Alþýðublaðið - 23.03.1993, Side 2
2
Þriöjudagur 23. mars 1993
HMIIBLtlM
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóöur Sigurösson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuöi. Verö í lausasölu kr. 90
Frísvæði á Suðurnesjum
Vaxandi atvinnuleysi hér á landi hefur komið einna verst við Suðumesin, þar
sem atvinnulaust fólk hefur verið allt að því helmingi hærra hlutfall en annars
staðar á landinu. Orsakimar em margþættar.
Suðumesin vom að fornu og nýju ein mikilvægasta verstöð landsins, en í kjöl-
far kvótakerfisins hafa veiðiheimildir tapast í vemlegu magni af svæðinu.
Samdráttur í heildarafla landsmanna hefur líka komið illa niður á fiskvinnslu á
Suðumesjum, - ekki síst vegna áhrifa þeirra á fiskmarkaðina. En Suðumesja-
menn voru einna fyrstir til að skilja mikilvægi fiskmarkaða, og í skjóli þeirra
spruttu upp fjölmörg smá en efnileg vinnslufyrirtæki, sem sóttu sér hráefnið á
markaðina og notfærðu sér svo nálægðina við Keflavíkurflugvöll til að koma
unnum afurðum á markað erlendis. Samdrátturinn í kvóta hefur hins vegar leitt
til þess að miklu minna magn fiskjar fer yfir markaðina en áður, og skortur á
hráefni hefur knúið mörg vinnslufyrirtækjanna til að draga vemlega úr rekstri,
eða stöðva hann alveg. Þessi uggvænlega þróun í sjávarútvegi hefur leitt til
þess, að mun fleiri störf hafa hlutfallslega tapast í greininni en annars staðar á
landinu. Þetta á sinn stóra þátt í atvinnuleysi á Suðumesjum, ekki síst á meðal
kvenna.
I ofanálag hafa umsvif í tengslum við vamarliðið á Keflavíkurflugvelli minn-
kað stórlega á síðustu árum, og enn er óséð hvemig sú þróun endar. Á hitt ber
að líta, að frá herfræðilegum sjónarhóli er staðsetning Islands milli austurs og
vesturs enn jafn mikilvæg og þegar Lenín áréttaði hemaðarlegt mikilvægi
landsins nokkrum ámm fyrir byltinguna í Rússlandi, og líklegt að herstöðin í
Keflavík verði enn um sinn mikilvæg fyrir starfsemi Atlantshafsbandalagsins.
Aukin áhersla bandalagsins á möguleika til að flytja herlið til átakasvæða í mið-
og austurhluta Evrópu undirstrikar mikilvægi herstöðarinnar og ekki ólíklegt,
að frekari framkvæmdir verði nauðsynlegar þar á næstu árum til að treysta
hlutverk hennar í slíkum flutningum. Allt er þó óljóst um þær ennþá.
Við þessar aðstæður er því rökrétt, að ríkisstjómin grípi til sérstakra ráðstafana
til að efla atvinnu á Suðumesjum. Nú þegar er í bígerð að setja á stofn sérstakan
þróunarsjóð fyrir svæðið, þar sem ríkisstjómin hefur beitt sér fyrir að íslenskir
aðalverktakar, sem ríkissjóður á meirihluta í, Ieggi fram drjúgan skerf.
Til viðbótar þessu hefur nú ríkisstjómin einnig ákveðið að koma á laggimar
frísvæði í tengslum við Keflavíkurflugvöll. Sú hugmynd er raunar ekki ný af
nálinni; hinn ötuli þingmaður Suðumesja til margra ára, Karl Steinar Guðnason,
var upphafsmaður að henni, og barðist ámm saman fyrir henni á Alþingi. Hver
ríkisstjómin á fætur annarri lét hins vegar málið daga uppi, þar til núverandi
landsstjóm ákvað fyrir nokkmm missemm að hrinda málinu úr vör, enda ljóst
að sérstakir möguleikar skapast fyrir frísvæðið með tilkomu evrópska efna-
hagssvæðisins.
Tillögur utanríkisráðherra að frísvæðinu fela í sér, að erlend fyrirtæki, sem íjár-
festa í frísvæðinu, fá tímabundnar skattaívilnanir, sem ná til ársins 2000.
