Alþýðublaðið - 31.03.1993, Blaðsíða 1
TVÖFALDUR1. vinningur
Miövikudagur 31. mars 1993
50. TÖLUBLAÐ - 74. ÁRGANGUR
Atvinnuleysisbœtur ekki bundnar við aðild að stéttaifélagi
Svavar stal mál-
inu frá Sighvati
Hluti bœnda vinni við gróðurvernd
og uppgrœðslu
Skégrækt í
stað ofbeitar
Frumvarpið hefur verið lengi í undirbúningi en innihaldi þess lekið til Svavars Gests-
sonar sem hirti rúsínurnar úr deiginu og lagðifram hliðstætt frumvarp sem sitt eigið
Frumvarp landbúnaðarráðherra gerir
bœndumfœrt að hætta sauðfjárrœkt ogfá
laun fyrir gróðurvernd
Mjög lágkúruleg vinnubrögð
tíðkast nú meðal þingmanna Al-
þýðubandalagsins en grunur
leikur á að aðili, sem hafður var
með í ráðum við gerð frumvarps
um atvinnuleysistryggingar, hafi
afhent alþýðubandalagsmönnum
trúnaðarskjöl heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra. Málið er
þeim mun alvarlega í ljósi þess að
einn af þingmönnum Alþýðu-
bandalagsins, Svavar Gestsson,
lagði fram nánast hliðstætt frum-
varp og kynnti það sem sitt eigið á
blaðamannafundi í síðustu viku.
Einn af þingmönnum Alþýðu-
flokksins segir að það sé alveg
greinilegt á atburðarásinni að Svav-
ar hafi kíkt yfir öxlina á nefndar-
mönnunum sem sömdu frumvarpið
og hirt allar rúsínumar úr deiginu
þegar þeir litu undan. Svavar mun
einnig hafa bætt inn í „sitt“ frum-
varp atriðum sem fulltrúar ASÍ og
VSI í nefndinni treystu sér ekki til
að leggja til við tryggingamálaráð-
herra. Þingmenn sem blaðið ræddi
við töldu að vinnubrögð þau sem
Svavar Gestsson hafi sýnt í þessu
máli væru fyrir neðan virðingu Al-
þingis, enda langt síðan Sighvatur
Björgvinsson tilkynnti að hann
væri að vinna að endurskoðun á at-
vinnuleysisbótakerfinu.
Stærsta breytingin sem verður á
lögum um atvinnuleysistrygginga-
sjóð er sú að réttur til bóta úr sjóðn-
um verður ekki lengur bundinn við
aðild að stéttarfélagi. Þetta þýðir
m.a. að sjálfstæðir atvinnurekendur
sem hafa skilað tryggingargjaldi af
reiknuðu endurgjaldi síðustu tólf
mánuði áður en þeir hætta starfsemi
öðlast rétt til atvinnuleysisbóta að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Þetta þýðir í raun að öll vinna nema
„svört“ vinna verður bótaskyld.
Sjá nánar á bls. 2.
Stjómarflokkamir hafa nú tryggt
meirihluta fyrir frumvarpi sem
heimilar landbúnaðarráðherra að
semja við Stéttarsamband bænda
um að ákveðinn hluti bænda fái
laun fyrir að snúa sér að gróður-
vemd og uppgræðslu í stað sauð-
fjárræktar. Ef þetta gengur eftir þá
verða sauðfjárbændur á skilgreind-
um svæðum, þar sem talin er þörf á
sérstökum gróðurvemdar- og land-
græðsluaðgerðum, leystir undan
þeirri kvöð að framleiða a.m.k. 80
prósent upp í greiðslumark sitt til
þess að eiga rétt á fullum bein-
greiðslum frá ríkinu.
