkan lífsstfl.
August Strindberg 1849; sænskt leikskáld og rithöfundur
sem kafaði djúpt í mannlegt eðli og kom með ýmislegt úr
kafinu sem ekki var öllum að skapi.
D.W. Griffith 1875; bandarískur kvikmyndaleikstjóri,
hvers helsta stórvirki var Birth of af Nation.
John Hurt 1940; enskur leikari; fór með aðalhlutverkið í
The Elephant Man.
Atburðir dagsins
1556 830.000 farast í jarðskjálfta í Shanxihéraði í Kína.
1793 Póllandi er skipt upp milli Rússa, Austurríkismanna
og Prússa.
1806 William Pitt yngri deyr, 47 ára; hann varð í tvígang
forsætisráðherra Breta; tók fyrst við
embætti aðeins 24 ára.
1823 Bandaríkin viðurkenna sjálf-
stæði Argentínu og Chile.
1908 Fyrsta skeytið sent frá Lund-
únum til Indlands; vegalengdin er
vel yfir 12.000 kflómetra.
1931 Anna Pavlova, rússnesk ball-
ettdansmær með dásamlega náðar-
gáfu, deyr í Hollandi; 45 ára.
1943 Bretar ná Tripolí úr höndum
Þjóðverja.
1955 Spænski einræðisherrann
Franco ákveður að endurreisa kon-
ungdæmið og leyfír Juan Carlos
prinsi að gera tilkall til krúnunnar.
1963 Kim Philby hverfur í Beirut.
Hann var áður háttsettur í bresku leyniþjónustunni en gerð-
ist fréttaritari; lá undir grun um njósnir, einkum eftir að fé-
lagar hans, Burgess og MacLean, flúðu til Moskvu 1951.
Harold Macmilian hreinsaði Philby af öllum grun; sagði að
„þriðji maðurinn" starfaði ekki innan leyniþjónustunnar. Nú
vaknar grunur á ný um óhreint mjöl í pokahomi Philbys.
1968 Varðbátur Norður-Kóreumanna tekur bandarískt
njósnaskip á Japanshafi; nokkrir Bandaríkjamenn falla í
árásinni.
1973 Eldur í Heimaey: Allt um það á síðum Alþýðublaðsins
í dag!
1976 Paul Robeson, þeldökkur söngvari, leikari og baráttu-
maður fyrir mannréttindum, deyr í Harlem, 77
ára.
1989 „Snillingar ljúga ekki. Ég mun lifa um alla
framtíð," sagði spænski málarinn og snillingur-
inn Salvador Dalí einu sinni. Eigi að síður dó
hann þennan dag, 78 ára að aldri; frægur fyrir
yfirskeggið, yfirgengilegan lífsstfl og furðuver-
öld á léreftinu. Dalí hafði verið hálfgalinn síðan
eiginkona hans, Gala, dó árið 1982.
Salvador Dali
Afmœlisbörn dagsins
Edouard Manet 1832; franskur listmálari, sem
gekk fram af almenningi með nektarmyndum.
Sergei Eisenstein 1898; rússneskur kvik-
myndaleikstjóri; einn af stóru snillingunum.
Gerði meðal annars Orrustuskipið Potemkin sem álitin er
ein besta mynd allra tíma.
Bob Paisley 1919; breskur fótboltakappi; þjálfari og fram-
kvæmdastjóri stórveldisins í Liverpool.
Jeanne Moreau 1928; frönsk leikkona.
Atburðir dagsins
41 Caligula, sá sturlaði rómverski keisari, myrtur.
neyslu áfengis og eiturlyfja.
1935 Dósabjór settur á markað í fyrsta skipti; í Richmond,
Virginíu.
Afmœlisbörn dagsins
1236 Hinrik III konungur Breta kvænist Eleanor af Pro-
vence.
1848 Upphaf gullæðisins í Kalifomíu! James nokkur Mars-
hall rambar á auðuga gullæð; ævintýramanna vænst hvað-
anæva úr heiminum til Kalifomíu, þarsem íbúar em aðeins
14.000 þúsund.
1895 Randolph Churchill lávarður, leiðtogi breskra íhalds-
manna, deyr.
1920 ítalski málarinn Amadeo Modigliani deyr eftir of-
Gullæði!
Hadrian 76; rómverskur keisari; lét reisa Hadri-
ansmúrinn á Norður-Englandi til að verjast Skot-
um.
Ernest Borgnine 1917; bandarískur kvikmynda-
leikari.
Desmond Morris 1928; breskur dýrafræðingur og
rithöfundur; höfundur bókarinnar The Naked Ape.
Neil Diamond 1941; Bandarískur tónlistarmaður.
Nastassja Kinski 1961; þýskættuð kvikmynda-
leikkona og þokkagyðja.
1961 Bandarísk B-52 flugvél springur í háloftunum; þrigg-
ja manna áhöfn ferst - og tvær 24 megatonna kjamorku-
sprengjur losna.
1965 Sir Winston Churchill - síðasta ljón breskra stjómmála
- deyr í dag; nákvæmlega 70 ámm eftir að faðir hans dó.
1978 Sovéskur gervihnöttur hrapar til jarðar í grennd við
Yellowknife í norðvesturhluta Kanada.
1987
Terry Waite, sendiboða breska erkibiskupsins af
Kantaraborg, rænt í Beirut; þangað var Waite kom-
inn til að reyna að fá vestræna gísla leysta úr haldi.
Umbætur til
almannaheilla
- verkefnin fromundnn -
AKRANES - ÓLAFSVÍK
Eiöur Guönason umhverfisráöherra og Össur Skarp-
héöinsson formaöur þingflokks Alþýðuflokksins verða á
opnum stjórnmálafundi í Röst Akranesi mánudaginn
25. janúar kl. 20.30 og í Félagsheimilinu Ólafsvík
þriöjudaginn 26. janúar kl. 20.30.
Komið og hittiö þingmenn Alþýöuflokksins
á opnum fundum.
Allir velkomnir.
Alþýöuflokkurinn
Jafnaöarmannaflokkur íslands
Frá Alþýðuflokks-
félagi Kópavogs
Fundir eru á hverjum mánudegi kl. 20.30 í Hamraborg.
Næstu fundir veröa sem hér segir:
25. janúar: Almennur fundur
1. febrúar: Spilakvökld
8. febrúar: Aöalfundur
Athugiö aö aöalfundi hefur veriö frestaö um tvær
vikur
Stjórnin
ÁR ALDRAÐRA
( EVRÓPU 1 993
ÖLDRUNARRÁÐ ÍSLANDS
HAMfNGJA — LENGIR HLÁTURINN LÍFIÐ?
Opin ráðstefha í Borgartúni 6,
föstudaginn 22. janúar 1993 kl. 13:15
Ráðstefhustjóri: Svavar Gests.
Dagskri:
Kl. 13:15 Setning:
Pétur Sigurðsson; fonnaður Öldrunarráðs
Islands.
Hamingjan í hjðrtum okkar:
Söngfélag Félags eldri borgara í Reykjavík.
Hamingja:
Jón Bjömsson, félagsmálastjóri á Akureyri.
Ámi Tryggvason skemmtir.
Kaffihlé
Lengir hláturinn lífið?
Ottar Guðmundsson læknir.
Leikfélagið Snúður og Snælda flytur kafla úr leikritinu Sólsetur.
Hamingjan í hjðrtum okkar:
Söngfélag Félags eldri borgara í Reykjavík.
Ráðstejhugjald er kr. 1000,-.
Ráðstefhan er ðllum opin.