Samkvæmt þeim mun fyrirtækjunum verða heimilt að afskrifa fjárfestingu á
helmingi styttri tíma en tíðkast; fasteignir verða undanþegnar fasteignasköttum
og byggingargjöldum; sérstakur skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði mun
ekki ná til þeirra, auk þess sem stimpilgjöid af kaupum, sölu og veðsetningu
fasteigna á frísvæðinu verða felld niður.
Erlendis hafa frísvæði af þessu tagi í tengslum við alþjóðlega flugvelli gefist
mjög vel. Skattafríðindin hafa nægt til að laða þangað fyrirtæki, sem vilja í senn
notfæra sér hagstæð ákvæði um skatta innan svæðisins, og jafnframt nýta sér
nálægðina við þjóðbrautina til annarra landa. Aðild fslands að evrópska efna-
hagssvæðinu gerir frísvæðið enn gimilegra í augum fjárfesta utan EES, þar sem
þeir geta gegnum frísvæðið komið framleiðslu sinni á markað í löndum evróp-
ska efnahagssvæðisins á grundvelli sömu tolla og íslendingar njóta innan þess.
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra. Sveitarst jórnarinenn dást að langlundargeði hennar í sameiningarmálum sveitarfélaganna.
Hlutur félagsmálaráðherra í sameiningarmálum rangtúlkaður
Miðstýringartilraunir
aldrei verið stundaðar
-“ogflestir sammála um að sameining sveitarfélaga gangi hratt og vel fyrir
sig segir Sigfús Jémsson formaður sameiningarnefndar
„Það er ekki rétt að nefnd um samein-
ingu snúist gegn miðstýringartilraunum
ráðuneytisins, því slíkar tilraunir hafa
ekki verið til staðar. Þvert á móti hafa öll
skref í þessu máli verið stigin í nánu sam-
ráði við Samband íslenskra sveitarfé-
laga“, sagði Sigfús Jónsson formaður
sveitarfélaganefndar, þegar hann var
spurður um ásakanir Vikublaðsins og al-
þýðubandalagsmanna um að fulltrúaráð
sambandsins hefði snúist gegn tillögum
félagsmálaráðherra í málinu.
„Þegar nefnd um skiptingu landsins í
sveitarfélög var sett á fót í ársbyrjun 1991
var það gert í samstarfi við sambandið sem
átti einn fulltrúa í nefndinni. Þegar nefndin
skilaði af sér haustið 1991 og lagði fram
þrjár mismunandi leiðir var það fulltrúaráð
Sambands íslenskra sveitarfélaga sem valdi
þá leið sem nú er stefnt að“, sagði Sigfús.
Þessi leið felst í sameiningu allra sveitarfé-
laga innan héraðs eða sýslu. 1 því felst að
sveitarfélögin nái yfir mjög stór svæði og
aðeins í undantekningartilvikum yrðu þau
með færri en 1.000 íbúa. Samkvæmt þessari
tillögu yrðu sveitarfélögin í landinu 30- 35.
„Eg skil reyndar ekki í þessum árásum
Vikublaðsins á Jóhönnu því hún féllst á nið-
urstöðu fulitrúaráðsins og skipaði nýja
nefnd, sveitarfélaganefnd, í ársbyrjun 1992
og átti sambandið þrjá fulltrúa í henni.
Nefndin skilaði áfangaskýrslu s.l. haust þar
sem fyrmefnd leið var útfærð. Þá kom f ljós
að sveitarsljómarmenn voru ekki tilbúnir að
stíga svo stórt skref nema á Vestfjörðum.
Einnig skilaði nefndin mjög athyglisverð-
um hugmyndum um reynslusveitarfélög og
hefur sú hugmynd hlotið góðar undirtektir.
Síðan má geta þess að fulltrúaráðið ályktaði
um áfangaskýrsluna í lok febrúar s.l. og þar
segir m.a. að fulltrúaráðið telur brýnt að
sameining sveitarfélaga gangi hratt og vel
þannig að sveitarfélögin geti sem fyrst tekið
við auknum verkefnum frá ríkinu“. Það er
hins vegar alveg ljóst að fulltrúaráðið er
ekki tilbúið að stíga eins stór skref í samein-
ingarmálum nú og haustið 1991. Ástæðan
er sú að andstæðingar sameiningar risu upp
gegn samþykkt fulltrúaráðsins".