Þetta þýðir að bændur, t.d. í Mý-
vatnssveit og á vissum svæðum á
Austurlandi, hafa möguleika á að
hætta eða minnka lambakjötsfram-
leiðslu, en snúa sér þess í stað að
skógrækt og öðmm uppgræðslu-
störfum án þess að laun þeirra
skerðist. Þetta þykir mjög skynsam-
leg leið þar sem mikil offramleiðsla
hefur verið á lambakjöti og sauð-
kindin hefur ógnað gróðri á stórum
og viðkvæmum svæðum vegna of-
beitar.
Valkostur sem þessi verður ekki
eingöngu bundinn við ákveðin við-
kvæm gróðursvæði, heldur verður
einnig metið hvort skynsamlegt sé
að gefa rosknum bændum og ör-
yrkjum kost á að velja á milli skóg-
ræktar og sauðfjárræktar. Einnig
verður athugað hvort ekki sé rétt að
gefa öllum bændum kost á að
minnka við sig í hefðbundnum
framleiðslugreinum án tillits til
svæða og aldurs.
Skugg-
arnir
styttast
Um leið og sólin hækkar á lofti
léttist brúnin á mörgum og skugg-
amir styttast. Það er þó vissara að
hafa regnhlífina með sér þegar farið
er út að skokka í vorblíðunni sem
verið hefur nú hina síðustu daga því
henni hefur fylgt nokkur úrkoma.
A-mynd/E.Ól
Ovissa umfrumvarp um fjöldatakmarkanir í HI
Takmarkanir í hjúkrunarfræði strax í haust
- en samt er mikill skortur á hjúkrunarfrœðingum í vinnu á sjúkrahúsum um allt land
Stjórnendur Háskóla íslands
hafa nú þegar ákveðið að beita
fjöldatakmörkunum við innritun
stúdenta við námsbraut í hjúkr-
unarfræði næsta haust. Heimild
til þess að beita slíkum takmörk-
unum fæst ef frumvarp til breyt-
inga á lögum um Háskóla Islands,
sem Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra hyggst leggja fyrir,
fæst samþykkt á Alþingi.
Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins eru skipuleggjendur
kennslumála og stjómendur náms-
brautar í hjúkmnarfræði sammála
um að beita fjöldatakmörkunum við
innritun nemenda á fyrsta námsári
þegar næsta haust. Astæðan mun
vera aðstöðuleysi við verklega
kennslu, en hún fer fyrst og fremst
fram á sjúkrahúsunum í Reykjavík.
Ef gripið verður til þessara takmark-
ana þá verður aðeins 60 stúdentum
gefinn kostur á að hefja nám í hjúkr-
unarfræði næsta haust, en nú stunda
80 nemendur nám á fyrsta ári í
þessu fagi. Á undanfömum áram
hafa á bilinu 80 til 120 stúdentar
hafið nám í hjúkranarfræði við Há-
skóla íslands.
Fjöldatakmörkunum hefur verið
beitt í flestum öðram heilbrigðis-
greinum í háskólanum með undan-
þágu frá núgildandi lögum. Þetta
hefur hins vegar ekki verið gert í
hjúkranarfræði, m.a. vegna þess að
mikil eftirspum er og hefur verið
eftir hjúkranarfræðingum á vinnu-
markaðnum. I því atvinnuleysi sem
nú ríkir hefur ekkert lát verið á aug-
lýsingum eftir slíku vinnuafli og í
Morgunblaðinu um helgina var aug-
lýst eftir a.m.k. 20 hjúkranarfræð-
ingum.
Ekki er víst að þessar takmarkan-
ir séu algjörlega háðar nýja fram-
varpinu um Háskóla íslands vegna
áðumefndra undanþáguákvæða.
Nokkur óvissa ríkir um það hvort
frumvarp menntamálaráðherra um
fjöldatakmarkanir fæst samþykkt í
þingflokkum stjómarflokkanna. Al-
þýðuflokkurinn fjallaði um málið
seint í gær, en í dag er lokadagur
vegna afgreiðslu þingflokka á
stjómarffumvörpumsem koma eiga
fram og afgreiðast á yfirstandandi
þingi.