En á ráðherrann einhverja sök á því
hvernig komið er?
„Það að kenna félagsmálaráðherra um
hvaða stefnu málið hefur tekið er ósann-
gjamt, því hún hefur f einu og öllu farið eft-
ir þeim ályktunum sem Samband íslenskra
sveitarfélaga hefur látið frá sér fara um mál-
ið. Sannleikurinn er sá að margir af forystu-
mönnum sveitarfélaganna í landinu skilja
nauðsyn sameiningar og treysta sér ekki til
átaka við andstæðinga sameiningar sem eru
aðallega úr fámennum sveitahreppum.
Guðmundur Ingólfsson, gamalreyndur
sveitarstjómarmaður af Vestfjörðum, sagði
nýlega í sjónvarpsviðtali að langlundargeð
félagsmálaráðherra gagnvart sveitarstjóm-
armönnum væri orðið mikið.
Þetta er frekar sannleikurinn í málinu en
það að félagsmálaráðherra hafi beitt sér fyr-
ir miðstýringartilraunum", sagði Sigfús
Jónsson formaður Sveitarfélaganefndar að
lokum.
„Það að kenna félagsmálaráðherra um hvaða stefnu mál-
ið hefur tekið er ósanngjarnt, því hún hefur í einu og öllu
farið eftirþeim ályktunum sem Samhand íslenskra sveitar-
félaga hefur látiðfrá sérfara um málið.
13» ***** ‘93
Hér á landi hafa innlendir framleiðendur gjaman haft fyrirvara gagnvart
frísvæði á Keflavíkurflugvelli og talið það skapa óeðlilegt misræmi milli þess
og annarra fyrirtækja á íslandi. Tillögur utanríkisráðherra taka hins vegar mið
af þessu, og opna íslenskum fyrirtækjum leið til að nýta sér frísvæðið, að því
tilskildu að þau uppfylli skilyrði, sem gerð verða til fjárfesta á svæðinu.
Vonandi mun það greiða leið íslenskra útflytjenda til að koma vörum sínum á
erlenda markaði með sem minnstum tilkostnaði, og verða þannig enn frekar til
að efla atvinnu í landinu.
Atburðir dagsins
1369 Pétur grimmi, konungur Kastilíu og León á Spáni, myrtur af
bróður sínum, Hinriki.
1752 Fyrsta dagblað Kanada, Halifax Gazette, kemur út. 1918
Stóra Berta, risavaxin fallbyssa Þjóðverja hefur skothríð á Parísar-
borg úr 100 kílómetra fjarlægð.
1933 Lög sem þýska þingið samþykkir gera Hitler unnt að stjóma
samkvæmt tilskipunum.
ensku biskupakirkjunnar í 400 ár fer fram í Rómaborg.
Afmælisdagar
Joan Crawlörd, 1908, Amerísk kvikmyndaleikkona, fræg fyrir
góðan leik í fjölda sígildra kvikmynda.
Akira Kurosawa, 1910, Japanskur kvikmyndaleikstjóri, í röð
hinna fremstu í heiminum.
Ríkisstjómin lofaði í upphafi vetrar að tekið yrði með sérstökum hætti á hinu
mikla atvinnuleysi á Suðumesjum. Þróunarsjóðurinn, sem fyrr er nefndur og
frísvæðið á Keflavíkurtlugvelli sýna svart á hvítu, að hún hyggst láta orðin tala.
1962 Fyrsta kaupskipinu, sem knúið er kjamorku, The Savannah,
hleypt af stokkunum í New Jersey, Bandaríkjunum.
1966 Fyrsti fundurinn milli æðstu manna kaþólsku kirkjunnar og
Donald Campbell, 1921 Breskur heimsmethafi í hraðakstri.
Sir Roger Bannister, 1929 Frægur frjálsíþróttamaður, sem hljóp
eina enska mflu fyrstur manna undir 4 mínútum.